Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Blaðsíða 10
ÓSA/SlA 10 DV. MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 1986. Utlönd Utlönd Útlönd Útlönd Erum hvorki væsklar né dusilmenni - segir P.W. Botha og bertir hörðu gegn minningarathöfnum blökkumanna í Suður-Afríku „Við erum ekki þjóð væskla og dusil- menna. Við höfum aldrei verið það og sækjumst ekki eftir slíku,“ sagði P.W. Botha í sjónvarpsóvarpi til íbúa Suð- ur-Afríku fyrir helgi um leið og hann lýsti því yfir að þingið hefði veitt hon- um vald til að lýsa yfir neyðarlögum í landinu til að stemma stigu við óróa og ofbeldisaðgerðum á meðal blökku- manna. Sagði forsetinn að ríkisstjóm hans myndi ekki hika við að fara eigin leið- ir til að koma í veg fyrir upplausn á meðal suður-afrískra blökkumanna er í dag minnast tíu ára afmælis upp- reisnar blökkumanna i Soweto, fjöl- mennustu byggð blökkumanna við Jóhannesarhorg. Það kom fram hjá forsetanum að Suður-Afríkumenn myndu ekki hika við að beita „öllum tiltækum ráðum“ til að koma í veg fyrir upplausnar- ástand á meðal blökkumanna og stjómvöld í Pretoríu myndu ekki láta gagnrýni og fordæmingu erlendis frá aftra sér frá ætlunarverki sínu. „Við munum ekki láta auðmýkja okkur í augum alheimsins,“ sagði Botha og fúllyrti að hótanir erlendra ríkisstjóma um refsiaðgerðir gegn Suður-Afríku myndu engin áhrif hafa á aðgerðir suður-afrískra öryggis- sveita á meðan á neyðarástandinu stæði. Boða skæruverkfall í dag Aðgerðir stjómarinnar koma í kjöl- farið á yfirlýsingum ýmissa blakkra forystumanna þar sem skorað er á blakka um allt land að taka þátt í mótmælaaðgerðum gegn hvítu minni- hlutastjóminni, fjölmenna í guðsþjón- ustur og taka þátt í boðuðu skæraverkfalli í dag. „í okkar augum er þetta heilagur dagur og hans ætlum við að minnast," er haft eftir einum forystumanna UDF, Sameinuðu lýðræðisfylkingar- innar, sem ásamt afríska þjóðarráðinu, ANC, era stærstu og öflugustu samtök blakkra stjómarandstæðinga í Suður- Afríku. Yfir þúsund handteknir Fréttaskýrendur höfðu almennt búist við því að stjómvöld myndu grípa til einhverra aðgerða til að koma í veg fyrir uppþot og óeirðir á meðal Umsjón: Hannes Heimisson blökkumanna í dag og fyrir helgi, en ekki að aðgerðimar yrðu eins harka- legar og raun ber vitni. Sólarhring áður en neyðarástandi var opinberlega lýst yfir fóra fram fjöldahandtökur yfir þúsund kunnra stjómarandstæðinga og foiystumanna blökkumanna, er stjómvöld vildu losa sig við áður en óeirðaaldan gengi yfir. Tilefni mótmælaaðgerðanna í dag er tíu ára afmæli grimmilegra skotár- ása öryggissveita hvíta minnihlutans á blakka mótmælendur í Soweto, þar sem fjölmargir létu lífið og tugir særð- ust. Blökkumenn segja að árásin hafi verið gerð að tilefnislausu, en yfirvöld afsökuðu hana á sínum tíma og sögðu hana hafa verið vamaraðgerð gegn jfirvofandi árás blakkra. Blóðbaðið í Soweto leiddi af sér öldu ofbeldis og mótmæla um alla Suður- Afríku þar sem tugir létu lífið og þúsi ndir manna vora handteknar. Banna samkomuhald Vr- kalýðsfélög blökkumanna auk forystumanna þeirra hafa nánast ein- róma skorað á blökkumenn að vera frá vinnu í dag. Leiðtogar UDF hafa skorað á félagsmenn sína að virða banri stjómvalda á fundahaldi í dag að vettugi og hvatt alla íbúa landsins til að taka þátt í sérstökum minning- arguðsþjónustum um allt land til heiðurs þeim er létu lífið í Soweto uppreisninni. Neyðarástandslögin nýju boða al- gert bann við samkomuhaldi blökku- manna í dag og eru hörð viðurlög við broti á þeim. Forystumenn UDF og róttækir kirkjuleiðtogar blökkumanna era í meirihluta þeirra hundraða manna er þegar hafa verið handteknir vegna neyðarástandsins. P.W. Botha forseti lýsti því yfir á þinginu í Höfðaborg, er hann fór fram á umboð þingsins til aukinna valda vegna neyðarlaganna, að meginmark- mið stjómvalda væri að koma i veg fyrir uppreisnartilraun er skipulögð hefði verið af hinu útlæga afríska þjóðarráði og Sameinuðu lýðræðis- fylkingunni á milli 16. og 18. júní. Um leið vísaði Botha á bug sem „ódýrum áróðri" yfirlýsingum foiystu- manna blökkumanna um að mót- mælaaðgerðimar í dag og næstu daga myndu verða fríðsamlegar. Hömlur á fréttaflutning Louis Nel, ráðherra upplýsingamála og fyrrum aðstoðaratanríkisráðherra landsins, kynnti fyrir helgi þann rétt er neyðarástandslögin gefa stjóm- völdum til að hneppa fólk í varðhald án úrskurðar og auknar hömlur á umsvif fjölmiðla í Suður-Afríku og fréttaflutning af óróasvæðum. Fjölmiðlum er meðal annars óheim- ilt að senda frá sér hverja þá frétt er ófrægt getur Suður-Afríku á erlendum vettvangi og haf't í för með sér auknar líkur á erlendum refsiaðgerðum. Fréttaflutningur má ekki heldur vera þess eðlis að hann auki innanlands- óróa, stuðli að ólöglegum verkföllum eða kyndi á nokkum hátt undir gagn- rýni á stjómvaldsaðgerðir. Að auki era ströng viðurlög við því að birta nöfh handtekinna án samráðs við yfirvöld. ÞETTAER LDNOON PEX fargjald, kr. 13.940 FlogiÖ alladaga vikunnar FLUGLEIÐIR OPöbbar og diskótek í London hafa dýrlegt aðdráttarafl. Taktu þáttígötu- leikhúsi London. . . þú þarft hvorki að hafa kúluhatta né broddaklipp- ingu. Lögreglu- og öryggissveitum er svo gefið vald til að gera nánast hvað sem er í skjóli neyðarlaganna til að bæla niður andstöðu við stjómvöld. Viðurlög við brotum fjölmiðla á neyðarástandslögunum geta, að sögn Nel, orðið allt að tíu ára fangelsisvist og háar fjársektir. Níu aðildarríki Efhahagsbandalags Evrópu, er eiga sendiráð eða ræðis- mannsskrifstofúr í Suður-Afríku, hafa ákveðið að hafa stofnanir sínar lokað- ar í dag til minningar um Soweto- uppreisnina og til að sýna andúð sína á neyðarástandslögum minnihluta- stjómarinnar. „Alvarleg mistök" Bretar, Bandaríkin og Vestur-Þjóð- veijar, ein mikilvægustu viðskipta- lönd Suður-Afríku, hafa allir fordæmt setningu neyðarlaganna og íhuga nú alvarlega að auka refsiaðgerðir gegn Suður-Afríku. Aukinn þrýstingur er nú á Thatcher, forsætisráðherra Breta, að beita stjómina i Pretoríu refsiað- gerðum en Thatcher hefúr fram að þessu verið andvíg hvers konar efha- hagsaðgerðum gegn suður-afrískum stjómvöldum og sagt að þær hafi lítil áhrif. Bretar eiga aðild að gífúrlegum fjár- festingum í Suður-Afríku og ljóst að bresk fyrirtæki myndu missa spón úr aski sínum ef Bretar beittu sér fyrir efnahagslegum refsiaðgerðum. Bandaríkjastjóm hefúr lýst yfir „þungum áhyggjum" af þróun mála í Suður-Afríku að undanfömu og haft var eftir Larry Speakes, talsmanni Hvíta hússins, fyrir helgi að setning neyðarlaganna væri „alvarleg mis- tök“. Milljónir í valinn? Nú hafa yfir 1600 mahns látið lífið í áframhaldandi óeirðum á meðal blökkumanna og átökum þeirra við öryggissveitir hvíta minnihlutans í Suður-Afríku á aðeins 28 mánuðum. Skýrsla um ástand mála í Suður- Afiíku, er unnin var að frumkvæði Samtaka breskra samveldisríkja og birt var fyrir helgi, staðhæfir að ef ekki tekst áð koma á einhvers konar samningum á milli blökkumanna og hvíta minnihlutans um vopnahlé á næstu mánuðum og finna sameigin- lega lausn á vandamálum landsins, megi allt eins búast við meiri háttar blóðbaði í landinu innan skamms, þar sem tala fómarlamba skipti milljón- um. Louis Nel, upplýsingamálaráðherra Suður-Afriku og fyrrum aðstoðarutan- rikisráðherra landsins, var bjartsýnn á horfur mála í Suður-Afríku er blaðamaður DV átti viðtal við hann i Pretoríu í desember síðastliðnum. Fyrir helgi var það hlutverk Nel að skýra erlendum blaðamönnum frá hömlum nýskipaðra neyðarlaga á fréttaflutning frá landinu, er .nú hefur mjög verið takmarkaður. DV-mynd hhei. Neyðarástandslögin í Suður-Afriku gefa her- og öryggissveitum heimild til að handtaka og halda i varðhaldi hverjum þeim er talinn er geta spillt friði. Nú hafa öryggissveitir handtekið á annað þúsund forystumenn blökku- manna vegna ótta um alvarlegar mótmælaaðgerðir á minningardegi Soweto-uppreisnarinnar i dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.