Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1986, Page 25
DV. MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 1986.
íþróttir íþróttir íþróttir
siliska liðinu en hann var i stööu vinstri
li. Á myndinni stekkur hann upp úr tækl-
itt fyrir harðan varnarleik Spánverjanna
(inu. Símamynd/Reuter
umenn
eppnir
i Spánverja, 1-0
Þetta atvik hleypti miklu íjöri í leikinn
sem liafði verið helst til dauíur fram að
þvi. Brasilíumenn, sem höfðu lítið kom-
ist áleiðis gegn sterkri vöm Spánverja
í íyrri hálfleik, hertu nú allar sóknarað-
gerðir sínar. Þeir uppskám mark á 63.
mínútu og var það læknirinn Sókrates
sem skoraði það. Hann skallaði knöttinn
í markið eftir að sóknarmaðurinn
Careca hafði skotið í þverslána.
Brasiliumonn sýndu það í leiknum að
þeir geta náð langt í keppninni eins og
flestir hafa reyndar spáð þeim. Þó að
Zico léki ekki með höfðu þeir yfirburði
yfir Spánverjana sem vom grófir í vam-
arleik sínum. Það er að vísu sárgrætilegt
fyrir Spánverja að fá ekki dæmt gilt
markið sem þeir skomðu en það hefði
varla verið sanngjamt að þeir heföu náð
þar forystunni.
Það var greinilegt. að Brasilíumenn
ætluðu ekki að brenna sig á því sama
og 1982. Miðvallarleikmenn þeirra nú
em sterkari vamarlega séð heldur en
þeir sem vom í liðinu 1982. Hins vegar
em þeir ekki sömu snillingar í sóknar-
leikmun. Það var ekki fyrr en Sókrates
fór að sýna sitt rétta andlit eftir nmrkið
að glæsisendingar fóm að sjást í brasil-
ísku sókninni.
Frakkarvoru
hætt komnir
sigruðu Kanada naumlega, 1-0
Evrópumeistarar Frakka náðu að-
eins að sigra Kanadamenn, 1-0, í fyrsta
leik sínum á HM í gærkvöldi. Sigur-
mark Frakka kom ekki fyrir en á 79.
mínútu þegar Jean-Pierre Papin náði
að skora með skalla eftir fyrirgjöf
Yannick Stopyra.
Leikur Frakka í gærkvöldi þótti
ekki sannfærandi miðað við að þama
var eitt reynslumesta og besta lið
keppninnar að spila við þjóð sem hing-
að til hefur ekki verið hátt skrifuð í
knattspymuheiminum. Frakkar vom
taugaveiklaðir framan af og gekk þeim
ekkert að komast áleiðis gegn íjöl-
mennri vöm Kanadamanna. Það vom
Kanadamenn sem fengu besta tæki-
færi fyrri hálfleiks þegar markvörður
Frakka, Joel Bats, fór í sannkallaða
skógarferð. Hann reyndi að komast
inn í sendingu Kanadamanna en mis-
tókst. Það var aðeins fyrir slembi-
lukku að Maxime Bossis tókst síðan
að bjarga á línu frá Mike Sweeney.
Þama sluppu Frakkar svo sannarlega
með skrekkinn.
Frakkar sóttu síðan látlaust en
sóknarmönnum þeirra var alveg fyrir-
munað að skora. Sérstaklega var
Papin duglegur við að klúðra mark-
tækifærum og er óvíst að hann haldi
sæti sínu þrátt fyrir markið.
„Tek ofan hatt minn fyrir Kan-
adamönnum"
„Ég get ekki annað en tekið ofan
hatt minn fyiir Kanadamönnum því
barátta þeirra var alveg frábær. Við
fengum svo sannarlega að þjást alveg
fram á síðustu mínútu,“ sagði Henri
Michel, landsliðsþjálfari Frakka, eftir
leikinn. „Það sem kom mér mest á
óvart var að Kanadamenn hugsuðu
ekki bara um vömina. Þeir reyndu
einnig að sækja og áttu góð marktæki-
færi. Ég er ánægður með stigin tvö,
þau em það sem skiptir máli. Ég er
bjartsýnn á árangur okkar hér í
keppnini. Nokkrir leikmanna minna
ern ekki komnir í sitt besta form og
eiga ömgglega eftir að bæta sig,“ sagði
Henri Michel.
Michel Platini, fyrirliði Frakka,
sagði eftir leikinn að hann væri án-
ægður með að hafa unnið leikinn. Það
væru nú 28 ár síðan Frakkland hefði
unnið byrjunarleik sinn í úrslita-
keppni heimsmeistarakeppninnar.
Tony Waiters, þjálfari Kanada-
manna, var ánægður með frammistöðu
sinna manna eftir leikinn. „Við sýnd-
um það gegn einu besta liði í heimi
að við eigum skilið að spila hér í úr-
slitakeppninni.“
-SMJ
Carl Lewis
varð annar
„Þegar ég var búinn að hlaupa sex-
tíu metra var ég farinn að bíða eftir
Lewis en ég sá hann aldrei. Þrátt fyrir
að ég hafi unnið þetta hlaup þá hef ég
náð betra starti en í lok hlaupsins lagði
ég aðaláhersluna á að vinna vel með
höndunum,11 sagði Kanadamaðurinn
Ben Johnson sem um helgina sigraði
Bandaríkjamanninn Carl Lewis í 100
metra hlaupi á „Bmee Jenner Classic"
frjhálsíþróttamótinu sem fram fór i
Kaliforniu.
Johnson náði frábærum tíma, hljóp
á 10,01 sek. en Lewis, sem varð annar
í hlaupinu, fékk tímann 10,18 sek.
Þriðji varð Harvey Grant, USA, á 10,
20 sek. og fjórði Kirk Baptiste, USA,
á 10,26 sek. Hörkukeppni og ekki á
hverjum degi sem hinn snjalli Lewis
tapar 100 metra hlaupi.
Mjög góður árangur
Mjög góður árangur náðist í mörg-
um greinum á mótinu. Carl Lewis
sigraði til að mynda í 200 metra hlaupi
á 20,1 sek. (handtímataka og Evelyn
Ashford, USA, varð sigurvegari í 200
metra hlaupi kvenna á 22,30 sek.
Grace Jackson frá Jamaica varð önn-
ur á 22,39 sek. og Diane Dixon, USA,
þriðja á 22,53 sek.
í míluhlaupi sigraði Bandaríkjamað-
urinn Steve Scott á 3:58,18 mín. Annar
varð Charles Cheruyiot frá Kenýa á
3:58,32 mín. og þriðji Brian Theriot
USA á 3:59,94 mín.
í 800 metra hlaupi karla sigraði Jose
Luis Barbosa frá Brasilíu á mjög góð-
um tíma, 1:45,17 mín. Earl Jones, USA,
varð annar á 1:45,52 mín. og þriðji
Johnny Gray USA á 1:45,94 mín.
í 400 metra grindahlaupi sigraði
Andre Philips, USA, á 47,95 sek. Ann-
ar varð Danny Harris USA á 48,90
sek. og þriðji David Patrick, USA, á
48,99 sek.
í 1500 metra hlaupi kvenna varð Sue
Adison USA sigurvegari á 4:09,95 mín.
en önnur Claudette Grönendahl, USA,
• Carl Lewis varð að láta I minni
pokann fyrir Ben Johnson frá Kanada
í 100 metra hlaupinu..
á 4:10,36 mín. Þriðja í hlaupinu varð
Christine Gregorek, USA, á 4:10,46
mín. -SK
- á eftir Ben Johnson í 100 m hlaupi
33 i
-----------------------!
Glæsilegt úrval
garðhúsgagna á
frábæru verði
ft.AXvn *
- ;
Stóll kr. 2.737, staðgreitt.
Borð kr. 3.927, staðgreitt.
Sólhlíf kr. 3.330, staðgreitt.
Róla kr. 10.355, staðgreitt.
Stóll kr. 2.385, staðgreitt.
Legubekkur kr. 6.600, staðgreitt.
Nýtt!
15% staðgreiðslu-
afsláttur af öllum
húsgögnum og hurðum
Smiðjuvegi 6, Kópavogi símar 45670 — 44544.
Stóll kr. 2.210, staðgreitt.
Sófi kr. 3.725, staðgreitt.
Borð kr. 2.780, staðgreitt.