Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Síða 43
DV. MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 1986.
43
Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós
y*'T.
WÉ
Gleðibankinn
var sunginn
við mikinn fögnuð
Fyrir u.þ.b. viku bauð Pálmi
Gunnarsson, ásamt fleiri, vist-
mönnum á Sólheimum á heljarmik-
ið knall á Borg í Grímsnesi. Allir
sem vettlingi gátu valdið fóru á
skemmtunina frá Sólheimum.
Pálmi er góðkunningi, bæði vist-
manna og starfsmanna, enda starf-
aði hann þar um skeið. Á Borg
voru einnig komnir nokkrir vist-
menn af Kópavogshælinu og
skemmtu allir sér vel. Hljómsveitin
lék lög sem fólkið kannaðist við
og þegar hinn „íslandsfrægi“
Gleðibanki var sunginn af þeim
Eiríki og Pálma var sem þakið
ætlaði að rifna og sumir tóku und-
ir með þeim. En þó dansmúsík
væri aðall kvöldsins tók fólkið sér
þó frí frá dansgólfinu og hlustaði
m.a. á Eggert Þorleifsson flytja
gamanmál. Allir fóru glaðir heim
af knallinu og kunni fólkið Pálma
miklar þakkir. Mikið er um að vera
hjá Sólheimafólki og það lætur sitt
ekki eftir liggja. Það ætlar sér von
bráðar í leikhús í boði Iðnó og sjá
Land rníns föður.
Reynir Pétur dansaði af hjartans lyst eins og aðrir.
DV-myndir PK
RÍKISSPÍTALARNIB
lausar stöður
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Staða framkvæmdastjóra tæknisviðs Rikisspítala er
laus til umsóknar.
Próf í verkfræði, t.d. rekstrar-, byggingar- eða véla-
verkfræði er skilyrði.
Umsóknir, er greini aldur, menntun og fyrri störf,
sendist stjórnarnefnd ríkisspítala, Rauðarárstíg 31,
Reykjavík, fyrir 15. júlí nk.
Reykjavík, 16. júní 1986.
Silkihúð með
Cremedas
- besta umhirða sem þugetur veitt húðinni
NÝTT-NÝTT
BODY MOUSSE
Frábær nýjung frá
Chemedao „body
lotion" í froðuformi,
auðveld og þægileg
í notkun og húðin
verður silkimjúk.
~ HeiidsötubiraOir:
níliilij Sl
| STADUR PEIRRA, SEIVI AKVEÐNIR ERU 1 PVI AÐ SKEMMTA SER |
ÞAÐ ERAÐ KOMA17. JUNIH!
Þjóðhátíðardagurinn er á morgun — það er
enginn vaft. Við höldum að sjáifsögðu upp á það
í KLÚBBNUM og höfum opið til klukkan þrjú í
nótt.
Við verðum með skipulegar æfingar fyrir skrúð-
gönguna á morgun og hver veit nema plötu-
snúðarnir láti alla dansa „kónga".
Hljómsveitin BOGART gerði nánast allt vitlaust
af stuði um helgina svo búast má við góðu „gilli"
í kvöld.
Misstu ekki af þjóðhátíðarstuðinu í KLÚBBNUM
— því það er engu líkt og kemur aldrei aftur.
Opið frá kl. 22.00 - 03.00.