Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Síða 26
26
DV. MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 1986.
Iþróttir Iþróttir
Siggi Donna
skoraði sigur-
mark Selfoss
_gegn KS á laugardag
Iþróttir Iþróttir
•ÍR-ingar sóttu stanslaust að marki Ármanns í leik liðanna í A-riðli 3. deQdar um helgina á gervigras-
inu í Laugardal en engu að síður tókst þeim ekki að skora mark í leiknum frekar en Armenningum.
Á myndinni er einn leikmanna ÍR í þann veginn að skjóta á mark Armanns en skotinu var bjargað
á línu. DV-mynd Gunnar Sverrisson.
Leiftur og ÍR ennþá í
sætum 3. deildar
' Sveinn Ármann Sigurðsson, DV,
Selfossi:
Selfyssingar sigruðu KS 1-0 á Sel-
fossi á laugardaginn i leik þar sem
rokið spilaði aðalhlutverkið. Selfyss-
ingar léku á móti sterkum vindi í fyrri
hálfleik. Leikurinn fór að mestu fram
á miðju vallarins en KS sótti þó held-
ur meira án þess að skapa sér nein
tækifæri.
Á 11. mínútu var dæmd aukaspyma
á KS. Páll Guðmundsson tók spymuna
og sendi boltann fyrir markið. Mark-
vörður KS hélt ekki boltanum og
missti hann fyrir fætur Sigurðar
Halldórssonar, þjálfara Selfyssinga,
sem skoraði af öiyggi.
Lítið v£ir um færi það sem eftir lifði
. af hálfleiknum. Gunnar Garðarsson
• Sigurður Halldórsson, fyrrverandi
Skagamaður og núverandi þjálfari og
leikmaður Selfoss, skoraði sigur-
markið gegn Siglfirðingum.
átti þó gott skot á 33. mínútu sem
markvörður KS varði vel.
I seinni hálfleik léku Selfyssingar á
móti vindi en sóttu þó af krafti og
hefðu þess vegna getað bætt við einu
til tveim mörkum. Besta færi hálfleiks-
ins kom á 80. mínútu þegar Tómas
Pálsson komst upp að endamörkum
og gaf fyrir á Ingólf Jónsson sem hitti
ekki boltann í upplögðu færi.
Bestu menn Selfoss voru Anton í
markinu og þeir Tómas Pálsson og
Ingólfúr Jónsson. Hjá KS var enginn
áberandi bestur en liðið er mjög jafnt
að getu. Áhorfendur voru 300. -SMJ
efstu
Leiftur frá Ólafsfirði náði um helg-
ina jafntefli gegn Þrótti frá Neskaup-
stað er liðin léku þar. Hvort lið skoraði
eitt mark og Ólafsfirðingarnir halda
enn efsta sætinu í B-riðlinum. Birgir
Ágústsson skoraði mark Þróttar en
þjálfari Leifturs, Óskar Ingimundar-
son, skoraði mark Leifturs.
Úrslit í öðrum leikjum í B-riðli 3.
deildar um helgina urðu þessi:
Leiknir F - Valur Rf............0-2
Magni - Reynir Á................3-1
Tindastóll - Austri.............2-0
Jón Stefán Ingólfsson (víti), Sverrir
Heimisson og Þorsteinn Jónsson skor-
uðu mörk Magna gegn Reyni en fyrir
Reyni skoraði Kristján Ásmundsson.
Eyjólfúr Sverrisson og Bjöm Sverr-
isson (víti) skoruðu mörk Tindastóls
gegn Austra.
EIís Ámason skoraði bæði mörk
Vals frá Reyðarfirði gegn Leikni frá
Fáskrúðsfirði. Staðan í B-riðli 3. deild-
ar er þannig eftir leiki helgarinnar:
Þróttur N 4 2 2 0 8-2 8
Tindastóll 3 2 1 0 5-2 7
Magni 3 2 0 1 5-J 6
Reynir Á 4 1 1 2 5-7 4
ValurRf. 3 1 0 2 2-5 3
Austri...........3 0 1 2 2-5 1
LeiknirF.........4 0 0 4 1-10 0
ÍR í efsta sæti
ÍR-ingar em efstir í A-riðli 3. deild-
ar. Liðið lék um helgina gegn Ármanni
en þrátt fyrir mikla yfirbuirði tókst
ÍR-ingum ekki að skora mark i leikn-
um og lauk honum með markalausu
jafntefli.
Fylkismenn unnu góðan sigur á
Stjömunni en leikið var á heimavelli
Stjömunnar. Það var Orri Hlöðvers-
son sem skoraði sigurmark leiksins.
IK vann sömuleiðis góðan útisigur
gegn Reyni, Sandgerði. Sigurmark
Kópavogsmanna skoraði þjálfari ÍK,
Guðjón Guðmundsson.
Þá léku HV og Grindavík og lauk
þeim leik með stórsigri Grindvíkinga
sem skomðu 8 mörk en HV eitt.
Staðan í A-riðlinum er þannig eftir
leiki helgarinnar:
ÍR..............4 3 1 0 9-3 10
Fylkir.........4 3 0 1 10-2 9
ÍK..............4 3 0 1 5-39
Stjaman........3 2 0 1 11-1 6
ReynirS.........3 111 2-2 4
Grindavík.......4 1 0 3 9-7 3
Ármaún..........4 0 2 2 2-11 2
HV..............4 0 0 4 3-23 0
-SK./JFJ
Vesturbæjarliðið hélt toppsætinu
- er liðið vann UBK í 6. umferð íslandsmótsins, 3-1
„Það er góður vani að sigra en hún
er enn löng, leiðin að titlinum," sagði
Gordon Lee, þjálfari KR, eftir að liðið
hafði endurheimt toppsæti 1. deildar-
innar í gær. Fómarlömbin vom að
þessu sinni Breiðablik og sigraði KR
3-1 á vellinum í vesturbænum eftir að
staðan hafði verið jöfn í leikhléi, 1-1.
Heimamenn vom sprækari í byrjun
leiksins og strax á 2. mínútu átti
Gunnar Gíslason skot í stöng. Blik-
amir náðu síðan forystunni, nokkuð
gegn gangi leiksins, á sextándu mín-
útu er Magnús Magnússon skallaði
laglega í markið eftir homspymu
Guðmundar Vals Sigurðssonar. Sex
mínútum síðar jafnaði Ásbjöm
Bjömsson fyrir KR af stuttu færi eftir
þvögu.
Meira bar á skipulögðu spili í sfðari
hálfleiknum, sérstaklega af hálfu KR
sem náði foiystunni er tuttugu mínút-
ur vom liðnar af leiknum. Hálfdán
Örlygsson tók þá aukaspymu af
vinstri kanti og sendi langan bolta að
marki UBK. Öm Bjamason, mark-
vörður Blikanna, áttaði sig ekki á
stefiiu knattarins og Willum Þór Þórs-
son skallaði boltann í netið nánast af
marklínu. Eftir markið var KR alls-
ráðandi á leikvellinum og þriðja
markið lá í loftinu. Það kom stundar-
fjórðungi fyrir leikslok. Stefán Jó-
hannsson spymti langt frá marki og
boltinn barst til Sæbjamar Guð-
mundssonar sem skaut að marki.
Gunnar Gylfason náði að bjarga skoti
hans á línu en Júlíus Þorfinnsson var
fljótur að átta sig og renndi knettinum
f markið af stuttu færi, 3-1. Bæði liðin
virtust sætta sig við hlutskiptið og
mikið bar á löngum spymum KR-inga
til markvarðar á lokamínútunum.
Sigur KR-inga var sanngjam. Leik-
menn liðsins hugsuðu mun meira um
að spila knettinum sín á milli heldur
en Blikamir og vöm liðsins var sterk
með Loft Ólafsson og Hálfdán Örlygs-
son sem bestu menn. Þá áttu þeir
Gunnar Gíslason, Sæbjöm Guð-
mundssson og Ásbjöm Bjömsson
góðan leik í annars jöfhu liði.
Leikur Blika var ekki traustvekjandi.
Vöm liðsins opnaðist ofl á tíðum illa og
liðið gat prísað sig sælt með að sleppa með
þrjú mörk. Bestu leikmenn iiðsins voru
þeir Jón Þórir Jónsson, snöggur og fylginn
framherji og líklega sá eini sem vestur-
bæingavömin átti í umtalsverðu basli með
og Guðmundur Valiu- Sigurðsson á miðj-
imni. Sífellt gjamm Jóns Hermannssonar,
þjálfara liðsrns, í tíma og ótíma vakti
nokkra athygli áhorfenda í vesturbænum
í gær. Fullvíst má telja að það hafi síst
haft góð áhrif á leikmenn liðsins.
Magnús Theodórsson dómari hefur oft-
ast átt betri daga í dómgæslunni. Hann
virtist nokkuð skorta nauðsynlega yfirferð
og staðsetningar hans því ekki upp á það
besta. Hvomgt liðið hagnaðist á dómgæsl-
unni. Blikamir Benedikt Guðmundsson
og Hákon Gunnarsson fengu að líta gula
spjaldið ásamt Ágústi Má, KR-ingi.
Lið KR: Stefán Jóhannsson, Jósteinn
Einarsson, Háldáp Örlygsson, Loftur Ól-
afsson, Willum Þórsson, Gunnar Gíslason,
Ágúst Már Jónsson, Ásbjöm Bjömsson,
Bjöm Rafhsson, Sæbjöm Guðmundsson,
Júlíus Þorfinnsson.
Lið UBK: Öm Bjamason, Heiðar Heið-
arsson, Ólafur Bjömsson, Magnús
Magnússon (Rognvaldur Rögnvaldsson),
Benedikt Guðmundsson, Jón Þórir Jóns-
son, Hákon Gunnarsson (Þorsteinn
Geirsson), Jóhann Grétarsson, Gunnar
Gylfason, Guðmundur Valur Sigurðsson,
Guðmundur Guðmundsson.
• Ásbjörn Björnsson, lengst til hægri, jafnar metin, 1-1, i fyrri hálfleik gegn Blikum sem þrátt fyrir góða til-
burði koma engum vörnum við. DV-mynd Brynjar Gauti