Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Page 18
18 DV. MÁNUDAGUR 16. JÚNl 1986. • Guðbjörn Tryggvarson, miðvall- arleikmaðurinn snjalli, er mættur til leiks á ný og ieikur með ÍA i sumar. Guðbjöm á nýtil ÍA Tiltölulega litlar mannabreytingar hafa orðið á liði ÍA frá því í fyrra en þó hafa tveir snjallir leikmenn horfið á braut. Það eru þeir Karl Þórðarson og Jón Áskelsson. Báðir hafa þeir tek- ið sér hvíld frá knattspymu um tíma og verða væntanlega, og vonandi, með á næsta keppnistímabili. Skagamenn geta þó huggað sig við að fá snjallan leikmann til liðs við sig frá því í fyrra en það er miðvallarleik- maðurinn Guðbjöm Tryggvason sem lék í Noregi í fyrra. Guðbjöm er mjög góður miðvallarleikmaður og munu Skagamenn ömgglega njóta góðs af hæfileikum hans í sumar. Þessir leika með ÍA Eftirtaldir leikmenn leika með liði Akumesinga i sumar: •Birkir Kristinsson, 21 árs, mark- vörður. •Sigurður B. Jónsson, 21 árs, vamar- maður. • Júlíus P. Ingólfsson, 27 ára, miðvall- arleikmaður. • Jakob Halldórsson, 20 ára, miðvall- arleikmaður. • Rúnar Sigríksson, 20 ára, markvörð- ur. •Heimir Guðmundsson, 22 ára, vam- armaður. •Ámi Sveinsson, 30 ára, miðvallar- leikmður. •Aðalsteinn Víkingsson, 21 árs, mið- vallarleikmaður. •Guðjón Þórðarson, 31 árs, vamar- leikmaður. •Hafliði Guðjónsson, 20 ára, vamar- maður. •Stefán Viðarsson, 18 ára, framherji. • Engilbert E. Jóhannesson, 22 ára, vamarmaður. • Guðbjöm Tiyggvason, 28 ára, mið- vallarleikmaður. •Valgeir Barðason, 21 árs, framherji. • Hannes Helgason, 24 ára, framheiji. •Sigurður Lárusson, 30 ára, vamar- leikmaður. •Ólafur Þórðarson, 21 árs, miðvallar- leikmaður. •Hörður Jóhannesson, 30 ára, fram- heiji. •Jim Barron er þjálfari hðsins. t kynnir 1. deildar félögin: „íslandsbikarinn gæti farið aftur upp á Skaga “ - segir Sigurður Lárusson, fyrirliði Skagantanna „Mér líst vel á þetta keppnistímabil. Ég er ekki svartsýnn á framhaldið þó svo að okkur hafi gengið misjafnlega í þessum fyrstu leikjum. Við töpuðum til dæmis mjög klaufalega á móti Víði. Meiðsli hafa sett nokkurt strik í reikn- inginn það sem af er. Bæði Ámi og Hörður hafa ekki getað leikið vegna meiðsla og Birkir hefur ekki gengið alveg heill til skógar í markinu," sagði Sigurður Lámsson, fyrirliði Skaga- manna. „Ég held að upphaf þessa fslands- móts segi lítið til um hvernig liðinu á eftir -ð ganga í sumar. Við höfúm oft byijað Islandsmót illa. Ég man til dæmis eftir tímabilinu ’73-’74 þegar við töpuðum fjórum af fyrstu átta leikjunum í mótinu. Eftir það fór allt í gang og við unnum ellefu næstu leiki. Ég held að slakasti leikur okkar til þessa hafi verið á móti Víði. Sá leikur tapaðist fyrst og fremst vegna þess að við nýttum ekki færin. Þetta var ekki óheppni heldur fyrst og fremst okkar eigin klaufaskapur. Orsökin fyrir því gæti verið einbeitingarleysi. Það þurf- um við að laga,“ sagði Sigurður ennfremur. Aðlögunartími Skagaliðið hefur misst lykilleik- menn frá síðasta tímabili eins og Karl Þórðarson og Jón Áskelsson. Guð- bjöm Tryggvason gekk hins vegar aftur til liðs við sína gömlu félaga. „Auðvitað var slæmt að missa leik- mann eins og Karl Þórðarson. Hann er sterkur spilari og mjög mikilvægur fyrir liðsandann. Það er alltaf slæmt að missa svoleiðis menn. En í staðinn fengum við Guðbjörn Tryggva. Það er mikill styrkur að fá hann aftur og ég get ekki séð að honum hafí farið neitt aftur í Noregi! - Þið Skagamenn fenguð nýjan þjálf- ara í ár, Jim Barron. Hvemig líst ykkur á hann það sem af er? „Mér persónulega líst vel á hann. Hann er góður þjálfari, harður en leggur ekki upp fyrir okkur þennan dæmigerða enska bolta. Hann hefur gefið okkur nokkurt frjálsræði hvað spilamennskuna snertir. Það er vitaskuld mjög erfitt að taka við af þjálfara eins og Herði sem náði firábærum árangri með liðið. Ég held að Barron geri sér manna best grein fyrir því. Hann er mjög áhugasamur og ég er viss um að ýmislegt sem hann er að gera eigi eftir að skila sér seinna í sumar. Þetta er spuming um aðlög- unartíma, bæði hjá honum og okkur í.Jiðinu." Ágætar meistarahorfur - Hvemig líst þér á 1. deildina í ár? „Ég er bjartsýnn á að þettá eigi efitir að verða skemmtilegt Islandsmót. Bar- áttan verður hörð og ég hef trú á að það verði fjögur til fimm lið sem komi til með að berjast um titilinn. Hér á ég við lið eins og ÍA, Val, KR, Fram • Sigurður Lárusson, hinn baráttuglaði fyrirliði Akurnesinga. Hampar hann íslandsmeistarabikarnum að mótinu loknu ? og hugsanlega Þór. En mótið fer ekki í fullan gang að mínu mati fyrr en um miðjan júlí og þá hef ég trú á að barátt- an eigi eftir að verða í algleymingi. Það er bara vonandi að fólk verði ekki búið að fá sig fullsatt á knatt- spymu eftir HM og láti það aftra sér frá því að koma á völlinn." - Hveijar telur þú horfur ykkar Skagamanna á titlinum? „Jafngóðar og annarra liða, ef ekki betri. Ég stefhi alltaf á sigur. Annað kemur ekki til greina. Það gæti alveg eins farið svo að titillinn kæmist aftur upp á Skaga. Við erum með góðan mannskap, blöndu af yngri og eldri ieikmönnum og það er gott þegar hæg endumýjun á sér stað í liði. Ungir leik- menn eins og Heimir, Valgeir og Óli Þórðar eru orðnir fastamenn í liðinu og fleiri strákar eru í þann mund að festa sig í sessi. Það hefur sýnt sig að það er alltaf erfitt að halda liði mörg ár á toppnum en það gæti gengið ef endumýjun liðsins er jöfn. Ég held að við Skagamenn séum á réttri leið hvað þetta varðar." Hætt við að hætta - Þú hættir við að hætta í vetur. Ertu ennþá í þeim hugleiðingum? „Ég ætla allavega að spila með í sumar! Það er öruggt. En það er rétt, ég hafði tekið þá ákvörðun að hætta í vetur. Hún stóð í þijár vikur. Það em 16' ár síðan ég spilaði minn fyrsta meistaraflokksleik og það segir sig sjálft að það er ekki auðvelt að slíta sig frá þessu. Ég verð bráðum 32 ára og treysti mér þess vegna til að spila lengur. Aftur á móti er ýmislegt annað sem kallar þegar maður er kominn á þennan aldur. En ég er ákveðinn í að láta allar svona hugleiðingar eiga sig að sinni. Tímabilið núna er það sem skiptir máli. Það kemur ekki í ljós fyrr en í haust hvað maður gerir,“ sagði Sig- urður Lárusson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.