Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Side 45
DV. MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 1986.
45
Ólyginn
sagði...
Elizabeth
Taylor
hefur loks ákveðið að fá
ökuskírteini að nýju. Til þess
þarf hún að taka nokkra öku-
tíma og er stjarnan logandi
hrædd um að valda tjóni á
meðan hún er óvön keyrsl-
unni. En Liz dó ekki ráða-
laus. ! hvert skipti sem
leikkonan fer út að keyra
mun hún láta svörtu límósí-
urnar sem hún á vera bæði
á undan sér og eftir. Þannig
segist hún örugg um að
keyri hún á verði einungis
eigin bílar fyrir skemmdum.
Joan
Collins
og eiginmaðurinn, Peter
Holm, björguðu kvikmynda-
hátíðinni í Cannes frá því að
vera hundleiðinleg með því
að lenda opinberlega í rifrildi
við kvikmyndaframleiðand-
ann Elliot Kastner. Kastner á
í fjármáladeilum við systur
Joan Collins, Jackie, og
skvetti úr vínglasi yfir hana
fyrir nokkrum vikum. Það var
því heldur kalt á milli hans
og hjónakornanna fyrir kvik-
myndahátíðina og ekki
batnaði það. Þau voru öll
stödd á veitingastað, í óða
önn við að fá sér í svanginn
ásamt fleiri stjörnum, þegar
Joan þurfti skyndilega að
fara á klósettið. Á leiðinni
þangað datt hún um stól
Kastners og féll á gólfið.
Hún stóð upp og fór aftur
til ektamannsins og sagði
honum að Kastner hefði sett
stólinn fyrir sig. Holm gekk
nú yfir til Kastners og kippti
stólnum undan honum.
Báðir voru mennirnir orðnir
fjúkandi reiðir og skiptust á
fúkyrðum og öskrum. Aðrir
gestir horfðu agndofa á en
tókst sem betur fer að skilja
mennina í sundur áður en
hnefarnir fengu að tala.
Kastner harðneitar að hafa
fellt Joan og segir að hún
sé sú manneskja sem geri
allt til að vekja athygli.
Sandra Kim faldi sig fyrir Ijósmyndurunum
Hin 14 ára gamla Sandra Kim sem
sigraði í Evróvision mun halda í helj-
arreisu um Evrópu um leið og
skólanum lýkur, fljótlega í þessum
mánuði. Reisuna fer hún sem sigur-
vegari keppninnar en ýmsar skyldur
fylgja þeim eftirsótta titli. Sandra
Kim er aðeins 136 cm há, vegur 39
kg og er að margra áliti allt of ung
til að taka þátt í jafn erfiðri keppni
og Evróvision er. Nokkrum dögum
fyrir keppnina fékk hún vægt
taugaáfall vegna látanna og þegar
ljóst varð að hún hafði unnið og ljós-
myndararnir ætluðu hreinlega að éta
Sandra Kim segist elska lifið, J’aime
la vie.
hana varð hún svo hrædd að hún
hljóp og faldi sig. Eftir að allt var
um garð gengið og hún gat farið að
sofa, um fjögurleytið, var hún nánast
orðin veik af þreytu. Sandra segist
elska lífið eins og hún söng um í
Bergen. Hún hefur sungið síðan hún
var sjö ára og segist aðeins líta á það
sem tómstundagaman og segir það
ekkert hafa breyst þó hún hafi unnið
Evróvision. „Skólinn er svo mikil-
vægur,” segir Sandra. Peter van
Dovern, umboðsmaður og verndar-
engill Söndru, segir að hún sé enn
mjög ung og skilji ekki alveg þýð-
ingu sigursins. Hann býst við því að
hún þurfi að taka sér frí frá skóla til
að geta gegnt skyldum sigurvegar-
ans. Peter ætlar þó ekki að reyna að
stjórna Söndru. „Hún verður sjálf
að finna sinn eigin takt, segir Peter.
Foreldrar Söndru heita Joseph og
Anna og hún á líka litla systur sem
hún elskar mest af öllum. Systirin
heitir Barbara en Sandra valdi nafn-
ið og lét að sjálfsögðu skíra systurina
eftir uppáhaldssöngkonu sinni, Bár-
böru Streisand. Foreldrar Söndru
eru bæði góð og skilningsrík. Sigur
dóttur þeirra hefur ekki breytt neinu
nema efnahag heimilisins því nú er
Sandra milljónari. Þegar söngkonan
er spUrð hvernig hún hyggist eyða
þessum peningum ségist hún ætla að
kaupa nýtt hús fyrir fjölskylduna og
svo vilji hún kaupa sér bíl. Sandra á
kærasta heima í Liege. Hann heitir
TonLog er j.'jfngemaJl hetnú Sandra
segist hafa saknað hans mikið og
hringt í hann á hverjum degi á með-
an hún var í Noregi. „Rétt áður en
ég átti að syngja fyrir 700 milljónir
sjónvarpsáhorfanda fékk ég skeyti
frá honum og það hjálpaði mér mik-
ið,” segir Sandra. Hún er ákveðin
stúlka með góða rödd og lætur ekki
stjórna sér. Hún réði öllu fyrir
keppnina, bæði búningi sínum,
sminki o.fl.. Hvort Sandra Kim verð-
ur söngstjarna eða bara flugeldur
sem springur og gleymist verður
tíminn að skera úr um. Víst er að
hún er ennþá barn og menn geta
lengi deilt um hvort rétt sé að setja
aldurstakmörk í Evróvision eða
ekki.
Sigurvegarinn ásamt foreldrum sínum.
Gaddafi:
Geðveikur
eða bara svolítið sérvitur
Gaddafi hannar einkennisbúninga sina sjálfur.
10) Gaddafi semur ljóð og stuttar
sögur. Nýjustu verk hans sem gefin
hafa verið út bera nöfnin „Flug til
helvítis" og „Dauði“.
11) Hann lætur oftast undan í rifr-
ildum við hina skapmiklu eigin-
konu sína, Safiva.
12) Hann eyðir miklum tíma aleinn
í eyðimörkinni við tilbeiðslu og
hlustun á Beethoven.
13) Gaddafi er þjálfaður hermaður
sem menntaðist í breska herskól-
anum „Sandhurst Military Aca-
demy“.
14) Hann er heittrúarmaður og
hefur bannað vændi, áfengi og ka-
baretskemmtanir.
15) Uppáhaldsfarartæki hans í Trí-
pólí eru smábílar.
16) Hann fæddist í eyðimörkinni,
sonur ómenntaðs hirðingja og
kornbónda.
17) Hann er símafrik. Þegar Gadd-
afi ferðast er flugvél hans útbúin
11 símtækjum.
18) Hann hefur gaman af grófum
bröndurum en segist þykja vest-
rænn húmor leiðinlegur.
19) Hann afmáði þann rétt múha-
meðstrúarmanna að geta átt 4
konur og segir að menn geti aðeins
átt eina og verið hamingjusamir
um leið. Einnig herti hann refsilög-
gjöf Kóransins sem mörgum þykir
æði ströng fyrir.
20) Gaddafi segist hata myndatök-
ur en þegar einhver biður um mynd
er hann ekki seinn á sér að klifra
á bak hvítum hesti og stilla sér upp.
Leiðtoginn var á ítaliu vegna geð-
rænna vandamála.
Nýkominn úr einveru eyðimerkurinnar.
en í mjög þunnum klæðum sem
hindra ekki svefn.
4) Gaddafi var eitt sinn í meðferð
á Ítalíu vegna geðrænna vanda-
mála.
5) Þegar hann náði völdum 1969 rak
hann úr landi eða tók af lífi þús-
undir „ríkisóvina".
6) Hann vill halda ímynd sinni sem
einfaldur eyðimerkurbúi en í raun
er hús hans í Trípólí og tjald hans
í eyðimörkinni rafvætt, með loft-
kælingu og öllum rafmagnstækjum
nútímans.
7) Eitt sinn fór hann með byssu um
Trípólí og neyddi fólk til að hlýða
sér.
8) Hann eyddi vínekrum Líbýu og
lagði niður víniðnað landsins
vegna trúarinnar og til að gera
fólkið „hreint" fyrir Allah.
9) Uppáhaldsbók leiðtogans er
„Kofi Tómasar frænda", bók skrif-
uð gegn þrælahaldi af Harriet B.
Stowe.
Hinn eitilharði leiðtogi Líbýu,
Moammar Gaddafi, lýsir sjálfum
sér sem tilfinninganæmu skáldi -
en í raun er þessi alþjóðlegi lög-
brjótur ruddalegur náungi sem
elskar grófa brandara. Líbýuleið-
toginn, sem vakið hefur ógn og
skelfingu bæði austan hafs og vest-
an vegna hryðjuverkahótana sinna
(og hryðjuverka ?), lifir einkalífi
sem samræmist í fáu hinni almennu
ímynd sem menn gera sér af hon-
um. Hér er listi yfir tuttugu sönn
atriði um einkalíf ógnvaldsins.
1) Gaddafi hannar sjálfur herbún-
inga sína og skiptir um búning oft
á dag.
2) Einkalífvarðasveitir Gaddafis
eru skipaðar fallegum, ungum kon-
um. Hann kallar þær „grænu
nunnurnar" vegna litar einkennis-
búnings þeirra og tryggð þeirra við
hann.
3) Hann segist ekki sofa nakinn,
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós