Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1987, Síða 40
40
MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 1987.
Andlát
Anna Kristín Karlsdóttir, Unnar-
braut 12, Seltjarnarnesi, andaðist á
heimili sínu að kvöldi 15. janúar
1987.
Hallfríður Pálsdóttir írá Hvera-
gerði, lést á elli- og hjúkrunarheimil-
«• inu Grund 15. janúar sl.
Víglundur J. Guðmundsson bíl-
stjóri, Laugavegi 70, Reykjavík, lést
í Borgarspítalanum fímmtudaginn
15. janúar.
Gísli Sigurjónsson bifreiðastjóri,
Munkaþverárstræti 24, Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri 9. janúar sl. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Kjartan J. Jóhannsson læknir, sem
lést 7. janúar sl., verður kvaddur frá
Dómkirkjunni í Reykjavík miðviku-
daginn 21. janúar kl. 13.30.
Kristensa Jóhanna Tómasdóttir
frá Tungu, Fróðárhreppi, Álfaskeiði
90, Hafnarfirði, verður jarðsungin
frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudag-
inn 20. janúar kl. 15.
Útför Viktoríu Kristjánsdóttur,
Grundarlandi 6, Reykjavík, fer fram
frá Dómkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 20. janúar kl. 13.30.
Jón Matthías Guðmundsson, Sæ-
bóli, Seltjarnarnesi, verður jarð-
sunginn frá Neskirkju mánudaginn
19. janúar kl. 15.
Guðmundur Kolbeinsson, Hjalta-
bakka 18, sem andaðist í Borgarspít-
alanum 10. janúar sl. verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni
mánudaginn 19. janúar kl. 13.30.
Guðbjörg Bjarnadóttir, Hverfis-
götu 87, Reykjavík, verður jarðsung-
in frá Bústaðakirkju í dag, 19.
janúar, kl. 13.30.
Anna Guðrún Ingólfsdóttir verður
jarðsungin frá Nýju kapellunni í
Fossvogi þriðjudaginn 20. janúar kl.
15.
Ttíkyimingar
Minningarkort
Geðverndarfélags íslands
í minningarsjóð um Kjartan B. Kjartans-
son lækni fást í: Ápóteki Kópavogs,
| Reykjavíkurapóteki og á skrifstofu félags-
ins að Hátúni 10, sími 25508, og er þar
gíróþjónusta.
Kvenfélagskonur
Sameiginlegur fundur félaganna í Breið-
holti verður haldinn 19. janúar í Gerðu-
bergi kl. 20.30. Góð skemmtidagskrá.
Kaffiveitingar.
Formaður Æskulýðsráðs
ríkisins kosinn
Menntamálaráðherra, Sverrir Hermans-
son, hefur nýlega skipað Áma Sigfússon
stjómsýslufræðing formann Æskulýðsr-
áðs ríkisins til tveggja ára og Ágúst Má
Grétarsson sölumann varaformann til
sama tíma. Á kjörfundi Æskulýðsráðs rík-
isins 7. jan. sl. voru kosin í ráðið þau
Katrín Gunnarsdóttir, Þórður Haraldsson
og Benjamín Axel Ámason og til vara
Guðmundur Guðmundsson, Árni Einars-
son og Ingi Þorgrímsson.
Nýr framkvæmdastjóri
hjá BYKO
BYKO hf. hefur ráðið Árna Ámason sem
framkvæmdastjóra fjármálasviðs fyrir-
tækisins. Mun hann hafa yfimmsjón með
öllum fjármálum BYKO hf. Framkvæmda-
stjóri fjármálasviðs er nýtt starf hjá BYKO
hf. en fyrirtækinu var breytt úr sameignar-
félagi í hlutafélag um nýliðin áramót. Árni
er fæddur 26. apríl 1949. hann lauk stúd-
entsprófi frá Verslunarskóla íslands 1970.
Hélt hann þá utan til Bandaríkjanna til
framhaldsnáms og lauk MBA prófi í
rekstrarhagfræði frá University of Minne-
sota með aðaláherslu á fjármál og
markaðsmál. Að loknu námi réðst Árni til
Verslunarráðs íslands, fyrst sem hagfræð-
ingur en á árinu 1979 tók hann við starfi
framkvæmdastjóra. Hefur hann gegnt því
starfi síðan. Frá stofnun landsnefndar Al-
þjóða verslunarráðsins á árinu 1983 hefur
hann jafnframt verið framkvæmdastjóri
hennar. I tengslum við starf sitt hefur
Árni átt sæti í ýmsum nefndum og ráðum
og jafnframt setið í stjóm nokkurra fyrir-
tækja. Ámi er kvæntur Jóhönnu Gunn-
laugsdóttur bókasafhsfræðingi og eiga þau
tvö böm.
Námskeið í skyndihjálp
Reykjavíkurdeild RKl heldur námskeið í
skyndihjálp. Það hefst þriðjudaginn 20.
janúar að Ármúla 34 (Múlabæ) kl. 20 og
stendur y fir 5 kvöld. Skráning í síma 28222.
Námskeiðagjald er kr. 1000. Leiðbeinandi
verður Guðlaugur Leósson. öllum heimil
þátttaka. Á námskeiðinu verður leitast við
að veita sem almennasta þekkingu um
skyndihjálp. Meðal annars verða kennd
viðbrögð við öndunarstoppi, beinbrotum,
bmna og sýnd myndbönd um ýmsa þætti
skyndihjálpar. Nú er gott tækifæri fyrir
fólk að læra fyrstu viðbrögð við slysum
eða endurbæta fyrri þekkingu. Talið er
nauðsynlegt að fólk fari í gegnum allt
námskeiðið á 3 ára fresti til að halda þekk-
ingunni við en fari á 2 kvölda upprifjun-
amámskeið einu sinni á ári. Boðið verður
upp á slík námskeið á næstunni ef þátt-
taka fæst. Námskeiðinu lýkur með verk-
efni sem hægt er að fá metið í ýmsum
skólum.
Farmannaveriífallið:
Undanþaga fýrir
flutning á
frystum fiski
- hægagangur
í samningaviðræðtinum
Sjómannafélag Reykjavíkur hefur
ákveðið að veita undanþágu í far-
mannaverkfallinu fyrir flutning á
frystum fiski á Bandaríkjamarkað en
ekki á ferskfiskútflutning. Með þessu
móti segjast farmenn vilja tryggja að
Bandaríkjamarkaðnum verði ekki
stefrit í hættu.
Samningafundir í deilunni hafa
staðið alla helgina en lítið þokast í
samkomulagsátt. Þó er hreyftng í rétta
átt og sagði Matthías Bjamason sam-
gönguráðherra í morgun að hann
mæti stöðuna svo að meðan þessi
hreyfing væri í samkomulagsátt kæmi
ekki til greina að setja lög til að leysa
deiluna. Hann sagði ennfremur að
hann myndi ekki beita sér fyrir laga-
setningu nema fullt samkomulag væri
um það innan ríkistjómarflokkanna.
Sáttafundi lauk kl. 05 í morgun og
hefiir annar fúndur verið boðaður kl.
17 í dag. -S.dór
Safnaðarfélag Ásprestakalls
heldur fund í safnaðarheimili Áskirkju við
Vesturbrún þriðjudaginn 20. janúar nk.
og hefst hann kl. 20.30. Auk venjulegra
fundarstarfa verður sýnd meðferð slökkvi-
tækja á vegum Eldvamaeftirlits Reykja-
víkurborgar og spjallað saman yfir
kaffibolla að venju.
Aðalfundur kvennadeildar
Barðstrendingafélagsins
verður haldinn á Hallveigarstöðum
þriðjudaginn 20. janúar kl. 20.30.
LBÐAVÍSIR
FYRIR AIIA1ANDSMENN
ÍSRAEL
14 dagar,
verð frá 34.580,-
ÍSRAEL + EGYPTALAND
14 dagar,
verð frá 36.870,-
Brottför vikulega.
FERÐA
SKRIFSTOFA
STÚDENTA
Hringbraut, slmi 25822 og 1685C
Við erum ferðaskrifstofa þeim
sem ekki vaða í peningum!
I gærkvöldi
Rannveig Guðmundsdóttir, beejarfulltníi í Kópavogi:
„Bitnar á fólkinu í flamtíðinni“
Ég var lítið nálægt fjölmiðlum um
helgina nema á sunnudag. Þá daga
er nokkuð tryggt að ég sé heima
við, þar af leiðandi hlusta ég bæði
útvarp og horfi á sjónvarp.
Mig langar að byrja á því að tala
um fréttimar en mér finnst ásamt
öðrum dálítið slæmt að bamaefni
og fréttir rekist á. Sama má segja
nú orðið um matmálstíma. Það þarf
allt að gerast á sama tíma. Hér áður
fyrr fengu böm og unglingar frétt-
imar beint í æð. Enda var frétta-
tíminn einn og sér á þessum tíma
og allir horfðu. Hefur það hjálpað
til hversu upplýst þjóð við erum.
Eins og ástandið er orðið í dag er
ég hrædd um að það eigi eftir að
bitna á fólkinu í framtíðinni.
Fréttimar eru alltof mikið með
neikvæðum formerkjum en þrátt fyr-
Rannveig Guðmundsdóttir.
ir fréttir af slysum og ofsaveðri voru
þær með óvenju góðu móti í gær.
Oft á tíðum em íþróttafréttimar
einu góðu fréttimar sem við fáum.
Það er ekki að undra þar sem við
eigum mikið af góðu íþróttafólki sem
stendur sig vel. Nýja formið á kynn-
ingunum í sjónvarpinu, með því að
taka útvarpið líka, finnst mér mjög
sniðugt. Geisli er afskaplega góður
og nauðsynlegur þáttur í því fjöl-
breytta listalífi sem er hér á landi.
Bretamir eru greinilega komnir með
keppinaut, í faðmi fjallanna em
mjög góðir þættir og ég tala nú ekki
um að fá að sjá innflytjendurna í
blíðu og stríðu. En besta sjónvarps-
efhið í gær var heimildarmyndin um
móður Teresu, það er ótrúlegt hvað
þessi litla kona hefur áorkað á sinni
ævi.
Forsætisráðherra:
„Þorsteini
ekki sæmandi"
„Ég veit eiginlega ekki hvað ég á
að segja um svona bamaskap en auð-
vitað er þetta Þorsteini ekki sæm-
andi,“ segir Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra um það álit Þorsteins
Pálssonar fjármálaráðherra að ekki
megi taka forsætisráðherra of alvar-
lega, framsóknarmenn iðki það að
hlaupast undan ábyrgð síðustu mán-
uði fyrir kosningar. Vísar Þorsteinn
til gagnrýni Steingríms á bankastjóm
Seðlabankans eftir dóm Hæstaréttar í
okurmálunum.
„Það ætti líklega heldur að spyrja
Þorstein um frjálsa okrið, hann hefur
lítið úttalað sig um það. Ég býst við
að ekki séu allir í hans flokki ánægð-
ir með það og þess vegna eigi hann í
einhverjum erfiðleikum. Þetta var þó
það sem hann og fleiri vom hrifnastir
af 1984. Sjálfstæðismenn hafa farið
með bankamálin og vissulega bera
þeir því mikla ábyrgð á því hvemig
til tókst,“ segir forsætisráðherra.
Stjóm Sambands ungra framsóknar-
manna hefur beint því til forsætisráð-
herra að Framsóknarflokkurinn
endurskoði afstöðu sína til ríkisstjóm-
arinnar, í framhaldi af ummælum
Þorsteins og aðgerðum Sverris Her-
mannssonar. „Ég hef fengið þetta en
ætli það sé nú ekki fullseint að slíta
stjómarsamstarfinu. Að minnsta kosti
mun ég ekkert gera í því.“
-HERB
Fræðslustióramálið:
Eðlileg
kennsla
Jón G. Hauksgan, DV, Akureyit
Ekkert gerðist í fræðslustjóramálinu
á Akureyri um helgina. Hófst kennsla
aftur í skólum í Norðurlandsumdæmi
eystra í morgun. Skólastjórar og kenn-
arar fyrir norðan sögðust í morgun
bíða eftir stjómarfundi í Kennarasam-
bandi Islands sem verður í kvöld. En
Valgeir Gestsson, formaður sam-
bandsins, var fyrir norðan um helgina.
Menntamálaráðherra var í morgun
á fundi með æðstu starfsmönnum
ráðuneytisins. Ekki er vitað hvort ráð-
herra gefur út yfirlýsingu um málið í
dag.
Reynir Kristinsson, aðstoðarmaður
ráðherra, og Runólfur Birgir Leifsson,
sem vom á fræðsluskrifstofúnni á
Akureyri á föstudag, snem suður um
helgina. Engin niðurstaða varð á fundi
þeirra með fræðsluráði.
„Málið er ekki búið. Við teljum okk-
ur hafa verið beitt óréttlæti. En það
er enn hægt að mótmæla og það er
enn hægt að mótmæla frekar. Það er
að sjá hvort Kennarasambandið verð-
ur með okkur í því. Það kemur í ljós
í kvöld hvað sambandið ætlar að
gera,“ sagði skólastjóri á Akureyri í
morgun.
Miklar gengis-
breytingar
Samkvæmt gengisskráningu Seðla-
banka Islands í morgun hefur dollar-
inn lækkað um 0,75 prósent gagnvart
íslensku krónunni frá því á föstudag.
Er hann nú skráður 39,70 en lá í 40
krónum alla síðustu viku. Þýskt mark
og enskt pund hafa hins vegar hækkað
nokkuð og á það reyndar við um flest-
ar Evrópumyntir. -EIR
Skákmótið í Gausdal:
Jóhann náði
öðru sæti
Jóhann Hjartarson varð í 2. sæti á
svæðamótinu Gausdal í Noregi sem
lauk á sunnudaginn. Svíinn Tomas
Emst sigraði, hlaut 6,5 vinninga af 9
mögulegum. Jóhann, Jón L. Ámason
og Hellers frá Sviþjóð urðu í 2.-4.
sæti með 6 vinninga en Jóhann tefldi
við stigahærri menn en hinir og hlýtur
því 2. sætið.
Jóhann sigraði Guðmund Siguijóns-
son í síðustu umferð en Guðmundur
hlaut 4 vinninga á mótinu. Jón L. sigr-
aði Agdestein frá Noregi í síðustu
umferð. Sævar Bjamason, sem var
fjórði íslendingurinn á mótinu, hlaut
3 vinninga.
Nær öruggt er talið að Jóhann fari
á millisvæðamót því búist er við að
reglum verði breytt þannig að tveir
efetu menn þessa svæðismóts fari
áfram. -S.dór
Stóri einka-
bankinn úr
sögunni í dag
Tveggja mánaða þófi um hugsanlega
sameiningu Útvegsbanka, Iðnaðar-
banka og Verzlunarbanka lýkur
líklega í dag á fundi með bankastjóm
Seðlabankans. Samkvæmt heimildum
DV er fyrirstaðan aðallega af hálfú
Verzlunarbankans. Þó munu skiptar
skoðanir meðal hluthafa hans og
raunar einnig Iðnaðarbankans.
„Persónulega hef ég ekki trú á þess-
ari sameiningu," sagði Ámi Gestsson
forstjóri, formaður bankaráðs Verzl-
unarbankans, í morgun. „Ég hef talið
það nánast skyldu okkar að reyna
þetta þótt það yrði erfitt,“ sagði aftur
á móti Davíð Scheving Thorsteinsson
forstjóri, formaður bankaráðs Iðnað-
arbankans.
Hann var að fara á sérstakan banka-
ráðsfund um málið klukkan 10.
Klukkan 13 hefet svo fundurinn í
Seðlabankanum. Matthías Bjamason
viðskiptaráðherra vill £á botn í þetta
mál þar sem tjón Útvegsbankans af
gjaldþroti Hafskips vindur í sífellu upp
á sig meðan framtíð hans hangir í
lausu lofti. Líklegast er að ríkisbank-
amir þrír verði stokkaðir saman með
einhveijum hætti í tvo banka. -HERB
Þingfundir
hefjast á ný
Brottvikning fræðslustjórans í
Norðurlandi eystra verður ekki rædd
á Alþingi í dag. Ingvar Gíslason, for-
seti neðri deildar, taldi líklegt að málið
yrði rætt á fundi sameinaðs þings á
morgun.
Á dagskrá fyrsta fundar efri deildar
eftir jólafrí í dag er eitt mál, stjómar-
frumvarp um fiskmarkað. I neðri deild
eru þrjú mál á dagskrá, tillögur þing-
manna um breytingar á stjómarskrá.
-KMU
Kona fóvst
í Tungudal
Mikil leit var gerð að 69 ára gam-
alli konu á Botnsheiði um helgina.
Fannst hún látin í Tungudal inn af
Skutulsfirði skömmu eftir miðnættið
aðfaranótt laugardagsins.
Konan var á leiðinni frá Suðureyri
til ísafjarðar á föstudaginn. Tók hún
far með bíl en hann varð að snúa við
á heiðinni vegna ófærðar. Hélt hún
þá gangandi áfram og ætlaði að ná í
bíl sem kæmi á móti henni ísafjarðar-
megin. Er hún hafði ekki skilað sér
um kl. 17 var farið að svipast um eftir
henni.
Björgunarsveitir á ísafirði og í ná-
grannabyggðarlögum vom kallaðar
út og fundu þær konuna látna við
háspennulínu sem liggur niður í
Tungudalinn. Leiðin sem hún hafði
farið var mjög ógreiðfær og hafði hún
fallið í brattri brekku og látist.
Konan hét Camilla Valdimarsdóttir.
Lætur hún eftir sig eiginmann og tvö
uppkomin böm. -FRI
Afmæli
85 ára er í dag, 19. janúar, Margrét
H. Þorláksdóttir, Súðavík, N-ís.
Maður hennar var Ólafur Jónsson
kennari sem lést árið 1957.
70 ára afmæli á í dag, 19. janúar,
póstfulltrúi frá Vestmannaeyjum.
Hún ætlar að taka á móti gestum á
heimili sínu að Dúfnahólum 4 hér í
borg.