Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Blaðsíða 32
44
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1987.
SM4
sKíf\)*
SIGURVEGARI VIKUNNAR
Halla Margrét Árnadóttir -
Hægt og hljótt (SKÍFAN)
Þetta lag ber svo sannar-
lega nafn með rentu og
sýndi það og sannaði í
söngvakeppninni á dögun-
um að rólegheitin geta átt
uppá pallborðið í svona
keppnum ef þau eru klædd
í nógu fallegan búning.
Þetta er einfalt og fallegt
lag sem við getum verið
hæstánægð með í Brussel.
Og ekki má gleyma því að
hin unga_ söngkona Halla
Margrét Árnadóttir vinnur
glæsilegan söngsigur í
þessu lagi. Áfram ísland.
ÞAU SEM TÖPUÐU
Björgvin Halldórsson -
Min þrá (SKÍFAN)
Jóhann G. Jóhannsson hef-
ur sannað ágæti sitt sem
höfundur léttra dægurlaga
margoft og þetta er eitt
slíkt; prýðisgott popp, sem
sest að í heilabúinu eftir
eina hlustun eða svo. Lagið
er kannski fullklisjukennt
og það er ekki laust við að
manni fínnist viðlagið
hljóma kunnuglega.
Erna Gunnarsdóttir & -
Björgvin Halldórsson
Lifsdansinn (SKÍFAN)
Hér er annað lag ansi
klisjukennt; en alls ekki
slæmt lag sem slíkt. Geir-
mundur er lunkinn á léttu
nótunum en þetta er full
líkt lagi hans frá í fyrra,
að minnsta kosti hvað
áhrærir útsetningu og
flutning.
Jóhanna Linnet
Sumarást (SKÍFAN)
Rólegheitin réðu mikið
ríkjum í söngvakeppninni
um daginn og þetta er ein
ballaðan sem tók þátt. Höf-
undurinn svotil óþekktur
en lofar góðu. Þetta lag
hans er nokkuð fallegt en
dáldið gamaldags og ég
held að líflegri útsetning
hefði getað lyft því uppá
hærra plan.
Jóhann Helgason
í bliðu og striðu (SKÍFAN)
Enn ein ballaðan og þetta
kannski sú angurværasta
af þeim sem kepptu; lagið
býsna fallegt en kannski
að Jóhann hefði átt að fá
einhvern annan til að
syngja það.
Björgvin Halldórsson
Ég leyni minni ást (SKÍFAN)
Jóhann G. með annað lag;
þetta í millitakti og
kannski full kaflaskipt til
að bera af í svona keppni.
Melódían er hins vegar
auðmelt en söngvakeppni-
útsetningin dæmigerða
gerir lagið dáldið þreytt.
-SþS-
Poison-Look What the Cat Dragged in
Iðnaður og andlitsfarði
Uppgangur rokksins hefúr verið
mikill á seinustu mánuðum, þó hvergi
meiri en í Bandaríkjunum. Þar í landi
leiða Bon Jovi hjörðina. Þeir ku selja
um milljón plötur á mánuði. Sveitir á
borð við Europe, Georgia Satellites
Cindarella, Stryper og ekki síst Poi-
Son, státa af litlu lægri sölutölum.
Poison er fulltrúar Enigma hljóm-
plötufyrirtækisins á iðnaðarrokkslín-
unni. Eins og er vegnar þeim mun
betur á hinum hefðbundna bandaríska
breiðskífulista en góðkunningjum
okkar Smithereens. Þessi fyreta plata
þeiira er nú í hópi tíu vinsælustu í
Bandaríkjunum. Hljómsveitin á rætur
sínar að rekja til Hairisburg í Pennsyí-
vaniu. Þar komu þeir fram fyrir tæpum
fjórum árum og gátu sér fljótlega gott
orð fyrir líflega sviðsframkomu á tón-
leikum.
Þrátt fyrir vinsældir verðiu- að segj-
ast eins og er að þessi frumraun Poison
er ekki ýkja merkileg. Tónlistin fvlgir
meðalmennsku iðnaðarrokksins.
hvorki betri né verri en það sem al-
mennt gerist í þeirri iðngrein. í
rauninni er aðeins eitt lag á plcjtunni
sem rís upp úr, Talk Dirty to Me. Það
er prýðisrokkari með skemmtilega
berorðum texta eins og nafnið ber með
sér. Annað er ósköp venjulegt. Manni
kemur í hug samanburður við Georgia
Satellites. Þar er ólíku saman að líkja.
Miðað við það er Poison rokkið ein-
faldlega óekta. Fjórmenningamir
virðast enda ekki leggja minna upp
úr útlitinu en tónlistinni. Þeir er
liræöilega teprulegir.
Iðnaðarrokk er réttnefni. Og það er
víst ekki sérlega mikið hól.
-ÞJV
Sheila E. - Sheila E.
Með erótík að leiðarljósi
Sheila E. er föngulegur kvenmaður,
það sýnir myndin af henni á nýjustu
plötu hennar, sem ber nafn hennar.
svo ekki verður um.villst. Og Sheila
E. syngur og stvnur um góða og vonda
karlmenn og er erótíkin í hávegum
höfð. Þetta er formúla sem hún hefur
lært hjá læriföður sínum. sjálflim
Prince, en hjá honum bvrjaði hún fer-
il sinn og hafa þau enn í dag nokkurt
samband, allavega tónlistarlega séð.
Sheila E. er ekki mikil söngkorta,
hefur • frekar takmarkaða rödd sem
hún nýtir þó vel. Hún er höfundur
texta og laga á Sheila E. og stjómar
upptökum. svo eitthvað kann hún fyr-
ir sér. Lögin eru í anda Prínce á fyrstu
plötum hans. Aftur á móti er Prince í
stöðugri framför. en Sheila E. syngur
nákvæmlega eins og lögin eru ná-
kvæmlega eins og fyrst þegar hún kom
ein og sér ffarn. Lög sem margir kunna
líklega að meta vestanhafs en eiga að
mínu viti lítið erindi hér upp á kla-
kann.
Textarnir fjalla nánast allir um sam-
hand karls og konu og má nefna nöfn
eins og One Day (I'm Gonna Make
You Mine), Hold me, Pride And Passi-
on, Hon e Man og Love On A Blue
Train. Og það þarf enginn að efa það
að Sheila E. kemur boðskapniun vel
til skila.
Það er engum vafa undirorpið að
tónlist Sheilu E. kemst best til skila á
diskótekum, þar njóta taktföst lög
hennar sín best. Að hlusta eingöngu
á þessa nýju plötu hennar er aftur á
móti ffekar pínlegt þegar til lengdar
lætur. HK
Hot Chocolate - The Very Best Of Hot Chocolate
Súkkulaði farið að kólna
I allri þeirri öldu af gömlum lögum
sem nú flæðir yfir hafa ýmsir, sem eiga
frægðarárin að baki, hugsað sér til
hreyfings á ný. Gamlar og löngu hætt-
ai' hljómsveitir hafa verið endurreistar
til þess eins að kyrja gömlu slagarana
eina ferðina enn í þeirri von að þetta
tímabundna aftui'hvarf í poppinu gefi
dálítinn „aur“ í kassann.
Margt af þessu dóti hefur vægast
sagt elst illa og deyr drottni sínum í
annað sinn án þess að nokkur sakni
þess. Annað ber aldurinn vel og stend-
ur enn fyrir sínu og vel það.
Og það er einhver blanda af þessu
tvennu sem einkennir þessa gam-
alnýju safnplötu ffá Hot Chocolate.
Hljómsveitin átti sitt stórveldistímabil
á árunum 1975-1979 og var ein af þess-
um diskóhljómsveitum sem náðu að
skapa sér eigin stíl og þekktist því úr
öllu diskókraðakinu sem tröllreið öllu
á þessum árum.
Og það var fyrst og fremst söngvar-
inn og lagasmiðurinn Errol Brown
sem einkenndi hljómsveitina með 1
sinni sérstöku rödd og má nefna lagið
YouSexy Thing sem einkar gott dæmi •
um þetta. Þetta lag er í nýrri hljóð- |
blöndun á þessari plötu og er gott
dæmi um lag með Hot Chocolate sem
hefur elst vel.
Önnur lög á þessari plötu, sem bera
aldurinn vel, eru að mínu mati: So
You Win Again, Brother Louie, Every
l’s A Winner og Emma. Hitt er lítið
spennandi að heyra í dag að minnsta
kosti og megi þau lög hvíla í ffiði.
-SþS-
POPP-
SMÆLKI
Sæl nú . . . David Bowie hef-
ur lag á að vekja á sér
athygli þó svo að ekki ætti
hann að þurfa sérstaklega á
því að halda. Nýja lagið
hans - Day In Day Out -
hefur að sjálfstöðu vakið
athygli en hún beinist nú
einkum að myndbandinu
sem fylgir laginu en það
hefur nú verið bannað í
breska ríkissjónvarpinu.
Myndbandið átti lika i erfið-
leikum með að fá sýningar
i Bandarikjunum og kalla
Kanar þó ekki allt ömmu
sina í þeim efnum. Og það
sem fer fyrir brjóstið á sið-
gæddu fólki eru myndskeið
frá Los Angeles, sem sýna
vændi og ofbeldi. Talsmenn
Bowies lýsa furðu sinni á
þessari ákvörðun BBC og
segja atriðin i myndbandinu
ekki verri en atriði sem
koma fyrir i hverjum einasta
þætti af Miami Vice og öðr-
um álika spæjaraþáttum . . .
The Smiths eru iðnir við
kolann og á mánudaginn var
sendi hljómsveitin frá sér
nýja smáskífu sem inniheld-
ur á a-hlið lagið Sheila Take
A Bow. Smiths eru annars
önnum kafnir þessa dagana
við upptökur á efni á nýja
breiðskifu sem er væntanleg
í haust og ku eiga að heita
Strangeways Here We
Come . . . George Michael
trónar nú á toppi smáskífu-
iistans vestra ásamt Arethu
Franklin þannig að sólóferi11
þessa Whamlausa manns
byrjar bærilega. Næst á dag-
skrá hjá kappanum er að
gefa út smáskifu þar sem
hann er einn á ferð og kemur
skífan út í næsta mánuði.
Lagið heitir I Want Your Sex
og verður lika að finna i
kvikmyndinni Beverly Hills
Cop 2. Fyrsta sólóbreiðskifa
Michaels er væntanleg í
haust... Og fleiri stór-
stjörnur eru með nýja plötu.
Whitney Houston er í þann
mund að hefja meiriháttar
hljómleikaferð um Bandarik-
in til að fylgja eftir plötu,
sem kemur út á
næstunni . . . Þegar Percy
kallinn Sledge komst á ný í
sviðsljósið á dögunum, er
gamla lagið hans When A
Man Loves A Woman komst
i annað sæti breska smá-
skífulistans, ruku nokkrir
breskir útgefendur upp til
handa og fóta og vildu fá
gamla manninn yfir til Bret-
lands. En hvernig sem þeir
leituðu tókst hvergi að hafa
uppá Sledge. Siðar kom í
Ijós að kappinn var ekki
spenntari en svo yfir upp-
gangi sinum i Bretlandi að
hann brá sér i veiðitúr upp
til fjalla. Hann hefur þó þeg-
ið boð um að troða upp í
Bretlandi nú um
páskana . . . gleðilega há-
tíð . ..
-SþS-
i