Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1987, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 1987.
9
Utlönd
í samningunum er gert ráð fyrir að hinir lægst launuðu fái mesta hækkun.
Samningar danskra
launþega í höfh
Haukur L. Haukssan, DV, Kaupmannahcfa:
Samningar um hálfa milljón
danskra launþega eru nú í höfii.
Seint í fyrrinótt sömdu verslunar-
menn og atvinnurekendur þeirra.
Hafði þá verið setið við samninga-
borðið í þrjátíu og fjórar klukku-
stundir. Áður höfðu aðilar
jámiðnaðarins, verktaka og tréiðn-
aðarmanna náð samningum.
Samningar þessir taka gildi fyrsta
mars næstkomandi og gilda næstu
fjögur árin. Þó er einstaka hópum
gert kleift að semja um laun á tíma-
bilinu. Að fjórum árum liðnum
verður vinnuvikan komin niður í
þrjátíu og sjö klukkustundir og hvað
varðar laun eru það hinir lægst
launuðu sem fá mesta hækkun.
Þannig verða lágmarkslaun versl-
unarmanna fimmtíu og átta danskar
krónur á tímann eftir fjögur ár.
Reiknað er með að samningar
verslunarmanna hafi áhrif á samn-
ingaviðræður verslunarmanna er
vinna hjá hinu opinbera. Eru þeir
um ein milljón talsins og vænta sér '
góðs af samningum félaga sinna í
einkageira atvinnulífsins.
Þrátt fyrir að enn hafi ekki verið
samið fyrir einstaka launþegahópa
er ekki gert ráð fyrir neinum meiri-
Varaðir við ferðum
til Bandaríkjanna
háttar átökum á vinnumarkaðnum
næstu vikumar.
Talsmaður frá stofriun, er ranns-
akar hvað framtíðin muni bera í
skauti sér, segir að í framtíðinni
muni samvinna og sameining um
sameiginleg vandamál leysa átök á
vinnumarkaðnum af hólmi. Auk
þess sem vandamál vinnumarkaðar-
ins verði leyst hjá hveijum laun-
þegahópi fyrir sig.
Segir talsmaður þessi að hlutverk
launþegasamtakanna minnki ekki
en þróist meira í átt að þjónustusam-
tökum þar sem launamál taki æ
minni tíma. í stað þess mun æ meiri
áhersla verða lögð á vinnuaðstöð-
una, nýja tækni, eftirlaunastöðuna
og endurmenntun.
Trúa allsekki
játningu um
Palmemorðið
Gurmlaugur Jónsaan, DV, Lundi
Hans Holmér lögreglustjóri, er
stjómar leitinni að morðingja Olofs
Palme, trúir ekki á játningu fimmtíu
°g tveggja ára gamals manns sem seg-
ist hafa myrt Palme.
Maðurinn, sem handtekinn var eftir
tilraun til að ráða af dögum fyrrum
samgönguráðherra Svíþjóðar, hafði
gert lista með nöfrium þrjátíu manna
er hann ætlaði að ráða af dögum.
Nafh Olofs Palme var ekki á listanum
og maðurinn sagðist ekki hafa haft
áform um að myrða Olof Palme fyrr
en hann mætti honum af tilviljun á
götu og hefði hann þá ekki staðist
freistinguna.
Að sögn Kvállspostens, sem eitt
sænskra blaða hefur birt þessa frétt,
mun rannsóknarlögreglan hafa leitt í
ljós að ekkert sé hæft í játningu
mannsins.
Umsjón:
Guðmundur Pétursson
og
Ingibjörg B. Sveinsdóttir
Fullyrt er að yfirvöld í Israel hafi
varað embættismenn og vopnasala þá
er tengjast flutningnum á bandarísk-
um vopnum til írans við að fara til
Bandaríkjanna til þess að þeir verði
ekki yfirheyrðir þar.
Talsmenn utanríkisráðuneytisins
neita að nokkur slík fyrirmæli hafi
verið gefin en fyrrum ráðuneytisstjóri
utanríkisráðuneytisins og vopnasalar
héldu því fram í útvarpsviðtali.
Háttsettir embættismenn í ísrael
hafa sagt að þeir muni vinna með
Bandaríkjunum að rannsókn vopna-
sölumálsins en þeir segjast ekki hafa
verið beðnir um neinar upplýsingar.
í skjölum og vitnisburði fyrir þing-
nefnd hefur verið gefið í skyn að
ísraelar hafi átt frumkvæðið að vopna-
sölunni.
Israelskir embættismenn segja að
þeir hafi aðeins orðið við beiðni náinn-
ar bandalagsþjóðar um að veita aðstoð
við frelsun bandarískra gísla sem voru
í haldi stuðningsmanna frana í Líban-
on. ísraelar hafa neitað að hafa átt
þátt í að færa skæruliðum í Nicaragua
gróðann af vopnasölunni.
Lækna Parkinsons-
veiki með ígræðslu
NÝ, GLÆSILEG SNYRTISTOFA
Nudd- og snyrtistofa Ingibjargar Andrésdóttur hefur verið opnuð i nýju og giæsi-
legu húsnæði að Engjateigi 7 (hús Verkfræðingafélagsins).
Bjóðum ykkur velkomin í hressandi og mýkjandi nudd og gufubað.
Aromatheraphy er okkar sérgrein.
Aromatheraphy er sérstök nudd-
meðferð á líkama og andlit þar sem
eingöngu eru notaðar hreinar jurta-
olíur. Sérstaklega gott gegn streitu
og kvillum sem fylgja hraða og
vinnuálagi nútímans.
öll almenn snyrting:
Andlitsbað - húðhreinsun - litun -
vaxmeðferð - handsnyrting - fótsn-
yrting - dag-, kvöld- og brúðarförð-
un með TRUCCO snyrtivörum.
Komið og reynið þjónustuna.
Nudd- og snyrtistofa
Sænskir læknar eru nú að undirbúa
flutning á heilavef úr tíu vikna gömlu
fóstri yfir í heila sjúklings með Parkin-
sonsveiki. Mun ígræðslan verða sú
fyrsta sinnar tegundar í heiminum.
Breskir vísindamenn hafa gert til-
raunir með ígræðslu heilavefs í apa
og rottur sem orðið hafa fyrir heila-
skemmdum. Kom í ljós að heilavefur
úr fóstri náði að festast og gerði það
jafnframt að verkum að heilaskemmd-
imar löguðust að einhverju leyti.
Gera vísindamenn sér góðar vonir
um að hægt verði að hjálpa sjúkling-
um með Parkinsonsveiki með þessari
aðgerð en hún gæti orðið til þess að
sýktar heilafrumur geti aftur farið að
stjóma hreyfingum líkamans. Talið er
að slík aðgerð geti einnig orðið sjúkl-
ingum með Alzheimerveiki og
mænusigg að gagni.
Samkvæmt fyrirmælum frá sænsk-
um yfirvöldum verður fóstrið að vera
látið, konan er gekk með fóstrið verð-
ur að veita samþykki sitt og enginn
skyldleiki má vera milli gefanda og
þiggjanda til þess að ekki verði gengið
með fóstur í þeim tilgangi einum að
nota það síðan til slíkrar aðgerðar.
Falskur björgunarmaður
Haukur L. Haukssan, DV, Kaupmarmahöfri:
Tveimur bömum var bjargað frá
drukknun í Kaupmannahöfh á laugar-
daginn fyrir viku. Höfðu þau verið á
þunnum ís á tjöm þegar ísinn brast
undan þeim. Talað var um atburðinn
í blöðum og sjónvarpi og var strætis-
vagnabílstjóri, er keyrði hjá tjöminni,
hylltur sem hetja fyrir að hafa bjargað
bömunum. Birtust viðtöl við bílstjó-
rann þar sem hann lýsti hugrekki sínu
og Strætisvagnar Kaupmannahafnar
verðlaunuðu hann. Fékk hann frí í
einn dag og íþróttagalla.
Síðan kemur upp sú einkennilega
staða að annar maður kveðst hafa
bjargað bömunum. Átti hann að hafa
verið á bíl, stöðvað strætisvagninn og
beðið um sjúkrabíl í gegnum talstöð
hans. Hentist hann síðan út á ísinn
og bjargaði bömunum úr köldu tjam-
arvatninu.
Sagði maðminn, Nielsen að nafni,
að fjöldi vitna gæti staðfest framburð
sinn. í vikunni gáfu fimmtán manns
sig fram er öll höfðu verið vitni að
atburðinum. Styðja vitnin frásögn
Nielsens og segja auk þess að strætis-
vagnabílstjórinn hafi setið í bílstjóra-
sætinu allan tímann og talað í
talstöðina. Bömin hafa einnig stutt
manninn eftír að hafa jafnað sig á
volkinu.
Segir Nielsen þessi að vinir hans og
fleiri hafi kallað hann lygara þegar
blöðin komu út en hann hafði þá ve-
rið búinn að segja frá hetjudáð sinni.
Varð það til þess að hann auglýsti
eftir vitnum er gætu stutt frásögn
hans og gáfu þau sig fljótt fram. Hlýt-
ur strætisvagnastjórinn að fá óblítt
augnatillit farþega sinna þessa dag-
ana.
Ingibjargar Andrésdóttur,
Engjateigi 7, sími 689250.
AFSWOUR
iö bjóðum gólfteppi og flísar
jútjina, skrifstofuna og stiga-
ginn á frábæru afsláttarverði
ýxpum fyrir nýjum tegundum.
GREIÐSLUKJÖR
# ##%#Byggingavörur hf.
REYKJAVlKURVEGI 64 HAFNARFIRÐI, SlMI 53140.