Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1987, Síða 21
MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 1987.
21
íslenskir
dómarar
í Danmörku
Stefin KristjánsBcnJ>V,Roatodc
Danir og Norðmenn keppa tvo
landsleiki í handknattleik í febrúar
og fara leikimir fram í Randers í
Danmörku. Þessir leikir verða lo-
kaundirbúningur Dana fyrir
B-keppnina á Ítalíu sem hefst 24.
febrúar.
Það sem er merkilegt við þessa
leiki er að Gunnar Kjartansson og
Rögvald Erlingsson dæma báða
leikina. Þetta er í fyrsta skipti sem
íslenskir dómarar dæma alvöru
A-landsleiki karla í handknatt-
leik.
-JKS.
AHreð og
Siggi Gunn.
meðlOOIeiki
StÆn Krispnsson, DV, Rostock
Tveir leikmenn íslenska lands-
liðsins leika blómaleiki á hér
Baltic Cup.
Sigurður Gunnarsson leikur sinn
100. landsleik gegn Austur-Þjóð-
verjum og Alfreð Gíslason einnig
sinn 100. landsleik gegn Pólverj-
um.
-JKS
A-Þjóðverjar
hafa aldrei
tapað í
Rostock
Stefin Kristjánsscm, DV, RjoetocJc
Það er greinilegt að róðurinn
verður erfiður hjá íslenska liðinu
gegn Austur-Þjóðveijum hér á
Baltic Cup á miðvikudaginn. Það
er ekki nóg með að í liðinu sé val-
inn maður í hveiju rúmi, heldur
hafa Austur-Þjóðveijar aldrei tap-
að landsleik í Rostock í hand-
knattleik.
-JKS
Heimsbikarkeppnin:
Zurbriggen
enn efstur
Staða efetu manna er nú þessi í heimsbikarkeppninni á skíðum: 1 ZurhrWfin 209 stiir
2. Wasmeier . 157 stig
3. Gaspos . 125 stig
4. Pramotton . 118stig
5. Stenmark . 114 stig
6. Krizaj ... 72 stig
7.-8. Strok og Heinzer ... 70 stig
9. Alpiger ...67stig
10.-11. Múller og Giradelli... 66 stig
Stærsti draumur
allra er að vinna
sigur á Svíum
- segir Guðmundur Guðmundsson
Stefin Kristjánssom, DV, Rostock
„Það er ljóst að þetta mót verður mjög
erfitt og allsendis óvíst hver útkoman
úr því verður. fslenska liðið, sem hér
leikur, hefur ekki komið saman mjög
lengi og margir leikmenn ekki spilað
saman síðan á HM í Sviss. Engu að
síður munum við gera okkar besta og
ég veit að Bogdan leggur mikla
áherslu á að góður árangur náist,“
sagði Guðmundur Guðmundsson, ný-
kjörinn íþróttamaður Reykjavíkur, í
samtali við DV.
„Erfiðustu andstæðingamir í þessu
móti verða sjálfeagt Vestur-Þjóðverjar
og Sovétmenn,“ sagði Guðmundur síð-
an, ,,en þessi tvö lið eiga að vera í
toppformi þessa dagana vegna B-
keppninnar á Ítalíu í febrúar. Eg vona
innilega að okkur takist að sigra Svía.
og það er óneitanlega stærsti draumur
allra í liðinu.
Það yrði mjög gott að vinna tvo leiki
hér í Rostock og ná góðum úrslitum
úr öðrum leikjum, sérstaklega gegn
Sovétmönnum og Vestur-Þjóðveijum.
Það eru geysilega erfiðir dagar fram-
undan, gífurlega strangar æfingar
verða tvisvar á dag fram að byrjun
mótsins. Það er því mikið álag á
mannskapnum en jafiiframt vilji allra
að ná góðum árangri í þessu sterka
móti,“ sagði Guðmundur að lokum.
JÖG
• Guðmundur Guðmundsson, nýkjörinn iþróttamaöur Reykjavikur, er ekki
vanur að iáta sitt eftir liggja þegar mikið liggur við.
Danir bjartsýnir
á að komast á
ólympíuleikana
- gamlar kempur að bætast í hópinn
Stefin Kristjánsson, DV, Rostodc
Danir eru óskaplega bjartsýnir á að
þeim takist að komast á ólympíuleik-
ana í Seuol 1988, sérstaklega eftir að
það varð ljóst að Jens Erik Röpstorf,
sem leikur með Helsingör, og Mogens
Jeppesen, markvörður hjá Ribe, sem
dönsku blöðin kalla bjargvætt dansks
handknattleiks, verða með danska
landsliðinu í B-keppninni á Ítalíu í
næsta mánuði.
Minna má á að fyrir heimsmeistara-
keppnina í Sviss á síðasta ári voru
Danir fullir bjartsýni um gott gengi
sinna manna en það fór á annan veg
eins og flestir vita. Þeir féllu niður í
B-riðil keppninnar og verður að segj-
ast að þeir þurfa heldur betur að taka
sig á þar því þar verða mjög sterkar
þjóðir, t.d. Vestur-Þjóðverjar, Sovét-
menn, Rúmenar og Tékkar svo að á
þessu sést að Danir eru ekkert öfunds-
verðir af verkefni sínu en aðeins tvær
þjóðir tryggja sér farseðilinn til Seuol
í B-keppninni á Ítalíu. -JKS
Maradona táraðist
þegar Napoli vann
óvíst hvort hann getur leikið næstu tvær vikur
Heil umferð var í ítölsku knatt-
spymunni um helgina og heldur
Napoli enn efeta sætinu með 24 stig
eftir sigur á Brescia, 2-1. Hið mikil-
væga sigurmark liðsins skoraði Bruno
Giordano úr vítaspymu.
í fyrsta sinn í 22 ár náði Napoli að
sigra Brescia á heimavelli sínum þótt
raunar hafi ekki blásið byrlega í upp-
hafi.
Argentínski knattspymusnillingur-
inn Maradona mátti t.d. fara af
leikvelli eftir rúmar sextíu mínútur
og er hann enn ekki gróinn sára þeirra
er hann hlaut í deildarleik um síðustu
helgi.
„Eg sá Maradona gráta í fyrsta sinn
í dag,“ sagði læknir Napoli-liðsins eft-
ir leikinn en hann mátti lina þjáningar
kempunnar. Læknirinn taldi þó
meiðslin ekki alvarlegs eðlis og reikn-
aði fastlega með að Maradona gæti
leikið að nýju eftir hálfan mánuð.
Inter Milan sigraði Empoli, 2-1, um
helgina og heldur því öðm sætinu, -
er með 22 stig. Mörk Inter skomðu
þeir Matteoli og Mandorlini en Svíinn
Ekström svaraði fyrir gestina.
Mikhael Laudmp skoraði fyrsta
mark Juventus í 2-1 sigri á Udinese.
Udinese náði þó að jafha með marki
Graziani en Manfredonia gerði út um
leikinn við mikinn fógnuð áhorfenda
í Torino. Franska knattspymugoðið
Platini fór nú loks á kostum þótt hann
næði ekki að skora mark.
Juventus er nú í þriðja sæti með 21
stig.
Örslit í öðrum leikjum vom þessi:
Ascoli - Milan 1-0
Atalanta - Sampdoria 1-0
Como-Roma 0-0
Fiorentina - Avellino. 2-0
V eron a-Torino 2-1
-JÖG
Stefán Kristjáns-
son, blaðamaður
DV, skrifar frá
Rostock
Guðmundur hnýtir flugur
Stefin Kristjánssan, DV, Rostodc
Menn gera ýmislegt til að stytta
sér stundir á milli æfinga og leikja
og má segja að sumir velji sér
nokkuð óvenjulega dægrastytt-
ingu.
A þetta sérstaklega við um
homamanninn og veiðidellukarl-
inn Guðmund Guðmundsson sem
ver miklum af frítíma sínum hér í
að hnýta lax- og siglungsflugur.
Guðmundur er með mikla veiði-
dellu og er þegar farinn að und-
irbúa sig fynr næsta veiðitímabil
og segir það toppinn í veiði-
mennskunni að veiða lax eða
sUung á flugur sem hann hefur
hnýtt sjálfúr.
-JKS
• Maradona á nú við meiösli að stríða.