Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1987, Page 48
Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er
notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreiffing: Sími 27022
Frjalst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 1987.
Fvamsókn
endurskoði
stjomar-
samstarfið
„í ljósi þessara atburða ályktar
stjóm Sambands ungra framsóknar-
manna að Framsóknarflokkurinn eigi
að taka núverandi stjómarsamstarf til
endurskoðunar," segir í ályktun, sem
stjóm SUF samþykkti um helgina.
Ungir framsóknarmenn segja tilefni
ályktunarinnar ummæli Þorsteins
Pálssonar, formanns Sjálfstæðis-
flokksins, í DV á laugardag, lánasjóðs-
málið, vinnubrögð sjálfstæðisráðher-
ranna í sjómannadeilunni og
fræðslustjóramálið.
Telja ungir framsóknarmenn
^menntamálaráðherra hafa sýnt fá-
dæma valdníðslu og lýsa yfir van-
trausti á hann.
Segja þeir að samskiptaörðugleikar
og valdabarátta innan Sjálfstæðis-
flokksins sé farin að draga vemlega
úr starfsgetu ríkisstjórnarinnar.
-KMU
Skotárás í Hveragerði:
Kom út með byssu
ogskautíallaráttir
Lögreglan á Selfossi var kölluð út
síðdegis á laugardag, til Hveragerðis,
en þar hafði maður einn hafið skot-
árás í götunni sem hann bjó við, eða
eins og Jón Guðmundsson varðstjóri
orðaði það...„hann kom út með byssu
og skaut í allar áttir“.
Atburður þessi átti sér stað í Dyn-
skógum. Var nokkuð um fólk í
götunni, bæði fullorðið og krakka, er
skotárásin hófst og mesta mildi að
ekki hlutust slys af þessari árás en
maðurinn skaut úr 22 cal. riffli. Nokk-
ur skotanna lentu í nærliggjandi
húsum en ekkert þeirra fór þó í gegn-
um glugga.
Eftir að lögreglan kom á staðinn
, íifafst maðurinn upp án mótspymu og
afhenti þeim riffilinn.
Maðurinn mun hafa átt við andlega
erfiðleika að stríða og var hann fluttur
á geðdeild Borgarspítalans eftir að
lögreglan hafði handtekið hann.
-FRI
Ávallt feti framar
68-50-60
ÞRDSTIIR
SÍÐUMÚLA 10
LOKI
Hvernig væri
að hafa skóhlífar í rútunum
fyrir austan?
Árás á konu á Njálsgotunni:
TVeir grímu
klæddir börðu
hana og rændu
Rétt fyrir miðnættið aðfaranótt
sunnudagsins varð kona fyrir
hrottalegri árás tveggja grímu-
klæddra manna á Njálsgötunni.
Börðu þeir hana með sokk fylltum
af sandi og rændu af henni 3CWO.OOO
krónum.
Að sögn rannsóknarlögreglunnar
var konan að koma út úr sjoppu sem
hún vinnur í. Fór hún frá sjoppunni
að bíl sínum hinum megin við göt-
una. Þar komu að henni mennimir,
börðu hana og rændu.
Konan mun hafa sloppið lítið
meidd frá árásarmönnunum en pen-
ingamir sem þeir náðu af henni voru
afrakstur dagsins úr sjoppunni.
Unnið er að rannsókn þessa máls
og em þeir sem einhverjar upplýs-
ingar geta veitt, eða sáu atburðinn,
beðnir um að hafa samband við
rannsóknarlögregluna.
-FRI
Mjög harður árekstur varð milli fólksbíls og strætisvagns á Listabraut i Reykjavik skömmu fyrir kl. 20 i gær-
kvöldi. Ökumaður fólksbílsins var fluttur á slysadeild og var bíllinn gjörónýtur á eftir en strætisvagninn
talsvert skemmdur. DV-mynd S
Veðrið á morgun:
Þurrt
á vestan
verðu
landinu
Á þriðjudaginn verður hæg vest-
læg átt. Skýjað en víðast þurrt á
vestanverðu landinu. Víða léttskýj-
að á austanverðu landinu. Hiti á
bilinu 0 til -6 stig.
Oddsskarð:
Leitað að
manm a
hálum skóm
Víðtæk leit var gerð að manni sem
hvarf úr íangferðabifreið á miðju
Oddsskarði árla sunnudagsmorgunfe.
Var hann á leið til síns heima á Nes-
kaupstað ásamt fleira fólki sem verið
hafði á dansleik á Egilsstöðum kvöldið
áður. » f
„Við vorum kvaddir út til leitar
klukkan sjö um morgj*ninn og vissum
það eitt að rútán hafði stoppað við
göngin í Ocjdfekíirði til að leyfa fólki
að fara út og létta á sér. Hvarf þá einn
farþeginn út í búskann og vissu menn
ekki sitt rjúkandi ráð,“ sagði Hrólfur
Hraundal, form'aðúr björgunarsveitar-
innar Gerpis á Neskaupstað. Tíu
björgunarmenn lögðu á heiðina frá
Neskaupstað og félagar í björgunar-
sveitinni Brimrúnu frá Eskifirði héldu
af stað úr hinni áttinni.
„Við fundum fljótt slóð er lá niður
á Eskifjörð og fundum svo manninn
þar sem hann lá inni í snjóblásara við
grindahlið við veginn," sagði Hrólfur
Hraundal.
Er DV ræddi við þann týnda snemma
í morgun sagðist hann fátt muna. Og
Þ°:.
„Eg man að það var pissupása við
göngin í Oddsskarði og ég fór út eins
og hinir. Þegar ég var að pissa fór ég
allt í einu að renna aftur á bak því
ég var á ákaflega hálum skóm. Vissi
ég ekki af fyrr en ég var orðinn við-
skila við hópinn og villtur. Ég stóð
varla í fætuma og rann mest á aftur-
endanum niður hlíðina í átt að Eski-
firði. Þá fann ég allt í einu snjóblásar-
ann og komst inn í hann,“ sagði sá
óheppni sem nú er allur blár og mar-
inn eftir hið óvænta ferðalag sitt,
afturábak á hálum skóm niður Odds-
skarð. -EIR
Grænlendingur
stunginn
í kviðinn
Grænlendingur var stunginn í kvið-
inn fyrir utan Sundhöllina aðfaranótt
laugardagsins. Hlaut hann slæman
áverka en mun nú vera úr lífshættu
eftir að gerður var á honum uppskurð-
ur þá um nóttina.
Átján ára piltur var handtekinn síð-
ar um nóttina grunaður um verknað-
inn og hefur hann verið úrskurðaður
í gæsluvarðhald til 4. febrúar.
Tildrög hnífstungunnar eru ekki ljós
en eftir hana tókst Grænlendingnum
að stöðva bíl sem ók honum á slysa-
deild þaðan sem hann var fluttur á
sjúkrahús. -FRI
Hönum dreift
um borgina
Einhverjir gárungar tóku sig til og
dreifðu níu hönum víða um borgina í
gærdag. Meðal þeirra staða sem hön-
unum var hent inn á var Bylgjan og
BSl. Einnig komu hanar í heimsókn
í keilusalinn í Öskjuhlíð og í Banka-
stræti 1 og gestir nokkurra veitinga-
húsa urðu varir við spígsporandi
fiðurfé þetta.
Að sögn lögreglunnar er ekki vitað
hvaðan hanamir em komnir en greið-
lega gekk að handsama þá og vom
þeir allir fluttir upp í Mosfellssveit, í
Isfuglsbúið. Þar getur eigandi þeirra
vitjað þeirra en ef hann gefúr sig ekki
fram mun hönunum væntanlega verða
lógað. -FRI
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
5
i
Í