Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1987, Blaðsíða 12
Neytendur
Sól h/f hefur unnið stórvirki í vöruþróun með því að minnka sykurmagn i
ávaxtagrautum.
MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 1987.
Aldingrautar
innihalda ekki
strásykur
Neytendasíðunni barst bréf frá
Helgu S. Sigurjónsdóttur, meinatækni
hjá Sól h/f. Bréfið er dagsett 14. þessa
mánaðar. Það er svohljóðandi:
í DV 8. janúar síðastliðinn var talað
um könnun Neytendasamtakanna og
Samtaka sykursjúkra á merkingu á
sykurlausum vamingi. Kemur þar
fram að merking hugtakanna sykur-
skertur, sykurminni og sykurlítill sé
óljós.
Samkvæmt skilgreiningu Manneld-
isráðs íslands þýðir t.d. sykurskertur
að sykurinnihald sé meira en 10% en
minna en 50%, miðað við sömu vöru
sætta með sykri, en sykursnauður að
sykurinnihald sé minna en 10% líka
miðað við sykraða vöru.
Upplýsingaskylda hvað þetta varðar
er því auðvitað í höndum yfirvalda því
þar eru reglumar settar.
Framleiðendum er skylt að gefa upp
innihald vörunnar, raðað eftir magni,
á umbúðum en ekki er skylda að gefa
upp næringargildi í töflum, sem þó er
oft gert.
Hvað varðar sykurskertan Aldin-
graut kemur fram í innihaldslýsing-
unni að engum hvítum sykri er bætt
Uppskriftaþeysa DV:
Glæsileg peningaverðlaun í boði
Það ætlar eitthvað að láta á sér
standa að fólk sendi okkur bestu
uppskriftimar sínar. Aðeins einn
hefur hringt og beðið um frekari
upplýsingar.
Fyrirkomulagið á þessari upp-
skriftaþeysu okkar er þannig að þið
sendið okkur uppskriftir eða frásögn
af einhverjum góðum rétti sem þið
kunnið að búa til. Það er e.t.v. ekki
svo nauðsynlegt að það sé nákvæm-
lega mælt í fyrstu atrennu. Þið
sendið okkur uppskriftina með nafhi
og símanúmeri. Við höfum svo sam-
band eftir að hafa skoðað uppskrift-
ina og við mælum okkur mót í ykkar
Upplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
fjölskyldu af sömu stærð og yðar.
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks
Kostnaður í desember 1986:
Matur og hreinlætisvörur
Annað
kr.
kr.
Alls kr.
eldhúsi. Svo komum við í heimsókn
(við = blm. og ljósmyndari) og fylgj-
umst með tilbúningi réttarins
gómsæta og myndum ferilinn.
Myndir og frásögn birtast svo í DV.
Fyrir þetta fær eigandi uppskrift-
arinnar heilar 2.500 kr. Þannig er
til mikils að vinna fyrir ekki mikla
vinnu. Að sjálfsögðu verður allur
efniskostnaður greiddur.
Viðkomandi þarf alls ekki að vera
feiminn því ef hann vill ekki koma
fram á myndunum er það líka alveg
óþarfi. Eins og sjá má á meðfylgj-
andi myndum eru matarleiðbeining-
amar mjög greinilegar þótt
viðkomandi sjáist ekki beinlínis
sjálfur. Einnig er hægt að viðhafa
nafnleynd ef einhver er svo óskap-
lega feiminn að hann þorir alls ekki
að koma fram á myndum.
Uppskriftimar geta verið að marg-
víslegum réttum. Helst eiga þetta
samt að vera hversdagsréttir sem em
í ódýrari kantinum því við viljum
stuðla að ódým heimilishaldi í
landinu.
Látið í ykkur heyra með gamal-
reyndar uppskriftir ykkar. Sendið
nafn og heimilisfang með uppskrift-
inni eða lýsingu á réttinum til DV.
Utanáskriftin er:
Neytendasíða DV
Dagblaðið/Vísir
Þverholti 11
105 Reykjavík.
Þama er verið aö búa til gamaldags danska eplaköku. í hana þarl soðin epli
og brauðrasp sem brúnað er í smjöri á pönnu.
Þegar raspið er brúnað og eplin komin í mauk er sett rasp og eplamauk til
skiptis í grunna skál. Svona kökudiskar, eins og verið er með á myndinni, eru
tilvaldir fyrir eplaköku. Einnig er gott að láta nokkrar teskeiðar af góðri sultu
-A.BJ. með eplamaukinu og kremja 2-3 banana saman við það. DV-myndir Bj.Bj.