Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1987, Page 28
28
MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 1987.
Iþróttir
• Trevor Francis.
Trevor Francis
til Englands
SteSji Már Amaisan, DV, Engiandi;
Nú er ljóst að enski leikmaður-
inn Trevor Francis mun leika á
Englandi næsta keppnistímabil
Francis hefúr nú dvalið í fimm ór
á Ítalíu en nú leikur hann með
Atalanta. Hann hefúr lítið sem
ekkert getað leikið með á þessu
keppnistímabili vegna meiðsla.
Ekki er vitað með hvaða liði hann
mun leika í Englandi en fjölmörg
lið munu hafa áhuga á því að fá
kappann í herbúðir sínar.
-SMJ
Verður skipt
á Mölby
og Laudrup?
Að undanförnu hefúr nokkuð
verið rætt um það að Jan Mölby
sé á leiðinni til Juventus og muni
leika þar með Ian Rush. Þetta hef-
ur þó strandað á því að aðeins er
leyfilegt að hafa tvo erlenda leik-
menn í hverju liði á Ítalíu og hvað
átti þá að verða um Laudrup?
Nú er hins vegar talað um það
að Kenny Dalglish, framkvæmda-
stjóri Liverpool, hafi hugsað fyrir
þessu. Hann ætli einfaldlega að
skipta á Mölby og Laudrup en
Dalglish mun alla tíð hafa haft
mikinn áhuga á því að fá Laudrup
til Liverpool. Áður en Laudrup fór
til Juventus stóð hann einmitt í
samningaviðræðum við Liverpool
og þá hreifst Dalglish mjög af
hæfileikum hans. Svo mjög að
hann er tilbúinn að láta Mölby af
hendi.
-SMJ
• Afan Smith.
Alan Smith
til Arsenal?
Sóknarmaðurinn snjalli, Alan
Smith, sem leikur með Leicester,
er nú sagður vera efeti maður á
óskalista Arsenal og Liverpool.
Smith hefúr nú verið í nokkur
ár hjá Leicester og ávallt skorað
mikið af mörkum. Samvinna hans
og Gary Lineker var mjög góð þó
að Smith væri ætíð í skugga Linek-
ers. Talið er víst að Leicester
mun' ekki láta Smith fara fyrir
neina smáupphæð og er jafnvel
talað um milljón punda kaup (60
milljónir kr.).
-SMJ
Kuldaboli herjar
á Tjallann
Aðeins voni leiknir 10 leikir af 61
Vegna geysilegs kulda á Bretlands-
eyjum var flestum knattspymuleikj-
um, sem leika átti á laugardaginn,
frestað. Einungis 10 leikir af 61 sem
áætlað var að leika voru leiknir. Ever-
ton sigraði Sheffield Wednesday, 2-0,
og hefúr þá sigrað sjö síðustu leiki
sína. Arsenal náði einungis jafritefli á
heimavelli gegn Coventry, 0-0.
Sjöundi sigur Everton í röð.
Everton veitir Arsenal mikla keppni
um meistarátitilinn og er með 51 stig,
aðeins einu stigi á eftir Arsenal. Ever-
ton sigraði Sheffield Wednesday á
heimavelli, 2-0. Þrátt fyrir kulda á
Bretlandseyjum var Goodison Park,
völlur Everton, í ágætu ásigkomulagi
vegna hitalagna undir vellinum.
Trevor Steven skoraði fyrra markið
á 16. mínútu, úr vítaspymu, eftir að
Gary Megson hafði handleikið knött-
inn í vítateignum. Miðvörður Everton,
Dave Watson, brá sér svo í sóknina
og skoraði síðara mark Everton á 32.
mínútu. Hart var barist í leiknum og
vom þrír leikmenn bókaðir, þar á
meðal Sigurður Jónsson sem er á ný
í Sheffieldliðinu eftir meiðsli. Þetta var
sjöundi sigur Everton í röð en fjórði
tapleikur Sheffield Wednesday á úti-
velli í röð.
Everton er talið líklegast til að ná
meistaratitlinum. Liðið hefúr sýnt
góða leiki þrátt fyrir mikil meiðsli lyk-
ilmanna í allan vetur.
Yfirburðir Liverpool nýttust ekki
Þrátt fyrir mikla yfirburði Liverpool
gegn Manchester City var sigurinn
eins naumur og hugsast getur, eða
1-0. Markið skoraði Ian Rush (hver
annar?) á 72. mínútu eftir sendingu frá
Mark Lawrenson. Rush hefur þá skor-
að 25 mörk fyrir Liverpool í vetur.
Fram að þeim tíma hafði Liverpool
verið meira með knöttinn án þess að
skapa sér góð marktækifæri. Paul
Walsh var mikið með knöttinn í fram-
línunni og átti góða spretti að marki
Manchester City en ekkert kom úr
þeim sprettum. Manchester City hefúr
nýlega fest kaup á sínum gamla lands-
liðsmanni, Peter Bames, en hann var
keyptur frá fjendunum í Manchester
United. Bames var hættulegur á kant-
inum og lék leikmenn Liverpool oft
grátt en fyrirgjafir hans nýttust ekki.
Eftir markið átti Liverpool nokkur
góð tækifæri, sérlega á lokamínútum
leiksins. Manchester City átti eitt gott
færi á 57. mínútu er David White
renndi knettinum hárfínt framhjá
markinu. Liverpool er með 45 stig, er
í þriðja sæti, sex stigum á eftir Arse-
nal en fimm stigum á eftir Everton.
Vígtennur Arsenal bitlausar
Arsenal og Coventry gerðu marka-
laust jafntefli á Highbury. Fátt var
um marktækifæri. Paul Davis var
nærri því að skora fyrir Arsenal á 3.
mínútu er hann skaut í stöng. Fleiri
vom færin ekki. í síðari hálfleik sótti
Arsenal án afláts en tókst ekki að
skora enda vöm Coventry ein sú þétt-
asta í deildinni. Arsenal hafði skorað
að minnsta kosti eitt mark í hverjum
•lan Rush skoraði sigurmark Liverpool um helgina. Hann hefur nú skorað
24 mörk fyrir Liverpool í vetur.
Man.Citygreiddi
1,8 milljónir
-fyrir
Peter Bames
Segja má að knattspymumaðurinn
Peter Bames hafi hvergi fest rætur á
ferli sínum sem atvinnumaður. Nú
hefúr hann verið seldur frá Manchest-
er United til grannanna í Manchester
City fyrir 1,8 milljónir kr. (30 þús. sterl-
ingspund) eins og sjónvarpsáhorfend-
ur sáu glögglega nú um helgina. Hann
plataði meðal annars Mark Lawren-
son upp úr skónum.
Það var einmitt í herbúðum City sem
Bames hóf sinn rysjótta feril. Þaðan
var hann seldur til W.B.A. árið 1979
fyrir 39 milljónir kr.(650 þúsund pund).
Tveimur árum síðar var Bames síðan
keyptur til Leeds en framkvæmda-
stjóri þess félags reiddi fram tæpar 56
milljónir kr. (930 þúsund pund) fyrir
garpinn. Á þeim tíma var Bames í
landssliðsformi, geysilega fljótur og
skeinuhættur kantmaður. Engu að
síður brást hann vonum fojystumanna
Leeds-liðsins og var lánaður til
spánska félagsins Real Betis. Þaðan
kom hann síðan aftur í herbúðir Leeds
til þess eins að verða seldur til Co-
ventry.
Manchester United keypti hann síð-
an í júlí 1985 og átti Bames einn
stærstan þátt í velgengni félagsins í
upphafi síðasta keppnistímabils.
Á síðustu misserum hefúr Bames átt
við meiðsl að stríða og hafa þau m.a.
ráðið þessari sölu sem margri annarri
í hinum harða heimi ensku deilda-
keppninnar. Bames er öllum vamar-
leikmönnum skeinuhættur á góðum
degi en hann átti það hins vegar til
að hverfa algerlega þegar á móti blés.
-JÖG.
Urslit
Arsenal-Coventry...............0-0
Everton - Sheffield W ednesday.2-0
ManchesterCity-Liverpool.......0-1
2. deild:
Blackbum-Grimsby...............2-2
Bradford-Millwall..............4-0
3. deild:
Bolton - Bristol Rov...........2-2
4. deild:
Exeter- Colchester.............2-0
Peterborough-Orient............0-1
Swansea-Preston................1-1
af sínum síðustu ellefú leikjum.
•Blackbum lenti í kröppum dansi
á heimavelli gegn Grimsby. Grimsby
tók tveggja marka forystu í fyrri hálf-
leik en þá skomðu þeir Phil Bonny-
man og Ian Walsh (úr vitaspymu)
mörkin. Blackbum tókst að jafna í
síðari hálfleik og skoraði Simon Bar-
ker bæði mörkin.
•Neðsta liðið í 2. deild, Bradford, tók
sig til og gjörsigraði Millwall, 4-0.
Mark Elhs og Ian Ormondroyd skor-
uðu tvö mörk hvor. Bradford þokaði
sér upp um fjögur sæti með þessum
sigri.
-EJ
Staðan
1. deild
Arsenal 25 15 7 3 41-13 52
Everton 25 15 5 5 49-20 50
Liverpool 25 13 6 6 43-24 45
Nott. Forest 24 11 6 7 46-32 39
Luton 24 11 6 7 26-23 39
Norwich 24 10 9 5 33-33 39
Tottenham 24 11 5 8 38-29 38
Coventry 24 10 7 7 26-24 37
Wimbledon 24 11 2 11 33-32 35
West Ham 24 9 7 8 37-41 34
Watford 24 9 6 9 40-31 33
Sheff. Wed. 25 8 9 8 3frrí0 33
Manc. Utd. 24 7 8 9 31-28 29
Oxford 24 7 8 9 28-38 29
QPR 24 7 6 11 24-31 27
Manc. City 25 6 8 11 24-35 26
Southampton 23 7 4 12 37-46 25
Chelsea 24 6 7 11 28-43 25
Charlton 24 6 6 12 25-35 24
Leicester 24 6 6 12 31-43 24
Aston Villa 24 6 6 12 30-50 24
Newcastle 24 5 6 13 25-42 21
2. deild
Portsmouth 24 14 6 4 32-16 48
Oldham 23 13 6 4 39-22 45
Derby 23 13 4 6 33-21 43
Ipswich 24 11 7 6 41-27 40
Plymouth 24 10 8 6 38-31 38
Stoke 24 11 4 9 38-26 37
Crystal P. 24 12 1 11 34-38 37
Leeds 24 10 5 9 30-31 35
WBA 24 9 6 9 31-26 33
Millwall 24 9 6 9 28-26 33
Birmingham 24 8 9 7 33-32 33
Sheff. Utd 24 8 8 8 33-34 32
Grimsby 25 7 11 7 25-28 32
Shrewsbury 24 9 3 12 22-31 30
Brighton 24 7 7 10 25-29 28
Sunderland 22 6 9 7 26-28 27
Hull 23 7 4 12 24-44 25
Reading 22 6 6 10 31-37 24
Bradford 23 6 5 12 33-41 23
Huddersfield 22 6 5 11 27-37 23
Blackburn 22 5 6 11 20-29 21
Bamsley 23 4 8 11 22-31 20
Skotland
Rangers 29 20 4 5 55-14 44
Celtic 29 18 7 4 61-24 43
Dundee Utd 28 17 6 5 47-23 40
Hearts 28 15 8 5 48-24 38
Aberdeen 27 13 10 4 39-19 36
Dundee 26 11 5 10 40-34 27
St. Mirren 28 8 9 11 26-32 25
Hibernian 29 6 8 15 25-49 20
Motherwell 28 5 9 14 27-45 19
Falkirk 27 6 6 15 23-45 18
Clydebank 29 5 6 18 22-61 16
Hamilton 28 2 6 20 24-67 10
• Peter Barnes.
Souness selur
til Spánar
Greame Soimess, framkvæmda-
stjóri Glasgow Rangers, hefúr
hingað til ekki verið frægur fyrir
að selja leikmenn frá liði sínu.
Hins vegar hefur hann verið dug-
legur við að kaupa leikmenn.
Hann brá út af vananum úm dag-
inn og seldi Ted McMinn til
Sevilla á Spáni. Hann fékk gott
verð fyrir McMinn eða um 20
milljónir kr.
McMinn, sem leikur sem sóknar-
maður, hefúr átt við mikil aga-
vandamál að stríða hjá Rangers
og var settur í leikbann um síðustu
helgi.
-SMJ