Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1987, Síða 31
MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 1987.
31
Þrír leikmenn
úr öðnim flokki
í 22. manna
landsliðshópi
Bogdans
Allir þeir sem horfðu á keppni í
fyrstu deild 2. flokks karla á dögunum
geta verið sammála um það að þar var
boðið upp á frábæran handknattleik á
köflum. Hinn mikli uppgangur, sem
er í íslenskum handknattleik um þess-
ar mundir, endurspeglaðist í leik eftir
leik og árangur landsliðs okkar, skip-
að leikmönnum 20 ára og yngri, á 4
liða móti HSÍ staðfesti þetta enn betur.
Það þarf því ekki að koma á óvart
að þrír þessara ungu leikmanna hafa
fundið náð fyrir augum Bogdans
landsliðsþjálfara þegar hann valdi 22
manna hóp til æfinga fyrir ólympíu-
leikana í Seoul 1988. Þessir þrír
leikmenn, þeir Bjarki Sigurðsson, Vík-
ingi, Héðinn Gilsson, FH, og Konráð
Olavsson, KR, hafa allir leikið mjög
vel í vetur og eiga sæti sín því að
þakka. Héðinn hefur reyndar verið
valinn til að spila í Baltic cup keppn-
inni en þeir Bjarki og Konráð verða
að bíða enn um stund eftir slíku tæki-
færi með íslenska landsliðinu.
Bjarki Sigurðsson
Konráð Ólafsson
Héðinn Gilsson
Urval
LESEFNI
VIÐ ALLRA HÆFI
Handkriattleikur unglinga
KR4ngar Reykjavíkuimeistarar j
í öðnim flokki karia !
- unnu sannfærandi sigur á Víkingum í úrslitaleik mótsins I
I
I
Guðmundur Pálmason áW stórteik
með KR i úrslitaleiknum gegn Vík-
ingi og er óðum að nálgast sitt fyrra
form.
l„
KR-ingar sýndu hvers þeir eru
megnugir þegar þeir unnu geysi-
sterkt lið Víkings í úrslitaleik
Reykjavíkurmótsins í 2. flokki karla.
Þessi leikur fór á vergang vegna
þátttöku 20 ára landsliðs okkar í 4
liða móti HSÍ í desember.
Eftir jafnan fyrri hálfleik, þar sem
bæði lið sýndu góðan leik, var stað-
an 7-7. KR-ingar stungu svo af í
síðari hálfleik og sigruðu örugglega
í leiknum, skoruðu 18 mörk gegn 14
mörkum Víkinga.
Hinn snjalli leikmaður KR, Guð-
mundur Pálmason, bar af á vellinum
og átti sannkallaðan stórleik. Guð-
mundur dvaldist sl. keppnistímabil í
Bandaríkjunum og hafði ekki mikla
möguleika á að halda sér í formi í
handboltanum þar en virðist nú vera
að ná sínum fyrri styrk og vel það.
Einnig áttu Konráð Olavsson og
Þorsteinn Guðjónsson góðan leik
fyrir KR, svo og liðið allt. Þjálfari
KR-inga, Ólafur Lárusson, vann
þama sinn annan Reykjavíkur-
meistaratitil á nokkrum dögum en
hann er einnig þjálfari 5. flokks KR
sem vann Fram í spennandi úrslita-
leik um Reykjavíkurmeistaratitil-
inn.
Hjá VOtingi átti Bjarki Sigurðsson
ágætis leik en Víkingar mættu ein-
faldlega ofiörlum sínum að þessu
sinni. Guðmundur Pálmason gerði 6
mörk fyrir KR en Bjarki Sigurðsson
var markahæstur Víkinga með 4
mörk.
Leikur um þriöja sætiö |
IR-Valur 16-10 Z
£R-ingar áttu ekki í neinum vand- |
ræðum með að tryggja sér þriðja ■
sætið á mótinu. Þeir leiddu 8-3 í I
hálfleik og héldu sínu striki í seinni I
hálfleik. Lokatölur 16-10 ÍR-ingum *
í hag. |
Lassalg kr. 3,00
99. irgang
Aolcíunös Ðagblaö
Lordag H januar
,d fra Haroy, sWPP«r *
Norvald Morsund fra
roens Tidende^i/
„Flotbúningamir björguðu okkur!
Þeir voru allir sammála um stormi oc
það, sjómennirnir níu, sem þeirra, Hc
bjargað var við mjög erfiðar af Stafjori
aðstæður eftir að hafa verið úar 1981
rúmar 9 klst.í sjónum í norðan-
Staðreyndir tala sínu máli
Sendum myndalista.
prm ÖRYGGI
LílJfl ofar
HcHy-Hansen O L L U
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Sími 9135200