Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1987, Qupperneq 8
8
MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 1987.
Útlönd
Blóðskortur
vegna kulda
Á sjúkrahúsum í Búdapest í Ung-
verjalandi eru nú aðeins íram-
kvæmdir uppskurðir, sem mikið
liggur á, þar sem blóðskortur er í
höfuðborginni vegna kulda.
Innflutningur á blóði til Ungverja-
lands var stöðvaður árið 1985 og
fæst blóð núna frá sex hundruð og
fimmtíu þúsund ungverskum blóð-
gjöfum.
Margir þeirra hafa hins vegar
dregið sig í hlé í frosthörkunum og
þung færð hefur tafið fyrir flutningi
á blóðvökva frá landsbyggðinni til
höfuðborgarinnar. ;
Egyptar að
stikna úr hvta
Egyptar sviptu sig klæðum í gær
og flokkuðust niður á strandir Mið-
jarðarhafsins. f Kaíró var tuttugu
og m'u stiga hiti og er það óvenju-
legt á þessum árstíma .
Janúar er venjulega kaldasti mán-
uður ársins í Kaíró og er meðalhit-
inn þann mánuð tólf gráður.
Að sögn veðurfræðinga stafaði
hitabylgjan af suðlægum vindum frá
Arabíuskaga.
Handtekin með
demanta í
maganum
Belgísk kona var handtekin á flug-
velli í Mílanó á Ítalíu eftir að Ijós
kom á röntgenmynd að hún hafði
gleypt 10.999 demantsflísar og 217
smaragða.
Var konan að koma frá Zúrich í
Sviss og vegna þess hversu taugaó-
styrk hún varð þegar hún var
stöðvuð i tollinum vöknuðu grun-
semdir tollvarða.
Demantsnálamar og smaragðam-
ir, sem vom í smápokum í maganum
á konunni, voru rúmlega einnar
milljónar dollara virði.
Lestarfarþegar
losna við rottur
Lestarfarþegar i Kína þurfa ekki
lengur að hafa áhyggjur af þvi að
rottur bíti þá í tæmar því nú hafa
læknar kínverska hersins fundið upp
nýtt rottueitur.
Hin opinbera kínverska fréttastofa
greindi frá því í fféttum að nú væru
næstum allar lestir í Kína lausar við
rottur. Einn milljarður Kínveija
ferðast með lestum á ári hverju.
Molar hafa fallið niður í hvert skipti
sem einhver hefúr neytt nestis síns
og þar með hefur rottunum verið séð
fyrir dágóðum forða. Vom þær orðn-
ar ónæmar fyrir venjulegu eitri en
nú virðast dagar þeirra taldir.
Dauðarefsing
við smygli
Yfirvöld í Bangladesh hafa ákveð-
ið að beita dauðarefsingu við smygli.
Forseti landsins, Hossain Mo-
hammad Ershad, lítur á smyglara
sem fremstu óvini landsins og segir
að þeir hafi komið í veg fyrir eðli-
lega þróun iðnarins og komið því til
leiðar að mörg lítil iðnfyrirtæki hafi
þurft að loka.
Tollverðir í Bangladesh segja að
undanfarin tvö ár hafi þeir náð gulli
sem metið er á rúmlega fimm millj-
ónir dollara. Þeir hafa hins vegar
ekki greint frá hversu mikils virði
sá tækjabúnaður er sem náðst hefur
frá smyglurum.
Umsjón:
Ingibjörg Bára Sveinsdóttir
___________________DV
Þýskum kaupsýslu-
manni rænt í Beirút
21 útlendingur í gíslingu í Líbanon
Shiita-múslimar á kreiki í Vestur-Beirút.
Varðliðar shiita-múslima leituðu í
morgun dyrum og dyngjum að vest-
ur-þýskum kaupsýslumanni í Beirút
en hugsanlegt þykir að honum hafi
verið rænt vegna handtöku líbansks
flugræningja í Frankfúrt í síðustu
viku.
Þjóðverjinn, Rudolf Cordes (53
ára), var numinn brott af ókunnum
árásarmönnum á laugardagskvöld
skömmu eftir að hann kom til Beir-
út. I símahringingu til ræðismanns
V-Þýskalands í Beirút var sagt að
manninum hefði verið rænt. - Cor-
des er fyrsti V-Þjóðverjinn sem rænt
er í Líbanon en þar er 21 útlending-
ur talinn vera í gíslingu og hefur
öllum verið rænt þar.
í Bonn ætla menn að Cordes, sem
er framkvæmdastjóri Höchst-efna-
verksmiðjunnar í Líbanon, hafi verið
rænt vegna handtökunnar í Frank-
furt á Líbana sem grunaður er um
að hafa átt hlut að ráni TWA-far-
þegaþotu í júní 1985. Hann er 22ja
ára og heitir Mohamed Ali Hama-
dei. Var Hamadei handsamaður á
Frankfúrt-flugvelli síðasta þriðjudag
þegar þýskir tollverðir fúndu í hafur-
taski hans methyl-nítrat sprengiefni
sem var dulbúið sem borðvín.
Hamadei er talinn einn þriggja
shiita-múslima sem neyddu TWA-
farþegaþotu með 153 farþega innan-
borðs til Beirút i júní 1985.
Flugræningjamir tóku af lífi einn
farþeganna, kafara úr bandaríska
flotanum, en hinir voru allir látnir
lausir eftir 17 daga þóf.
Bandarísk yfirvöld hafa farið þess
á leit við V-Þjóðveija að Hamadei
verði framseldur þeim til að svara
til saka fyrir morð og flugrán. í stað-
inn hefur því verið heitið að ekki
verði krafist dauðarefsingar yfir
manninum því að dauðarefeing er
ekki í V-Þýskalandi og yfirvöld í
Bonn setja það að skilyrði fyrir
framsali afbrotamanna að þeir verði
ekki teknir af lífi.
Grunur leikur einnig á því að
Hamadei kunni að hafa verið viðrið-
inn sprengjutilræði á Frankfúrt-
' flugvelli í júní 1985.
Nýr forstjóri Fermenta
staðinn að ósannindum
Gunniaugur A. Jónssan, DV, Lundi
Ekkert lát virðist ætla að verða á
ófórum sænska lyfjafyrirtækisins Fer-
menta sem í fyrra var eitt alvinsælasta
fyrirtækið í kauphöllinni í Stokk-
hólmi.
í síðastliðinni viku var fyrirtækið
tekið af skrá af hlutabréfamarkaði
kauphallarinnar og nú um helgina
sagði Sune Dahlberg, hinn nýi for-
stjóri flfyrirtækisins, af sér embætti
eftir að hafa verið staðinn að ósann-
indum.
Dahlberg hafði haldið því fram að
hann bæri enga ábyrgð á skýrslu um
stöðu fyrirtækisins, sem birt hafði ve-
rið 30. október síðastliðinn, og að
undirskrift hans á skýrslunni væri fól-
suð.
Refaat El-Sayed, fyrrum eigandi fyr-
irtækisins og einn ríkasti maður
Svíþjóðar á undanfömum árum og
sem nú á sennilega gjaldþrot yfir höfði
sér, sagði að Dahlberg færi með rangt
mál. Aldrei þessu vant reyndist El-
Sayed hafa rétt fyrir sér. Dahlberg
játaði seint um síðir að hann hefði
skrifað undir skýrsluna og á laugar-
daginn þvingaði stjóm Fermenta
Dahlberg til þess að segja af sér for-
stjóraembættinu.
El-Sayed var kosinn Svíi ársins 1985
en síðastliðið ár seig stöðugt á ógæfú-
hliðina hjá honum og fyrirtækinu eftir
að upp komst að hann hafði um ára-
bil flíkað fölskum doktorstitli.
Aldrei þessu vant reyndist Refaat El-
Sayed, fyrrum eigandi Fermenta, hafa
rétt fyrir sér er hann kvað hinn nýja
forstjóra fyrirtækisins fara með rangt
mál.
Skæruliðar mujaheddin leggja ekki niður vopnin, á meðan sovéska hemá-
msliöið er enn i landinu.
Segir vopnahléð
enn í gildi í
Afganistan
Najibullah, sem Sovétmenn hafa
stutt til valda í Afganistan, segir að
stjóm hans stefhi enn að þjóðarsátt í
landinu og sakar hann forystu skæm-
liða um ábyrgðarleysi fyrir að hafúa
vopnahléinu sem eftir einhliða yfirlýs-
ingu Kabúlstjómarinnar tók gildi á
miðnætti síðasta miðvikudag.
Skæmliðar múslíma hafa gert ýmsar
árásir á stjómarherinn og sovéska
hemámsliðið síðan á miðvikudag.
Forystumenn hinna aðskildu hreyf-
inga, sem að skæruhemaðinum
standa, hafa hafnað vopnahléinu og
segjast ekki munu leggja niður vopnin
fyrr en síðasti sovéski hermaðurinn
verði á brott úr Afganistan. Komu
þeir saman til fundar í Peshawar í
Pakistan á laugardag og áréttuðu þá
afetöðu í sameiginlegri yfirlýsingu.
Najibullah lýsti því yfir í gær að
stjóm hans mundi ekki láta það hagga
sér og að um leið og í ljós kæmi að
Mujaheddin léti af skæruhemaðinum
mundi her Sovétmanna (sem er talinn
vera um 115 þúsund í Afganistan)
hverfa úr landi.
Nýi flokksformaðurinn til austantjaldslanda í júní
Hinn nýi formaður kínverska
kommúnistaflokksins, Zhao Ziyang,
ráðgerir að heimsækja fimm Aust-
ur-Evrópulönd í júní í sumar og yrði
það fyrsta utanlandsferð hans í nýja
embættinu.
Þetta hefiir ekki verið staðfest í
Peking en fjöllunum hærra gengur
að Zhao muni heimsækja Pólland,
Austur-Þýskaland, Tékkóslóvakíu,
Ungveijaland og Búlgaríu.
Zhao tók við formannsembættinu
til bráðabirgða í síðustu viku þegar
Hu Yaobang var óvænt vikið úr for-
mennsku í kjölfar námsmannaóeirð-
anna undanfamar vikur. - Hu, sem
lengi hefur verið talinn einn nánasti
samstarfemaður Deng Xiaoping,
sætti gagnrýni fyrir að hafa látið
frj álslyndisöfl vaða uppi með kröfúr
um að tekið verði upp vestrænt lýð-
ræðisstjómarfar i Kína. Meginá-
stæðan er þó sögð vera sú að Hu
þyki hafa unnið gegn Deng upp á
síðkastið.