Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Síða 24
24
DV. MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 1986.
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþrót
r"““----1
STAÐAN
1. DEILD
Staðan í 1. deild eftir leiki helg-
arinnar er þannig:
FH-Fram.................1-6
KR-Breiðablik...........3-1
ÍBV-Valur...............0-1
ÍA-Þór..................5-1
Víðir-ÍBK...............0-1
. KR ...6 3 3 0 10-3 12
I ÍA ...6 3 2 1 10-3 11
■ Fram ....6 3 2 1 10-4 11
1 Valur ...6 3 1 2 8-4 10
| ÍBK ...6 3 0 3 4-7 9
■ Vfðir ....6 2 2 2 3-4 8
1 Þór ...6 2 1 3 8-12 7
1 FH ...6 2 1 3 7-11 7
! UBK ...6 2 1 3 4-45 7
1 ÍBV ...6 1 0 5 4-14 1
• Markahæstir eru nú Guð-
mundur Torfason, sem hefur
skorað sex mörk, og Valgeir
Barðason sem skorað hefur fímm
mörk.
2. DEILD
Selfoss aftur á toppinn
Staðan í 2. deild er þannig eftír
leikina um helgina:
Selfoss-KS.................10
Njarðvík Víkingur.........1-5
UMFS-Einherji.............1-3
ÍBÍ-KA....................í-1
Þróttur-Völsungur.........0-4
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Selfoss 5 3 2 0 7-2 111
Víkingur....5 3 1 1 19-5 101
KA .....5 2 3 0 115 91
Völsungur .5 2 2 1 9-3 8|
Njarðvík....5 2 2 1 ■10-10 8*
Einherji 5 2 2 1 7-8 8|
KS 5 1 3 1 6-6 6.
ÍBÍ ...5 0 '4 1 9-11 |
Þróttur 5 0 1 4 5-13 1 1
UMFS ...5 0 0 5 2-22 1
Andri Marteinsson, Víkingi, er |
markahæstur í 2. deild með 8 .
mörk. Næstir koma þeir Jón |
Gunnar Bergs, Breiðabliki, Elias ■
Guðmundsson, Víkingi, Tryggvi I
Gunnarsson, KA, og Gústaf I
Björnsson, KS, en þeir hafa allir ■
skorað fjögur mörk. |
MEIRA
EN
VENJULEG
MÁLNING
STEINAKRÝL
hleypir raka mjög auöveldlega i
gegnum sig, tvöfalt betur en
heföbundin plastmálning.
STEINAKRÝL er mjög veöurheldin
málning og hefur frábært alkalíþol
og viðloöun viö stein.
STEINAKRÝL stendur fyrir sínu.
ÓSA/SÍA
Alltvitlaust
í Mexíkó
- eftir sigurinn gegn Búlgaríu
Það var engu líkara en að Mexíkan-
ar hefðu unnið heimsmeistaratitilinn
svo mikil voru fagnaðarlætin í Mexíkó
eftir sigurinn á Búlgaríu í gær. Á ann-
að hundrað manns voru fluttir á
sjúkrahús í gærkvöldi hættulega
særðir eftir að hundruð þúsunda
manna höfðu fagnað sigrinum á götum
úti. Talið er að allavega einn maður
hafi látist í átökunum þó stjómvöld
hafi neitað því. Allir rólfærir menn
þustu út á götur og var hvarvetna
slegið upp miklum götuveislum.
Um 30.000 lögregluþjónar voru við
öryggisgæslu við Aztecaleikvanginn
en mikið af varaliði lögreglunnar var
síðan kallað út þegar fór að líða á
nóttina til að hafa stjóm á mannfjöld-
anum. Um alla borg vom Rauða kross
sveitir á þönum að gera að alls kyns
smásárum og skrámum á dmkknum
Mexíkönum.
Svipuð ólæti bmtust út eftir sigur
Mexíkana á Belgum í riðlakeppninni
en eftir það létu borgaryfirvöld útbúa
svæði víðs vegar um borgina þar sem
fólk gæti komið saman. Er talið að
þessar ráðstafanir hafi komið í veg
fyrir stórslys í gærkvöldi.
Em menn nú famir að hugsa með
skelfingu til þess hvað muni gerast ef
Mexíkanar verða heimsmeistarar.
-SMJ
„Eigum skilið að
komast áfram"
- sagði markaskorarinn Negrete
„Ég held að ég geti sagt með góðri
samvisku að við höfum sýnt hér í dag
að við eigum skilið að vera komnir í
8 liða úrslit. Mexíkanska þjóðin fékk
að sjá góðan leik af okkar hálfú og
ég vona að hún sé ánægð,“ sagði hetja
Mexíkana, Manuel Negrete, eftir leik-
inn. Þessi lágvaxni miðvallarspilari
skoraði glæsilegt mark og lagði þar
að auki upp seinna mark Mexíkana.
„Leikurinn í 8 liða úrslitunum í
Monterrey verður án efa ákaflega erf-
iður. Það munu bæði við og andstæð-
ingar okkar fá að finna,“ sagði
Negrete en þar leika Mexíkanar næsta
laugardag, 21. júní, í 8 liða úrslitum.
-SMJ
• Belgar unnu einn óvæntasta sigurinn á HM í Mexíkó hingað til i gærkvöldi er þeir
spáð Sovétmönnum góðu gengi í Mexíkó. Á þessari mynd, sem tekin var eftir leikini
næst leika Belgar gegn Dönum eða Spánverjum.
„Aðvinna HM erdraumui
- segir„Bora“, þjálfari Mexíkó, og telur að V-Þjóðverjar verði næs
„Draumur okkar er að vinna heims-
meistarakeppnina en við verðum að
vera raunsæir. Við einbeitum okkur
nú að okkar næsta verkefhi, að vinna
næsta leik. Þrátt fyrir að þetta hafi
ekki verið okkar besti leikur þá erum
við á leiðinni áfram í keppninni. Og
með þá leikmenn sem ég hef ættum
við að komst enn lengra," sagði Bora
Milutinovic, þjálfari Mexíkó, eftir að
þeir urðu fyrstir þjóða til að tryggja
sér rétt til að leika í 8 liða úrslitunum
á HM.
„Stóð við loforðið"
„Við erum nú komnir í 8 liða úrslit
eins og ég lofaði mexíkönsku þjóð-
inni. Við munum komast að' því í
Monterrey hvort við eigum erindi
áfram,“sagði Milutinovic en í hita-
pottinum þar mæta Mexíkanar sigur-
vegaranum úr leik Marokkó og
V-Þýskalands. Sá leikur fer einmitt
fram í Monterrey en þrátt fyrir það
er hinn júgóslavneski þjálfari Mexík-
ana bjartsýnn. „Við munum að mörgu
leyti hafa hag af því að spila þar. Auk
áhorfendanna, sem verða allir á bandi
okkar, og hitans munu V-Þjóðveijar
örugglega eiga í margvíslegum erfið-
leikum þar,“ sagði Milutinovic sem
þykist viss um að það verði V-Þjóð-
veijar en ekki Marokkómenn sem
mæti Mexíkönum í 8 liða úrslitum.
„Nú getur mexíkanska þjóðin
glaðst“
„Mexíkanska þjóðin hefur orðið að
ganga í gegnum erfiða tíma að undan-
fórnu en ég vona að með þessum sigri
fái hún tækifæri til að gleðjast. Það
er ánægjulegt að geta veitt þjóðinni
þessa gleðistund og vonandi verða þær
fleiri," sagði Milutinovic sem er á
góðri leið með að verða þjóðhetja í
Mexíkó. -SMJ
Öruggur sigur hjá Mexíkó
Mexikanar sýndu í leik sínum við
Búlgari að lið þeirra er til alls líklegt
í keppninni. Góður stígandi hefur ver-
ið í leik liðsins og í raun áttu Búlgarir
aldrei möguleika gegn þeim í gær.
Verður forvitnilegt að sjá hvemig
Mexíkönum tekst upp þegar þeir fara
að fá virkilega keppni.
Dyggilega studdir af 114.000 áhorf-
endum, sem troðfylltu Azteca leik-
vanginn, tóku þeir strax öll völd i
leiknum. Það var þó ekki fyrr en á 35.
mínútu sem fyrsta mark þeirra kom
og var það sérstaklega glæsilegt. Þeir
Carlos Munoz og Manuel Negrete
spiluðu sig þá laglega í gegnum vöm
Búlgara og endaði sóknin á því að
Negrete stökk í loft upp og sendi
knöttinn með snilldarlegu sniðskoti í
fjærhornið. Þetta er án efa eitt af
glæsilegri mörkum keppninnar.
Seinna mark Mexíkana kom á 62.
mínútu og var einnig laglega að því
staðið. Negrete '■!- þá homspymu sem
bakvörðurinn Raul Servin hamraði í
netið af stuttu fæn.
Búlgörum tókst aldrei að ógna
marki Mexíkó og var sóknarleikur
þeirra ráðleysislegur og hugmynda-
s’nauður. Þetta búlgarska lið átti
greinilega ekkert erindi lengra í
keppninni enda var það heppið að
komast áfram úr undanriðlum. -SMJ
„Munum láta athuga málið'
„Víð áttum aldrei von á því að vinna
keppnina og við komumst í raun jafn-
langt og við bjuggumst við,“ sagði
Ivan Vutsov, þjálfari Búlgara, eftir
leikinn í gær. „Leikur búlgarska liðs-
ins var alls ekki viðunandi og þegar
heim kemur mun Knattspymusam-
band Búlgaríu gera úttekt á því sem
fór úrskeiðis. Verður vonandi hægt
að gera einhverjar úrbætur," sagði
Vutsov. Þegar honum var bent á að
þjálfari Ungveija hefði sagt af sér
vegna lélegs árangurs í heimsmeist-
arakeppninni sagðist Vutsov ætla að
gera það sama.
„Annars lék mexíkanska liðið þenn-
an leik vel og ég hef trú á því að liðið
komist að minnsta kosti í undanúr-
slit,“ sagði Vutsov en hann var
leikmaður með búlgarska liðinu sem
lék í Englandi 1966. -SMJ
• Sriilldarleg tilþrif i leik Mexíkó og E
bláhorninu án þess að Jean Marie Pfa
mark Mexikana og átti stórleik.