Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Blaðsíða 22
22 DV. MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 1986. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Skagamenn skoruðu fjögur mörk í síðari hálfleik - er þeir unnu stóran sigur á Þór á Skaganum, 5-1 Sigurgeir Sveinsson, DV, Akranesi: Leikur ÍA og Þórs hófst ekki fyrr en klukkutíma eftir settan leiktíma en leikmenn Þórs komu ekki upp á Skaga fyrir kl. 15.00. Veðrið var heldur leiðinlegt til knattspymuiðkunar, strekkingsvindur hom í hom. I raun var furðulegt hve vel leikmönnum gekk að spila boltanum. Skagamenn unnu stóran sigur, 5-1. Fyrsta færi leiksins kom á 11. mín- útu þegar Ólafur Þórðarson komst í gott færi eftir góðan samleik við Hörð Jóhannesson. Skot Harðar hafhaði í hliðametinu. Á 12. mínútu komst Siguróli í gegnum vörn ÍA en skaut framhjá í góðu færi. • Á 14. mínútu kom fyrsta mark leiksins. Júlíus Pétur Ingólfsson átti þá góða sendingu inn fyrir vöm Þórs og Guðbjöm Tryggvason stakk vöm Þórs af og skoraði auðveldlega. Á 21. mínútu áttu Skagamenn gott færi eftir að þeir Guðbjöm, Sveinbjöm og Ólafur höfðu splundrað vöm Þórs. Guðbjöm hitti síðan ekki boltann í þessu besta færi hálfleiksins. • Á 28. mínútu léku sóknarleik- menn Þórs vöm IA grátt. Siguróli gaf þá góða sendingu út á vinstri kant á Jónas Róbertsson sem gaf síðan vel fyrir markið þar sem Kristján Kristj- ánsson kom á fullri ferð og skoraði glæsilega með viðstöðulausu skoti frá vítateig. Staðan því jöfn, 1-1. Tveim mínútum eftir markið fengu Þórsarar annað gott færi en skutu framhjá. Á 37. mínútu komst síðan Valgeir Barðason í gott færi en tókst ekki að skora. Mínútu síðar komst Halldór Áskelsson í dauðafæri hinum megin á vellinum en skot hans sleikti stöngina utanverða. Skömmu síðar komst Halldór síðan aftur í gott færi en Sigurði Láru&syni tókst að bjarga á síðustu stundu. Fyrri hálfleikur var mjög fjömgur og var jafnræði með liðum. Staðan hefði allt eins getað verið 3-3 í hálf- leik ef liðin hefðu nýtt sín bestu færi. Yfirburðir Skagamanna Það var greinilegt að Jim Barron hafði þrumað ærlega yfír hausamótum sinna manna í hálfleik. Það var gjör- breytt Skagalið sem kom inn á völlinn í seinni hálfleik. Liðið hafði mikla yfir- burði í seinni hálfleik og léku þá allir í liðinu mjög vel. • Annað mark Skagamanna kom á 54. mínútu. Sveinbjöm tók þá hom- spymu og Sigurður Lámsson skallaði á markið. Vamarmönnum Þórs tókst að bjarga á línu og hreinsa frá. En ekki nógu langt. Boltinn barst út til Sigurðar B. Jónssonar sem kom á fúllri ferð og þrumaði boltanum í net- ið. Staðan því 2-1 fyrir ÍA. Á 58. mínútu áttu Sktgamenn gott færi eftir góða sendingu Júlíusar inn á Guðbjöm en Balvin náði að verja skot hans. • Á 65. mínútu skoraði Guðbjöm sitt annað mark. Guðjón Þórðarson átti þá eitt af sínum löngu innköstum og Guðbjöm náði að skalla á markið. Balvin náði að snerta boltann en inn fór hann eigi að síður. • Fjórða mark Skagamanna kom á 70. mínútu. Valgeir hafði þá betur í baráttu við vamarmenn Þórs og sendi fyrir markið. Þar kom Sveinbjöm að- vífandi og skoraði með glæsiskoti frá vítateigslínu, óverjandi fyrir Baldvin í marki Þórs. Á 78. mínútu fengu Þórsarar sitt eina færi í hálfleiknum þegar Kristján fékk boltann inn fyrir vöm ÍA en Birkir Kristjánsson varði glæsilega hörku- skot Kristjáns. • Síðasta mark leiksins kom á næst- síðustu mínútu leiksins þegar Valgeir fékk boltann við miðju vallarins. Hann stakk vöm Þórs af og skoraði með góðu skoti frá vítateig. Stórsigur ÍA í þessum leik var sann- gjam. Liðið lék mjög vel í seinni hálfleik og áttu þá allir góðan dag. Bestir vom þó þeir Júlíus, sem lék mjög vel í fyrri hálfleik, og þeir Guð- bjöm, Valgeir og Sveinbjöm sem áttu allir stórleik í seinni hálfleik. Þá var Birkir í markinu mjög traustur. Hjá Þór var Halldór bestur en þeir Nói og Kristján áttu einnig ágætis spretti. Gul spjöld: Nói Bjömsson og Sigur- bjöm Viðarsson hjá Þór. Dómari: Guðmundur Haraldsson. Liðin: ÍA: Birkir Kristjánsson, Guðjón Þórðar- son, Heimir Guðmundsson, Sigurður Lárusson, Sigurður B. Jónsson, Valgeir Barðason, Sveinbjöm Hákonarson, Ólafur Þórðarson, Júlíus P. Ingólfsson, Guðbjöm • Guðbjörn Tryggvason - tvö mörk gegn Þór. Tryggvason og Hörður Jóhannesson (Hörður Rafhsson á 77. mínútu). Þór: Baldvin Guðmundsson, Sigurbjöm Viðarsson, Baldur Guðnason (Einar Ara- son), Nói Bjömsson, Kristján Kristjáns- spn, Siguróli Kristjánsson, _ Halldór Áskelsson, Júlíus Tryggvason, Ámi Stef- ánsson, Jónas Róbertsson og Logi Einars- son (Sigurður Pálsson á 70. mínútu). Maður leiksins: Guðbjöm Tryggvason. Þrjú stig IBK í Garðinum Lánið leikur nú við ÍBK í fyrstu deildinni. Það hefur sigrað í þremur seinustu leikjum sínum með nokkr- um heppnismörkum og er nú búið að krækja sér í níu stig. Þotið á skömmum tíma af botninum og er að gera sig líklegt til að blanda sér i baráttuna um efstu sætin. Skjótt skipast veður í lofti þegar liðin fá öll stigin í hverjum leik. Víðismenn eru áfram með sín 8 stig en hefðu, með því að skjóta ÍBK ref fyrir rass, verið með efri liðum. Þeir urðu að lúta í lægra halui fyrir fjandvmum sínum úr Keflavík á heimavelli í fyrradag með 0-1 í mjög miklum bar- áttuleik en ekki að sama skapi - Keflvíkingar sigruðu Víði 0-1 í Garðinum góðum því mjög sterkur hliðarvindur gerði mönnum erfitt fyrir að ná spili enda áttu þeir oft í erfiðleikum með að hemja knöttinn. Að sjálfsögðu var búist við hörku- leik og hann var það að vísu, - menn léku af miklum krafti allan tímann og gáfu aldrei eftir en aldrei var um neinn fantaskap að ræða sem orð er á gerandi. Keflvíkingar sýndu meira ógnandi sóknarleik en Víðismenn. Sendingar þeirra heppnuðust betur án þess þó að þeim tækist að skapa sér opin tækifæri. Markið fengu þeir á silfurfati á 14. mín. Freyr Sverris- son sendi knöttinn frá hægri hliðar- línu inn í vítateig Víðis. Gísli Heiðarsson markvörður hugðist grípa hann en svo slysalega vildi til að hann missti knöttinn beint fyrir fætur Óla Þórs Magnússonar sem átti auðvelt með að spyrna honum í autt markið, 0-1. Fyrri hálfleikurinn einkenndist af miklum hraða og krafti þar sem • hvorugur komst neitt áleiðis vegna traustrar varnar. Framan af seinni hálfleik höfðu gestirnir undirtökin og þá komust Víðismenn hvorki lönd né strönd. Minnstu munaði þó að Sigurði Björgvinssyni tækist að bæta marki við á 70. mín., þegar hann fékk sendingu frá Óla Þór, sem Víðisvöm- • Freyr Sverrisson er hér á fullri ferð í leik Keflvíkinga og Víðismanna í Garðinum á laugardag en Keflvíking- ar sigruðu 0-1. DV-mynd Hilmar Bárðarson FYRIR PENINGANA KOMDU MEÐ FILMUNA . OG ÞÚ FÆRÐ MYNDIRNAR) SAM- in átti oft í miklu basli með, en rak tána í knöttinn svo skotið geigaði. Guðjón Guðmundsson átti líka gullið færi á að jafna skömmu fyrir lok, eftir misheppnaða spyrnu frá Þor- steini, markverði ÍBK, en Guðjón var of veiðibráður og skaut yfir markið. Skömmu áður hafði Þorsteinn varið, með hárréttu úthlaupi, skot frá Svani Þorsteinssyni og sýndi hvers virði það er að hafa öruggan markvörð. Em þar með upptalin helstu mark- tækifæri liðanna. ÍBK-liðið styrkist með hverjum leik og það virðist vera komið á skrið svo fróðlegt verður að fylgjast með næstu leikjum þess. Vörnin traust með Einar Ásbjöm sem aftasta mann. Gunnar Oddsson kemur vel út sem tengiliður og einnig Skúli Rósantsson. Óli Þór er að komast í sinn gamla ham enda orðinn léttur á sér. Víðismenn vantar sem fyrr marka- skorara. Helga Bentssyni lánast ekki það hlutverk enda vel gætt í hverjum leik! Vörn Víðis er hins vegar örugg með Daníel Einarsson sem besta mann. Dómari var Magnús Jónatansson og dæmdi vel. Maður leiksins. Óli Þór Magnússon. Áhorfendur 810. Lið Víðis: Gísli Heiðarsson, Ólafur Ró- bertsson (Hlíðar Sæmundsson s.h.), Daníel Einarsson, Vilhjálmur Einarsson, Klem- enz Sæmundsson (Svanur Þorsteinsson), Bjöm Vilhelmsson, Mark DufTield, Guð- jón Guðmundsson, Helgi Bentsson, Vil- berg Þorvaldsson, Grétar Einarsson. Lið IBK: Þorsteinn Bjamason, Gísli Grét- arsson, Valþór Sigþórsson, Rúnar Georgs- son (Jóhann Magnússon s.h.), Sigurður Björgvinsson, Gunnar Oddsson, Einar Á. 'Ólafsson, Freyr Sverrisson (Jón Sveinsson s.h.), Óli Þór Magnússon, Sigurjón Sveins- son, Skúli Rósantsson. Gul spjöld: Vilhjálmur Einarsson og Helgi Bentsson, Víði, og Rúnar Georgsson, ÍBK. Maður leiksins: ÖIi Þór Magnússon, ÍBK. emm Fjórir fengu konfektið Fyrir leik KR við Breiðablik í 1. deild knattspymunnar í gær voru fjórir leik- menn KR útnefndir sem menn mánaðarins hjá KR. Þeir sem best þóttu hafa staðið sig i maímánuði voru Ágúst Már Jónsson, Hálfdán Örlygs- son, Loftur Ólafsson og Júlíus Þor- finnsson. Þess má geta að að launum fengu þeir konfektkassa. Það voru fjórir fyrrum leikmenn KR sem afhentu verðlaunin en það er Þýsk-íslenska verslunarfélagið sem gefur þau en fyrirtækið hefur auglýst á búningum vesturbæjarliðsins und- anfarin ár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.