Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1987, Page 24
24
MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 1987.
íþróttir
Tobbi gefiir j
upplýsingar j
og fær klístur í staðinn
Stefin Krisóánasan, DV, Rostock
íslendingar leika sem kunnugt
er gegn Svíum á Baltic Cup hér í
Austur-Þýskalandi og er greinilegt
á öllum samtölum við leikmenn
íslenska liðsins að höfuðáherslan
• Þorbergur Aðalsteinsson.
verður lögð á að sigra Svía en að
sjálfeögðu verður stefrit að sigri í
öllum leikjum á mótinu.
Þorbergur, Aðalsteinsson, sem
leikur með sænska liðinu Saab,
hefur gefið Bogdan landsliðsþjálf-
ara mjög miklar upplýsingar um
sænska liðið og nánast kortlagt
leik þess.
Þorbergur fór fram á greiða á
móti, að HSÍ sendi honum kh’stur
en það efrii nota handknattleiks-
menn til að ná betra gripi á
knettinum. Þorbergur er óánægð-
ur með það klístur sem er á
boðstólum í Svíþjóð og fannst þetta
því kjörið tækifæri til að nálgast
það sem handknattleiksmenn nota
hérlendis.
Þess má geta að í fyrsta sinn í
langan tíma er leikmaður frá Saab
í sænska landsliðinu og er það
markvörður liðsins.
____________________________
„Góður leikur“
- sagði Mark Falco
„Að mínum dómi var þetta góður sérlega í síðari hálfleik. Þótt Reykja-
leikur," sagði Mark Falco, leikmaður víkurliðið hafi verið fyrra til að skora
Watford. „Reykjavíkurliðið var mun mark vorum við alls ekki heppnir að
betra en ég hafði gert ráð fyrir, liðið ná jöfhu, úrslitin voru sanngjöm þeg-
lék góða og yfirvegaða knattspymu, ar á heildina er litið.“
• Luther Blissett, umvafinn ungum áhangendum.
• Sigurjón Kristjánsson skoraði mark Reykjavikurliðsins með miklu þrumuskoti ettir fyrirgjöf Péturs Péturssonar.
Rangstöðumarkið
bjargaði Watford
- fra tapi fyrir æfíngalausum áhugamönnum
Það var greinilegt á leik Watford liðs-
ins að leikmönnum liðsins veitti ekki af
æfingaferð til fslands. Það var ekki til-
þrifamikill leikur sem þeir sýndu gegn
æfingalausum íslendingum og máttu þeir
teljast heppnir að sleppa með jafiitefli en
mikil rangstöðulykt var af eina marki
þeirra.
Um þúsund áhorfendur létu sig hafa það
að koma niður í Laugardal til að fylgjast
með þessum „veðurflóttamönnum" frá
Englandi. Fyrri hálfleikur var tilþrifalítill
en þó fengu bæði lið eitt færi.
Seinni hálfleikur var mun betur leikinn
hjá íslenska liðinu sem náði oft að sýna
góða samleikskafla á miðjunni, þó án
þess að skapa sér nein hættuleg færi.
Mark Reykjavíkurliðsins kom um miðjan
seinni hálfleik og var það ansi laglegt.
Eftir fyrirgjöf frá hægri náði Pétur Pét-
ursson að sýna mikið harðfylgi og renndi
hann boltanum fyrir fætur Sigurjóns
Kristjánssonar sem þrumaði knettinum í
netið af stuttu færi.
Fagnaðarlæti íslendinga voru varla
hljóðnuð þegar mark Watfords kom. Lut-
her Blissett fékk þá sendingu inn fyrir
vöm Reykjavíkurliðsins og virtist flestum
hann vera rangstæður. Blissett brunaði
upp að endamörkum þar sem hann gaf
fyrir og Mark Falco var á auðum sjó c
átti ekki í vandræðum með að skora.
Reykjavíkurliðið kom að mörgu leyti
óvart. Örar innáskiptingar riðluðu stum
um leik liðsins, sérstaklega þegar lið:
virtist vera að ná góðum tökum á leiknui
í seinni hálfleik. Sjálfeagt var að ley:
öllum að vera með en nær hefði verið &
skipta í hálfleik. Vamarmennimir Guði
Bergs og Þorgrímur Þráinsson komu
vel frá leiknum en annars stóðu allir fy
ir sínu og var í raun merkilegt hve go
úthald manna var.
-SM
Opið til 10 virka daga. Föstudaga frá 10-19.
Laugardaga frá 10-16.
Smiðjuvegi 2, Kópavogi Símar 79866, 79494