Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Page 42
42
DV. MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 1986.
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Michael
Laudrup
þurfti aldeilis að hafa fyrir
lífsbrauðinu þegar hún var
að kaupa inn að hætti hag-
sýnna húsmæðra. Hún hélt
sig hafa dottið í lukkupott-
inn þegar hún náði taki á
síðasta kartöflupokanum
sem var eftir í versluninni.
Það vildi þó ekki betur til en
svo að önnur kona hélt hið
sama og togaði í kartöflu-
pokann á móti. Hvorug vildi
gefa eftir og kom til háværra
deilna, öskra og pústra. Lá
hreinlega við slagsmálum
þegar ítalska lögreglan
skarst í leikinn og aðskildi
konurnar. Ursula fékk þó
pokann um síðir því innan
lögreglunnar er líka að finna
aðdáendur leikkonunnar
limafögru. Laganna verðir
voru ekki í nokkrum vafa
hvorri bæri pokinn umdeildi.
danska hetjan sem leikur
með Juventus á Italíu hefur
verið sagt að kvænast hið
fyrsta. Hann býr nú ásamt
kærustu sinni, Tinu, í glæsi-
legri íbúð í einu af fínni
hverfum Torinoborgar. For-
ráðamenn Juventus hafa
miklar áhyggjur af ímynd
Laudrups og liðsins, ef hann
heldur áfram að lifa í synd
með Tinu, því Ítalía er ka-
þólskt land og íbúarnir
strangtrúaðir. Það virðist því
eiga fyrir Laudrup að liggja
að ganga í hið heilaga eftir
að hafa verið í víking í Mex-
íkó.
Ursula
Andress
Sturla (t.h.) tekur við GENIE-verðlaununum.
Islenskur feikstjóri
var tilnefndur til
óskarsverðlauna 1983
Það er oft sagt að enginn sé spá-
maður í sínu föðurlandi og það hefur
margoft sannast. Oftsinnis eru menn
að vinna stór afrek sem vekja áhuga
og aðdáun meðal milljónaþjóða en
er varla getið i heimalandi sínu. Einn
slíkra er Sturla Gunnarsson. Ungur
maður sem fluttist 6 ára að aldri til
Kanada og er í dag eitt af stærstu
nöfnum kanadískra kvikmynda. Svo
þekkt er nafn hans orðið að þess er
getið sérstaklega í hinni kanadísku
Encyclopediu þar sem fjallað er um
kvikmyndir.
Sturla lærði ensku og grísku í há-
skóla og fór síðan á flakk um
heiminn. Starfaði hann meðal annars
á fiskibáti í Grikklandi, við olíu-
leiðslur á Hjaltlandi og var á vetrar-
vertíð frá Þorlákshöfn. Þegar Sturla
hafði fengið nóg af heimshomaflakki
sneri hann aftur til Kanada t>g fór
til Montreal. og lærði kvikmynda-
stjórn. Strax að námi loknu byrjaði
hann að raka saman kvikmynda-
verðlaununum og hefur vart hætt
síðan. 1978 vann hann fyrstu verð-
laun í samkeppni nýstúdenta með
myndinni „A day much like the ot-
hers“ og einnig fékk sú mynd aðrar
viðurkenningar. Sturla einbeitti sér
strax að heimildarmyndum og 1983
var hann tilnefndur til óskarsverð-
launa fyrir bestu heimildarkvik-
myndina en myndin hét „After the
Axe“ og fjallaði um þegar forstjóra
stórfyrirtækis er sparkað og ýmsar
afleiðingar þess, einkum sálrænar.
Sú mynd hlaut meðal annars „The
Golden Sheaf ‘ á Yorkton-kvik-
myndahátíðinni og vann sjálfan
„bláa borðann“ á Alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í New York.
Árið 1985 hlaut kvikmynd Sturlu
„Bamboo Brush“ a.m.k. 6 kvik-
myndaverðlaun sem þykir ekkert
slor. En þó vel hafi gengið hingað
til er það þó nú fyrst á þessu ári sem
stærstu sigrarnir eru að vinnast. 90
mínútna heimildarmynd Sturlu sem
nefnist „The Final Offer“ var frum-
sýnd í nóvemberlok í kanadísku
sjónvarpsstöðinni CBC sem jafn-
framt var framleiðandi myndarinnar.
Myndin hefur vakið feiknarathygli
því þar sýnir Sturla samtímasögu
kanadískra verkalýðsfélaga. Hann
fær að fylgjast með starfsemi U.A.W.
(United Auto Workers) sem er félag
verkamanna í bílaiðnaði. Félagið
•stóð í samningaviðræðum við Gener-
al Motors og fengu kvikmyndamenn-
imir að vera á samningafundum eins
og flugur á vegg og fylgjast með.
Fljótlega gleymdust kvikmynda-
mennirnir og samningamennimir
létu ýmislegt flakka. Viðræðumar
urðu hinar sögulegustu og lauk með
miklum sigri kanadíska arms verka-
lýðsfélagsins og í kjölfar hans sögðu
þeir skilið við bandaríska hluta fé-
lagsins enda voru hagsmunir farnir
að stangast á. Allt þetta kvikmynd-
aði Sturla og segja menn hann hafa
kvikmyndað ódauðlegt verk kana-
dískrar samtímasögu og verkalýðs-
baráttu. Myndin hefur vakið mikla
hrifningu í Kanada, sögð frábær,
nema málið sem samningamennirnir
notuðu. Það var víst uppfullt af f...
ing og s..t og öðrum ámóta blótsyrð-
um. Myndin hefur hlotið ACTRA-
verðlaunin sem veitt eru listamönn-
um í kanadísku útvarpi og sjónvarpi.
Hún varð hlutskörpust þegar
GENIE-verðlaunin voru veitt, en þau
eru kanadísk hliðstæða óskarsverð-
launanna, og nú í lok síðasta
Kvikmyndaleikstjórinn og eiginkona í góðra vina hópi.
mánaðar fékk myndin sigurlaunin á
alþjóðlegu BANFF kvikmyndahá-
tíðinni sem besta þjóðfélagslega
heimildarmyndin. Hér er því um
stórmynd að ræða enda spá því flest-
ir að hún verði tilnefnd til óskars-
verðlauna og margir telja að hún
muni fara létt með að hirða þau.
Sturla Gunnarsson ,hefur í hyggju
að koma til íslands í sumar eftir að
hafa farið til Punjab en kona hans
er indversk. Það getur þó hæglega
breyst því hann er umsetinn leik-
stjóri og héðan í frá má ætla að um
hann verði slegist. Sturla Gunnars-
son hefur unnið hvert stórafrekið á
fætur öðru og sýnt að við eigum fleiri
afreksmenn en Hófí og handbolta-
landsliðið.
Tvíburarnir Sara og Hrönn við páfagaukabúrið í versluninni Vín, ekki vitund
hræddar við masið í páfagaukunum. DV-mynd JGH
Sara og Hrönn góna á gauka
Jón G. Hauksson, DV, Akureyri:
Þær tvíburasystur Sara og Hrönn
Sigurbjömsdætur voru að góna á
páfagaukana í Vín í Eyjafirði í góða
veðrinu á dögunum.
Þær hnátur verða tveggja ára í
júlí og eru frá bænum Möðruvöllum
í Saurbæj arhreppi. Það er því stutt
að fara með mömmu og pabba að
skoða páfagaukana. Nú, ekki sakar
heldur að fá ís í ábót. Og hvað gerir
það til þótt fötin verði kámug á eft-
ir. Það bara tilheyrir.
Hér má sjá giftingartísku sem kynnt var nýlega á sýningu hjá „The
house of Balmain” í París. Mörgum kann eflaust aö finnast öllu
snúið hér vlð, brúðurln í jakka en brúðgumlnn er klæddur í hvítt
og með blóm. Hver veit nema þetta sé framtíðin?