Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Síða 6
6
DV. MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 1986.
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða ful1**'’ i6 ára. 65-69 ára geta losað inn-
stæður sií.^x með 9 mánaða fyrirvara, 70-74
ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri
með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru
verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reiknmgar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
% nafnvöxtum.
LFeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
A .eyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
10% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mán-
uði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á
óhreyfðri innstæðu er 13,64% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 13%
nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið-
réttingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 14,5% nafnvöxtum og
15% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10,8%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3% vöxt-
um Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð. Á
hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk
1% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út
tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess
að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06.
og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
13% nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun eða
ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 ára afmælisreikningur er verðtryggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25%
og breytast ekki á meðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði 8,
50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir 6
mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir
18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6
mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn.
18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir
og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 13%, eða ávöxtun 3ja mánaða
verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxtum
sé hún betri. Samanburður er gerður mánað-
arlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út
af reikningnum gilda almennir sparisjóðs-
vextir, 8%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársíjórðunga sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanUm. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 13,1% eða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 8,5%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung. Vextir færast fjórum sinnum á
ári og leggjast við höfuðstól. Þeir eru alltaf
lausir til útborgunar.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 12,5%, með
13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist
trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim mun
bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður
innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 8%. Vextir færast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél-
stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði,
óverðtryggða en á 15,5% nafnvöxtum. Þeir
eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun er
því einnig 15.5%.
18 mánaða reikningar. Nokkrir stærri
sparisjóðanna eru með innstæðu bundna
óverðtryggða í 18 mánuði en á 14,5% nafn-
vöxtum og 15,2% ársávöxtun.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í.
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem,
eru 50 þúsund að nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. MeÖ
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hveiju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára.
Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfm eru ýmist verðtryggð eða
óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum.
Þau eru seld með afiföllum og ársávöxtun er
almennt 12 16% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til
einstaklinga 782 þúsundum króna, 2-4 manna
fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.161 þúsurd un, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.341 pusundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn
/ er hámark 391 þúsund krónur til einstakl-
ings, annars mest 195 þúsund. 2-4 manna
fjölskylda fær mest 497 þúsund til fyrstu
kaupa, annars mest 248 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 580 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 290 þúsund. Láns-
tími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóðurákveðursjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30 6Ó mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150 1000 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15-42
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað-
ir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir.
reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári
verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður
þá hærri en nafnvextirnir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma-
bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því
10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu
dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún.
getur jafnvel orðið neikvæð.
Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á
10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft-
ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur
og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni
6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan
því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á
mánuði eða 27% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í júní 1986 er 1448 stig
en var 1432 stig í maí og 1425 stig og í apríl.
Miðað er við grunninn 100 í júní 1979.
Ðyggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1986
er 265 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3924
stig á grunni 100 frá 1975.
Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04.
en um 10% næst þar áður, frá 01.01. Þessi
vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar
sem við hana er miðað sérstaklega í samning-
um leigusala og leigjenda.
„Þetta er ótrúleg aðsókn. Við ætluð-
um bara að halda eitt námskeið fyrir
15 konur og bjuggumst jafnvel við að
ekki tækist að fylla það. Nú sjáum við
fram á að halda ekki bara 2 heldur
fjögur námskeið fyrir 15. júlí og halda
síðan fleiri í haust. Það eru um 80
konur búnar að skrá sig,“ sagði Þor-
leifur Þór Jónsson, rekstrarráðgjafi
hjá Iðntæknistofnun.
Iðntæknistofnun ákvað fyrir nokkru
að halda sérstakt námskeið fyrir kon-
ur um stofhun og rekstur fyrirtækja,
fyrst og fremst á þeirri forsendu að
fáar konur nýta sér þá almennu
fræðslu sem í boði er um stofnun fyrir-
tækja. Konur hafa sýnt slíkum
námskeiðum á vegum Iðntæknistofn-
unar lítið þegar þau hafa verið fyiir
bæði kynin í einu.
„Þær hafa kannski ekki komið
vegna ótta við yfirgang frekra karl-
manna. En konur tilheyra yfirleitt
láglaunastéttunum. Þær sjá þann kost
vænstan að fara út í eigin rekstur
vegna þess að þær eiga ógreiða leið
upp metorðastigann," sagði Þorleifur.
-KB
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 11.-20.06 1986
INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM SJÁ SÉRLISTA slíí iiiiiiiiiliiiiii
INNLAN ÖVERÐTRYGGÐ
LrTLÁN TIL FRAMLEIÐSLU
SJÁNEDANMÁLS1)
SPARISJÓÐSBÆKUR Óbundin innstæða 9.0 9.0 8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8.5 8.5 8.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 10.0 10.25 10.0 9.0 8.5 10.0 8.5 9.0 10,0 9.0
6 mán. uppsögn 12.5 12.9 12.5 9.5 11.0 10.0 10.0 12.5 10.0
12mán uppsögn 14.0 14.9 14.0 11.0 12,6 12,0
SPARNAÐUR- LÁNSRÉTTURSpatað3-5mén. 13.0 13.0 8.5 10.0 8.0 9.0 10.0 9.0
Sp. 6 mán. og m. 13.0 13.0 9.0 11.0 10.0 10.0
TÉKKAREIKNINGAR Avisanareikningar 6.0 6.0 2.5 3.0 4.0 4,0 3.0 3.0 3.0
Hlaupareikningar 4.0 3.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
INNLÁN verðtryggd
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0
6 mán.uppsögn 3.5 3.0 2.5 2.5 3.5 2.5 3.0 3.0 3.0
innlAn gengistryggð
GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 7,0 7.5 6.0 6.0 6.0 6.5 6.0 6.5 6.25
Sterlingspund 11.5 10,5 9.5 9.0 9.0 10.5 9.5 11.5 9.5
Vestur-þýsk mörk 4.0 4,0 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5 3,5
Danskar krónur 7.5 7,5 7.0 7.0 6,0 7.5 7.0 7.0 7.0
ÚTLAN úverotryggð
ALMENNIR VfXLAR (forvextir) 15.25 15,25 15.25 15.25 15,25 15,25 15,25 15,25 15,25
VIÐSKIPTAVlXLAR 3) (forvextir) kge 19,5 kge 19.5 kge kge kge kge
ALMENN SKULDABRÉF 2) 15.5 15.5 15.5 15,5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5
VIÐSKIPTASKULDABRÉF3) kge 20,0 kge 20,0 kge kge kge kge
HLAUPAREIKNINGAR yfirdrAttur 9.0 9.0 9.0 9.0 7,0 9.0 9.0 9.0 9.0
ÚTLÁN verðtryggð
skuldabréf Að 21/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Lengri en 21/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
l)Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn-
ings, í SDR 8%, í Bandaríkjadollurum 8,5%, í sterlingspundum 11,75%, x vestur-
þýskum mörkum 6,25%. 2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er
2%, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. 3) Við kaup á viðskiptavíxlum og
viðskiptaskuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá
þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá flestum stærstu sparisjóðunum.
Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál
Rekstur Aburðarverksmiðju ríkisins gengur nú mjög illa, verksmiðjan skuldar um 580 milljónir í erlendum
lánum og uppsagnir fjölda starfsmanna í uppsiglingu.
Áburðawerksmiðja ríkisins:
Eriendar skuldir
um 580 milljónir
- fjöldauppsagnir fyrirtiugaðar
„Afkoma verksmiðjunnar hefur
verið mjög slæm undanfarin ár. Við
höfum þurft að fjármagna reksturinn
með erlendum lánum, þurft að herða
greiðslukjörin og hækka verðið,“
sagði Hákon Bjömsson, forstjóri
Áburðarverksmiðju ríkisins.
Hákon sagði að verksmiðjan hefði
í apríl skuldað um 14 milljónir doll-
ara i erlendum lánum sem samsvarar
um 580 milljónum íslenskra króna.
Hann sagði að hluta af vandamál-
inu mætti rekja til þess að það
ammóníak, sem verksmiðjan fram-
leiddi, stæðist ekki samkeppni við
innflutt ammóníak vegna lækkunar
olíuverðs. „Á sama tíma hefur fram-
leiðslukostnaður hjá okkur hækkað
mikið, t.d. hefur orkan, sem við
kaupum til ammóníakframleiðslu,
hækkað um helming," sagði Hákon.
- Er þá ekki eðlilegast að hætta
ammóníakframleiðslu?
„Það teljum við ekki. Við höfum
farið ffarn á það við Landsvirkjun
að raforkuverðið verði endurskoðað.
Við vonum að okkur takist að fá það
fram. Síðan er aldrei að vita hversu
lengi olíuverðið helst svona lágt.“
Hákon sagði að nú væri verið að
" skoða ýmsar leiðir til hagræðingar
á rekstrinum. Til stæði að segja upp
20 starfsmönnum samfara aukinni
sjálfvirkni í pökkunarstöð og nú
þegar væri búið að segja upp 6 tré-
smiðum því ákveðið hefði verið að
leggja trésmíðaverkstæði verksmiðj-
unnar niður.
-KB
Kvennanámskeið Iðntæknistofnunar um stofnun og rekstur fyrirtækja hefur notið gífurlegra vinsælda. Það átti að halda
eitt námskeið, en nú er fyrirhugað að halda fjögur í sumar og fleiri í haust. Hér eru konur á fyrsta námskeiðinu sem lýkur
á laugardaginn.
Námskeið fyrir konur um stofnun fyriitækja:
„Ótrúleg aðsókn“