Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1987, Side 26
26
MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 1987.
Iþróttir
Stórskyttan sem
týndi skónum sínum
Viðtal við markahæsta mann 1. deildar, Sigurjón Sigurðsson úr Haukum
„Ég er engin súperstjama í hand-
knattleik þótt ég sé markahæstur í
íyrstu deild. Þótt mörgum finnist ég
standa upp úr í mínu liði dugir það
ekki til að komast í landsliðið."
Þetta eru orð Sigurjóns Sigurðsson-
ar í Haukum, eins efnilegasta hand-
knattleiksmanns okkar í dag.
Sigurjón er þó ekki aðeins einn
mestur markvarðaskelfir í fyrstu
deildinni hér heima - hann hefur um
hríð æft með landsliði íslands og leik-
ið nokkra leiki fyrir þess hönd. Auk
þess sem hann tók þátt í undirbúningi
liðsins fyrir ólympíuleikana í Los
Angeles, þá aðeins 17 ára gamall, lék
hann með liðinu á alþjóðlegu móti í
Hollandi nú í nóvember. Það er
margra álit að Sigurjón sé ekki aðeins
einn af burðarásum unglingalands-
liðsms heldur lykilleikmaður í fram-
n'ðarlandsliði Islands.
í samtali við blaðamann DV á dög-
unum ræddi hann m.a. stöðu sína í
handknattleiknum og framtíðaráform
sín á því sviðinu.
„Auðvitað gerði ég mér vonir um
að komast í ólympíuhópinn nú, en
maður er ekki að keppa við neina
smákarla um sæti. Ég stefhi náttúrlega
enn á ólympíuleikana í Seoul, en fram-
tíðin skiptir vitanlega mestu máli.“
„Skipti um félag ef Haukarnir
falla“
- Telurðu að nýtt andrúmsloft geti
bætt þig sem handknattleiksmann og
jafnvel ráðið framtíð þinni með lands-
liðinu?
„Ef ég get staðsett mig samkvæmt
alþjóðlegum mælikvarða verð ég jafri-
vel að snúa bakinu við Haukum ef
þeir falla í aðra deild. Ég verð að hugsa
* til eigin framtíðar. Það er því gífurlega
mikilvægt, bæði fyrir mig og liðið, að
við höldum okkur í deildinni. Það er
þó örugglega erfitt að yfirgefa félag
sem maður er bundinn tilfinningalega,
ég hef æft með Haukum frá sjö ára
aldri. Þótt nokkur félagslið leituðu til
mín í haust tók ég þá ákvörðun að
leika áfram með þeim, meðal annars
af þeirri ástæðu. Því verður ef til vill
ekki neitað að sem leikmaður Víkings
hefði ég til dæmis spilað Evrópuleiki.
Það hefði ef til vill hjálpað mér að
eitthverju leyti, þó er það ekki víst.
En þótt Víkingamir hafi leitað til
mín í haust get ég vel hugsað mér að
ganga í mörg önnur félög, það er ef
af slíku verður. Því verður þó ekki
neitað að Bjarki Sigurðsson er afai-
góður homamaður sem sérlega gaman
er að leika með, leikstíll okkar fer
mjög vel saman.“
Agalaus leikmaður eða djarfur
- Nú hafa ýmsir legið þér á hálsi
fyrir agaleysi, viltu svara þeim dómi?
„Ég hef mikið fijálsræði í Haukalið-
inu, meira en hjá unglingalandsliðinu
þar sem jafhræði er meira meðal leik-
manna. Vitanlega hef ég, eins og aðrir
leikmenn, ýmsa skapgerðargalla sem
koma niður á leik mínum. Til dæmis
stend ég oft stjarfur þegar sóknir
renna út í sandinn í stað þess að fylgja
aftur í vöm. En ég held að ég sé ekki
agalausari en margur annar. íslend-
ingar gangast fúslega undir aga en
bila síðan oft er mest á reynir. Engu
að síður verður að hafa djarfa menn
í liðum sem hafa þor til að skjóta á
mikilvægum augnablikum. Það er
þannig í handbolta að menn geta ráð-
ið úrslitum, sigri eða ósigri, í einu
skoti. Tímasetningin er vitanlega mik-
ilvægt atriði en geta og heppni ráða
einnig miklu."
Markahæstur en liðið í fallsæti
- Skýtur ekki dálítið skökku við að
• Landsliðsmaður framtíðarinnar - Sigurjón Sigurðsson úr Haukum
þú skulir vera markahæstur í fyrstu
deild en lið þitt í fallsæti?
„Vitanlega, en það er mikilvægara
að liðið nái árangri nú en að ég standi
uppi sem markakóngur í vor.“
- Nú ert þú nánast eini maðurinn
hér heima sem getur markvisst beitt
undirskotum:
„Já, þegar maður er smávaxinn til-
einkar maður sér leikstíl. Undirskotin
eru ákaflega erfið fyrir markverði því
skotið er nánast blint. En undirskotið
er ekki bara leið til að skora mörk því
það eykur á fjölbreytni í sóknarleikn-
um, ég get til að mynda blekkt
andstæðing með gabbhreyfingum sem
tengjast því.“
Lýst eftir slitnum skóm
Það er ljóst að enginn fer í skóna
hans Sigurjóns, þótt einhver huldu-
maður hafi reynt slíkt á dögunum.
Nú í síðustu viku voru skór hans
nefiiilega numdir á brott eftir stórleik
Hauka og Vals.
„Síðan skómir hurfu hefur allt geng-
ið á afturfótunum, nú þarf ég að fara
að venjast nýjum skóm og það kemur
niður á leik mínum og liðsins í heild,“
sagði Siguijón að lokum.
Með þessum orðum Siguijóns er lýst
eftir gömlu skónum. Það er fullvíst
,að fleira þarf til en slitna skó til að
verða skæður handknattleiksmaður.
Ef huldumaðurinn telur sig fremur ná
undirskoti í skónum hans Sigurjóns
er .sú trú byggð á blekkingu.
Ef einhver pjakkurinn hefur á hinn
veginn hengt skóna á vegg hjá sér er
þeim hinum sama ráðlagt að koma
þeim til skila svo að Siguijón geti
haldið uppteknum hætti og skorað
mörk.
-JÖG
Skin og skúrir hja
Elkjær og Laudrup
- í heimi atvinnumennskumar á Ítalíu
Haukur Lárus Hauksson, DV, Danmöriai:
' Það skiptast á skin og skúrir hjá
knattspymumönnum á Ítalíu og á það
sérstaklega við um erlenda leikmenn.
Dönsku sóknarleikmennimir Preben
Elkjær Larsen hjá Verona og Mikael
Laudmp hjá Juventus hafa ekki farið
varhluta af því.
Eftir frekar dauft keppnistímabil hjá
Elkjær snýst lukkuhjólið á fullum
hraða og með tveimur mörkum sínum
í 2-1 sigri Verona yfir Inter um síð-
ustu helgi er hann nánast í guðatölu
hjá Veronabúum og auðvitað dönsk-
um dagblöðum líka.
Elkjær borgarstjóri
I Napoli hrifúst menn einnig mjög
þar sem Napoli hélst á toppnum við
tap Inter. Lagði dagblað þar til að
Elkjær yrði gerður að borgarstjóra
Verona. Mikael Laudrup sagði Elkjær
að njóta lífsins meðan hann gæti því
á eftir næsta leik yrði honum kannski
slátrað á síðum blaðanna. Laudmp
talar af eigin reynslu. Itölsku meistar-
amir Juventus hafa misst af lestinni
og spila langt frá því meistaralega og
er útlendingunum gjaman kennt um,
það er Platini og Laudrup.
Platini er á förum eftir þetta leik-
tímabil og því ekkert púður í honum
fyrir íþróttafréttamenn ítalskra blaða.
Óðm málir gegnir um Laudmp. Síð-
■ustu vikumar hafa íþróttafréttamenn-
imir lagt hann í einelti og selt hann
þrisvar til §órum sinnum, síðast til
Liverpool. Laudmp og framkvæmda-
stjóri Juventus, Boniperti, vísa öllu
slíku á bug en hjá Liverpool hafa
menn ekkert á móti því að fá Laudrup
í raðir „rauða hersins“. Kenny Dagl-
ish, framkvæmdastjóri Liverpool, er
fúlíur aðdáunar á Laudrup.
Laudrup til Liverpool
Jan Mölby, Daninn í liði Liverpool,
líst vel á hugmyndina og segir hann
Laudmp eina manninn er leyst geti
Ian Rush af, en hann fer til Juventus
í haust eins og kunnugt. Laudmp get>
• Preben Elkjær-Larsen í baráttu við Michel Platini i landsleik. Báðir hafa þeir fengið að kynnast því að gengi knatt-
spyrnumannsins getur verið valt á Ítalíu.
ur aðeins stöðvað þessar vangaveltur en þá verður hann dýrðlingur á ný „fish and chips“ en það þætti honum
á einn hátt, með því að skora mörk, og þarf ekki að fóma spaghetti fyrir ægilegt. -JKS.