Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1987, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 1987.
DV
íkveikja
a
Akureyri
Ján G. Hankssan, DV, Aknreyii
Vegna snarræðis starfsmanns
hitaveitunnar á Akureyri tókst að
koma í veg fyrir stórtjón eftir að
brennuvargur kveikti í pappaköss-
um í kjallara Hafnarstrætis 88 um
hálfáttaleytið á laugardagskvöld. í
húsinu eru gistiherbergi frá Hótel
Stefaníu, íbúðir og fjórar verslanir.
Fólk var í húsinu.
Starfemaðm- hitaveitunnar sá
pappakassana loga. Hann tók þegar
til sinna ráða og slökkti í þeim með
handslökkvitæki áður en eldurinn
náði að breiðast út.
Að sögn Gísla Lórenzsonar, vara-
slökkviliðsstjóra á Akureyri, leikur
enginn vafi á því að um íkveikju var
að ræða. Kveikt var í rétt í þann
mund sem slökkviliðið var að ljúka
við að slökkva eld í öðru útkalli.
Hafiiarstræti 88 er betur þekkt sem
gamli Islandsbankinn. Húsið er
timburhús og er í miðri timbur-
húsaþyrpingu. Ekki var vitað í gær
hver kveikti í.
Pilturinn
sem fórst
Pilturinn, sem lést af völdum
áverka sem hann hlaut er hann
hrapaði í Stardalshnúki í Mosfells-
sveit, hét Guðmundur Jökull Jens-
son. Hann var 17 ára, fæddur 6.
febrúar 1969. Hann bjó í foreldrahús-
um að Fálkagötu 5 í Reykjavík.
Þrír bílar
í árekstri
Harður árekstur varð á mótum
Miklubrautar og Grensásvegar í
fyrrinótt. Lentu þrír bílar í árekstr-
inum sem átti sér stað um kl. 1.20.
Tveir ökumenn og einn farþegi voru
fluttir á slysadeild en ekki er kunn-
ugt um meiðsl þeirra. Bílamir
skemmdust mjög mikið og varð að
fjarlægja tvo þeirra af slysstað með
kranabíl.
Þá varð umferðarslys á mótum
Kringlumýrarbrautar og Sætúns
rétt fyrir kl. 20 í fyrrakvöld. Var
ökumaður annarrar bifreiðarinnar
fluttur á slysadeild en hann var ekki
talinn mikið slasaður.
-JSS
Akureyri:
Skúr brann
til kaldra
kola
Ján G. Ifeukssan, DV, Akureyii
Skúr við útihúsin að bænum
Grænhóli, rétt utan Akureyrar,
brann til kaldra kola laust fyrir kl.
sjö á laugardagskvöld. Ekki varð
mikið tjón að öðru leyti en því að
skúrinn, sem var gamall, gjöreyði-
lagðist.
Skúrinn var notaður sem geymsla
en ekki munu hafa verið geymdir
verðmætir hlutir í honum. Þegar
slökkviliðið var að ljúka störfum um
hálfátta barst tilkynning um eld í
Hafharstræti 88, eða gamla íslands-
bankanum svonefnda.
Fréttir
Unuhús brann um helgina:
„Frétti af brunanum
á Gauki á Stöng“
„Ég leit aðeins inn á Gauk á Stöng
skömmu eftir miðnætti aðfaranótt
laugardagsins og þar hitti ég kunn-
ingja minn sem sagði mér að Unuhús
væri að brenna. Ég spurði bara hvort
hann kynni annan betri,“ sagði Gestur
Ólafsson arkitekt sem varð fyrir þvi
óláni um helgina að heimili hans,
Unuhús við Garðastræti, brann nær
því til kaldra kola. „Ég og sambýlis-
kona mín fórum í bíó á föstudags-
kvöldið og þegar við komum heim
ákváðum við að skreppa aðeins á
skemmtistað í stað þess að fara að
sofa strax. Það var ef til vill guðs mildi
því að ég veit ekki hvemig farið hefði
ef við hefðum verið sofandi hér uppi
á lofti.“
I gær vann Gestur ásamt iðnaðar-
mönnum við að hreinsa til í bmna-
rústunum. Þökk sé snörum
handtökum slökkviliðsmanna þá
standa útveggir Unuhúss enn og Gest-
ur er staðráðinn í að byggja húsið upp
aftur.
„Ég er einu sinni búin að byggja
þetta hús upp og var að koma mér út
úr verstu skuldasúpunni þegar ég verð
að byija upp á nýtt. En með góðra
manna hjálp ætti þetta að takast á
nokkrum mánuðum. Að sjálfeögðu er
tjónið mikið og þegar Jón Stefánsson
fer þá kemur hann ekki aftur,“ sagði
Gestur og átti þar við málverk og
ýmis önnur verðmæti er urðu eldinum
að bráð. „Þetta sýnir manni að ekki
er rétt að binda sig allt of mikið við
jarðneska hluti í þessu lífi.“
Unuhús var reist skömmu eftir síð-
ustu aldamót og nefnt eftir Unu
Gísladóttur sem bjó þar lengi ásamt
syni sínum, Erlendi Guðmundssyni.
Húsið var lengi samastaður lista-
manna og er þess víða getið í íslensk-
um bókmenntum. Ragnar Jónsson í
Smára eignaðist síðar húsið og hafði
þar bókaútgáfu. Á síðari árum hefur
Unuhús hins vegar verið heimili Gests
Ólafssonar sem nú ætlar að byggja það
upp í annað sinn.
Líklegast er talið að kviknað hafi í
út frá rafinagni í viðbyggðum gróður-
skála.
-EIR
Gestur Ólafsson i rústum Unuhúss i gær: - Þetta sýnir manni að ekki er rétt að binda sig allt of mikið við jarðneska hluti í þessu lífi. DV-mynd BG
Þessi stæðilegi krani valt á hliðina þar sem hann stóð á hafnarbakkanum í Hafnarfirði í fyrrinótt. Urðu vindhviðurnar honum ofviða og því fór sem fór.
Menn brugðu skjótt við og settu á hann bönd til að hann fyki ekki í sjóinn í óveðrinu. DV-mynd S
Þak sviptist af fjárhúsi á Eyri í Kjós og átta klndur drápust:
„Þetta var óhugnanleg aðkoma"
„Þakið sviptist af fjárhúsinu í
veðurofeanum og fauk í burtu. Kind-
umar hafa tryllst úr hræðslu því
átta tróðust undir og drápust. Þetta
var óhugnanleg aðkoma," sagði
Kristín Jónsdóttir, húsfreyja á bæn-
um Eyri í Kjósarsýslu, þegar DV
ræddi við hana í gær. í óveðrinu, sem
gekk yfir í fyrrinótt, fauk þak af 100
kinda fjárhúsi á bænum og hluti
þaks af geymslu.
„Klukkan hefur verið farin að
ganga ellefu í fyrrakvöld þegar fyrsti
rokkippurinn kom,“ sagði Kristín.
„Veðrið stóð svo í þijár klukku-
stundir. Við fórum ekki út fyrr en
um fimmleytið í gærmorgun því það
hætti sér enginn út fyrr vegna plötu-
foksins. Þá var aðkoman eins og
áður sagði. Við hleyptum kindunum
strax út og nú er verið að keppast
við að koma húsinu undir þak aftur.
Við reiknum með að það geti orðið
fyrir kvöldið því við njótum góðrar
aðstoðar bamanna okkar sem komu
úr Reykjavík til að hjálpa til.“
-JSS