Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1987.
7
Fréttir
Nýr sjúkra-
bíll kemur
tilEyja
Ómar Garðaissan, DV, Vestmannaeyjum:
Nýlega var tekin í notkun ný
sjúkrabifreið í Vestmannaeyjum.
Það er Vestmannaeyjadeild Rauða
kross Islands sem keypti bifreiðina
en rekstur hennar er í höndum bæj-
arins.
Bifreiðin kostaði hingað komin án
aðflutningsgjalda 1,5 milljónir. Er
mikill munur á þessari bifreið og
þeirri sem fyrir var. Sú nýja er stærri
og rúmbetri og segja læknar að störf
verði mun auðveldari í nýju sjúkra-
bifreiðinni en þeirri gömlu.
F.v. Eirikur Guðnason, Eyjólfur Pálsson, varaformaður Vestmannaeyjadeildarinnar, Karl Haraldsson læknir, Gunn-
hildur Bjarnadóttir og Einar Valur Bjarnason, yfirlæknir og formaður Vestmannaeyjadeildarinnar.
DV-mynd Ómar
á kílómetra
Akstursgjald, sem ríki og ríkis-
stofhanir borga startsmönnum
sínum, sem ferðast á eigin bílum,
er nú komið upp í 13,20-17,70 krón-
ur á kílómetra, fyrstu 10.000
kílómetrana. Svokölluð ferða-
kostnaðamefhd hefur ákveðið
þetta og margir aðrir en ríkið miða
við útreikninga og ákvarðanir
nefhdarinnar.
Taxtanum er skipt í þrjá flokka
og siðan hverjum flokki eftir vega-
lengdum sem eknar eru, fyrstu 10
þúsund kílómetra, 10-20 þúsund
og yfir 20 þúsund kílómetra. Fyrsti
flokkur er almennt gjald; 13,20,
11,80 og 10,40 krónur. Annar flokk-
ur er sérstakt gjald; 15,40,13,75 og
12,15 krónur. Og þriðji flokkur,
torfærugjald; 17,70, 15,80 og 13,95
krónur.
-HERB
FERMINGARTILBOÐ
JAPIS NR. 3
SYSTEM Z-50
FRÁ TECHNICS
Þá er hún komin aftur þessi frá-
bæra metsölusamstæða frá TECHNICS,
SYSTEM Z-50. Ástæðan fyrir vinsældum
hennar er öllum Ijós sem heyrt hafa í
henni, gæðin leyna sér ekki.
Ef þú ert í hugleiðingum að fjár-
festa í varanlegum gæðum, gerðu þá
sjálfum þér greiða, komdu og hlustaðu.
FERMINGARTILBOÐSVERÐ:
Kr. 36.900 stgr.
m
<&JAPIS
BRAUTARHOLT 2 SÍMI 27133
‘tl