Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1987. JR UIMIQUE Utlönd BJ 5 tölvurúllur komu fyrst til lands- ins fyrir ca 12 árum og JR kom 1984 og hafa likað mjög vel. Góð greiðskukjör. 3ja ára kaupleiga, engin útborgun. J HINRIKSSON Súðarvogi 4, Reykjavík. Símar 84559 - 84677. Heima 76959 - 72835. Fer hægt en stefnir hátt í baráttunni um æðsta embætti bandarískra stjómmála, forsetaemb- ættið, eru margir til nefndir en fáir útvaldir. Baráttan er löng og ströng, fyrst innan flokkanna um útnefn- ingu sem forsetaefni, síðan milli flokkanna um hnossið sjálft. Um þessar mundir eru tveir meginflokk- ar bandarískra stjómmála, demó- kratar og repúblikanar, að flauta til innanflokksleiks. Þeir sem sækjast eftir útnefningu em að teygja sig og liðka fyrir kapphlaupið, ýmist búnir að lýsa því yfir frammi fyrir alþjóð að þeir gefi auðmjúklega kost á sér, em að bíða færis að lýsa framboði, eða bíða átekta og láta öðrum eftir að benda á þá sem vænlega hlaup- endur. Hæglátur Einn þeirra demókrata, sem í sí- vaxandi mæli er tilnefhdur sem verðugt forsetaefni, er Samuel Au- gustus Nunn, öldungadeildarþing- maður frá Georgíafylki. Sjálfui' bregst hann hæglátlega við hvatningum um að gefa kost á sér sem forsetaefhi flokks síns, segist ekki sjá forseta í baðherbergisspegl- inum að morgunlagi, enda sé það hans helsta stefnumál að koma demókrataflokknum að nýju í takt við bandarískt samfélag, Hann þvertekur þó ekki fyrir for- setaframboð og hefur þegar byijað að bæta við sig þeirri þekkingu sem hann telur forsetaefni þurfa að hafa tiltæka ef ske kynni að honum litist á slaginn. Þær raddir verða enda sífellt há- værari sem telja Nunn hæfastan demókrata til þess að keppa um for- setaembættið við George Bush varaforseta sem talið er líklegast að verði frambjóðandi repúblikana. Lítt þekktur Sam Nunn er ekki verulega þekkt- ur meðal kjósenda í Bandaríkjunum í dag. Hann var upphaflega kjörinn öldungadeildarþingmaður Georgiu- fylkis árið 1972 og fréttaskýrendur töldu þá að þar hefði munað mestu að Jimmy Carter, þáveranddi fylkis- stjóri Georgíu, studdi mótframbjóð- anda hans. Störf sín í öldungadeildinni vann Nunn hins vegar með slíkum ágæt- um að árið 1978 var hann endurkjör- inn með áttatíu og þrjá af hundraði atkvæða og árið 1980 að nýju með áttatíu af hundraði, þrátt fyrir að frambjóðendur repúblikana unnu þá yfirleitt verulega á í öllum þing- kosningum. Jafnframt hefur Nunn á þessum tíma skapað sér þann sess í hugum íbúa fylkisins að talið er jaðra við persónudýrkun. Meðal samþingmanna sinna hefur Sam Nunn einnig áunnið sér virð- ingu og aðdáun, einkum fyrir störf sín í hermálanefnd öldungadeildar- innar sem hann nú veitir forystu eftir að demókratar unnu meirihluta deildarinnar af repúblikönum á síð- asta ári. Er til þess tekið að þótt Nunn geti verið harður í hom að taka fari hann með öll deilumál á þann veg að hann skapar sér fáa eða enga óvildarmenn Virðuleiki og yfirsýn Nunn hefur til að bera virðuleik, yfirvegun og landsföðurlegt yfir- bragð sem margir telja að heyri sögunni til í Hvíta húsinu. Hann sækist lítt eftir að viðra skoðanir sínar og svarar því aðeins fyrirspumum fréttamanna og ann- Tölvustýrðu handfærarúllurn- ar frá Belitronic í Svíþjóð eru einhverjar fullkomnustu i heiminum. * Mjög fullkomin kerfi fyrir botn-, tröppu-, smokkfisk- og sjálfvirkt fiskileitunarkerfi. ' Sterk, létt og nota litinn straum. * Hægt aö láta kerfin vinna saman. "Ýmis hjól fáanleg, t.d. fyrir linuspil. * Auðveld í notkun. Eins árs ábyrgð JR og JR UNIQUE fyrirliggjandi á lager. arra að hann hafi aflað sér þekking- ar á málefnum sem spurt er um. Hann hefur ekki tekið þátt í því kynningar- og auglýsingastríði sem einkennir bandarísk stjórnmál svo mjög og brýst fram í ásókn stjóm- málamanna í íjölmiðla, hvort sem þeir hafa eitthvað til mála að leggja eða ekki. Sam Nunn neitar yfirleitt að taka þátt í umræðu um hneykslismál bandarískra stjómmála. Hann hefur til dæmis algerlega komið sér hjá þátttöku í árásunum á Reagan for- seta vegna Iranhneykslisins. Segir Nunn er talinn hafa mikla yfirsýn yfir bandarísk stjómmál og viða- mikla þekkingu á utanríkismálum. Eins og fyrr segir hefur hann þegar gert ráðstafanir til þess að bæta í þau þekkingargöt sem hann kann að finna hjá sjálfum sér en stuðn- ingsmenn hans telja það bera vitni um dæmigerð vinnubrögð af hans hálfu. Fyrst skal gmnninn byggja. Vill hann í slaginn? Þótt þessi íhaldssami demókrati sé talinn eiga góða sigurvon í forseta- kosningum og þótt margir telji að hann yrði með hæfustu forsetum sem framboð trufli þá um of í störfum þeirra, auk þess að sú glansmynd og yfirborðsmennska sem sýna þarf í forsetaslagnum hæfi illa þeim sem vilja vera marktækir löggjafar. Sam Nunn er einn þeirra öldunga- deildarmanna sem leggur meiri áherslu á skyldur sínar við þing, kjósendur og þjóð en eigin frama- drauma. Hann er íhugull stjóm- málamaður, fylginn og hörkutól ef svo ber við, en ekki gefinn fyrir neitt orðagjálfur. Hann hefur með störfum sínum sýnt að honum er yfirborðs- mennskan ekki í blóð borin og því Samuel Augustus Nunn, yngri. það eitt að það hvort forseti landsins sé marktækur sé mál allra Banda- ríkjamanna og leita þurfi samstöðu um að halda virðingu embættisins. Nunn hikar þó ekki við að gagn- rýna þegar gagnrýni er þörf. Hann hafði siðastliðið haust forgöngu um gagnrýni á það sem Reagan forseti lagði fram á Reykjavíkurfundinum. Við það tækifæri benti hann á ýmis- legt það sem huga yrði að áður en til samninga um kjarorkuvopn yrði gengið. Bandaríkin hafa átt er þó engan veginn víst að hann gefi kost á sér. Til skamms tíma var það talið vænlegur kostur fyrir þingmenn að gefa kost á sér sem forsetaframbjóð- endur eins oft og þeim var mögulegt. Má þar benda á Edward Kennedy sem undanfarna áratugi hefur hvorki látið laust né fast til þess eins að halda athygli almennings og sam- starfsmanna. Allnokkrar breytingar hafa þó orðið á þessu undanfarin ár því margir þingmenn telja nú að óvíst að hann vilji taka þátt í gaspri því sem forsetaframbjóðendur yfir- leitt ástunda. Meðal stuðningsmanna Nunns eru þeir sem segja ákveðið að hann gefi kost á sér annaðhvort nú eða fyrir kosningamar 1992. Aðrir eru þeir sem telja öldungadeildarmanninn hafa svo mikla andúð á þeirri mynd er núverandi kosningabaráttuað- ferðir gefa af forsetaembættinu að hann gefi ekki kost á sér nema þar verði breytingar á. Ti 3% TÍ Luxemborg Lykillinn aö töfrum Evrópu. Þaö er margt aö sjá og gera i stórhertogadæminu luxemborg. Fagurt landslag, fornar byggingar, fjölbreytt menningarlíf, verslanir og veitingastaöir. ■^oíuSjay S Clæsilegt hótel og vel staðsett i borginni. Heigarpakki: 3 dagar i Luxemborg fyrir aöeins 14.990 kr * Súperpakki: Kostar lítiö meira, eöa 16.050 kr* en býöur upp á miklu meira. Kynntu þér þessar sérlega hagstæöu Lúxemborgarferðir á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboösmönnum og ferðaskrifstofum. ♦Gildir til I5.maí FLUGLEIÐIR Berðu ekki við tímaleysi í umferðinni. Þaö ert ýií, sem situr undir stýri. IUMFERÐAR RÁÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.