Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1987, Side 45
MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 1987.
Edvvard Bretaprins hringdi um miðja nótt í Romy Adlington.
Öxl fyrir Edda
Romy Adlington er ekki bara fögur
fyrirsæta sem margar breskar stelpur
öfunda sárlega af útlitinu. Hún er
líka kvenmaðurinn sem Edward
Bretaprins hringdi í um miðja nótt
þegar hann þarfnaðist einhvers til
að veita stuðning við ákvörðunina
um að hætta í herþjónustu.
Hún lét ekki segja sér það tvisvar,
lagði símann á og ók beina leið að
hallarhliðunum. Hinn áhyggjufulli
ungi maður notaði öxl hennar til
þess að halla sér að - því engan
stuðning fékk hann innan fjölskyld-
unnar - og afleiðingin eru blaða-
greinar dag eftir dag í bresku
blöðunum. Þar skýrir Romy með
andakt frá því sem þeim fór á milli
og eflaust hefur það ekki mildað skap
Betu drottningar. Hlutskipti prinsa
er ekki alltaf öfundsvert.
Barbra græðir
á tá og fingri
Barhra Streisand hefur rakað inn
um það bil einum milljarði á frama-
brautinni það sem af er - að ótöldum
gróðanum sem antikmunasafnið er
að færa henni þessa dagana. Kunn-
ugir segja það hina hestu skemmtun
að líta inn í fataskápana á því ágæta
heimili því þar ægir öllu saman frá
rándýrum módelkjólum niður í
furðulegan fatnað af næstu flóa-
mörkuðum. Hver einasti hlutur á
sína sögu og Barbra neitar að farga
neinu úr safninu. Tilgangurinn með
söfnuninni er að minna á fortíðina
þegar hún átti minna en ekkert og
reyndi að ryðja sér braut til frægðar-
innar úr sárri fátækt.
45
Sviðsljós
í dag eða gæi?
Tískan endurtekur sig, stendur einhvers staðar og sannleiksgildi þess sést
berlega á meðfylgjandi mynd. Þetta er Coco Chanel með kvennagullinu Li-
far og fötin sem þau klæðast gætu verið fengin úr einhverri tískuversluninni
héma við Laugaveginn. Coco var byltingarmaður tískuheimsins þegar hún
var en þætti víst fremur klassísk og bragðlítil í dag. Tískan gengur í hring...
Útreiðartúr
með tengdó
Elísabet Englandsdrottning og Sarah, tengdadóttir hennar, em miklir
mátar. Áhuga á útreiðum deila þær með Önnu prinsessu og þrátt fyrir að
ekki sjáist sömu snilldartaktar hjá þeim á hestbaki eiga þær til að fara á
tölti um hallargarðinn. Þessi mynd var tekin af hinum hressu kóngakvensum
þar sem þær nutu útiloftsins í vetrarkulinu - og skemmtu sér konunglega
að sögn fylgdarmannanna.
Ólyginn
sagði...
Margrét
Bretaprinsessa
skemmti sér eins og engill í
sextugsafmæli frænda síns -
Glennoncenners lávarðar.
Veislan var haldin á eynni
Mustique í Vestur-lndíum
en hún er ein af landareign-
um afmælisbarnsins um víða
veröld. Þeir frægu og ríku
létu sig ekki vanta, utan
Möggu mættu Jerry Hall,
Linley lávarður, Raquel
Welch og André Weinfeld
svo einhverjir séu nefndir og
ekki má gleyma gömlum
elskhuga Margrétar, Roddy
Llewellyn. Þetta var eins
konar furðufataball og
Margrét prinsessa Breta
mætti í prinsessuklæðum -
framandi hlutverk finnst
ykkur ekki!
-f-
Fergie
á í miklum erfiðleikum um
þessar mundir. Bretar
heimta konunglegan hvít-
voðung strax á þessu ári og
hefur rauðhausnum strang-
lega verið bannað að
innbyrða pilluna á næst-
unni. Ekki gerir það ástandið
auðveldara að eiginmaður-
inn sést lítið á heimilinu og
vikulangar fjarvistir hans
gera fjölgunarframkvæmdir
snúnar með afbrigðum.
Unga frúin hefur trúað vin-
um sínum fyrir því að þegar
kappinn er svo heima í höll-
inni verði vart þverfótað fyrir
öðrum fjölskyldumeðlimum
og lífið er því þrautleiðinlegt
að dómi þeirrar skapmiklu
Fergie. Hún fær þó engu um
ráðið og eru barneignir efst-
ar á verkefnalistanum ef farið
verður að óskum þegnanna
- og síðast en ekki síst -
Elísabetar Bretadrottningar.
Helena
Bonham Carter
datt í lukkupottinn um ára-
mótin. Það var hringt í hana
til London frá Miami og hún
beðin um að taka næstu
flugvél og leika kærustu
Dons Johnson. Þessi unga
leikkona lét ekki segja sér
það tvisvar heldur mætti á
staðinn og hoppaði svo að
segja beint úr flugvélinni
upp í rúm til sexlöggunnar
ógurlegu. Hún hafði aðeins
eitt um það að segja - slíkt
kynningarform ku brjóta
niður múra milli manna með
mun áhrifaríkari hætti en við
aðrar aðstæður.