Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Síða 3
DV. MÁNUDAGUR 16. JUNl 1986.
3
Fréttir
Fréttir
Fréttir
Fréttir
Þjófur við
rúmstokk
Hann vaknaði upp við vondan
draum, hús- og bíleigandinn í Selja-
hverfinu sem á sunnudagsmorguninn
saknaði bíls síns og sömuleiðis bíllykl-
anna af náttborðinu sínu.
Þjófur hafði komið að bílnum við
hús hans um nóttina, séð veski bíl-
eigandans í bílnum og réð þar með
ekki við fi-eistinguna og réðst til inn-
göngu. Þjófurinn mun hafa komist inn
í húsið með því að fara inn í opinn
bílskúr og lagði leið sína alla leið að
rúmstokk bíleigandans sem lá og svaf
svefni hinna réttlátu.
Þjófúrinn fór sína leið á bílnum og
hafði einnig með sér veski mannsins.
Bíllinn fannst reyndar klukkustund
eftir að þjófiiaðarins varð vart en þjóf-
urinn leikur enn lausum hala. Úr veski
bíleigandans hafði hann með sér laus-
afé og ýms skilríki svo og greiðslukort.
Bílþjófar voru nokkuð á kreiki í
Reykjavík um helgina. Þremur bílum
var stolið, en þeir hafa allir fundist.
Þjófamir hafa enn ekki náðst.
Lögreglan segir ástæðu til að hvetja
fólk til að ganga betur frá bílum sín-
um, því þónokkuð er um það að
hvinskir menn sérhæfi sig í að ræsa
tilteknar bílategimdir og aka sína leið.
-GG
TVær konur
meiddust
í bflveltu
Frá fréttaritara DV á Breiðdals-
vík:
Bíll fór út af veginum í Kambanes-
skriðum á milli Breiðdals- og Stöðvar-
fjarðar aðfaranótt laugardagsins.
Bíllinn fór þrjár eða fjórar veltur.
Femt var i bílnum, tveir karlmenn og
tvær konur. Karlamir sluppu ómeidd-
ir en konumar vom sendar með
flugvél til Reykjavíkur en reyndust
ekki alvarlega meiddar. Önnur þeirra
var meidd í andliti, hin töluvert skorin
á fótum.
Bíllinn var af gerðinni Nissan Patrol
og er talinn ónýtur. Hefði bíllinn farið
eina veltu til viðbótar eða farið út af
20 metrum fyrr hefði ekki þurft að
spyrja að leikslokum.
- SM/Breiðdalsvík.
Valgerður Backman ásamt stoltum foreldrum, þeim Vaigerði Bergsdóttur myndlistarkonu og Ammundi Backman lögmanni.
„Andlit ársins"
- úrslit í Ford-keppninni
Valgerður Backman, 19 ára
Reykjavíkurmær, var valin úr hópi
sex stúlkna til að fara fyrir íslands
hönd vestur til Bandaríkjanna og
taka þar þátt í keppni svonefndra
Ford-modela. Sú keppni nefnist
„Andlit ársins" (Face of the Year)
og var í fyrra haldin í Hollywood
en að ári verður hún haldin á Miami
eða í Atlanta.
Hér á landi em það Vikan og
Katrín Pálsdóttir fréttamaður sem
umboð hafa fyrir Ford-models en
keppnin er kennd við Eileen Ford
sem hefur rekið fræga umboðsskrif-
stofú fyrir sýningarstúlkur um árabil
í New York. Maria Guðmundsdóttir,
ljósmyndari og fyrirsæta, starfaði á
snærum Ford-models í fimmtán ár.
Við undirbúning þessarar keppni
um Ford-stúlkur, sem haldin er ár-
lega í 20 löndum, senda þær sem
vilja vera með inn ljósmyndir af sér.
Síðan em sex þátttakendur valdir
eftir myndum úr öllum þeim fjölda
sem myndir sendir. Árlega senda um
900 þúsund stúlkur umboðsskrifstof-
um um heim allan af sér myndir
þannig að ljóst er að keppnin er
hörð.
Það var Tracy Kennedy-Flynn
sem valdi Valgerði Backman úr ís-
lenska hópnum og Andreu Brabien
einnig. Valgerður á að taka þátt í
keppninni „Andlit ársins“ ásamt
stúlkum frá 20 löndum en Andrea
fer ásamt Valgerði vestur um haf í
næsta mánuði og mun þar gefast
kostur á samningi við Ford-models.
Árið 1984 var Helga Melsted ein af
15 í heiminum sem valin var til að
vera Ford-model.
-GG.
PRENGISANDUR
BUSTAÐAVEGI 153 S: 688088
6.VIKA
Aðalvinningur sólarferð með Ferðaskrifst. Pólaris.
Dregið i 6. umferð þann 19. júni 1986. Skil-
ið svarseðlum í siðasta lagi miðvikudaginn
18. júni 1986. Nöfn vinningshafa birtast í
DV þann 21. júní 1986.
Ivtkili'll l»r..s. iGziR. I .eikiir fhi I lorn .\I»1 ><»t, m'tinn in nn.**
/ lcyfi Horn Ahl)ot Intl. I.tlt.
L
K
• Á hvaða eyju stendur Kastrupflugvöllur?
• Með hvaða hljómsveit er platan More
Creedcncc Gohil
• Hvaöa Afríkuriki stofnuðu bandariskir
frelsingjar árið 1847?
• Hvaða ljóðlína í Skúlaskeiói Gríms Thomsens
kemur fyrir í Bióla^i Stuðmanna ?
Á hvaða reikistjörnu lenti geimfarið
Víkingur I.?
»Hvað harf lið að vinna margar hrinur til að
vinna blakleik?
<D
ro i
CÉ> Nafn:
o Heimili:
o
o Póstnr.: Staöur:
Aldur: Sími:
*+**++++****++*++++*+*+++*+*+****F*
* 3 J1 • eYYœ. YWmtmm *
l ókeypis ★
$ Ef þú kaupir einn hamborgara *
^ (venjulegan) færðu annan frítt gegn ★
afhendingu þessa miða. $
* Frímiði gildir til og með 18. júní 1986. ★
$******+**-******* *-K-k**-k-fc*-fc*****-*-i'*
SPENNANDIÁ SPRENGISANDI - SUPERM ATUR - SPRENGIS ADDUR