Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1987, Qupperneq 23
MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 1987.
23
DV
Siggi Sveins skoraði
mark fra miðju vallar
- en það var dæmt af á óskiljanlegan hátt. AUi skoraði 11
Atli Hlntaissan, DV, V-Þýskalandi:
Það voru svo sannarlega æsandi
lokamínútumar í leik Lemgo og
Grosswaldstadt þegar liðin gerðu jafn-
tefli, 20-20, eftir að Grosswaldstadt var
yfir, 12-10, í hálfleik. Lemgo var undir
mestallan tímann en komst síðan yfir,
20-19, og hafði boltann auk þess að
vera manni yfir. Þá fékk Lemgo dæmt
á sig ruðning og Grosswaldstadt komst
í sókn og skoraði. Þá voru 2 sekúndur
eftir. Siggi fékk þá boltann og reyndi
skot ífá miðju. Og hið ótrúlega gerðist
- inn fór boltinn og dómaramir dæmdu
markið gilt. Allt trylltist af fögnuði
en þá gerði tímavörðurinn athuga-
semd. Langan tíma tók að fá niður-
stöðu en að lokum dæmdu dómaramir
markið af. Þá varð allt vitlaust í
íþróttahöllinni og þurftu dómaramir
að fá lögreglufylgd út.
Enginn varð eins ánægður með
þessa niðurstöðu og markvörður
Grosswaldstadt en það er tékkneski
landsliðsmarkvörðurinn Himer. Hann
fór næstum því að gráta þegar boltinn
fór inn. Að sögn Sigurðar var skotið
ekki mjög fast og skildi hann reyndar
ekkert í því hvemig boltinn fór inn.
Sigurður var tekinn úr umferð mest-
allan tímann en skoraði eigi að síður
7 mörk (4 v.) og átti mjög góðan leik
- greinilegt að hann er í góðri æfingu
og verður skemmtilegt að sjá til hans
á Baltic Cup. Þangað fer hann eftir
leik Lemgo á miðvikudagskvöldið.
Freisler var bestur hjá Grosswald-
stadt.
Þá tapaði Schútterwald fyrir Weiche
Handwitt, 19-23.
Atli meö 11 mörk
Atli Hilmarsson var svo sannarlega
í stuði þegar Leverkusen sigraði Berl-
ín, 23-22, og vom leikmenn Leverkus-
en klaufar að vinna ekki stærri sigur.
Atli lét sig ekki muna um að skora
11 mörk og var ekkert þeirra skorað
úr víti. Átti Atli aðeins tvö misheppn-
uð skot. Að sögn Atla hefur hann ekki
áður skorað 11 mörk í leik. Það mesta
sem hann hefur skorað hingað til er
10 mörk og það var í landsleik.
Wanne Eikel sigraði Bergkamen,
23-16, en Bjami og félagar komust
mest 9 mörkum yfir. Bjami var mjög
sterkur í leiknum og skoraði 6 mörk.
Dormhagen er nú efst í 2. deild með
31 stig en Leverkusen er í öðm sæti
með 22 stig. Dankersen er í 3. sæti
með 21 stig. Bjami og félagar em með
14 stig í 8. sæti.
Siggi Sveins þriðji markahæst-
ur
Pólverjinn Jerzy Klempel er nú
markahæstur í Bundesligunni. Hann
hefur skorað 165 mörk (55 v.), Erhart
Wunderlicht er næstur með 160 mörk
(74 v.), Sigurður Sveinsson er þriðji
með 117 mörk (49 v.). Alfreð Gíslason
er í 19. sæti með 68 mörk (8 v.) en
hann hefúr aðeins spilað 16 leiki.
Essen efst
Essen er enn sem fyrr efst og það
þó að liðið eigi inni tvo leiki á Gross-
waldstadt. Staða efstu liða nú:
Essen.......................16 29
Grosswaldstadt..............18 28
Milbertshofen...............18 21
Kiel........................16 20
M Evrópukeppnin í handknattleik:
Öll v-þýsku liðin
komust í undanúrslH
- Kristján og AKreð stóðu sig vel
Atli Hhnaisscm, DV, V-Þýskalandi:
Leikmönnum Gummersbach leist
ekki á blikuna þegar þeir komu til
leiks í Evrópukeppninni í A-Þýska-
landi í gær. Dómaramir, sem dæmdu
leikinn, vom nefhilega sömu dómarar
og dæmdu leik Víkings og Barcelona
fyrir tveim árum. Þetta júgóslavneska
dómarapar er orðið mjög frægt fyrir
heimadómgæslu sma. Leikur Magde-
burg og Gummersbach var engin
undantekning frá þessu. Að sögn
Kristjáns Arasonar var dómgæsla
þeirra hörmuleg.
Þrátt fyrir það tókst Gummersbach
að komast áfram í Evrópukeppninni.
Þessi leikur fór 18-14 fyrir Magdeburg
en Gummersbach vann fyrri leikinn,
24-19, og kemst því áfram á einu
marki.
Það munaði mikið um það í liði
Gummersbach að Neitzer átti hörmu-
legan dag í fyrri hálfleik. Hann skaut
12 sinnum en skoraði aðeins eitt mark.
í seinni hálfleik bætti hann við öðru
marki. Krokrowski var markahæstur
hjá Gummersbach með 5 mörk (3 v.).
Kristján skoraði 3 mörk og átti ágæt-
an leik, Annars háir það honum mjög
að hann verður að spilá með gifsbrú
í munninum vegna meiðslanna sem
hann varð fyrir um daginn. Talið er
öruggt að hann missi aðra framtönn-
ina en vonast er til að hægt verði að
bjarga hinni. Markahæstur hjá
Magdeburg var Ingólf Wigert en Wie-
land Smith varði mjög vel.
Essen áfram
Dukla Prag sigraði Essen, 20-17, en
það dugði ekki til því Essen vann fyrri
leikinn, 19-15. Dukla hefur ekki tapað
leik á heimavelli í Evrópukeppni í 4
ár. Það var fyrst og fremst stórkostleg
markvarsla Stefan Hecker sem bjarg-
aði Essen. Fraatz var markahæstur
hjá Essen en hann lék ekki með í fyrri
leiknum. Hann skoraði 5 mörk (2 v.).
Alfreð skoraði 4 mörk og stóð sig mjög
vel, sérstaklega í vöminni. Hjá Dukla
var Thomas Bartek markahæstur með
7 mörk (3 v.).
Þá komst Schwabing einnig áfram
en liðið sigraði Raba Eto Gjör frá
Ungveijalandi í gær, 23-17, og komast
áfram á fleiri mörkum skoruðum á
útivelli.
Þar með eru öll þýsku liðin komin
í fjögurra liða úrslit sem sýnir vel
styrkleika þýsks handknattleiks. SMJ
•Alfreð Gíslason og félögum hans i Essen er nú spáð sigri í Evrópukeppni
meistaraliða.
Þrjú glæsileg heimsmet
Þrjú glæsileg heimsmet vom sett
á miklu innanhússmóti í Osaka í
Japan í gærkvöldi. Kanadíski sprett-
hlauparinn Ben Jolmson hljóp 60 m
á 6,44 sek. en besti tími, sem hafði
aáðst áður, var 6,50 sek. svo að þama
3r um að ræða frábæra bætingu hjá
þessum mikla spretthlaupara.
„Ég hef eltki orðið fyrir neinum
alvarlegum meiðslum á síðustu fjór-
um árum. Það gerir mér kleift að
hlaupa svona liratt, sagði Ben Jo-
hnson eftir methlaupið.
• Þá stökk Sergei Bubka 5,96 í
stangarstökki og bætti fyrri árangur
sinn um 1 cm.
•1 þrístökki stökk Oleg Protsenko
17,67 m og bætti eigið met sem var
17,54 m. Það setti hann á Evrópu-
meistaramótinu innanhúss á síðasta
vetri. -SMJ
íþróttir
• Atli Hilmarsson skoraði 11 mörk um helgina í fyrsta sinn á ferlinum.
Dússeldorf................18 20 Schwabing...................18 17
Gummersbach...............16 18 -SMJ
Broddi Kristjánsson sigraði á opna meistaramóti KR.
Broddi sprengdi
kínverjann
- á meistaramóti KR í badminton
Opna meistaramót KR í einliða-
leik fór fram nú um helgina. Mótið
var sterkara nú en oft áður því afar
snjall kfnverskur badminton-maður,
Huang Wei Cheng, lék rneð að þessu
sinni. Hann stóð sig vel og sló með-
al annarra úr keppni sigurvegarann
frá fyrra ári, Guðmund Adolfsson.
í úrslitaleik tapaði hann hins veg-
ar fyrir Brodda Kristjánssyni, 13-15
og 6-15. Var það flestra álit að
Broddi væri vel að sigrinum kominn.
í einliðaleik kvenna sigraði Þórdís
Edwald Ásu Pálsdóttur í tvísýnum
úrslitaleik, 11-9 og 12-11.
I aukaflokki, keppni þeirra leik-
manna er lagðir voru að velli í fyrstu
umferð, sigraði Óskar Bragson FVí-
mann Ferdinandsson í úrslitum,
15-13 og 15-3.
Elísabet sigraöi
í einliðaleik kvenna, i þessum
aukaflokki, sigraði síðan fslands-
meistarinn, Elísabet Þórðardóttir,
Guðrúnu Júlíusdóttur, 11-2 og 11-3.
Mótið fór í heild vel fram. Lieikim-
ir vom jafnan skemmtilegir og
margir þeirra tvísýnir. Sáust ósjald-
an ágæt tilþrif hjá badmintonfólki
okkar en íþróttin hefur verið í upp-
vexti á síðustu misserum. Þetta
sannar meðal annars góður sigur á
Norðmönnum í landskeppni fyrir
nokkm.
JÖG