Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Qupperneq 31
DV. MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 1986.
31
Sandkorn Sandkorn
Höskuldur rikisforstjóri
Ríki
ríkjanna
Ríkið á Akureyri er falleg-
asta verslun ÁTVR á landinu
eftir miklar breytingar sem
þar voru gerðar. Haldið var
upp á breytingamar og mætti
þar til leiks forstjórinn nýi,
Höskuldur Jónsson. Hann
sagði skemmtilega sögu af
sjálfstæðismanninum Bimi
Jónassyni á Siglufirði:
Bjöm drakk alltaf kók í
æsku. Líkaði afa hans það illa
og kallaði kókið „bölvað rop-
vatn“. Bjöm sagði þá:
„En afi, þú ert alltaf að
drekka brennivin."
„Já, það er nú líka eitthvert
gagn í því drengur."
Stór-
hertoginn
Stórhertogahjónin frá Lúx-
emborg, sem vom í opinberri
heimsókn á Islandi í síðustu
viku, skoðuðu sig um hér fyrir
norðan. Ekki gat fólk séð að
hertoginn og frúin væm neitt
stærri en gengur og gerist.
Hvorki langsum né þversum.
Þaó má ekki koma óoröi á brenni-
vinió
Landsbanka-
hlaupið
f Landsbankahlaupinu á
Húsavík voru leiknir hressi-
legir marsar af segulbandi
meðan á hlaupinu stóð. Það
vakti mikla athygli að lagið
sem leikið var á undan verð-
launaafhendingunni var
þjóðsöngur Bandaríkjanna.
Selá
Veiðin í Laxá í Aðaldai
byijaði vel. Á fyrsta degi
veiddist 21 lax. Sá stærsti var
algjör stórhertogalax, eða 20
pund. En allra stærsti stór-
hertoginn sem veiddist var
selur sem veiðimenn skutu í
ánni. Honum var landað fag-
lega og var kallaður landselur
á eftir.
Óorð
Múrarameistarinn Sigurður
Hannesson kvaddi sér hljóðs
í ríkinu á Akureyri á eftir
Höskuldi ríkisforstjóra. Sig-
urður sagði að breytingarnar
hefðu tekist vel en því miður
gæti hann ekki óskað þess að
salan ykist. Söluvaran væri
þess eðlis.
En hann bætti við: „En auð-
vitað er allt í lagi að drekka
ef menn gá að því að koma
ekki óorði á brennivínið."
Bjarni Hafþór Helgason
Hún
Reykjavík
Viðskiptafræðingurinn hjá
KEA, Bjarni Hafþór Helgason
sem samdi Reykjavíkurlagið
„Hún Reykjavík", hefur ekki
aðeins samið lög. Hann á
nefnilega líka nafnið á nýjasta
veitingastaðnum á Akureyri
sem auðvitað heitir Fiðlarinn.
Margt til iista lagt, Hafþóri.
Jesús kennir
Einhver Filippseyingur,
Ning de Jesus, sagði í blaða-
viðtali fyrir helgi að hann
myndi kenna íslendingum að
borða austurlenskan mat. Við
fyrir norðan vonum bara áð
maturinn bragðist vel svo
þetta verði nú ekki síðasta
kvöldmáltíðin.
Aukabú-
grein
Fréttablaðið Feykir á Sauð-
árkróki spyr bændafólk í
síðasta tölublaði sínu, í spum-
ingu dagsins, hvort það taki
böm til sumardvalar?
„Já, þetta er skemmtileg
aukabúgrein," var eitt svarið.
Væri ekki rétt að senda Ning
de Jesus með grasafæðið sitt
norður í sumar?
Hreysti-
meðal
Og svo einn í lokin úr Degi:
„Læknir, það er varðandi
meðalið mitt, þetta éem þú
gafst mér til að byggja upp
kraft og hreysti - ég næ ekki
lokinu af.“
Umsjón: Jón G. Hauksson
Bolti '86
Það er mál manna hér á
Akureyri að Danir séu með
langskemmtilegasta liðið á
H M í Mexíkó. Og hér halda
allir með Dönum. En mikil
spenna ríkir einnig á Akureyri
um Coltinn, bílinn sem KA
veitir í verðlaun í HM-getraun
sinni. Dregið verður úr réttum
úrlausnum í svæðisútvarpinu
mánudaginn 30. júní. Eins og
gengur vilja allir aka á Colt-
boltanum heim frá útvarpinu
Hann var kallaður landselur eftir
að honum hafði verið landað.
r
Menning Menning Menning
Stórkostlegir tónleikar
Margaret Price á listahátíð
LISTAHÁTÍÐ í REYKJAVÍK
Tónleikar Sinfóniuhljómsveitar íslands í
Háskólabiói 14. júni.
Stjórnandi: Jean-Pierre Jacquillat.
Einsöngvari: Margaret Price.
Á etnisskrá: Óperuforleikir, milliþáttamús-
ik og ariur úr óperum eftir: Wolfgang
Amadeus Mozart Vincenzo Bellini, Gius-
eppe Verdi og Giacomo Puccini.
Stundum er það skammgóður vermir
að treysta á skipulag listahátíða. Ekki
getur einungis skipulagið, svo gott
sem það er á annað borð, brugðist,
heldur geta óvænt atvik breytt gangi
mála. Eg kvaddi eina af fyrirferðar-
meiri tónlistarhátíðum Evrópu rétt
áður en okkar Listahátíð hófst í þeirri
fullvissu að ég færi einskis ó mis að
missa af tónleikum listahátíðapakka
ársins, Kötju Riccarelli, því raddar
hennar fengi ég að njóta heima
skömmu síðar. 1 annað sinn voru að-
standendur Listahátíðar í vanda settir.
í fyrra sinnið bjargaði Kristján Jó-
hannsson andliti hátíðarinnar með
sínum bestu tónleikum til þessa. Nú,
í seinna skiptið björguðust málin fyrir
heppni, líkast til mest vegna góðra
persónulegra sambanda söngvara á
alþjóðavettvangi. Sem sé enn eitt
kraftaverkið.
í stað Kötju Riccarelli kom Margar-
et Price, jafnlofúð söngkona og sú sem
koma ótti. Það er eins gott að taka
það fram strax, að skiptin tel ég síður
en svo slæm og skal það útlistað nán-
ar.
Sjaldheyrð auðmýkt og virðing
fyrir viðfangsefninu
Það er í fyrsta lagi vandfúndirn sá
listamaður sem til hefur að bera þó
auðmýkt og virðingu fyrir viðfangs-
efninu sem Margaret Price. En það
er eins og aðeins hinir bestu meðal
mikilla listamanna geti leyft sér þann
trúnað við kúnstina. Hún hefur til að
bera þá fæmi, tækni og andagift, að
henni leyfist að hugsa um helgun list-
arinnar eina og þann tilgang aðeins.
Einu gildir hvar niður er borið til
að nefna dæmi þessa frá tónleikunum
í Hóskólabíói. Hún söng hvorki meira
né minna en sex stóraríur ó þeim.
Þótt allar væru aríumar ítalskrar
ættar (að Mozart undanskildum) vitn-
uðu þær um íjölhæfni söngkonunnar.
Það er sjaldgæft að heyra söngkonu,
jafnvel þótt af alþjóðlegum staðli sé,
saméina svo stórkostlega „lýrik og
dramatík". Fyrst kom hún sem greifa-
frúin úr Brúðkaupi Figaros. Hún kvað
hafa hafið feril sinn sem Cherubino
og gæti ugglaust sungið hann enn, en
það væri víst háð samþykki leikstjór-
ustu Desdemónutúlkun sem maður
hefur yfirleitt heyrt. Hvílík snilld, hví-
lík auðmýkt sem svo frábær listamað-
ur kann að sýna fyrir viðfangsefni sínu
- eins og Margaret Price söng bænina
í lok aríunnar úr Othello - sjaldheyrð
því miður.
Eftir hlé komu Verdi og Puccini.
Fyrst fengum við að heyra Margaret
Price gefa okkur dæmi um einstaka
Leonomtúlkun í Trúbadomum, síðan
Mimi úr Boheme og að lokum lykilar-
íuna „Pace, pace“ úr Valdi örlaganna.
Það jaðraði við frekju að fara fram á
meira, en snortin af hjartanlegu þakk-
læti og fögnuði áheyrenda gaukaði
þessi stórkostlega söngkona að okkur
einum Puccinisöng til viðbótar, sem
ég kann því miður ekki nákvæmlega
að heimfæra.
Tónlist
Eyjólfur Melsted
ans. Þar gaf hún okkur dæmi um
yfirvegun og húmor. I Mozart er ekk-
ert hægt að fela og maður hlýtur að
falla fyrir annarri eins snilld.
Stórfengleg Desdemóna
Síðan brá hún sér i Aidu líki og þá
fengu við dæmi um dramatíska snilld
hennar. Og svo sameinaði hún lýrík
og dramatík í einhverri stórkostleg-
Harla misgóð þennan daginn
Hljómsveitin okkar var harla mis-
góð þennan daginn. í meðleiknum með
söngkonunni snjöllu skilaði hún að
mestu góðu verki. Smóskítur í flautu
í Aríu Desdemónu og st\Tkleikamis-
ræmi milli blásara og strengja spillti
til þess að gera litlu. Sumt spilaði hún
mjög vel, til dæmis Milliþáttamúsík-
ina úr Manon Lescot og Forleikina
að Nabucco og Valdi örlaganna. En í
öðru gat hún hrapað niður um mörg
þrep leikgæðastigans. Fæst af því var
svo sem alvarlega slæmt utan hörm-
ungarmeðferðin á Sigurmarsinum úr
Aidu þar sem bæði tempóval stjóm-
andans og vægast sagt slæleg frammi-
staða lúðraliðsaukans ollu því að að
manni setti annars konar hroll og
gæsahúð en þann sem Margaret Price
kom út hjá manni og kannski var
meiningin að koma einhverjum til að
vikna af öðrum orsökum en gleði yfir
stórkostlegum söng.
EM
Rakarastofan Klapparstig
Hárgreiðslustofan
Klapparstíg
Sími 12725
Tímapantanir
13010 j
KÖFUNARNÁMSKEIÐ
Nú gefst einstakt tækifæri til aö kynnast
undraheimi undirdjúpanna og læra froskköfun.
Námskeið verða haldin í Farfuglaheimilinu Reykjanesi. Þau eru í
10 daga hvert og standa öllum opin. Hverju námskeiði lýkur með
prófi sem miðast við tveggja stjörnu alþóðleg réttindi til sportköfun-
ar. Næsta námskeið hefst 28. júní 1986.
Allar nánari upplýsingar veittar hjá
Bandalagi íslenskra farfugla,
\ sími (91) 10490.
ASEA CYLINDA
Þvottavélar og þurrkarar
...eins og hlutirnir gerast bestir:
Árangur náinnar samvinnu sænsku neytendastofnunarinnar KONSUMENTVERKET,
textilrannsóknastofnunarinnar TEFO og tæknirisans ASEA. Nýsköpun sem fær hæstu
einkunnir á upplýstasta og kröfuharðasta markaði heims fyrir árangur, taumeðferð
og rekstrarhagkvæmni.
ASEA CYLINDA tauþurrkari
Skynjar sjálfur hvenær tauið er þurrt, en
þú getur líka stillt á tíma.
114 lítra tromla, sú stærsta á markaðin-
um. Það þarf nefnilega 2,5 sinnum stærri
tromlu til að þurrka í en til að þvo í.
Tekur því úr þvottavélinni í einu lagi.
Mikið tromlurými og kröftugt útsog í
stað innblásturs stytta þurrktíma, spara
rafmagn og leyfa allt að 8m barka.
Neytendarannsóknir sýna að tauið slitnar
ekki né hleypur í þurrkaranum, heldur
losnar aðeins um lóna af notkunarsiitinu.
Það er kostur, ekki síst fyrir ofnæmisfólk.
Sparar tíma, snúrupláss og strauningu.
Tauið verður mjúkt, þjált og slétt, og æ
fleiri efni eru gerð fyrir þurrkara.
Getur staðið á gólfi eða ofan á þvottavél-
inni.
ASEA CYLINDA þvottavélar
Þvo best, skola best, vinda best, fara best
með tauið, nota minnst rafmagn.
Vottorð upp á það.
Gerðartil að endast, og i búðinni bjóðum
við þér að skyggnast undir glæsilegt
yfirborðið, því þar er ekki síður að finna
muninn sem máli skiptir: trausta og
stöðuga undirstöðu, vöggu á dempurum
í stað gormaupphengju, ekta sænskt
ryðfrítt krómnikkelstál, SKF-kúlulegur á
35 mm öxli, jafnvægisklossa úr járni í
stað sandpoka eða brothætts steins o.fl.
Athyglisverð er líka 5-laga ryð-og rispu-
vörn, hosulaus taulúga, hreinsilúga,
grófsía, sápusparnaðarkerfi með lyktar-
og hljóðgildru, stjórnkerfi með framtíð-
arsýn og fjölhraða lotuvinding upp í
1100 snúninga.
ASEA CYLINDA er nú eini framleiðandi heimilisþvottavéla á Norðurlöndum.
Með stóraukinni framleiðslu og tollalækkun er verðið hagstætt. Og víst er,
að gæðin borga sig, STRAX vegna betri og ódýrari þvottar, SlÐAR vegna
betri endingar.
/rOnix
HÁTÚNI 6A SlMI (91)24420