Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Blaðsíða 30
42 ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1987. Sandkorn Páskaegg. Opnuðu ekki eggin Páskarnir voru afbragðs- góðir að vanda hér fyrir norðan á Akureyri, eggjaát gríðarlegt en við heyrum að sumir hafi ekki verið svangir. Þannig segir sagan að al lir helstu pólitíkusar, bankaráðs- menn og aðrir embættismenn hafi ekki þorað að opna eggin um páskana af ótta við að ákæra væri í þeim í stað máls- háttar. Sumardagur- inn fyrsti Við minnum alla á frídaginn á fimmtudaginn. Miðað við veðráttuna undanfarna sum- ardaga fara örugglega allir á skíði þennan dag, nægur er snjórinn. Sikileyjar- vöm Nú hefur vakið athvgli margra á Akureyri fyrirspurn- in frá Jóni Magnússyni, verjanda Ragnars Kjartans- sonar, fyrrverandi forstjóra Hafskips, um það hvort Albert hafi lánað Hallvarði Ein- varðssyni saksóknara fé úr lífeyrissjóði ríkisstarfsmanna. A Akurey ri gengur þessi vörn Jóns nú undir heitinu Sikil- eyjarvöm. Kaupþing norður Kaupþing hf. í Reykjavík, með Pétur Blöndal í farar- broddi, hefur nú hasiað sér völl hér á Akureyri. Á fyrir- tækiðmeirihlutann í Kaup- þingi Norðurlandssem stofnað var nýlega. KEA og Akureyrarbær eiga líka í fyr- irtækinu. Þetta eru grcinilega fvrir- tæki í vaxtarækt. Hola sex Stefán nokkur Petersen á Sauðárkróki fór að sögn fréttablaðsins Feykis holu í höggi sl. sumar. Stefán mun meðal annars vera fréttaritari sjónvarpsins á Króknum. Fyr- ir höggið fékk hann eins og aðrir einherjar flösku af Jo- hnny Walker frá fyrirtækinu Vangi hf. Stefán fór þessa holu í höggi á holu sex á Hlíðar- endavelli á Sauðárkróki sl. sumar. Þetta var draumahögg, náttúrlega. Flugstöðin opnuð Flugstöð Leifs heppna Ei- ríkssonar var opnuð með pomp og prakt að þrjú þúsund manns viðstöddum í síðustu viku. Ekki gat hann Matti Bjarna samgönguráðherra nú rætt um stöðina í sjónvarpinu án þess að fara nokkrum orð- um um bráðnauðsynleg jarð- göng á Vestfjörðum í leiðinni. Það ermikil framkvæmda- gleðin pólitíkusanna fyrir kosningar. Langt orð Þeir hjá flugfélaginu KLM auglýsa meðal annars hve flugstöðin í Amsterdam, Schiphol, sé þjált orð. í aug- lýsingunni segja allra þjóða farþegar Schiphol með mikl- um tilþrifum. Það má minna á flugstöðvar eins og Heathrow og Kennedy, báðar með stutt- um nöfnum. Það verður gaman að heyra hvernig far- þegarnir hjá KLM bera fram flugstöðina Leifur Eiríksson. Vonandi hafa þeir heppnina með sér. Leiðinleg sæluvika Sæluvikan í Skagafirði á dögunum þótti bragðdauf í meira lagi og illa sótt. Finnst mörgum öldnum Skagfirðing- um að eitthvað þurfi nú að gera til að hressa upp á mann- skapinn svo hann fari að mæta aftur á sæluvikuna og taka þátt í vikunni af lífi og sál. í von um að úr rætist og syngi Skagfirðingarsem allra allra lengst Matthias Bjarnasotl samgönguráó- herra. Andtés lækn- irofvinsæll Andrés Magnússon er vinsæll skurðlæknir á Siglufirði. jafn- framt því sem hann skipar efsta sæti Borgaraflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra. Góðar líkur eru á að Andrés nái inn sem þingmaður eftir kosningarnar. Heyrist nú að Siglfirðingar séu ekkert of hressir með það því þá missa þeir hann í burtu. Það skvldi aldrei fara svo að Andrés kæmist ekki á þing vegna of mikilla vinsælda. Munurinn áDogS Og svona í lokin héðan frá Akureyri. Veistu hver er mun- urinn á Sjálfstæðisflokki og Borgaraflokki? Sjálfstæðis- flokkurinn er með frjálsu framtaki en Borgaraflokkur- inn með frjálsu framtali. Umsjón: JónG. Hauksson. IBM TÖLVURÁÐSTEFNA FYRIR RÁÐGJAFA IBM á íslandi býður til ráðstefnu fyrir ráðgjafa í fyrirtækjarekstri og tölvuvæðingu fyrirtækja. Ráðstefnan verður haldin á Hótel Örk, Hveragerði, dagana 28.-29. apríl n.k. Efni ráðstefnunnar er: - Framtíðarstefna IBM í hugbúnaði. - Kynning á öllum helstu tölvum IBM allt frá einvalatölvum upp í stórtölvur. - Samtenging IBM tölva. - Sýning á ýmiss konar nýjum tölvubúnaði. - Val á réttum IBM tölvubúnaði. Pátttaka tilkynnist til Þorvalds Karlssonar, IBM, fyrir 22. apríl n.k. Hann veitir jafnframt nánari upplýsingar. VANWIRKNIIHVÍVETNA Skaftahlíð 24 105 Reykjavík • Simi 27700 NÁKVÆMNI - DUGNAÐUR Við leitum að stundvísri, líflegri stúlku, 20-25 ára, meö þægilegt viðmót og góða íslensku- og vélritunar- kunnáttu. Vinnutími kl. 9-17. Við bjóðum bjartan og góðan vinnustað og góðan starfsanda. Skriflegar umsóknir sendist auglýsingadeild DV fyrir laugardaginn 2. maí merkt „Framtiðarstarf 111". VANTAR í EFTIRTALIN HVERFI Baldursgötu Lindargötu Bragagötu Frakkastíg 1-15 *************** Aðalstræti Sölvhólsgötu Garðastræti 20 - út *************** Hávallagötu 1-17 *************** Barðaströnd Víkurströnd AFGREIÐSLA Þverholti 11 - Sími 27022

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.