Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1987, Qupperneq 13
13
MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 1987.
DV
í grautinn og að því leyti er hann syk-
urlaus.
Aldrei er þó hægt að nota ferska
ávexti án þess að í þeim sé ávaxtasyk-
ur, því þannig eru þeir frá náttúrunnar
hendi. Kolvetnin í grautum koma frá
sterkjunni, ávaxtasykrinum og trefj-
um. Treij ar eru ómeltanlegar og nýtast
ekki sem hitaeiningar eða orka. Til
dæmis í jarðarberjum eru trefjar rúm
15% af heildarkolvetnainnihaldi.
Rangt er því farið með í DV þegar
kolvetnainnihald er túlkað sem sykur
í merkingunni strásykur.
Þegar sykurskertir Aldingrautar
voru í hönnun kom fram eindregin ósk
frá yfirvöldum um að í hann yrði ekki
notaður strásykur og ávaxtamagnið
ekki mini)kað til að minnka kolvetna-
innihaldið og tilbúin bragðefrii notuð
í staðinn. Eftir þessu var farið og kol-
vetnainnihald því hærra en til stóð.
Sykursjúkir mega borða ákveðið
magn af ávöxtum á dag. Þess vegna
vita þeir að ávaxtagrautur getur ekki
verið viðbót við ávaxtaskammt dags-
ins heldur verður að draga hann frá.
Á umbúðum er gefið upp magn ávaxta
fyrir þá sem á þurfa að halda.
Fleira kolvetni en sykur
Við viljum byrja á að þakka Helgu
bréfið. Rétt mun að Manneldisráð hef-
ur reynt að koma á skilgreiningu á
algengustu hugtökum um sykurmagn
en mikill fjöldi þeirra hefur komið
fram með minnkandi sykumeyslu. Þó
ber að taka það fram að þessi skil-
greining er óljós, þ.e. að sé vara, sem
hefúr 10-50% sykurinnihald, sykur-
skert þá hlýtur megnið af neysluvörum
að falla undir þann flokk sé ekki bein-
línis um sætindi að ræða. Auðvitað
er upplýsingaskylda í höndum yfir-
valda en framleiðendum hlýtur einnig
að bera skylda til að skilgreina þau
hugtök sem þeir smíða.
Það skal þó tekið fram að Sól h/f
hefur alltaf verið til fyrirmyndar hvað
vörumerkingar snertir og væntum við
að svo verði áfram.
Neytendur
Helga segir í bréfi sínu að DV hafi
túlkað kolvetni sem sykur í merking-
unni strásykur. Þetta er ekki rétt því
að í umraBddri grein segir orðrétt:
„Kolvetni er ekki alltaf sykur,
sterkja, trefjar og ávaxtasykur eru
einnig kolvetni. Því innihalda þær
vörur, sem framleiddar eru úr ávöxt-
um, alltaf eitthvað magn kolvetnis,
jafhvel þó það sé ekki alltaf mikið.“
Það er hins vegar rétt hjá Helgu að
hvergi var á það minnst í greininni
að trefjar væru ómeltanlegar og nýtt-
ust ekki sem orka eða hitaeiningar
og er hér með beðist velvirðingar á því.
-PLP
KVARTANIR
ÁSKRIFENDUR ERU
VINSAMLEGAST BEÐNIR
AÐ HAFA SAMBAND VIÐ
AFGREIÐSLUNA,
EF BLAÐIÐ BERST EKKI.
Við höfum nú opið lengur:
Virka daga kl 9-20.
Laugardaga kl. 9-14.
SIMINN ER 27022
AFGREIÐSLA
; Þverholti 11 - Sími 27022 j
ARGUS/SÍA
íiTrLYTJANDI ?
ER TRYGGT AÐ
ERLENDI KALPANDINN
STANDI SKIL
Á GREIÐSLLM?
NÝ ÞJÓNUSTA
VIÐ ÍSLENSKA ÍITELYTJENDUR
Iðnlánasjóður hefur opnað TRYGGINGADEILD
ÚTFLUTNINGSLÁNA. Nýja deild sem býður
íslenskum útflytjendum áður óþekkta þjónustu —
ÚTFLUTNINGSABYRGÐ. Þeir sem flytja út vörur 9
eða þjónustu geta keypt ábyrgð á kröfu sem þeir
eiga á erlenda viðskiptamenn.
Með útflutningsábyrgðinni dregur þú úr eigin
áhættu og tryggir þig fyrir skakkaföllum í
rekstrinum vegna vanskila.
IÐNLÁNASJÓÐUR veitir útflutnings-
ábyrgð en í henni felst:
• Að taka að sér að tryggja lán sem
bankar eða aðrar lánastofnanir veita
innlendum framleiðendum vöru eða
þjónustu til fjármögnunar á útflutn-
ingslánum sem veitt eru eða útveguð
erlendum kaupendum.
• Að tryggja kröfur íslenskra útflytjenda
á hendur erlendum kaupendum enda
hafi þær orðið til vegna útflutnings á
íslenskum vörum eða þjónustu.
Útflutningsábyrgð IÐNLÁNASJÓÐS tek-
ur til viðskiptaáhættu og stjórnmála-
áhættu og tryggir útflytjandann að 80%
ef greiðslufall verður á kröfu hans af þess-
um ástæðum.
Útflutningsábyrgð IÐNLÁNASJÓÐS er
framseljanleg til banka eða annarra lána-
stofnana. Með þeim hætti getur útflytj-
andi aukið lánstraust sitt í viðskiptabanka
sínum.
Fyrir útflutningsábyrgð er greidd þóknun,
mismunandi eftir aðstæðum, frá 0,4% —
1,5% af heildarfjárhæð hverrar vörusend-
ingar eða andvirði þjónustugreiðslu.
Með þessari nýju þjónustu, sem eykur
öryggi í útflutningsviðskiptum, vill Iðn-
lánasjóður leggja sitt af mörkum til að
örva og efla íslenskan útflutning.
Skrifið eða hringið eftir upplýsinga-
bæklingi og umsóknareyðublöðum.
IÐNLÁIMASJÓÐUR
IÐNAÐARBANKINN
Lœkjargötu 12, 5. hæð Reykjavík, sími 20580.