Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Blaðsíða 40
40
DV. MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 1986.
Utvarp_____________Sjónvarp
Andlát
Sigrún Davíðsdóttir cand. mag.:
Skemmtileg mynd
um saltfisklrfið
Ég hafði afskaplega lítinn áhuga
á bíómyndunum sem sýndar voru í
sjónvarpinu um helgina og sá hvor-
uga. Hins vegar sá ég íslensku
heimildarmyndina um saltfiskinn og
fannst hún mjög góð. Ég sá þá fyrri
líka. Þó að ég hafi persónulega aldr-
ei haft neinn sérstakan áhuga á
saltfiskumræðu fannst mér þessi
mynd vera dæmi um lifandi og vel
gerða heimildarmynd. Og ekki spillti
að hún var íslensk, það er yfirleitt
trygging fyrir því að ég horfi á eitt-
hvað í sjónvarpinu.
Ég hef ekkert séð af þessum fót-
bolta um helgina, er lítið spennt fyrir
honum, nema kannski að fylgjast
með úrslitaleikjum sem hafa eitt-
hvað að segja. Jú, ég hef annars
töluvert fylgst með Dönunum í
keppninni, mér er ekki alveg sama
hvemig þeim gengur. íþróttimar
vekja sjaldnast áhuga hjá mér, mér
finnst slæmt að innihald þáttanna
skuli ekki kjmnt fyriríram, stundum
koma nefhilega einstaka liðir sem
ég vildi gjaman horfa á.
Einu verð ég þó að kvarta yfir.
Það er á hvaða tíma bamaefnið er
sýnt. Það er varla hægt að finna
verri tíma en einmitt matartímann
fyrir bamaefnið. Ég hef alltaf verið
að bíða eftir hópi reiðra foreldra til
þess að mótmæla þessu. Það virðist
lítið ætla að verða af því, þetta lýsir
best langlundargeði okkar sjón-
varpsáhorfenda.
Útvarpið var alveg ágætt um helg-
ina, það var góður tónlistarþáttur í
gærkvöldi þar sem leikið var á víólu
og fiðlu. Það em ýmsir góðir þættir
á rás eitt, t.d. þátturinn I loftinu sem
nýlega hóf göngu sína. í heild er ég
mjög ánægð með útvarpið. Sjón-
varpsefiiið þarf ekki að batna mikið
mín vegna. Þá fer ég að eyða of
miklum tíma í það.
-BTH
Hannes Jónsson frá Seyðisfirði lést
að heimili sínu, Glaðheimum 8,
Reykjavík, þann 12. júní.
Guðrún Asa Eiríksdóttir Blaas-
ver
andaðist að kvöldi hins 10. júní á
heimili sínu, Mýrargötu 10, Reykja-
vík. Útför hennar fer fram frá
Fossvogskapellu 18. júní kl. 15. Jarð-
sett verður í Gufuneskirkjugarði.
Helga Laufey Ölafsdóttir frá Jörfa,
Melgerði 15, Reykjavík, lést 12. júní.
Málfriður Gisladóttir, Hringbraut
13, Hafnarfirði, verður jarðsungin
frá Fríkirkjunni í Hafharfirði þann
18. júní kl. 13.30.
Sigrún Hanna Pálsdóttir, Stein-
um,
Grindavík, verður jarðsungin frá
Grindavíkurkirkju í dag, 16. júní, kl.
14. Jarðsett verður í Fossvogskirkju-
garði.
Utför Gíslínu Magnúsdóttur frá
Hnjóti fer fram í Fríkirkjunni í
Reykjavík miðvikudaginn 18. júni
kl. 13.30.
Klúbbur Listahátíðar:
Klúbburinn Danssporið kl.22.30.
Ballett kl. 23.30. Audrian Haw-
kins, bandarísk blökkukona
dansar kl. 24.00. Leikið fyrir dansi
til kl. 03.00.
Skúli Guðmundsson lést 4. júní sl.
Hann fæddist 29. nóvember 1897 á
Kaldrananesi í Kaldrananeshreppi í
Strandasýslu. Foreldrar hans voru
hjónin Guðrún Einarsdóttir og Guð-
mundur Jóhannesson. Skúli tók við
búi að föður sínum látnum árið 1926
á Vífilsmýrum og bjó þar uns hann
brá búi 1943 og settist að á Flateyri,
seinna fluttist hann til Reykjavíkur
og starfaði hjá Olíufélaginu Skelj-
ungi og Eimskipafélagi Islands.
Eftirlifandi eiginkona hans er Mál-
fríður Pálsdóttir. Þau hjónin eignuð-
ust einn son. Útför Skúla verður
gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.
30.
Haraldur S. Thorlacius skipstjóri
lést 9. júní sl. Hann fæddist á Bíldu-
dal 8. ágúst 1902, sonur hjónanna
Sigmundar Þ. Thorlacíus og Guð-
finnu Guðnadóttur. Haraldur stund-
aði sjómennsku lengst framan af
aldri, rak útgerð og einnig síldarsölt-
unarstöð. Á seinni árum starfaði
hann hjá Olíuverslun íslands. Eftir-
lifandi eiginkona hans er Steinunn
Þorsteinsdóttir. Þeim hjónum varð
þriggja barna auðið. Útför Haraldar
verður gerð frá Dómkirkjunni í dag
kl. 15.
Þóra Thorlacius lést 9. júní sl. Hún
fæddist að Fellsmúla í Landsveit 22.
júlí 1898. Hún var dóttir hjónanna
Jóhönnu og Einars Thorlacius. Að
loknu kvennaskólanámi hér i
Reykjavík fór hún til Danmerkur.
Þar lærði hún karlmannafatasaum
og við það vann hún í nokkur ár í
Kaupmannahöfn. Að þessari iðn
sinni vann hún alla tíð en lengst hjá
Andrési Andréssyni, klæðskera hér
í borg. Útför Þóru var gerð frá Foss-
vogskapellu í morgun.
Sveinbjöm Davíðsson, Hringbraut
61, Keflavík, lést í sjúkrahúsi Kefla-
víkur 12. júní.
i
Guðborg L. Sigurgeirsdóttir lést 7.
júní sl. Hún fæddist á ísafirði þann
26. ágúst 1916, dóttir hjónanna
Bjarneyjar Jónu Einarsdóttur og
Sigurgeirs Kristjánssonar. Eftirlif-
andi eiginmaður Guðborgar er
Lorens Karlsson. Þeim varð ekki
barna auðið en Guðborg eignaðist
son með Gunnaii Jóhannssyni fyrir
hjónaband. Útför hennar verður gerð
frá, Neskirkju í dag kl. 15.
Akstur strætisvagna
Reykjavíkur á 17. júní.
Þriðjudaginn 17. júni aka vagnar SVK
eftir timaáætlun helgidaga, þ.e. á 30 mín.
tiðni (leið 15a á klst. fresti), þó þannig að
aukavögnum verður bætt á Ieiðir eftir
þörfum. Um miðbik dagsins, þegar hátíða-
höldin standa sem hæst í Lækjargötu, við
Fríkirkjuveg og í Hljómskálagarði, er
breytt frá venjulegri akstursleið vagn-
anna. Breytingin nær til leiða sem fara
um Lækjargötu. Vagnar á leiðum 2, 3, 4
og 5, á vesturleið, sem aka venjulega um
Laugaveg og Lækjargötu, munu aka um
Skúlagötu og Tryggvagötu og hafa við-
komustað í Tiyggvagötu við brúna upp á
Tollstöð. Á austurleið hafa þessir vagnar
viðkomu í Hafnarstræti. Meðan kvöld-
skemmtun stendur á Lækjartorgi verður
þess freistað að halda uppi akstri eftir
hefðbundnum akstursleiðum en reynist
mjög mannmargt á Lækjartorgi verður að
grípa til sama fyrirkomulags og gildir um
miðbik dagsins og áður var kynnt. Sérstök
athygli er vakin á að aukavögnum verður
bætt á margar leiðir þegar þörfin er mest.
Trimmaðstaða í Breiðholti
Sú nýbreytni hefur verið tekin upp í starfi
félagsmiðstövarinnar Fellahellis að nú í
sumar verður íbúum Breiðholtshverfis
boðið upp á trimmaðstöðu á laugardögum.
Verður húsið opið frá kl. 10-16. Verður
m.a.boðið upp á aðstöðu til þrekæfinga,
borðtennis, góða baðaðstöðu fyrir hlaup-
ara og síðan verður kaffitería opin fyrir
gesti. Með þessu tilboði vilja foráðamenn
Fellahellis gefa hverfisbúum kost á að
nýta sér félagsmiðstöðina og kynnast þeim
stað sem unglingamir sækja daglega.
Frá húsmæðraorlofi
Kópavogs
Húsmæðraorlof Kópavogs verður á Laug-
arvatni, í Héraðsskólanum, vikuna 30/6-
6/7. Farið verður frá bókabúðinni Vedu,
Hamraborg 5, mánudaginn 30. júni kl. 10
árdegis. Áætlaður komutími til Kópavogs
aftur er milli kl. 15 og 16 sunnudaginn 6.
júli. Tekið verður á móti umsóknum og
þátttökugjaldi í Félagsheimili Kópavogs,
2. hæð, milli kl. 17-19, fimmtudaginn 19.
júni. Vikudvöl og ferðir fram og til baka
kosta fyrir hverja konu 2500 kr. Konur eru
eindregið hvattar til að notfæra sér þessi
réttindi sín. Allar nánari upplýsingar eru
veittar í símum 41352 Sæunn, 40576 Katr-
ín, 42546 Inga, 40725 Jóhanna, 42365
Steinunn og 41084 Stefanía.
Sölustaðir minningarkorta
Hjartaverndar
Reykjavik.
Skrifstofa Hjartaverndar, Lágmúla
9, 3. hæð, sími 83755.
Reykjavikur Apótek,
Austurstræti 16.
Dvalarheimili aldraðra, Lönguhlíð.
Garðs Apótek, Sogavegi 108.
Bókabúðin Embla, Völvufelli 21.
Árbæjar Apótek, Hraunbæ 102 a.
Bókabúð Glæsibæjar, Álfheimum 74.
Vesturbæjar Apótek, Melhaga 20-22.
Kirkjuhúsið, Klapparstíg 27.
Hafnarfjörður.
Bókabúð Olivers Steins,
Strandgötu 31.
Kópavogur.
Kópavogs Apótek, Hamraborg 11.
Keflavík.
Rammar og gler, Sólvallagötu 11.
Samvinnubankinn, Hafnargötu 62.
Akranes.
Hjá Kristjáni Sveinssyni, Samvinnu-
bankanum.
Borgarnes.
Verslunin Ögn.
Stykkishólmur.
Hjá Sesselju Pálsdóttur,
Silfurgötu 36.
ísafjörður.
Pósti og síma.
Strandasýsla.
Hjá Rósu Jensdóttur, Fjarðarhorni.
Siglufjörður.
Verslunin Ögn.
Akureyri.
Bókabúðin Huld, Hafnarstræti 97.
Bókval, Kaupvangsstræti 4.
Raufarhöfn.
Hjá Jónu Ósk Pétursdóttur,
Ásgötu 5.
Egilsstaðir.
Hannyrðaverslunin Agla.
Eskifjörður.
Pósti og síma.
Vestmannaeyjar.
Hjá Arnari Ingólfssyni,
Hrauntúni 16.
Listahátíð í dag:
Listapopp í Laugardalshöll:
Hljómsveitimar Lloyd Cole and
the Commotions og Simply Red
leika. Auk þess kemur fram hljóra-
sveitin Grafík og söngvarinn
Bjami Tryggva.
Myndlistarsýningar:
Picasso „Exposition inattendue11,
Kjarvalsstaðir
Karl Kvaran, yfirlitssýning í
Listasafhi íslands.
Reykjavík í myndlist, Kjarvals-
staðir.
Svavar Guðnason, yfirlitssýning í
Norræna húsinu.
Tombóla
Nýlega héldu þessir þrír stákar úr
Breiðholtinu tombólu til styrktar
fátækum í Eþíópíu. þeir söfnuðu 470
krónum. Strákarnir heita: Ágúst
Kristmannsson, Oddgeir Þorgeirs-
son og Daníel Þorgeirsson.
80 ára er í dag, mánudaginn 16. júní,
Friðsteinn G. Helgason, Týsgötu
6. Hann verður að heiman.
Styrkur úr minningarsjóði
dr. Phil. Jóns
Jóhannessonar prófessors
Hinn 6. júni sl. var veittur styrkur úr
Minningarsjóði dr. phil. Jóns Jóhannes-
sonar prófessors. Styrkinn hlaut að þessu
sinni Páll Valsson. Páll vinnur nú að
kandídatsritgerð um skáldskap Snorra
Hjartársonar, Þar mun fjallað um ein-
kenni ljóða Snorra og hvaða nýmæli hann
hefur fært inn í óslitna hefð íslenskrar
ljóðagerðar. Minningarsjóður dr. phil.
Jóns Jóhannesar prófessors er eign Há-
skóla íslands og í skrifstofu hans fást
minningarkort sjóðsins.
Kaffisala
Kaffisala á 17. júni
Kaffisala verður í Hjálpræðishernum,
Kirkjustræti 2, þriðjudaginn 17. júni, milli
kl. 14 og 22. Kaffisölunni lýkur með helgi-
stund kl. 22.
Kaffisala hjá Geðhjálp
Geðhjálp verður með kaffisölu í félagsmið-
stöð sinni að Veltusundi 3b, við Hallæris-
plan, þriðjudaginn 17. júni frá kl. 14-18.
Kaffi verður á könnunni með glæsilegu
kökuúrvali í afslappandi andrúmslofti.
Velunnarar, sem að auki vilja styðja félag-
ið, eru hvattir til að koma með kökur og
annað meðlæti milli kl. 10 og 14 sama dag.
Opið hús hjá Geðhjálp í júni, júli og ágúst
er á þessum tímum: mánud. og föstud. kl.
14-17, fimmtud. kl. 20-23.30og laugard. kl.
14-18. Ath. Lokað verður á sunnudögum
í sumar. Símaþjónusta er miðvikud. kl.
16-18.
Afmæli
Skák
8. landsmót Skólaskákar var haldið
í Reykjavík 25. til 28. maí. Teílt var
í húsakynnum Taflfélags Reykjavík-
ur. Skákstjóri var Árni Jakobsson.
Sigurvegari í yngri flokki var Héð-
inn Steingrímsson (Hvassaleitis-
skóla) en hann sigraði alla
keppinauta sína. í öðru sæti varð
Helgi Áss Grétarsson (Breiðholts-
skóla) og í þriðja sæti Magnús
Ármann (Breiðholtsskóla).
í eldra flokki urðu þeir Hannes
Hlífar Stefánsson (Hagaskóla) og
Þröstur Árnason (Seljaskóla) efstir
og jafnir. Hannes sigraði síðan Þröst
í tveggja skáka einvígi. 1 þriðja sæti
varð Sigurður Daði Sigfússon (Selja-
skóla).
Sigurvegararnir hlutu útskorna
riddara og ferðir á skákmót erlendis
í verðlaun. Landsbanki íslands gaf
verðlaunin.
Á meðan þeir Hannes og Þröstur
tefldu til úrslita tefldi Helgi Ólafsson
stórmeistari klukkufjöltefli við
landsmótskeppendur. Þeir Bogi
Pálsson (Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar), Magnús Pálmi Örnólfsson
(Grunnskóla Bolungarvíkur) og
Sverrir Guðmundsson (Heimavistar-
skólanum Örlygshöfn) héldu jöfnu
gegn meistaranum.
Landsmótið í Reykavík lokar
hringnum því nú hefur verið teflt í
öllum kjördæmum landsins.
Landsmót Skólaskákar eru ár
hvert lokaþáttur fjölmennustu skák-
keppni landsins, sem hefst í grunn-
skólunum, síðan eru haldin sýslu- og
kaupstaðamót og að lokum lands-
mót.
Ymislegt