Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Blaðsíða 2
2 DV. MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 1986. Stunguslys á Borgarspítalanum: Aukin hætta á lifrarbólgu - ekkert eyðnismit Algengara er orðið en áður að starfs- fólk rannsóknardeildar Borgarspítal- ans smitist af lifrarbólgu við störf sín. Þetta kom í ljós við rannsókn, sem gerð var um síðustu áramót, á tíðni og eðli stunguóhappa meðal starfs- fólksins. Meginmarkmið rannsóknar- innar var að kanna hvort starfsfólkið heföi mótefni gegn eyðni, LAV/ HTLV-III, og lifrarbólgu, hepatitis B. Enginn þeirra sem athugaðir voru reyndist vera með mótefni gegn eyðni þrátt fyrir að veruleg aukning hafi orðið á rannsóknum við deildina á sýnum sem gætu verið menguð af eyðni-veirum. Rannsóknin var gerð af læknunum Haraldi Briem og Sigurði Guðmunds- syni, svo og Leifi Franzsyni sérfræð- ingi. Ætlunin er að halda rannsókn- inni áfram og kanna algengi og nýgengi mótefha gegn eyðni og lifrar- bólgu meðal allra starfsmanna Borgarspítalans. Eyðni og lifrarbólga eiga það sameiginlegt að smit berst með sama hætti, það er með blóði. Af þeim 48 starfsmönnum rannsókn- ardeildar sem athugaðir voru reyndust 11 hafa smitast af lifrarbólgu, eða 23%. Er það mun hærri tíðni en gengur og gerist, en að jafhaði hafa 5,6% íslend- ihga smitast af lifrarbólgu. I sambæri- legri rannsókn, sem gerð var á starfsmönnum rannsóknardeildar árið 1979, reyndust 8,1% hafa orðið fyrir smiti og var það ekki hærri tíðni en hjá samanburðarhópi úr þjóðfélaginu. Haraldur Briem, einn þeirra sem að rannsókninni stóðu, sagði í samtali við DV að erfitt væri að skýra þessa aukningu á smiti sem orðið heföi með- al starfsfólksins. Ljóst væri þó að áhættan væri mest hjá þeim starfs- mönnum sem þurfa að vinna með blóð og hugsanlegt væri að fleiri menguð blóðsýni væru í umferð nú en áður, ef til vill vegna þess að fjölgað hefði í ýmsum áhættuhópum, eins og til dæmis í hópi eiturlyfjaneytenda. Lifr- arbólga er mun algengari meðal eiturlyfjaneytenda en annarra. Sagði Haraldur að niðurstöður þess- arar rannsóknar bentu til þess að tímabært væri að bjóða starfsmönnum rannsóknardeildar, og ef til vill ann- arra deilda, upp á bólusetningu gegn lifrarbólgu, en ákvörðun þar að lút- andi verður væntanlega tekin eftir að allir starfsmenn Borgarspítalans hafa verið rannsakaðir. * -EA Concorde-þotur i Keflavik. Concorde þrisvar í sumar Koma hljóðfráu Concorde- þotunnar til íslands er að verða fastur liðiu- á hverju sumri. Þijár Concorde-ferðir eru áætlaðar til Keflavíkurflugvallar í sumar. Fyrsta ferðin var reyndar síðast- liðinn laugardag. Flugvélin kemur næst þriðjudaginn 24. júní og þriðja koman er áætluð 30. ágúst, að sögn Matthíasar Kjartanssonar hjá Ferðaskrifstofunni Úrvali. í bígerð er ferð á jóladag. Eftir lendingu Concorde i Kefla- vík er flogið með farþegana í Flugleiðafokker til Vestmanna- eyja. Fyrirtæki í Bretlandi skipulegg- ur dagsferðir með Concorde, ekki aðeins til íslands heldur einnig til Norður-Finnlands, Egyptalands, Suður-Frakklands og fleiri spenn- andi staða. Farþegar eru einkum breskir eftirlaunaþegar. -KMU Bensín, mjólk og kjötbollur í dós I Grafarvogi er starfrækt nokkuð sérstök bensínstöð. Þar er hægt að kaupa ýmislegt fleira en bensín og olíu. „Hér er hægt að fá það helsta í bílinn; bensin, mjólk, kjötbollur í dós og ýmsar nýlenduvörur. Húsmæð- umar í hverfinu eru himinlifandi yfir þessu, þetta er eina búðin á svæðinu," sagði Helgi Helgason, starfsmaður á bensínstöðinni, í sam- tali við DV. Helgi sagði að leyfi hefði fengist hjá heilbrigðisyfirvöldum til þess að selja ýmsar nýlenduvörur á staðn- um. -KB Nýr stjómmálaflokkur: Vinstri sósíalistar mynda samtök Fólk sem vill nefna sig vinstri sósíal- ista myndaði með sér formleg stjóm- málasamtök á fundi á Hótel Borg á laugardaginn var. Að samtökunum stendur fólk „sem hefur starfað á vinstri kanti stjómmálanna, laustengt flokkum en hefur ekki fundið sér starfsvettvang í þeim samtökum sem fyrir hafa verið“, sagði Bima Þórðar- dóttir í samtali við DV. Margir þeirra sem að stofnun samtaka Vinstri sósíal- ista stóðu hafa áður verið nefndir í sambandi við samtök maóista, trotskí- ista, verkalýðshreyfingu, herstöðva- andstæðinga, Alþýðubandalagið eða kvennahreyfingu. Reiknað er með að félagar í nýju samtökunum geti að vild verið í öðrum flokkum. Á stofn- fundinum var kosin fjögurra mam stjórn sem starfa á til haustsins en í er unnið að samningu stefnuskrár stjórninni em: Soffía Sigurðardótt Ragnar Stefánsson, Hjördís Hjarts dóttir og Þóroddur Bjamason. -G Hjúkrunar- vörur sýndar Nú stendur yfir sýning á hjúkr- unar- og lækningatækjum í Hjúkmnarskóla íslands við Ei- ríksgötu. Sýndur er vamingur frá ýmsum fyrirtækjum og innflutn- ingsaðilum, nýjungar sem ekki em í notkun hér á landi, sem og endur- bætm- á fyrri tækjum. Myndin er af einum sýningarbásanna. Öldungadeild í Iðnskólanum Iðnskólinn í Reykjavík mun hefja kennslu í öldungadeild næsta haust. Kennt verður í bókagerðar- greinum og rafeindavirkjun. „Þetta er gert til þess að fjölga hæfu starfsfólki í þessum greinum. Það hefur skort námspláss. Prent- smiðjueigendur hafa til dæmis kvartað yfir því hafa ekki fengið mannskap með menntun. Og stofn- un eins og Póstur og simi hefur margítrekað það að hörgull sé á rafeindavirkjum. Með því að setja á stofh öldungadeild er hægt að fjölga námsplássum án þess að auka stofnkostnað í húsum og búnaði sem er mjög dýr. Einnig er þörf fyrir kcnnslu á kvöldin, fólk langar til þess að læra þetta en kemst ekki frá vinnu á dag- inn,“ sagði lngvar Ásmundsson, skólastjóri Iðnskólans. lngvar sagði að alls heföu borist 77 umsóknir um nám í öldunga- deildinni en sennilega væri ekki hægt að veita nema 50 nemendum inngöngu. Kennt verður eftir sömu námsskrá og í dagskóla en kennslustundir eru helmingi fæi-ri. -KB Mikið var að gera í bensínstöðvarbúðinni þegar Ijósmyndara blaðsins bar þar að. DV-mynd GVA Frá stofnfundinum, Ragnar Stefánsson i ræðustól. Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.