Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Page 12
12
DV. MÁNUDAGUR 16. JÚNl 1986.
Neytendur__________Neytendur__________Neytendur_________Neytendur
Garðhúsgögn vinsæl
- garður er ekkert skilyrði fyrir garðhúsgögn
Nú, meðan við bíðum öll eftir því
að sólin láti sjá sig aftur, fannst
okkur á neytendasíðunni tilvalið að
fara á stúfana og skoða garðhús-
gögn, svona rétt til að fá hugmyndir
um hvað á boðstólum er.
Garðhúsgögn njóta vaxandi vin-
sælda og er garður ekkert skilyrði
til að hægt sé að njóta þeirra. Mörg
þessara húsgagna henta vel á svalir,
svo ekki sé nú talað um í garðhúsin
eða glerskálana sem eru nú svo eftir-
sóttir.
Við fórum á þrjá staði, Ikea, Kringl-
unni 7, Seglagerðina Ægi, Eyjarslóð
7, og Geysi, Vesturgötu 1, og litum
á úrvalið.
-RóG.
Plastborö og plaststóll úr Seglagerðinni. Borðið kostar 2.750 kr. en stóllinn
3.190 kr. Röndótti stóllinn kostar 1.990 kr.
GEGN
STEYPU
SKEMMDUM
STEINVARI 2000
Aldraðir fái afslátt á Picassosýninguna
Eiríka A. Friðriksdóttir hringdi
vegna Picassosýningarinnar sem er
liður í Listahátíð.
Hún sagði að sér fyndist að aldraðir
og fatlaðir ættu að fá afslátt af að-
gangseyri, en til þess að hafa full not
af sýningunni verða menn að greiða
75Ö kr., 250 kr. í aðgangseyri og 500
kr. fyrir myndskreytta sýningarskrá.
Heppilegra hefði e.t.v. verið að bjóða
upp á vélritaða skrá yfir myndimar,
nöfn þeirra og árið sem þær eru málað-
ar. Eiríka sagði að það væri algengast
erlendis en einnig væru til sölu mynd-
skreyttar sýningarskrár sem fólk getur
keypt ef það kýs sjálft.
Þá sagði Eiríka að myndimar á sýn-
ingunni væm ekki númeraðar, þannig
að þótt þú hafir keypt sýningarskrá á
500 kr. þarftu að gaumgrefa mjög vel
hvað er hvaða mynd á sýningunni.
Eiríka telur að auðvelt sé að kippa
þessu í lag.
Þar sem sýningin stendur til loka
júlímánaðar mætti e.t.v. númera
myndimar og jafnvel vélrita sýningar-
skrá sem afhent yrði ókeypis. Þá stakk
Eiríka upp á að eftir að sýningunni
lýkur verði öldmðum og fötluðum
gefinn kostur á að skoða sýninguna
ókeypis.
í Ikea fæst þetta trésett. Það kostar 5.990 kr., fyrir utan litla bekkinn fremst á myndinni sem kostar 940 kr.
Hér er hvitlakkað létt sett sem upplagt er t.d. á svalirnar eða í garöhúsiö.
Borðið kostar 2.890 kr. og hver stóll 1.490 kr.
DV-myndir SvÞ.
I Geysi fást þessir stólar og borð. Borðið kostar 2.950 kr., röndóttur stóll
kostar 1.195 kr. en hinir tveir kosta 1.625 kr. hvor. Borðdúkurinn er sérstak-
lega ætlaður til að hafa úti. Hann er úr nylon og mjög stamur þannig að
hann fýkur ekki, hann kostar 1.175 kr.
Þetta hvitlakkaða sett fæst einnig í
Ikea. Hægt er að kaupa borðið og
stólana sitt i hvoru lagi og kostar
borðið 2.995 kr. en hver stóll 2.895,
án sessu sem kostar 770 kr. Sól-
hlifin kostar 2.694 kr.
Þessir stólar og borð fást i Seglagerðinni Ægi. Borðið kostar 2.560 kr., stærri stólarnir kosta 3.970 kr. hver en
hinir minni 2.450 kr. hver.
hefur þá einstöku eiginleika aö
vera þétt gegn vatni í fljótandi
ástandi, en hleypa raka í
loftkenndu ástandi auðveldlega í
gegnum sig, tvöfalt betur en
heföbundin plastmálning.
Viljir þú verja hús þitt skemmdum
skaltu mála meö
STEINVARA 2000.