Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1987, Page 42
MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 1987.
«2
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
og kærastan Angie Lynn
hafa frestað öllum gifting-
aráformum um sinn. Astæð-
an er að barnið sem átti að
fæðast í júlí næstkomandi
lést í móðurkviði og var því
framkölluð fæðing um síð-
ustu áramót. Þetta er þeim
báðum mikið áfall og virðist
nú hinni verðandi brúði lítil
ástæða til þess að fá löglegt
innsigli á samþandið. Angie
hefur staðið við hlið George
sem dyggur stuðningsmað-
ur og súperaðstandandi í
margföldum bömmerum að
undanförnu - heimsótti
hann reglulega þá þrjá mán-
uði sem hann sat í fangelsi
fyrir síendurtekna ölvun við
akstur og kom elskunni
ævinlega á fætur eftir langa
og slítandi brennivínstúra.
En nú er eitthvað nýtt að
gerast í höfði Ijóskunnar og
George því farinn að verða
alvarlega uggandi um sinn
hag á heimaslóðum.
Edward
Bretaprins
skemmtir sér alls ekki neitt í
hermannaleik af alvörusort-
inni og hefur því sagt sig úr
breska hernum. Hressilega
hriktir í höllinni vegna þessa
því það er hefð að karlmenn
bresku konungshallarinnar
gangi í gegnum þjálfun inn-
an hersins og síðan eru
fundin handa þeim hæfileg
störf og titlar. En sá yngsti í
familíunni segir þvert nei -
hefur viðbjóð á harðneskj-
unni og ruddaskapnum sem
þrífst í herþjónustunni og
segir að mannlegri þættir
eigi betur við sig. Leiklistina
hefur borið á góma til mikils
hryllings fyrir foreldra ung-
mennisins sem telja fullvíst
að frami á sviðinu verði I
dæmi prinsins að teljast
jafngilt beinni hraðferð í
hundana.
Tina Turner
klæðist stundum einhverju
öðru en netsokkum og sexí-
bolum. Núna er bomban í
skíðaferð og rennir sér niður
fjallshlíðar í Sviss sem loð-
skinnselding. Þar er hún í
ágætum félagsskap ..með
Karólínu af Mónakó, Önnu
Bretaprinsessu og fleirum úr
þotuliðinu sem eyða vetrar-
dögunum í vellystingum á
þessum slóðum. Tina segir
ekkert jafnast á við góða
salíbunu niður snævi þaktar
fjallshlíðar þegar slaka þarf á
og gleyma amstri hverdags-
ins.
Bamakerlingin
Jósefina Baker
Hún var dáð af milljónum manna
um allan heim fyrir söng sinn og
dans en þrátt fyrir það varð hún aldr-
ei auðug - náttúrubarnið Jósefína
Baker. Parísarbúar féllu marflatir
fyrir henni þar sem hún dansaði
íklædd banönum og næstum engu
öðru. Enginn komst með tærnar þar
sem þessi skemmtikraftur hafði hæl-
ana.
Jósefína gleymdi aldrei uppruna
sínum en hún var fædd og uppalin í
einu fátækrahverfa New Yorkborg-
ar. Snauðir áttu vísan stuðning þar
sem þessi þeldökka stjarna var ann-
ars vegar og fjármunum sínum eyddi
hún ætíð jafíióðum og þeirra var afl-
að. Einkum áttu börn hauk í horni
þar sem Jósefína Baker var annars
vegar og tólf munaðarleysingja frá
hinum ýmsu heimshornum ættleiddi
hún á lífsleiðinni. Uppeldi þeirra
kostaði peninga þannig að mikil
vinna beið hennar það sem eftir var
á lífsleiðinni.
Heimilið Les Milandes lenti að lok-
um á nauðungaruppboði og þá var
Jósefína ákaflega nærri uppgjöf. En
furstahjónin í Mónakó - Grace og
Rainier - hlupu undir bagga og það
varð úr að Rauði krossinn í Mónakó-
furstadæminu keypti húseign á
Rivierunni fyrir Jósefínu og munað-
arleysingjana hennar.
En laun heimsins eru oft vanþakk-
læti. Þegar Jósefína Baker var öll
fylgdi aðeins eitt bamanna henni til
grafar. Stjaman varð sextíu og átta
ára gömul og hafði nokkrum sinnum
gefið út yfirlýsingar um að hún væri
fyrir löngu orðin dauðþreytt á lífinu
- þreytt á stöðugri vinnu og að
standa alltaf í sviðsljósinu. Samt sem
áður átti hún þá ósk heitasta að fá
að deyja á sviðinu. Hún rættist næst-
um bókstaflega - Jósefína Baker lést
í Parísarborg nýstigin af sviðinu eft-
ir sína síðustu sýningu. Ennþá
íklædd sviðsbúningnum og förðuð í
samræmi við það. Og þúsundir grát-
Bananarnir urðu vörumerki
skemmtikraftsins Jósefínu Baker og
þannig klædd - eða fáklædd - töfr-
aði hún Parisarbúa upp úr skónum.
andi Parísarbúa fylgdu kistunni eftir
strætum borgarinnar í síðustu ferð-
ina þar sem hún var kvödd í Madel-
einekirkjunni. Enginn gat fyllt
hennar skarð í hugum aðdáendanna.
Fyrsti eiginmaðurinn var italski
greifinn Pepito di Albertino. Pepito
átti erfiða daga í hjónabandinu því
afbrýðisemin ætlaði hann hreinlega
að kæfa.
Jo Bouillon og Jósefína bjuggu sam-
an í tíu ár en skyndilega heimtaði
stjarnan skilnað með forgangshraði.
Með tímanum fjölgaði þó spjörunum
og Jósefina endaði alklædd á sviö-
inu.
Börnin hennar Jósefínu voru í öllum
ina á heimilinu Les Milandes.
regnbogans litum. Þarna við sundlaug-
Nýr herra Isabella
Hin fagra Isabella Rosselini er nú komin með nýjan kærasta - David
Lynch heitir hann og er leikstjóri og kvikmyndaframleiðandi. Fyrri eigin-
mennirnir voru Martin Scorsese sem einnig er kvikmyndaframleiðandi
og leikstjóri og Jonathan Wiederman sem er þekkt fyrirsæta i tiskuheim-
inum. Jonathan er faðir hinnar þriggja ára Electru sem er einkadóttir
Isabellu og hefur sú stutta verið mikið hjá föður sínum og barnfóstrum
vegna starfa Isabellu. En nú er von til aö tryggt heimili sé i nánd því
turtildúfurnar eru að tísta um hjónaband og hreiðurgerð.
Allt í lukkunnar velstandi.
„Kysstu mig, kerla!
Þá er Mats Wilander genginn út
og hrynja því mörg ungmeyjartárin
um víða veröld. Sú lukkulega heitir
Sonya Mullholland og þykir brúð-
kaupið ekki hafa verið af verri
endanum - brúðurinn íklædd dýrind-
issilki og pallíettum en brúðguminn
í svörtum jakkafötum. Gestir losuðu
eitt og hálft hundrað og að gömlum
sið var því haldið vandlega leyndu
fyrir Mats hvernig Sonya myndi
klæðast á brúðkaupsdaginn. Það
þykir nú reyndar sumum eigin-
mönnum ekki mikið sem hafa ekki í
tuttugu ár tekið eftir útliti eigin-
kvennanna og svo gat kappinn
giskað sér til huggunar á að fýrsti
stafurinn í fyrsta orði klæðnaðarins
væri h... og sá fyrsti í öðru orðinu
k ... - byggt á líkum.