Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1986, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1986, Blaðsíða 22
22 DV. MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 1986. GRUNNSKÓLINN Á ÍSAFIRÐI ÁHUGASAMIR KENNARAR! Éf þið eruð að leita ykkur að skemmtilegum vinnufé- lögum og áhugaverðum skóla þá ættuð þið að leita upplýsinga hjá okkur um grunnskólann á Isafirði. Við þurfum kennara í almenna bekkjarkennslu, mynd- mennt, smíðar, tónmennt, heimilisfræði, tungumál, raungreinar og í sérkennslu. Ennfremur viljum við ráða skólasafnvörð. Flutningur til Isafjarðar verður ykkur að kostnaðar- lausu og að sjálfsögðu fáið þið íbúð fyrir sanngjarna leigu. Allar nánari upplýsingar gefur Jón Baldvin Hannesson skólastjóri í símum 94-3044 (vs.) og 94-4294 (hs.). VILT ÞÚ VERÐA SKIPTIIMEMI? í rúmlega 20 löndum í Afríku, Asíu, Eyjaálfu, Mið- og Suður-Ameríku, býð- ur skiptinemum upp á ársdvöl í löndum sínum. Brottför verður frá janúar til mars 1987 og komið heim aftur tæpu ári síðar. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér málið nánar eru hvattir til að hafa strax samband við á íslandi - alþjóbleg fræðsla og samskipti - Hverfisgötu 39, P.O. Box 753, 121 Reykjavík, sími 91- 25450. Heimsmeistarar Italíu. ® ÁSTUnD © SPORTVÖRUVERSLUN mmmmm merki heimsmeistaranna Teg. Zico grasskór stærðir 3 '/2 - 10'/2. Verð kr. 3.130,- Malarskór stærðir 3'/2 - 10'/2 Verð kr. 2.980,* Háaleitisbraut 68 Sími 8-42-40 •CT' Austurver ^gr’ij-mrrnL.rmm^ rvrmmrrrr- Iþróttir Iþróttir Iþróttir IR og Leiftur með forystu í 3. deild unnu bæði sína leiki um helgina ÍR-ingar eru enn taplausir í A-riðli 3. deildar í knattspymu. Um helgina vann ÍR lið ÍK, 0-2 en leikið var i Kópa- vogi. Karl Þorgeirsson skoraði fyrra mark ÍR úr vitaspymu en þjálfari ÍR, Heimir Karlsson, áður leikmaður með Vikingi og Val, sá síðan um að skora síðara markið og tryggja sigur ÍR, annan sigur liðsins í A-riðlinum í tveimur leikjum. Sigur ÍR var ekki sanngjam þrátt fyrir mörkin tvö. Leikmenn ÍK fengu góð marktækifæri í leiknum sem þeim tókst ekki að nýta. • Reynir, Sandgerði, fékk nágrann- ana frá Grindavík í heimsókn á laugardag og sigraði með einu marki gegn engu. Það var Ómar Bjömsson sem skoraði sigurmark leiksins með skalla. Leikmenn Reynis fengu mörg marktækifæri í þessum leik og mörkin hefðu getað orðið mun fleiri. • Fylkismenn úr Árbænum léku gegn HV á útivelli en tókst engu að síður að sigra með einu marki gegn engu. Það var Óskar Theodórsson sem skor- aði sigurmarkið og tryggði Fylki dýrmætan sigur. Þjálfarinn skoraöi tvö Óskar Ingimundarson, fyrrum leik- maður með KR í 1. deild, þjálfari Leifturs frá Ólafsfirði, var mikið í sviðsljósinu þegar Leiftur vann sinn annan sigur í röð í B-riðli 3. deildar. Leiftur sigraði Val frá Reyðarfirði á laugardag með fjórum mörkum gegn engu og skoraði Óskar tvö markanna. Hin mörkin skoruðu bræðumir Sigur- bjöm og Hafsteinn Jakobssynir. Sigurbjöm skoraði úr vítaspymu. • Leikmenn Magna frá Grenivík bmgðu sér til Fáskrúðsfjarðar og fóm þaðan með þrjú stig. Lokatölur 1-2. Einar Bjömsson skoraði fyrir heima- menn en mörk Magna skomðu þeir Hringur Hreinsson og Sverrir Heimis- son. • Fjögur mörk voru skoruð þegar Tindastóll lék gegn Reyni Árskógs- strönd á Sauðárkróki. Þegar dómar- inn flautaði til leiksloka hafði hvort lið skorað tvö mörk og vom heima- • Óskar Ingimundarson, þjálfari Leifturs frá Ólafsfirði, skoraði tvö mörk um helgina og leiftur er i efsta sæti b-riðils 3. deildar. menn óánægðir með hlutskipti sitt enda áttu þeir mun meira í leiknum. Þeir Eyjólfur Sverrisson og Guð- brandur Guðbrandsson skoraðu mörkin fyrir Tindastól en fyrir Reyni skomðu þeir Svanlaugur Þorsteinsson og Tómas Karlsson. • Á föstudagskvöld léku Þróttur, Neskaupstað, og Austri frá Eskifirði í Alþýðubandalagsvíginu mikla, Nes- kaupstað. Hvort lið skoraði eitt mark í leiknum. Guðbjartur Magnússon skoraði mark heimamanna en Bjöm G. Ævarsson skoraði mark Austra. • Staðan í riðlum 3. deildar er nú þannig: A-riðill: ÍR..............2 2 0 0 4-0 6 Reynir, S.......2 1 1 0 2-1 4 Stjaman.........1 1 0 0 9-0 3 Fylkir..........2 10 1 1-1 3 ÍK..............2 10 1 1-2 3 Ármann..........1 0 10 1-1 1 Grindavík.......1 0 0 1 0-3 0 HV..............2 0 0 2 0-10 0 B-riðill: Leiftur.........2 2 0 0 6-0 6 Þróttur, N.....2 110 5-1 4 Magni...........1 1 0 0 2-1 3 Austri..........1 0 10 1-1 1 Tindastóll......1 0 10 2-2 1 Reynir, Á.......2 0 1 1 2-4 1 Valur, Rf......1 0 0 10-40 Leiknir, F......2 0 0 2 1-6 0 -SK Leik frestað hjá Tjömesi vegna framboðs eins leikmanna - sex leikjum af fimmtán frestað í 4. deild Fimmtán leikir vom fyrirhugaðir í 4. deild íslandsmótsins i knattspymu um helgina en einungis niu þeirra fóra fram. Fjóram leikjum var frestað og tvö lið mættu ekki til leiks einhverra hluta vegna. Kosningamar settu strik í reikning- inn hjá liði Tjömess í F-riðli því leik liðsins gegn Æskunni var frestað vegna þess að einn leikmanna liðsins var í framboði á Húsavík. Skondin ástæða það. Annars urðu úrslit þessi um helgina: A-riðill: Haukar-Grundarfjörður...........fr. Augnablik-Snæfell 3-0 Skotf. Rvík.-Þór, Þ 2-1 B-riðiU: Stokkseyri-Hveragerði 1-3 Víkingur, Ól.-Víkveiji C-riðill: Leiknir R - Árvakur 3-3 Hafr>ir-Kyfpllingur 5-1 D-riðill npisilirm-Rpvnir. Hn fr. Stefnir-Hörður Hörður mætti ekki E-riðill: Vaskur-Höfðstrendingur 1-0 Hvöt-Kormákur F-riðill: Æskan-Tjömes.....................fr. G-riðill: Höttur-Súlan................1....3—0 Sindri-Huginn...................3-1 Hrafnkell-Neisti.........i.......1-1 • Guðjón Guðjónsson skoraði þrjú mörk fyrir Hafnir gegn Eyfellingi og Hermann Jónsson tvö. Vaskur átti f erfiðleikum með að skora mörk gegn Höfðstrendingi þrátt fyrir mýmörg tækifæri og fjölda sláar- og stangar- skota. Valdimar Júlíusson skoraði sigurmarkið. -SK „Alveg dúndurbyrju!i“ - sagði Gústaf Bjömsson, þjálfari KS sem vann Þrótt 2-3 „Ég er virkilega ánægður með mitt lið. Það kom í ljós í þessum leik að það er mikill karakter í liðinu sem sést best á því að við voram tvívegis marki undir en gáfumst ekki upp. Ég er yfir mig ánægður með þessa byrjun hjá okkur, þetta er alveg dúndurbyijun og samt vantar fjóra leikmenn í liðið sem voru í sextán manna hópnum í fyrra. Ég er því mjög bjartsýnn á fram- haldið,“ sagði Gústaf Björnsson, þjálf- ari og leikmaður KS frá Siglufírði, í samtali við DV eftir að KS hafði gert sér lítið fyrir og sigrað Þrótt 2-3 í leik liðanna í 2. deild íslandsmótsins á Val- bjarnarvelli á föstudagskvöld. Þróttarar náðu forystunni á 26. mín- útu með marki frá Nikulási Jónssyni og þannig var staðan í leikhléi. Gústaf Bjömsson jafnaði fyrir KS á 14. mín- útu með marki af stuttu færi en sjö mínútum síðar komst Þróttur enn yfir með marki sem Sigurður Hallvarðsson skoraði af stuttu færi eftir mistök markvarðar KS og góðan undirbúning Nikulósar Jónssonar. Og fimm mínút- um síðar var þjálfari KS, Gústaf Bjömsson, enn á ferðinni og skoraði af stuttu færi. Einn leikmanna hugðist skjóta af löngu færi, skotið var mis- • Gústaf Bjömsson, þjálfari KS, hefur verið iðinn við að skora fyrir lið sitt. Hann skoraði tvö mörk gegn Þróffi og átfi mjög góðan leik. heppnað og knötturinn barst til Gústafe sem stóð rétt utan markteigs og átti ekki í erfiðleikum með að skora. Sigurmarkið kom síðan þegar níu mínútur vom til leiksloka. Gústaf Bjömsson tók þá hornspymu og gaf knöttinn rakleitt á koll Harðar Júlíus- sonar sem skallaði mjög laglega í mark Þróttar án þess að Guðmundur Erlingsson markvörður gæti komið við vömum. Það sem fyrst og fremst skipti sköp- um í þessum leik var að Siglfirðing- amir, með Gústaf Björnsson þjálíara fremstan í flokki, vom staðráðnir í að sigra en ekki Þróttarar og því fór sem fór. Lið Þróttar má muna sinn fífil fegri og greinilega er mikið að hjó lið- inu. Leikur liðsins gegn KS var hvorki fugl né fiskur og verða Þróttarar að taka sig verulega saman í andlitinu ef þeir ætla að halda sæti sínu í deild- inni, hvað þá að komast upp í 1. deildina. -SK.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.