Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1987. 21 Mennincr Spirrasmi og grautartrú Pétur Pétursson Spiritismen pá Island En religionsbeteendevetenskaplig analys Religio 23. Skrifter utgivna av den Teologiska Institutionen i Lund, 1987. Dr. Pétur Pétursson er vafalaust í hópi afkastamestu hug- og félagsvís- indamanna á Islandi nú um stundir. Hann tilheyrir engan veginn þeim sem skrifa doktorsritgerð og láta þar við sitja í fræðimennskunni. Ekki hef ég tölu á þeim ritsmíðum sem Pétur hefur látið frá sér fara eftir að hann lauk doktorsritgerð sinni , árið 1983 um Church and Social Change: A Study of the Secularizati- on Process in Iceland 1830-1930 en ljóst er að þær eru íjölmargar. Eina þeirra Qallaði ég um í ritdómi (DV 24. febrúar 1986). Þar var um að ræða kafla Péturs í bókinni Religiös förándring í Norden 1930-1980. Hefur Pétur nú á skömmum tíma vafalítið lagt meira af mörkum við að kynna íslenskt trúarlíf fyrir nágrönnum okkar en nokkur fræðimaður annar á undanfómum áratugum. Þó kann að vera að afköstin séu að einhverju leyti farin að koma niður á vandvirkninni. A.m.k. finnst mér á köflum sem nokkur fljóta- skrift sé á riti því sem hér er til kynningar. Sænskan er t.d. stundum talsvert íslenskuleg og mikið er um prentvillur, ekki síst er farið illa með íslensk nöfn. Líklega er þó ekki svo mjög við Pétur sjálfan að sakast í þessum efnum, en prófarkalestri virðist hafa verið mjög ábótavant. Á köflum finnst mér líka sem þetta rit, sem hefur að geyma hafsjó af fróð- leik, sé eins og uppkast sem betur hefði mátt vinna úr. Of mörg járn í eldinum Ég held að mikið hefði unnist við það ef rannsóknin hefði beinst meira að einni meginspumingu, t.d. spum- ingunni: Hveijar em ástæðumar til þess að spíritisminn hlaut svo mikið fylgi á íslandi? Raunar kemur margt fróðlegt fram um það atriði í ritgerð- inni en það er eins og athyglin sé of dreifð og höfundurinn með of mörg jám í eldinum og þess vegna fáist engin sérstök niðurstaða. Höfundur bendir réttilega á að spíritisminn hefur náð meiri vin- sældum hér á landi en í nokkm öðm Norðurlandanna. Hann hafi ekki einangrast innan sértrúarhópa. Að mati höfúndar hefur þetta í för með sér að það er tiltölulega auðvelt að fá upplýsingar um spíritismann á íslandi. En jafnframt sé hann kannski flóknara fyrirbæri én á hin- um Norðurlöndunum. Riti Péturs er skipt í tvo hluta sem em í raun tvær sjálfstæðar ritgerðir. Fyrri hlutinn Bókmenntir Gunnlaugur A. Jónsson fjallar um upphaf spíritismans á Is- landi og þróun hans og síðari hlutinn er frásögn um miðilinn Guðrúnu Sigurðardóttur og greining á miðils- hlutverki hennar. Margir muna vafalaust eftir bókum hennar um Ragnheiði biskupsdóttur og atburð- ina í Skálaholti upp úr 1660 og skrifum fjölmiðla um það efni. Ýms- ar skýringar og tilgátur Péturs í þessari ritgerð em mjög forvitnileg- ar. Á það ekki síst við um þá tilgátu hans að heimsókn Haraldar Níels- sonar í heimasveit Guðrúnar er hún deilur um spíritismann. var barn og einkum það að hún skyldi ekki fá að hitta hann þá hafi haft afgerandi þýðingu fyrir miðils- starf hennar síðar. Að missa trúna Það dylst engum eftir lestur þessa rits hversu stórt hlutverk Haraldur Níelsson guðfræðiprófessor fór með við útbreiðslu spíritismans og þá auðvitað fyrst og fremst í viðleitn- inni að laga spíritismann að krist- inni trú. Fróðlegt er að lesa hvemig Haraldur var að því kominn að missa trúna er hann var að ljúka Biblíuþýðingunni. En þá vom það sálarrannsóknimar sem komu hon- um til hjálpar. Sömuleiðis er mjög fróðlegt að heyra um grein Ásgeir Ásgeirssonar (frá 1925), siðar forseta, þar sem hann fjallar um einkenni á trú Islendinga og hvernig Islending- ar hafi sótt trú sinni næringu í Eddumar engu síður en guðspjöllin. „Grautartrú" hefur slík blanda verið kölluð af einum virtasta kennimanni íslensku kirkjunnar. Það er eftirtektarvert að það er eins og dragi úr ritgerðinni þegar nær dregur samtímanum en auðvit- að má réttlæta það með því að dregið hafi af spíritismanum sömuleiðis. Þetta kemur m.a. frarn í því að gerð er grein fyrir afstöðu allra biskupa landsins á þ'essari öld til spíritismans nema núverandi biskups. Þama kemur fram að Jón Helgason og Sig- urbjöm Einarsson voru/eru ákveðn- ir andstæðingar spíritismans. Þórhallur Bjarnarson var mildari í andstöðu sinni. Hallgrímur Sveins- son var í lok ævi sinnar jákvæður í garð spíritismans og þeir Sigurgeir Sigurðsson og Ásmundur Guð- mundsson sömuleiðis hliðhollir spíritismanum. Þá er gert mjög litið úr síðustu stóm deilunni innan kirkjunnar um þetta efni sem átti sér stað um miðjan síðasta áratug. Hlutleysi og sanngirni Þá skrifaði séra Heimir Steinsson magnaða Kirkjuritsgrein gegn spír- itismanum, kennarar guðfræðideild- ar tjáðu sig í Orðinu og trúmáladeil- ur geisuðu í Morgunblaðinu svo vikum skipti. Einn kennari guð- fræðideildar kallaði þetta vissulega „uppvakning frá liðinni tíð“ en það breytir því ekki að spíritisminn reyndist þá enn eiga sér nokkra harða fylgjendur í hópi presta - ekki bara meðal elstu prestanna - þó þeim hefði fækkað mikið. Þeir sem þama áttust einkum við, t.d. séra Heimir Steinsson og séra Þórir Stephensen, eru ekki nefndir á nafn. Höfundur nefnir þó umræður á prestastefnu þetta ár og er á honum að skilja að það sé upphaf umræðnanna í fjöl- miðlum. Ef mig misminnir ekki var það á hinn veginn. Prestastefnusam- þykktin var árangur af umræðum í fjölmiðlum sem byrjuðu með Kirkju- ritsgrein séra Heimis. Þó það sé eitt og annað sem hér hefúr verið tínt til og sem ég hefði kosið að hafa öðruvísi í þessu riti, og þó einkum prófarkalesturinn, þá breytir það því ekki að mikill fengur er að ritinu og það er skemmtilegt aflestrar og umfram allt mjög fróð- legt. Höfundurinn fjallar af hlutleysi og sanngirni um þetta mál sem lengi hefur verið of viðkvæmt til að geta fengið slíka umfjöllun. Ekki er t.d. auðvelt að greina afstöðu Péturs sjálfs til spíritismans við lestur þessa rits. Ritgerðimar byggja á samtölum við fjölda þeirra manna sem mest hafa komið við sögu spíritismans. Það er til mikillar fyrirmyndar að stöðugt er stuðst við frumheimildir og greinilegt er að mikil og ómetan- leg vinna liggur þarna að baki. Öfugt við marga aðra íslenska fræðimenn gerir Pétur yfirleitt skilmerkilega grein fyrir heimildum sínum. Það er ljóst að engin rannsókn á spíritismanum verður hér eftir gerð án þess að stuðst sé við þessar rit- gerðir Péturs og aðrar greinar hans um sama eða svipað efni, því þetta er engan veginn í fyrsta sinn sem hann fjallar um spíritismann. Pétur hefúr verið í hlutverki brautryðjand- ans og auðveldar þeim lífið sem síðar munu rannsaka sögu spíritismans eða aðra þætti kirkjusögu þessarar aldar. Gunnlaugur A. Jónsson HLJOMBORÐ fyrir unga jafnt sem aldna, í leik og starfi. Verð frá kr. 2.520,- CASICXuMBOÐIÐ, LAUGAVEGI 26 - SÍMI 21615. Almennartölvur.....frákr. 740 Skólatölvur.......frá kr. 1.600 Basic tölvur......frá kr. 3.800 Strimlavélar......frá kr. 3.700 25% afsláttur af öllum úrum næstu daga. Mikið úrval. Verð frá kr. 825*00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.