Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1986, Page 47
DV. MÁNUDAGUR 16. JÚNÍ 1986.
Sjónvarp
Veðrið
47
Utvarp
Sjónvarpið á morgun, 17. júní:
Eingöngu innlent sjónvarpsefhi
- ný íslensk sjónvarpsmynd fhimsýnd
Það sem athyglisvert er við þjóð-
hátíðardagskrána í sjónvarpinu á
morgun er að á henni eru eingöngu
innlendir dagskrárliðir, sumt í beinni
útsendingu, annað nýtt af nálinni og
loks er valið efhi til endursýningar.
Það sem ber líklega hæst af þessu
innlenda efiii er ný íslensk sjónvarps-
mynd eftir Ágúst Guðmundsson sem
ber nafhið Ást í kjörbúð. Ágúst leik-
stýrir einnig myndinni en með aðal-
hlutverkin þar fara, Ágúst sjálfur,
Guðlaug María Bjamadóttir, Edda
Björgvinsdóttir, Gunnar Eyjólfsson,
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Guðný
Helgadóttir o.fl.
Ást í kjörbúð segir frá kjötaf-
greiðslumanninum Albert sem vinnur
í kjörbúð. Hann verður ástfanginn af
álitlegri konu sem býr í hverfinu og
verslar oft í kjörbúðinni. Það er ekki
við því að búast að hún hafi minnsta
áhuga á búðarlokunni enda er hann
lítt spennandi og hún harðgift. Þessi
fiðringur í honum Albert á þó efitir að
draga dilk á eftir sér og margar per-
sónur eiga eftir að koma við sögu áður
en lýkur.
-BTH
í íslensku myndinni Ást í kjörbúð segir frá kjötafgreiðslumanninum Albert sem verður ástfanginn af viðskiptavininum
Sonju. Agúst Guömundsson og Guðlaug Maria Bjarnadóttir í hlutverkum sínum.
William De Vane, sem fer með eitt aðalhlutverkið i biómyndinni i kvöld þar
sem bæjarbúar berjast fyrir vegarlagningu að bænum.
Sjónvarpið kl. 21.00:
Plankinn
Þetta er breskur ærslaleikur eftir
Eric Sykes og er myndin nú endursýnd
í sjónvarpinu. Sykes er einnig leik-
stjóri og ekki nóg með það, hann fer
með aðalhlutverk í myndinni.
Myndin snýst raunar öll um einn
tréplanka og tilraim tveggja hrak-
fallabálka til að koma honum á
áfangastað. Plankinn er 14 feta langur
og ekkert grín að þurfa að ferðast með
hann milli staða. Ferðin sú verður
langt frá því að vera stórslysalaus og
lenda þeir félagar í ótal ævintýrum,
sem öll má að sjálfsögðu rekja til
plankans, áður en ætlunarverkinu er
lokið. Loksins tekst þeim að koma
plankanum á réttan stað en það er
ekki þar með sagt að þá séu öll ævin-
týri úti...
-BTH
Sjónvarpið kl. 23.50:
Betri er krókur
en kelda
Þar sem almennur frídagur er á
morgun gefst áhorfendum kostur á að
sjá bíómynd í sjónvarpinu sem stendur
ffam á nótt. Heitir myndin Honky
Tonk Freeway á frummálinu og hlaut
þá ffumlegu þýðingu Betri er krókur
en kelda á íslensku.
Þetta er bándarísk gamanmynd frá
árinu 1981, leikstjóri er John Schles-
inger en með aðalhlutverk fara Will-
iam De Vane, Beau Bridges, Teri Garr
og Geraldine Page. í henni segir ffá
íbúum smábæjar nokkurs í Flórída,
sem vilja óðir og uppvægir fá lagðan
afleggjara frá þjóðveginum að bænum
til að auka ferðamannastrauminn.
Yfirvöld em treg til en þar sem bæjar-
búum er þetta mikið hagsmunamál
grípa þau til sinna ráða til að fá veg-
inn, en ráðin þau eru ekki öll jafn-
gáfuleg.
-BTH
Útvarpið, rás 1, kl. 22.20:
Hjónabandið
- Irfstíðartryggð?
Á sumardagskrá Ríkisútvarpsins
hefúr nú aftur verið tekinn upp þráð-
urinn þar sem frá var horfið í fyrra-
sumar með þáttunum Fjölskyldan í
nútímasamfélagi.
Umsjónarmenn eru tveir sérfræð-
ingar, hvor á sínu sviði. Þær eru Anna
G. Magnúsdóttir fjöhniðlafræðingur,
sem er hlustendum kunn fyrir þætti
sína úr dagsins önn um böm og um-
hverfi, og Sigrún Júlíusdóttir, fjöl-
skylduráðgjafi og meðstjómandi
þáttanna í fyrrasumar. Hún hefur ára-
langa reynslu af ffæðslu- og ráðgjafar-
starfi.
í þættinum í sumar, sem verður á
dagskránni annað hvert mánudags-
kvöld, verður fjallað um fjölskyldu-
málefhi, mál sem varða náin samskipti,
tilfinningatengsl og sambúðarhætti
fólks. f kvöld verður sérstaklega tekið
fyrir hjónabandið og fjallað um það
frá mörgimi hliðum, m.a. hvort litið
er á það sem lífstíðartryggð. Stjóm-
endurnir munu einnig fá gesti í þáttinn
og ræða við þá um þessi hugtök.
-BTH
Er hjónbandið það sama og lifstíðartryggð? Þessi spurning verður umfjöllunar-
efnið í þættinum um fjölskyldumál í kvöld.
I dag verður fremur hæg vestan- og
suðvestanátt á landinu, skýjað með
köflum en víðast þurrt. Hiti 8^14 stig.
Island kl. 6 í morgun.
Akureyri skúr 8
Egilsstaðir skýjað 9
Gaharviti skýjað 5
Hjarðames súld 9
Keflavíkurílugvöllur skýjað 7
Kirkjubæjarklaustur skýjað 9
Raufarhöfn skýjað 6
Reykjavík skýjað 6
Suuðárkrókur skýjað 5
Vestmannaeyjar léttskýjað 6
Útlönd kl. 6 í morgun:
Bergen léttskýjað 18
Helsinki léttskýjað 16
Ka upmannahöfn þokumóða 15
Osló heiðskírt 17
Stokkhólmur heiðskírt 1!)
Þórshöfn hálfskýjað 13
Útlönd kl. 18 í gær:
Algarve þokumóða 21
Amsterdam heiðskírt 25
Aþena léttskýjað 26
Barcelona skýjað 22
(Costa Brava)
Bertín heiðskírt 24
Chicagó þokumóða 21
Frankfurt léttskýjað 28
Glasgow léttskýjað 23
Las Palmas léttskýjað 22
(Kanari)
London léttskýjað 25
Los Angeles léttskýjað 23
Madrid hálfskýjað 30
Malaga heiðskírt 22
(Costa Del Sol)
Mallorca léttskýjað 22
(Ibiza)
Montreal hálfskýjað 23
New York skýjað 25
Nuuk léttskýjað 4
París skýjað 24
Róm léttskýjað 21
Vín skýjað 26
Winnipeg alskýjað 17
Valencía skýjað 22
(Benidorm)
Gengið
Gengisskráning nr. 110 - 16. júni
1986 kl. 09.15
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi
Dollar 41.000 41.120 41.380
Pund 62,593 62.776 62,134
Kan. dollar 29.640 29.727 29 991
Dönsk kr. 5.0367 5.0514 4.9196
Norskkr. 5.4576 5.4735 5.3863
Sænsk kr. 5,7572 5,7741 5.7111
Fi. mark 8.0125 8.0360 7.9022
Fra. franki 5,8542 5.8714 5.7133
Belg. franki 0.9138 0.9164 0.8912
Sviss. franki 22,6120 22.6781 22.0083
Holl. gyllini 16.5757 16.6242 16.1735
V-þýskt mark 18.6712 18.7258 18.1930
it. lira 0.02718 0,02726 0.02655
Austurr. sch. 2,6579 2.6657 2.5887
Port. escudo 0.2761 0.2769 0.2731
Spá. peseti 0.2918 0.2927 0.2861
Japanskt yen 0.24793 0.24866 0,24522
Írskt pund 56.594 56.760 55.321
SDR (sérstök
dráttar-
réttindi) 48.0874 48.2277 47.7133
Simsvari vegna gengisskráningar 22190.
\ MINNISBLAÐ
Muna eftir
að fá mer
eintak af
r