Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1986, Síða 22
22
DV. MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 1986.
GRUNNSKÓLINN Á ÍSAFIRÐI
ÁHUGASAMIR KENNARAR!
Éf þið eruð að leita ykkur að skemmtilegum vinnufé-
lögum og áhugaverðum skóla þá ættuð þið að leita
upplýsinga hjá okkur um grunnskólann á Isafirði.
Við þurfum kennara í almenna bekkjarkennslu, mynd-
mennt, smíðar, tónmennt, heimilisfræði, tungumál,
raungreinar og í sérkennslu. Ennfremur viljum við ráða
skólasafnvörð.
Flutningur til Isafjarðar verður ykkur að kostnaðar-
lausu og að sjálfsögðu fáið þið íbúð fyrir sanngjarna
leigu. Allar nánari upplýsingar gefur Jón Baldvin
Hannesson skólastjóri í símum 94-3044 (vs.) og
94-4294 (hs.).
VILT ÞÚ VERÐA
SKIPTIIMEMI?
í rúmlega 20 löndum í Afríku,
Asíu, Eyjaálfu, Mið- og Suður-Ameríku, býð-
ur skiptinemum upp á ársdvöl í löndum
sínum.
Brottför verður frá janúar til mars 1987 og
komið heim aftur tæpu ári síðar.
Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér málið
nánar eru hvattir til að hafa strax samband við
á íslandi
- alþjóbleg fræðsla og samskipti -
Hverfisgötu 39, P.O. Box 753, 121 Reykjavík, sími 91-
25450.
Heimsmeistarar Italíu.
® ÁSTUnD ©
SPORTVÖRUVERSLUN
mmmmm
merki
heimsmeistaranna
Teg. Zico grasskór
stærðir 3 '/2 - 10'/2.
Verð kr. 3.130,-
Malarskór
stærðir 3'/2 - 10'/2
Verð kr. 2.980,*
Háaleitisbraut 68
Sími 8-42-40 •CT'
Austurver
^gr’ij-mrrnL.rmm^ rvrmmrrrr-
Iþróttir Iþróttir Iþróttir
IR og Leiftur með
forystu í 3. deild
unnu bæði sína leiki um helgina
ÍR-ingar eru enn taplausir í A-riðli
3. deildar í knattspymu. Um helgina
vann ÍR lið ÍK, 0-2 en leikið var i Kópa-
vogi. Karl Þorgeirsson skoraði fyrra
mark ÍR úr vitaspymu en þjálfari ÍR,
Heimir Karlsson, áður leikmaður með
Vikingi og Val, sá síðan um að skora
síðara markið og tryggja sigur ÍR,
annan sigur liðsins í A-riðlinum í
tveimur leikjum.
Sigur ÍR var ekki sanngjam þrátt
fyrir mörkin tvö. Leikmenn ÍK fengu
góð marktækifæri í leiknum sem þeim
tókst ekki að nýta.
• Reynir, Sandgerði, fékk nágrann-
ana frá Grindavík í heimsókn á
laugardag og sigraði með einu marki
gegn engu. Það var Ómar Bjömsson
sem skoraði sigurmark leiksins með
skalla. Leikmenn Reynis fengu mörg
marktækifæri í þessum leik og mörkin
hefðu getað orðið mun fleiri.
• Fylkismenn úr Árbænum léku gegn
HV á útivelli en tókst engu að síður
að sigra með einu marki gegn engu.
Það var Óskar Theodórsson sem skor-
aði sigurmarkið og tryggði Fylki
dýrmætan sigur.
Þjálfarinn skoraöi tvö
Óskar Ingimundarson, fyrrum leik-
maður með KR í 1. deild, þjálfari
Leifturs frá Ólafsfirði, var mikið í
sviðsljósinu þegar Leiftur vann sinn
annan sigur í röð í B-riðli 3. deildar.
Leiftur sigraði Val frá Reyðarfirði á
laugardag með fjórum mörkum gegn
engu og skoraði Óskar tvö markanna.
Hin mörkin skoruðu bræðumir Sigur-
bjöm og Hafsteinn Jakobssynir.
Sigurbjöm skoraði úr vítaspymu.
• Leikmenn Magna frá Grenivík
bmgðu sér til Fáskrúðsfjarðar og fóm
þaðan með þrjú stig. Lokatölur 1-2.
Einar Bjömsson skoraði fyrir heima-
menn en mörk Magna skomðu þeir
Hringur Hreinsson og Sverrir Heimis-
son.
• Fjögur mörk voru skoruð þegar
Tindastóll lék gegn Reyni Árskógs-
strönd á Sauðárkróki. Þegar dómar-
inn flautaði til leiksloka hafði hvort
lið skorað tvö mörk og vom heima-
• Óskar Ingimundarson, þjálfari
Leifturs frá Ólafsfirði, skoraði tvö
mörk um helgina og leiftur er i efsta
sæti b-riðils 3. deildar.
menn óánægðir með hlutskipti sitt
enda áttu þeir mun meira í leiknum.
Þeir Eyjólfur Sverrisson og Guð-
brandur Guðbrandsson skoraðu
mörkin fyrir Tindastól en fyrir Reyni
skomðu þeir Svanlaugur Þorsteinsson
og Tómas Karlsson.
• Á föstudagskvöld léku Þróttur,
Neskaupstað, og Austri frá Eskifirði í
Alþýðubandalagsvíginu mikla, Nes-
kaupstað. Hvort lið skoraði eitt mark
í leiknum. Guðbjartur Magnússon
skoraði mark heimamanna en Bjöm
G. Ævarsson skoraði mark Austra.
• Staðan í riðlum 3. deildar er nú
þannig:
A-riðill:
ÍR..............2 2 0 0 4-0 6
Reynir, S.......2 1 1 0 2-1 4
Stjaman.........1 1 0 0 9-0 3
Fylkir..........2 10 1 1-1 3
ÍK..............2 10 1 1-2 3
Ármann..........1 0 10 1-1 1
Grindavík.......1 0 0 1 0-3 0
HV..............2 0 0 2 0-10 0
B-riðill:
Leiftur.........2 2 0 0 6-0 6
Þróttur, N.....2 110 5-1 4
Magni...........1 1 0 0 2-1 3
Austri..........1 0 10 1-1 1
Tindastóll......1 0 10 2-2 1
Reynir, Á.......2 0 1 1 2-4 1
Valur, Rf......1 0 0 10-40
Leiknir, F......2 0 0 2 1-6 0
-SK
Leik frestað hjá Tjömesi
vegna framboðs eins leikmanna
- sex leikjum af fimmtán frestað í 4. deild
Fimmtán leikir vom fyrirhugaðir í
4. deild íslandsmótsins i knattspymu
um helgina en einungis niu þeirra fóra
fram. Fjóram leikjum var frestað og
tvö lið mættu ekki til leiks einhverra
hluta vegna.
Kosningamar settu strik í reikning-
inn hjá liði Tjömess í F-riðli því leik
liðsins gegn Æskunni var frestað
vegna þess að einn leikmanna liðsins
var í framboði á Húsavík. Skondin
ástæða það. Annars urðu úrslit þessi
um helgina:
A-riðill:
Haukar-Grundarfjörður...........fr.
Augnablik-Snæfell 3-0
Skotf. Rvík.-Þór, Þ 2-1
B-riðiU:
Stokkseyri-Hveragerði 1-3
Víkingur, Ól.-Víkveiji
C-riðill:
Leiknir R - Árvakur 3-3
Hafr>ir-Kyfpllingur 5-1
D-riðill
npisilirm-Rpvnir. Hn fr.
Stefnir-Hörður Hörður mætti ekki
E-riðill:
Vaskur-Höfðstrendingur 1-0
Hvöt-Kormákur
F-riðill:
Æskan-Tjömes.....................fr.
G-riðill:
Höttur-Súlan................1....3—0
Sindri-Huginn...................3-1
Hrafnkell-Neisti.........i.......1-1
• Guðjón Guðjónsson skoraði þrjú
mörk fyrir Hafnir gegn Eyfellingi og
Hermann Jónsson tvö. Vaskur átti f
erfiðleikum með að skora mörk gegn
Höfðstrendingi þrátt fyrir mýmörg
tækifæri og fjölda sláar- og stangar-
skota. Valdimar Júlíusson skoraði
sigurmarkið.
-SK
„Alveg dúndurbyrju!i“
- sagði Gústaf Bjömsson, þjálfari KS sem vann Þrótt 2-3
„Ég er virkilega ánægður með mitt
lið. Það kom í ljós í þessum leik að það
er mikill karakter í liðinu sem sést
best á því að við voram tvívegis marki
undir en gáfumst ekki upp. Ég er yfir
mig ánægður með þessa byrjun hjá
okkur, þetta er alveg dúndurbyijun
og samt vantar fjóra leikmenn í liðið
sem voru í sextán manna hópnum í
fyrra. Ég er því mjög bjartsýnn á fram-
haldið,“ sagði Gústaf Björnsson, þjálf-
ari og leikmaður KS frá Siglufírði, í
samtali við DV eftir að KS hafði gert
sér lítið fyrir og sigrað Þrótt 2-3 í leik
liðanna í 2. deild íslandsmótsins á Val-
bjarnarvelli á föstudagskvöld.
Þróttarar náðu forystunni á 26. mín-
útu með marki frá Nikulási Jónssyni
og þannig var staðan í leikhléi. Gústaf
Bjömsson jafnaði fyrir KS á 14. mín-
útu með marki af stuttu færi en sjö
mínútum síðar komst Þróttur enn yfir
með marki sem Sigurður Hallvarðsson
skoraði af stuttu færi eftir mistök
markvarðar KS og góðan undirbúning
Nikulósar Jónssonar. Og fimm mínút-
um síðar var þjálfari KS, Gústaf
Bjömsson, enn á ferðinni og skoraði
af stuttu færi. Einn leikmanna hugðist
skjóta af löngu færi, skotið var mis-
• Gústaf Bjömsson, þjálfari KS,
hefur verið iðinn við að skora fyrir
lið sitt. Hann skoraði tvö mörk gegn
Þróffi og átfi mjög góðan leik.
heppnað og knötturinn barst til
Gústafe sem stóð rétt utan markteigs
og átti ekki í erfiðleikum með að
skora.
Sigurmarkið kom síðan þegar níu
mínútur vom til leiksloka. Gústaf
Bjömsson tók þá hornspymu og gaf
knöttinn rakleitt á koll Harðar Júlíus-
sonar sem skallaði mjög laglega í
mark Þróttar án þess að Guðmundur
Erlingsson markvörður gæti komið
við vömum.
Það sem fyrst og fremst skipti sköp-
um í þessum leik var að Siglfirðing-
amir, með Gústaf Björnsson þjálíara
fremstan í flokki, vom staðráðnir í að
sigra en ekki Þróttarar og því fór sem
fór. Lið Þróttar má muna sinn fífil
fegri og greinilega er mikið að hjó lið-
inu. Leikur liðsins gegn KS var hvorki
fugl né fiskur og verða Þróttarar að
taka sig verulega saman í andlitinu
ef þeir ætla að halda sæti sínu í deild-
inni, hvað þá að komast upp í 1.
deildina. -SK.