Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Side 8
8
DV. MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 1986.
Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd
Gonzales herð-
ir kosninga-
baráttuna
Spænskir sósíalistar, undir forystu
Felipe Gonzales forsætisráðherra, hafa
hert mjög kosningabaráttu sína fyrir
þingkosningamar á Spáni er haldnar
verða næstkomandi sunnudag, 22.
júní.
Sósíalistar óttast nú mjög að verða
undir í kosningunum en nýlegar skoð-
anakannanir benda til þess að Sósíali-
staflokkurinn komi ekki til með að
halda meirihluta sínum á spænska
þinginu.
Forsvarsmenn kosningabaráttu sós-
íalista hafa í ljósi undanfarinna
skoðanakannana endurskipulagt
kosningabaráttu sína og skipulagt
fundaherferð Gonzales forsætisráð-
herra um allt land á þeirri tæpu viku
er eftir er af kosningabaráttunni.
Skoðanakannanir benda einnig til
verulegs fylgistaps flokks hægri
manna en spá miðflokkum og flokkum
til vinstri við Sósíalistaflokkinn veru-
legri fylgisaukningu.
Spænskir sósíalistar undir forystu
Felipe Gonzales forsætisráðherra
hafa hert mjög kosningabaráttu sína
að undanförnu fyrir þingkosningarnar
á Spáni er haldnar verða á sunnudag.
Góðæri hjá
Þjóðverjum
Ketilbjöm Tryggvascm, DV, Vestur-BerHn:
Aprílmánuður síðastliðinn var met-
mánuður í sögu vestur-þýskra utan-
ríkisviðskipta. í þeim mánuði fluttu
V-Þjóðverjar út 10 milljörðum marka
meira verðmæti en þeir fluttu inn í
landið. Þessi mismunur, sem samsvar-
ar um 190 milljörðum íslenskra króna,
er sá mesti sem náðst hefúr á einum
mánuði hérlendis.
Yfirvöld hafa ekki nefnt neinn ein-
stakan þátt sem öðru fremur hefur
valdið þessum gífurlega mismun í ut-
anríkissölu en eflaust á þar olíuverð-
lækkun mikinn þátt.
Einnig má telja víst að verðþróun
innanlands hér í Þýskalandi sé fram-
leiðendum mjög hagstæð, en á sein-
ustu mánuðum hefur verðbólgan verið
um 0,2 prósent.
Dularfullur kafbátur
í höfhinni
Guðrún Helga ESgurðardóttir, DV, Helsinki:
Talið er fullvíst að sést hafi til
óþekkts kafbáts athafna sig rétt fyrir
utan hafnarsvæðið í Helsinki í byrjun
júnímánaðar.
Á sama tíma voru þrjú skip úr
sænska flotanum í heimsókn í höfn-
inni. Eftir að kallað hafði verið á
lögreglu og hafnaryfirvöld hvarf kaf-
báturinn sjónum manna.
Finni, er var að spóka sig úti á svöl-
Borges
látinn
Argentínski rithöfúndurinn Jorge
Louis Borge lést á heimili sínu í Genf
á laugardag, 86 ára að aldri.
Borge var einn kunnasti og áhrifa-
mesti rithöfúndur Rómönsku Amer-
íku. Hann var blindur síðustu tvo
áratugi ævi sinnar en blinda hans
hafði takmörkuð áhrif á starfsgetu
hans og sköpunargleði.
Borge var mikill íslandsvinur, að-
dáandi íslenskra fræða, ekki síst
íslendingasagna, auk þess sem hann
lagði stund á íslenskunám í mörg ár.
Hingað til lands kom Borge síðast
fyrir rúmum áratug.
í Helsinki
um, sá kafbátinn dularfúlla við
hafnarsvæðið og lét þegar nágranna
sína vita. Tókst þeim að fylgjast með
kafbátnum í tæpan hálftíma áður en
hann hvarf sjónum þeirra.
Kafbáturinn var á flakki við Finn-
landsstrendur nokkrum dögum áður
en vart varð við kafbát í sænska
skerjagarðinum nýverið.
Fjallað var um málið í finnskum fjöl-
miðlum hálfum mánuði eftir að
atburðurinn átti að hafa gerst.
Jorge Louis Borge, einn kunnasti rit-
höfundur Rómönsku Ameríku, lést á
heimili sínu í Genf á laugardag, 86
ára aö aldri.
Suöur-afriskar öryggissveitir, gráar fyrir jámum, setja svip sinn á byggðir blökkumanna í dag, á minningardegi
Soweto uppreisnarinnar.
Öryggissveitir í viðbragðsstöðu á Sowetodegi:
„Þetta er okkar
síðasta tækifæri“
- segir Tutu biskup og spáir lokauppgjöri hvítra og svartra
Yfirvöld í Suður-Afriku hertu í
morgun til muna reglur um upplýs-
ingaflæði fjölmiðla frá minningarat-
höfnum blökkumanna vegna tíu ára
afmælis Soweto uppreisnarinnar í
dag.
Er fjölmiðlum nú alfarið bannað
að segja frá aðgerðum hers og lög-
reglu á svæðum blökkumanna og
viðbúnaði yfirvalda nema með sér-
stöku leyfi. Blaða- og fréttamönnum
hefúr einnig verið bannaður að-
gangur að þeim svæðum blökku-
manna þar sem blökkumenn hafa
skipulagt mótmælaaðgerðir gegn
stjóm hvíta minnihlutans.
Yfirvöld hafa hótað að beita hörðu
til að koma í veg fyrir hvers konar
ólögleg mótmæli blökkumanna í dag
en milljónir blökkumanna minnast
þess nú að tíu ár em liðin frá því
öiyggissveitir hólú skothríð á
blakka mótmælendur i Soweto fyrir
utan Jóhannesarborg, þar sem fjöl-
margir féllu.
Blóðbaðið í Soweto leiddi af sér
gífúrlega ólgu og áframhaldandi
átök blökkumanna og öryggissveita
er stóð yfir í marga mánuði.
Samtök blökkumanna hafa boðað
útifúndi í Soweto í dag til að minnast
uppreisnarinnar í blökkumanna-
byggðinni auk þess sem kirkjuleið-
togar hafa hvatt fólk til þátttöku í
guðsþjónustum í blökkumanna-
byggðum í dag.
Blakkir skipuleggjendur mót-
mælaaðgerðanna í dag segja að
yfirvöldum hafi tekist að riðla skipu-
lagningu andófsaðgerða með fjölda-
handtökum blökkumannaleiðtoga
undanfama daga eða frá því að
neyðarlögum var komið á i landinu.
„Við erum komin á ystu brún ger-
eyðingar," sagði Desmund Tutu,
biskup í Jóhannesarborg, í morgun
í aðsendu ávarpi sínu til íjöldafundar
gegn kynþáttaaðskilnaði í New
York í gær. Sagði biskupinn að bú-
ast mætti við algeru borgarastríði í
Suður-Afríku innan skamms ef ríki
heims gripuekki þegar í stað til sam-
hæfðra refsiaðgcrða gegn hvitu
minnihlutastj óminni.
„Þetta er okkar síðasta tækifæri,"
sagði Tutu biskup í gær.
Kohl sigrar
í Neðra-
Saxlandi
Flokkur Helmut Kohl, kristilegir
demókratar, og frjálslyndir banda-
menn þeirra unnu í gær nauman
meirihluta í fylkiskosningum í Neðra-
Saxlandi og er litið á kosningamar
sem prófstein á vinsældir stjómarinn-
ar í Bonn.
Opinberar niðurstöður vom á þá
leið að kristilegir demókratar höfðu
tapað atkvæðum miðað við síðustu
kosningar 1982 en munu ásamt frjáls-
um demókrötum hafa eins sætis
meirihluta á fylkisþinginu.
Jafnaðarmenn unnu mjög á en skorti
samt nokkuð upp á að geta myndað
minnihlutastjóm með stuðningi hinna
róttæku græningja.
Kristilegir og fijálsir demókratar
hafa nú 78 þingsæti á móti 77 hjá jafh-
aðarmönnum og græningjum.
Fyrirfram var litið á kosningamar í
Neðra-Saxlandi sem siðustu raunhæfu
könnunina fyrir þingkosningamar í
V-Þýskalandi, sem fram fara í janúar
næstkomandi. Kosningamar um helg-
ina ákvarða einnig hvemig fjöldi
fúlltrúa skiptist í efri deild v-þýska
þingsins þar sem kristilegir demó-
kratar munu nú halda meirihluta
sínum.
Helmut Kohl hefur ríka ástæðu til að
brosa þessa dagana. Flokkur hans
vann óvæntan sigur í fylkiskosningum
i Neðra-Saxlandi og aukast nú likur á
að Kohl vinni sigur í þingkosningun-
um í janúar næstkomandi