Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Page 21
21
DV. MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 1986.
Jón Erling
til FH-inga
- kominn heim frá Noregi
•Jón Erling Ragnarsson.
„Jón Erling skipti yfir í FH á föstu-
daginn og hann mun leika með
okkur þegar hann verður búinn að
ná sér af meiðslunum," sagði Viðar
Halldórsson, fyrirliði FH -liðsins í
knattspymu, í samtali við DV i gær-
kvöldi.
Jón Erling Ragnarsson er kominn
til landsins en hann hefur undan-
farið dvalið hjá norska liðinu Viking
í Stavanger í Noregi. Jón er iila
meiddur, tognaður í nára og verður
frá knattspymu í nokkrar vikur að
talið er og mun því ekki leika með
FH í næstu leikjum. Miklar vonir
binda FH-ingar þó við að hann
braggist fljótlega og hann mun ör-
ugglega styrkja liðið mikið þegar
hann hefur náð sér að fullu. Eða
eins og Viðar orðaði það i gær-
kvöldi: „Það er alltaf betra að hafa
menn með sér en á móti.“
-SK.
Þrír jafnir með 4 mörk
Sovétmaðurinn Igor Belanov, sem
við sáum skora öll mörk sovéska
landsliðsins gegn Belgíu í sjónvarp-
inu í nótt, er nú orðinn markahæsti
leikmaður HM-keppninnar í Mex-
íkó.
Belanov hefur reyndar skorað
jafnmörg mörk og þeir Preben Elkj-
ær Larsen, Danmörku, og Sandro
Altobelli, Italíu, eða fjögur. Og það
verður að segjast eins og er að litlar
líkur em á því að Belanov verði
markakóngur HM að þessu sinni því
hann leikur ekki meira í Mexíkó
frekar en aðrir Sovétmenn. Þrír leik-
menn hafa skorað þrjú mörk en þeir
em: Gary Lineker, Englandi, Jorge
Valdano, Argentínu, og Careca frá
Brasilíu. Eftirtaldir leikmenn hafa
skorað tvö mörk: Jesper Olsen, Dan-
mörku, Julio Romero, Paraguay,
Ivan Yaremchuk, Sovétríkjunum,
Klaus Allofs, V-Þýskalandi, Fem-
ando Quirarte, Mexíkó, Roberto
Cabanas, Paraguay, og Abderrazak
Khairi, Marokkó. -SK.
| Sigurður
! ólöglegur?
Víðismenn kæra leikinn gegn ÍBK
• Sigurður Björgvinsson lék með
ÍBK gegn Viði. Var hann ólöglegur?
Eins og fram kemur í DV í dag þá
lék Sigurður Björgvinsson með Kefl-
víkingum um helgina er þeir léku
gegn Víði í Garðinum.
Víðismenn vilja meina að Sigurður
hafi verið ólöglegur og hafa í hyggju
að kæra leikinn. Sigurður hefur ver-
ið dæmdtu- í leikbann til 18. júní en
Keflvíkingar vilja meina að svo sé
ekki.
Fróðlegt verður að fylgjast ineð
framvindu í máli þessu því menn
greinir mjög á um hvað sé rangt og
hvað sé rétt varðandi leikbannið.
Gárungamir tala um að nýtt „Jóns-
rnál“ sé í uppsiglingu en allir hljóta
að vona að svo verði ekki. Em knatt- •
spymuunnendur og aðrir eflaust
búnir að fá sig fullsadda af slíkri
vitleysu sem „Jónsmálið" var.
-SK
Elsti sigurvegarí
í sögu U.S. Open
Hinn 43 ára gamli Raymond Floyd vann U.S. Open
„Ég hugsaði aldrei um aldur minn
fyrir þessa keppni né að þetta gæti
eflaust verið mitt síðasta tækifæri
til að vinna stórmót,“ saagði Banda-
ríkjamaðurinn Raymond Floyd, 43
ára gamall, en í gær tryggði hann
sér sigur í einu mesta golfmóti at-
vinnumanna sem fram fer ár hvert,
U.S. Open. Með sigri sínum markaði
Floyd djúp spor í sögu golfíþróttar-
innar en hann er elsti kylfingurinn
sem unnið hefur U.S. Open frá upp-
hafi.
„Ég gæti ekki verið stoltari af
sjálfiím mér en ég er í dag eftir þenn-
an stórkostlega sigur,“ sagði Floyd
ennfremur en þetta er í annað skipt-
ið á stuttum tíma sem bandariskur
kylfingur, sem kominn er vel á fimm-
tugsaldurinn, vinnur stórmót. Jack
Nicklaus vann sem kunnugt er U.S.
Masters fyrir skömmu en hann er
46 ára gamall. „Það sem Nicklaus
gerði fyrir golfíþróttina í Masters
keppninni var í einu orði sagt stór-
kostlegt. Ég vona innilega að sigur
minn hér í dag verði jafnmikilvægur
fyrir golfið og sigurinn hjá Nick-
laus. Golfið þarf á stjörnum að
halda,“ sagði Raymond Floyd í gær-
kvöldi.
Hnifjöfn hörkukeppni
Keppnin á U.S. Open var mjög
jöfn síðasta daginn og lengi vel var
mjög erfitt að gera sér grein fyrir
því hver ætti mestu möguleikana á
sigri. Greg Norman hafði eins höggs
forskot á þá Lee Trevino og Hal
Sutton fyrir lokadaginn í gær en
honum tókst ekki vel upp í gær og
lék á 74 höggum, Raymond Floyd á
66 höggum. Samanlagt lék hann á
279 höggum en þeir Lee Trevino og
Hal Sutton, báðir Bandaríkjamenn,
léku á 283 höggum. Gamla brýnið
Jack Nicklaus stóð sig mjög vel og
lék á 284 höggum. Greg Norman lék
á 285 höggum samtals en fyrir mótið
var hann álitinn mjög sigurstrang-
legur. „Þetta var bara einn af
þessum dögum. Ég reyndi hvað ég
gat en það gekk ekkert upp hjá
mér,“ sagði Norman eftir keppnina.
Fyrsti dagurinn fór illa með
marga
Brjálað veður fyrsta keppnisdag-
inn fór ílla með marga keppendur
og þeir sem aftarlega voru á merinni
eftir fyrstu 118 holumar komust
aldrei í nálægð við efstu sætin.
Þeirra á meðal var Spánveijinn
frægi, Severiano Ballesteros, sem
náði sér aldrei á strik. Hann lék
• Lee Trevino neitaði að tala við
biaðamenn eftir keppnina.
samanlagt á 289 höggum ásamt niu
öðrum kylfingum.
Trevino neitaði að tala við
blaðamenn
Það var greinilegt eftir að keppn-
inni lauk í gærkvöldi að ekki vom
allir sáttir við sinn hlut eins og geng-
ur og einn þeirra var gamla kempan
Lee Trevino. Hann er þekktur fyrir
að hafa munninn á réttum stað og
á réttum tíma en í gærkvöldi brá svo
við að hann neitaði öllum blaða-
mönnum um viðtal. Var hann mjög
óánægður og hefúr greinilega verið
ósáttur við annað til þriðja sætið.
Ef hann hefði sigrað þá hefði hann
orðið elsti keppandinn til að vinna
sigur á þessu mikla golfinóti sem
margir vilja meina að sé mesta golf-
mót í heimi ár hvert.
-SK.
• Jack Nicklaus stóð sig vel og lék
á 284 höggum.
Skoraði þrjú mörk en
það dugði ekki til
Sjálfsagt hefúr enginn orðið fyrir
jafnmiklum vonbrigðum með úrslitin
í leik Sovétmanna og Belga í gær-
kvöldi og Sovétmaðurinn Igor Bel-
anov. Að skora þijú mörk í leik í
heimsmeistarakeppni og tapa eigi að
síður er svo sannarlega ekki daglegt
brauð. Reyndar hefúr það aðeins gerst
einu sinni áður í sögu heimsmeistara-
keppninnar. Það var árið 1938 en þá
skoraði Emest Willimowski þrjú mörk
fyrir Pólverja. Þeir töpuðu samt leikn-
um sem var gegn Brasilíu. Úrslit
leiksins urðu 6-5 og skoraði Brasilíu-
maðurinn Ijeonidas fjögur mörk í
leiknum.
-SMJ