Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1987. 5 Fréttir Verkamannafélagið Dagsbrún: Krefst sambærilegra kaup- hækkana og aðrir hafa fengið „Það er óhjákvæmilegt að samning- amir verði endurskoðaðir og end- umýjaðir. Það hefur átt sér stað launastökk hjá háskólamönnum og opinberum starfsmönnum sem hafa fengið 23 til 35,5% launahækkun," sagði Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannafélagsins Dags- brúnar, í samtali við DV. Dagsbrún hefur nú óskað eftir við- ræðum við Vinnuveitendasamband Islands og mun þar óska eftir sambæri- legum kauphækkunum og aðrir hafa fengið undanfamar vikur. „Til samanburðar má nefha að ASÍ gerir ráð fyrir 5,1% launahækkun á þessu ári miðað við rauðu strikin en að vísu hækka fægstu launin hlut- fallslega meira. En hækkunin, sem opinberir starfsmenn fá, er fimm sinn- um meiri,“ sagði Guðmundur. „Ég hef ekki trú á því að 23 til 35% launahækkun sé gæfuleg leið og það er ekki hægt í íslensku þjóðfélagi að kippa ákveðnum hluta vinnandi manna út úr í einu stökki og skapa þannig gifurlegan launamun. Og ef einhverjir ímynda sér að það sé hægt að halda verkafólki á sama kaupi þeg- ar aðrir hafa fengið þessar miklu kauphækkanir þá þekkir sá ekki ís- lenskt þjóðfélag," sagði Guðmundur. „Eg óttast það að hver sem tekur við eftir kosningar muni hækka skatta og vexti með þeim afleiðingum sem allir þekkja og það er mikil hætta á verðbólgusprengingu með sumrinu." sagði Guðmundur J. Guðmundsson. -ój Eiturlyfja leitað í flugvél Fíkniefnalögreglan hóf í gær leit að eiturlyfjum í flugvél sem millilenti i Reykjavík í ferjuílugi frá Flórída í Bandaríkjunum til Austurríkis. Upp- haflega átti vélin að millilenda fyrst í Kanada en horfið var frá því og flogið til Reykjavíkur. Kanadísk yfirvöld ráðgerðu að leita í vélinni og sendu lögreglunni hér ábendingu um að vélin væri grunsam- leg þegar ljóst var að förinni var beint hingað. Þrátt fyrir ítarlega leit hefur ekkert fundist í vélinni. -GK Sjúkraþjátfarar og iðjuþjálfar: Samið á laugardag Sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar hjá ríkinu skrifuðu undir nýjan kjara- samning á laugardag og í dag, þriðju- dág, verður fundur þar sem greidd verða atkvæði um samninginn. Samkvæmt upplýsingum, sem DV fékk hjá Valgerði Gunnarsdóttur, sem sæti á í samninganefnd sjúkraþjálfara, er samningur þeirra mjög á sömu nót- um og annarra heílhrigðisstétta hjá ríkinu og er í samningnum ákvæði um uppsögn ef kauprýmun á árinu 1988 fer yfir ákveðið mark. Launataflan er sambærileg við launatöflur annarra félaga sem verið hafa að semja undan- farið. Þá er í bókun með samningi sjúkraþjálfara ákvæði um endurskoð- un á starfsheitum sem lokið skal fyrr 1. október næstkomandi. Línumenn hjá RARIK: í verkfall 22. apríl - náist ekki samningar Samningafundur símamanna með viðsemjendum sínimi stóð yfir hjá rík- issáttasemjara í gær, mánudag, og höfðu símamenn boðað verkfall á mið- nætti ef ekki næðust samningar samkvæmt upplýsingum sem DV fékk hjá Guðlaugi Þorvaldssyni ríkissátta- semjara í gær. Þá stóð til að í dag, þriðjudag, yrði ákveðið hvenær fundir með banka- mönnum og línumönnum hjá RARIK yrðu boðaðir en línumenn munu fara í verkfall á miðnætti 22. apríl náist ekki samningar. Bankamenn hafa ekki boðað verkfall enn. Þá eru leið- sögumenn í verkfalli og óvíst um samningamál þeirra. í gær var staðan í sanmingaviðræð- um símamanna óljós og alls óvíst hvort samningar myndu nást áður en verkfall skylli á. -ój Sendiherrar skipta Benedikt Gröndal, sendiherra í Stokkhólmi, mun í haust taka við embætti sendiherra íslands í ýmsum löndum Austur- og Suðaustur-Asíu. Þessu embætti hefur Pétur Thórsteins- son gegnt síðan 1976 en hann lætur nú af störfum. Síðan mun Hannes Jónsson, sendi- herra, taka bráðlega við sendiherra- starfi í nokkrum löndum Suður- og Suðvestur-Asíu, ásamt Kýpur og Tún- is. Báðir munu sendiherrarnir hafa að- setur í utanríkisráðuneytinu. -ES Af tuttugu og tveimur sjúkraþjálfur- um, sem starfað hafa hjá ríkinu, höfðu tólf sagt upp störfum frá og með 1. apríl þannig að einungis tíu voru í verkfalli. Sagði Valgerður Gunnars- dóttir að óvíst væri um endurráðningu þeirra sem sagt hefðu upp og öruggt að þrír þeirra, sem ráðið hefðu sig til starfa annars staðar, kæmu ekki aftur til starfa hjá ríkinu. -ój Flugvélin á Reykjavíkurflugvelli i gær. . ................ /r',.V < S:>-V'->%Vrírv ■ ; - v ***' A '- ‘ DV-mynd S LIPIÐ ER KABARETT HELGARREISUR FLUGLEIÐA UM LAND ALLT AKUREYRI Sjáðu söngleikinn Kabarett á sýningu hjá Leikfélagi Akur- eyrar, renndu þér á skíðum í Hlíðarfjalli og gleymdu ekki Sjallanum um kvöldið. HÚSAVÍK 1 Bær við ysta haf. Af Húsavíkurfjalli sést norður í Grímsey og suður á Vatnajökul. Frábært gistihús og góð aðstaða til heilsuræktar. HORNAFJÖRÐUR Hér rennur stærsti jökull Evrópu saman við himinhvolfin í ólýsanlegri tign, og endurvarpar sjólarljósinu. EGILSSTAÐIR ' Annars vegar gróðursælt Héraðið með hæstu tré landsins í Hallormsstaðaskógi, hins vegar sæbrött fjöllin niðri á Fjörðum. REYKJAVÍK Aldrei fjölbreyttari matstaðir né meiri gróska í listalífinu. Ótal leiksýningar, málverkasýningar og tónleikar að ógleymdri sjálfri óperunni. „Allt vitlaust" á Broadway, Þórskabarett í Þórscafé. ÍSAFJÖRÐUR Hér er líka frábært skíðaland og hrikaleg náttúrufegurð. Áður fyrr svo afskekkt, að menn héldu að Vestfirðingar væru göldróttir. VESTMANNAEYJAR Með sérstæðustu ferðamannastöðum í allri Evrópu. Nýrunnið hraun og bátsferðir í hella sem að fegurð gefa ekki eftir þeim á Caprí. FLUGLEIÐIR UPPLÝSINGAR I SÖLUSKRIFSTOFU FLUGLEIÐA, HJÁ UMBOÐSMÖNNUM OG FERÐASKRIFSTOFUM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.