Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1987, Qupperneq 18
„Það er bara ekki hægt að fara í
bæinn, það er svo mikið af útsölum,"
sagði einn viðmælandi okkar. Sumum
finnst þetta kannski skrítið viðhorf en
svona getur fólkið verið misjafnt. Til
eru þeir sem eru einmitt hl>Tintir út-
sölum og bíða spenntir eftir útsöluver-
tíðinni og versla dijúgt þegar verslanir
lækka verðin hjá sér, hveiju nafhi sem
það nefhist.
I sumum verslunum eru auglýstar
skyndiútsölur sem standa aðeins í tak-
markaðan tíma og þá verða viðskipta-
vinir að hafa hraðan á til að ná í
eitthvað bitastætt. í öðrum verslunum
eru alltaf einhverjar vörur á niður-
settu verði og þess á milli eru settar
á útsölur þar sem mun meiri afsláttur
er gefinn.
Ekki örtröð, en nóg samt
Janúarmánuður hefur löngum verið
vinsæll útsölumánuður og í framhaldi
af ummælum viðmælanda okkar ák-
váðum við að fara í bæjarferð og
kanna hvemig hfutimir gengu fyrir
sig á þeim stöðum sem útsölumar
væi-u komnar af stað. Fyrir utan
nokkrar verslanir í Reykjavík mynd-
ast að öOu jöfiiu biðraðir þegar útsöl-
umar em í gangi, svo mikill er
áhuginn.
Hvemig sem á því stendur þá fannst
okkur ekki hægt að greina að eitt-
hvert sérstakt útsöluæði væri í gangi
og hvergi höfum við frétt af biðröðum
við útsölur enn sem komið er. Það
má velta því fyrir sér að þarna hafi
Glasgowferðimar sitt að segja á þann
veg að fólk hafi verslað mikið þar og
kynnt sér verðlagið þar og telji það
kannski borga sig frekar að fara til
útlanda heldur en versla á útsölum
hér. Þó ekki hafi verið örtöð í búðun-
um sem við fórum var samt nóg að
gera. Við spurðumst fyrir hjá af-
greiðslufólkinu hvort það hefði haft
mikið að gera á meðan á útsölunum
stóð og vom þau flest sammála um
að það hefði verið nóg að gera. Einn
afgreiðslumaður sagði okkur til dæmis
að hann hefði aðeins fengið harða
brauðskorpu i matinn, því hann hefði
ekki komist frá þann daginn vegna
anna.
Við urðum samt ekki vitni að nein-
um biðröðum við verslanir né virkileg-
um handagangi í öskjunni þó svo við
reyndum hina ýmsu tíma á undanföm-
um dögum. Kannski fólk sé hætt að
stunda útsölumar eða þá að það fari
aðeins á ákveðnar útsölur eins og Si-
gríður Stefánsdóttir sem við hittum á
einni útsölunni orðaði það „Ég vil
gjaman fara á betri útsölur eða þar
sem em nýjar eða nýlegar vörur.“
30-70% afsláttur
í bæjarferðum okkar litum við inn
á allnokkrar útsölur og kom í ljós að
það er nokkuð misjafht hversu mikiU
afsláttur er gefinn á vörunum. í sum-
um verslunum er auglýstur allt að 70%
afsláttur á nokkrum vömtegundum
en kannski 30-50% á flestum. Aðrar
verslanir hafa annan hátt á og veita
sama afslátt á öllum vörum, helming
eða minna.
Það sem mörgum finnst skemmtilegt
við útsölumar er einfaldlega að fara
og gramsa í kössum og rekkum og
athuga hvort þar sé eitthvað sem vert
sé að festa kaup á. Við urðum til dæm-
is vitni að því að fjórar ungar konur
vom saman í einni versluninni og ein
þeirra hafði greinilega sérstakan
áhuga á 390 króna kassanum en hinar
ekki. Vinkonumar vildu yfirgefa
verslunina en það vildi sú með 390
króna áhugann ekki og yfirgáfu hinar
þijár þá búðina. Við fylgdumst nánar
Sumar verslanir bjóða ekki upp á útsölur heldur skyndisölur og þama em fortáta hattar á þriggja daga skyndisölu sem er að öllum líkindum
yfirstaðin þegar þetta birtist.
með hópnum og vinkonumar þijár
gáfu sig ekki og að lokum fór ein
þeirra inn í fyrmefiida verslun og dró
vinkonuna nánast út og kom í veg
fyrir fjárfestingar af hennar hendi að
þessu sinni.
Þó svo að ofangreind saga sé af vin-
kvennahópi sem notaði hádegið til að
kanna útsölumar þá hittum við líka
nokkra karlmenn sem höfðu skundað
á útsölur bæjarins. Við létum þá ekki
í friði við iðju sína og forvitnuðumst
um hvort þeir fæm oft á útsölur.
Herramennimir játuðu hvorki né
neituðu heldur sögðust þeir helst fara
í þær búðir sem þeir versluðu venju-
lega í þegar þær auglýstu útsölur.
Aðalatriðið væri að verslanimar byðu
upp á góða verðlækkun. „Ég kaupi
ekki hvað sem er,“ sagði einn herra-
maðurinn sem var búinn að finna sér
jakkaföt á um 5000 krónur. En svo
getur fólk líka freistast til þess að fara
á útsölur og kaupa bara eitthvað til
að notfæra sér lága verðið.
Það má finna ýmsa ódýra hluti á
útsölum bæjarins, eins og skó á 100
krónur og jakkaföt á 1000 krónur. Við
spurðumst fyrir um það í nokkrum
verslunum á ferð okkar, síðan hvenær
vörumar væm og fengum þau svör á
flestum stöðum að útsöluvörumar
væm frá því fyrir jól og lítið væri um
að verið væri að selja eitthvað eldgam-
alt enda væm útsölur að jafnaði
tvisvar á ári þannig að verslanir ættu
ekki að liggja með mikinn lager.
Þegar verslað er á útsölum er gagn-
legt að hafa augun hjá sér og kanna
hversu mikið vörumar em í raun
lækkaðar en það sést náttúrlega best
ef fyrra verð er á vörunum. Ekki var
Ætli hann passi? Mamman, sem mælir galla við dóttur slna, heitir Sigríður Stefánsdóttir og dóttirin heitir um það að ræða í öllum þeim veislun-
Ásdís Einarsdóttir. í Ijós kom að gallinn virtist vera of lítill svo ekkert varð af útsölukaupum að þessu sinni. um sem við fórum í en afgreiðslufólkið
jgi ssaææææa i |agg| ■■ mm