Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Síða 44
t
44
DV. MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 1986.
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Ekki lengur búttuð, heldur grönn og sæt.
Lucy
gleymd og grafin
Frú Tilton með sýningu fyrir eig-
inmanninn!
Charlene Tilton, sú sem lék
litlu búttuðu budduna, Lucy i
Dallas, hefur heldur breytt um
svip síðustu mánuði. Eftir að hún
hætti að leika í sápuóperunni sí-
vinsælu breytir hún um stíl
daglega. Það gerir hún til að
gleðja eiginmann sinn, leikarann
og músíkantinn Domenick Allen.
Honum finnst að lífið eigi að vera
ein stór sýning, uppfull af gleði
og gáska - ekki skrítið að hann
sló fyrst í gegn í Liberace-sýning-
unni í Las Vegas. Hér sjáum við
myndir af hinni nýju Charlene
Tilton sem er orðin grönn og nett
og löngu búin að grafa Lucy
Ewing.
Voko Ono
hefur oft að undanfömu sést með sama manninum. Hann heitir Sam
Havadtoy. Mörgum finnst samband þeirra vera orðið ansi náið og
líka virðist vera mikill vinskapur milli Sam og sonar Yokos, Sean.
Eru uppi miklar vangaveltur hvort samband þetta verði varanlegt?
en skugginn
að skjóta
í hugum flestra tengist skamm-
byssan hetjum vestursins sem sátu á
hestbaki eða við spilaborð. Hetjum
eða illmennum á borð við Billa bam-
unga, Daltónbræður eða lukku-
Láka. Að vísu er sá síðastnefndi að-
eins teiknimyndahetja enda hafa
aldrei farið sögur af neinum sem
unnið hefur skoteinvígi við skugga
sinn. Menn hafa þó löngum keppst
við að vera sem fljótastir að munda
byssuna og þeir þóttu jafiian mestir
menn sem hraðast gátu dregið byss-
una úr slíðri. Þó stoðaði það ekki
kúrekana að vera fljótir til ef þeir
hittu ekki belju þegar þeir héldu í
halann á henni. Því var markhæfni
einnig stunduð kappsamlega og er í
raun eldri íþrótt. Menn hafa nefni-
lega æft sig, allt frá því að þeir
eignuðust vopn, í að samhæfa hug
og hönd, fyrst sjálfsagt með steinum.
Lögreglan í Reykjavík lætur heldur
ekki sitt eftir liggja og efndi fyrir
skömmu til skotkeppni. Keppnin
fólst í því að hitta sem best en hrað-
inn var látinn liggja á milli hluta.
Keppt var bæði í sveitum og ein-
staklingskeppni en hún nefnist „fin-
al“ og fer fram á milli stigahæstu
einstaklinga sveitakeppninnar. Að
þessu sinni sigraði A-vakt, vakt Ein-
ars Bjarnasonar, í sveitakeppninni
eftir harða baráttu við B-vakt, vakt
Karls Magnússonar. Þriðju urðu
liðsmenn Umferðardeildar. I „finaln-
um“ varð Sævar Gunnarsson hlut-
skarpastur, annar varð Haukur
Ólafsson og þriðji varð Hans M.
Hafsteinsson. Það vakti þó mesta
athygli að Ingibjörg Ásgeirsdóttir
skyldi komast í einstaklingskeppn-
ina en þetta er í fyrsta skipti sem
kona nær svo langt í keppninni. Ingi-
björg sýndi mikla hæfni og gaf
körlunum ekkert eftir.
Lögreglumenn efndu líka til sund-
keppni daginn fyrir skotmótið. 1
keppni sveita var synt bringusund
og þar sigraði D-vakt, vakt Rúnars
Guðmundsson. Einstaklingar syntu
björgunarsund og þar sigraði Jón
Otti Gíslason.
Byssurnar mundaðar að hætti Clint Eastwood.
Árangur skoðaður.
Þeir hittnustu: f.h. Sævar Gunnarsson, Haukur Ólafsson og Hans M.
Hafsteinsson.