Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Síða 28
28
DV. MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 1986.
íþróttir Íþróttir íþróttir íþróttir
Stórsigur
Víkings
Njarðvíkingarnir, sem voru tap-
lausir í 2. deildinni, byrjuðu sannar-
lega vel í leiknum á móti Víkingum
syðra á laugardaginn. Gegn regni og
stormi skoruðu þeir fyrsta markið
og var þar að verki Jón Ölafsson
með skoti af stuttu færi, eftir gróf
varnarmistök.
Fyrir hlé höfðu Víkingar jafnað og
gert einu marki fleira - úr mörgum
tækifærum þar sem knötturinn lenti
annaðhvort í marksúlum, framhjá
eða markvörður varði. Fyrsta mark-
ið skoraði Atli Einarsson og Elías
Guðmundsson mark númer tvö með
skoti frá vítateig - en knötturinn
snerti varnarmann í leiðinni og setti
markvörðinn úr jafnvægi.
í seinni hálfleik réðu Víkingar öllu
um gang leiksins því smám saman
dró af heimamönnum, sem voru
furðuslakir. Andri Marteinsson
bætti þriðja markinu við á 67. mín.
og skömmu síðar var Elías aftur á
ferðinni, 1-4. Jóhann Holton skoraði
síðan fimmta markið - fylgdi vel eft-
ir skoti og skoraði af stuttu færi.
emm
Afturelding
skoraði átta
• Guðmundur Torfason átti stórleik með Fram gegn FH og skoraði helming markanna.
komi vörnum við.
Hér er hann að skalla knöttinn í mark FH án þess að heimamenn
DV-mynd Brynjar Gauti
- gegn Stokkseyn
Sextán leikir fóru fram um helgina
í íslandsmóti 4. deildar í knattspymu.
Úrslit urðu sem hér segir:
A-riðill:
Skotfél. Rvk.-Haukar............0-3
Snæfell-Grundarfjörður..........3-1
Augnablik Þór Þ.............frestað
B-riðill:
H veragerði-V ík verj i.........1-1
Stokkseyri-Afturelding..........3-8
Léttir-Vík. Ó1..Víkingar mættu ekki
C-riðill:
Leiknir R.-Grótta...............2-1
Árvakur-Eyfellingur.............6-2
D-riðill:
Stefeir-BÍ......................1-2
Bolungarvik-Höfrirngur..........3-0
Geislinn-Stefeir............frestað
E-riðill:
Höfðstrendingur-H vöt...........0-1
Vaskur-Kormákur.................4-1
F-riðill:
Tjömes-Núpar.....................1-0
Æskan-HSÞb........................64
G-riðill:
Hrafirkell-Höttur................1-0
Neisti-Huginn....................3-4
Sindri-Súlan....................0-1
-SK./JFJ
„Attum alveg eins von á
svona stórum sigri
sagði Ásgeir Elíasson, þjáHari Fiam, eför stórsigurinn á FH, 1-6
„Ég er mjög ánægður með leikinn.
Við spiluðum vel fyrir utan smákafla
í fyrri hálfleiknum. Við áttum alveg
eins von á svona stórum sigri. Þetta
kemur ekkert sérstaklega á óvart,“
sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram,
eftir að lið hans hafði burstað FH,
6:1, í Hafnarfirði á laugardag.
Kannski of stór sigur miðað við leik-
inn í heild en Framarar sýndu það
að þeir geta skorað mörk.
FH-ingar fengu óskabyrjun í leikn-
um og náðu forustunni eftir aðeins
4 mín. Magnús Pálsson skoraði með
glæsilegum skalla eftir homspymu.
En heimamönnum tókst ekki að
fylgja eftir góðri byrjun og leikmenn
Fram náðu undirtökunum á vellin-
um. Og á 13. mín. uppskáru þeir
mark. Halldóri, markmanni FH, mis-
tókst að grípa knöttinn eftir fyrirgjöf
og Guðmundur Steinsson náði að
pota honum í mark FH. Aðeins 4
mín. síðar skoraði Guðmundur
Torfason annað mark Fram með
hörkuskoti frá vítateig.
Nú var eins og Framarar slökuðu
á og FH-ingar fengu tvö dauðafæri
til að jafna fyrir leikhlé. Á 40. mín.
komst Ingi Björn í gegnum vörn
Fram en Friðrik Friðriksson, mark-
maður Fram, náði boltanum. Ólafur
Danivalsson skaut síðan framhjá úr
algeru dauðafæri.
Margir áttu von á að FH-ingar
mundu hefja síðari hálfleik með
sömu sókn og þeir enduðu þann fyrri
en það var af og frá. Framarar ætl-
uðu greinilega að bæta stöðuna og
það tókst þeim svo sannarlega. Vörn
FH var illa staðsett á 53. mín. þegar
Guðmundur Torfason skoraði örugg-
lega af stuttu færi og þá var eins og
FH-ingar gæfust hreinlega upp. Á 63.
mín. fékk Fram aukaspyrnu á víta-
teigshominu og Pétur Ormslev
skoraði með glæsilegu skoti. Og
skömmu síðar var FH-vörnin enn
sundurspiluð og Pétur bætti fimmta
markinu við. FH-ingar komust hins
vegar lítið áleiðis þrátt fyrir að þeir
væm mikið með boltann úti á vellin-
um. En vörn liðsins var hræðilega
slök ásamt því að.lítil aðstoð kom frá
miðjunni og það nýttu Framarar sér.
Fimm mínútum fyrir leikslok lék
Guðmundur Torfason á Halldór
markvörð en skaut yfir. En það kom
varla að sök því að 2 mín. síðar full-
komnaði hann þrennu sína í leiknum
með glæsilegu skallamarki.
Leiktíminn rann út og stórsigur
Fram var í höfn.
Ágætur leikur miðað við aðstæður,
nokkurt rok þvert á völlinn og í síð-
ari hálfleik rigndi. Og áhorfendur
fengu að sjá mörg mörk sem hefðu
þó mátt skiptast jafnar á milli !ið-
anna. Sigur Fram of stór miðað við
gang leiksins. Leikmenn Fram léku
mjög vel, sérstaklega í síðari hálf-
leik. Pétur Ormslev var mjög góður
og lagði upp margar glæsilegar sókn-
arlotur. Einnig átti Jón Sveinsson
framúrskarandi leik. Guðmundur
Torfason skapaði geysilega hættu í
vítateig FH og einnig Guðmundur
Steinsson meðan hann var inni á.
FH-liðið átti mjög dapran dag og
þá sérstaklega Halldór markvörður
sem lék langt undir getu og virkaði
óöruggur. Lítil barátta var í liðinu
og hálfgert áhugaleysi áberandi hjá
leikmönnum. Liðin voru þannig
skipuð:
FH: Halldór Halldórsson, Viðar
Halldórsson (Hlynur Eiríksson 70.
mín.), Ólafur Kristjánsson, Ólafur
Jóhannesson, Henning Hennings-
son, Guðmundur Hilmarsson, Ingi
Bjöm Albertsson, Ólafur Danivals-
son (Hörður Magnússon 70. mín.),
Pálmi Jónsson, Magnús Pálsson,
Kristján Gíslason.
Fram: Friðrik Friðriksson, Þorsteinn
Vilhjálmsson, Gauti Laxdal, Pétur
Ormslev, Viðar Þorkelsson, Kristinn
Jónsson, Jón Sveinsson, Guðmundur
Steinsson (Arnljótur Daviðsson 80.
mín.), Steinn Guðjónsson (Ormarr
Örlygsson 70. mín.), Guðmundur
Torfason, Þórður Marelsson.
Gul spjöld: Jón Sveinsson og Þórður
Marelsson. Dómari var Friðgeir
Hallgrimsson og dæmdi hann ágæt-
lega. Línuverðir voru Gunnar
Jóhannsson og Eysteinn Guðmunds-
son.
Maður Leiksins: Pétur Ormslev,
Fram.
Róbert
• Pétur Ormslev átti stórleik þegar Fram vann FH á laugardag. Pétur skoraði tvö mörk og hér er annað þeirra
orðið staðreynd. Knötturinn liggur í netinu og Pétur er í þann veginn að fagna markinu.
DV-mynd Brynjar Gauti
Barcelona
Barcelona varð um helgina spænsk-
ur deildarbikarmeistari í knattspymu
eftir að liðið sigraði Real Betis í seinni
leik liðanna 2 0 á heimavelli sínum.
Real Betis vann fyrri leik liðanna á
heimavelli sínum 1-0 og vann því
Barcelona 2-1 samanlagt.
Raul Amarilla skoraði fyrra mark
sigraði 2-0
Barcelona strax á 9. mínútu og Jose
Alexandro sá síðan um að skora sigur-
markið fimm mínútum fyrir leikhlé.
Hálftómlegt var um að litast á heima-
velli Barcelona því aðeins 18 þúsund
áhorfendur mættu á leikinn en leik-
vangurinn rúmar 110 þúsund áhorf-
endur. -SK.