Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1987. Lesendur 17 Lanasjóður ísfenskra námsrnanna Afgreiðsla 9.15 - 16.UU „Stjórnvöld hafa rekið algjöra sveltistefnu gagnvart námsmönnum og munu halda því áfram komist Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn i meirihluta." Námsmenn, kjósum rétt! Árni Einarsson skrifar: Stjómvöld hafa rekið algjöra svelti- stefhu gagnvart námsmönnum og munu halda því áfram, komist Sjálf- stæðisflokkurinn og Alþýðuflokkur- inn í meirihluta. Þessi sveltistefna bitnar verst á þeim er síst skyldi, böm- um verkafólksins og láglaunafólksins. Námsmenn, við verðum að huga vel að því áður en við göngum að kjör- borði hvort við sættum okkur við þetta öllu lengur. Sverrir Hermannsson hef- ur séð til þess að námslánin hafa lækkað um 15,65% með því að fella niður vísitöluhækkanir á námslánum. Þessir menn hljóta að telja menntun til forréttinda ríka fólksins en við skul- um sjá við því á kjördag með því að kjósa rétt og sýna með þvi að menntun telst til almennra mannréttinda ekki forréttinda. Námsmenn, við erum 10% kjósenda. Með samstilltu átaki getum við komið í veg fyrir takmarkanir þær og skert lán er Alþýðuflokkur og Sjálfstæðis- flokkur fara fram á. Námsmenn, kjósum með hagsmuni okkar fyrir augum. Kappræður: Milli Borgaraflokks og Flokks 4211-1589 skrifar: Vegna komandi kosninga langar mig að leggja orð í belg til að brydda upp á einhverju nýju svo að kosn- ingabaráttan verði líflegri. Nú, það sem ég legg til er að Flokk- ur mannsins og Borgaraflokkurinn fari í kappræður. Gætu það t.d. verið efstu menn á lista í Reykjavík og Reykjanesi, önnur kjördæmi kæmu einnig til greina. Ástæðan fyrir þessarí ósk minni er sú að báðir flokkamir tala um söfnun valds á einum stað, flokks- ræðið, vissa kúgun á almenningi og meira hagræði í rekstri ríkisins. Ekki veit ég hvor flokkurinn kem- mannsins ur betur út úr kosingunum en ég veit þó að Flokkur mannsins er eldri en Borgaraflokkumn. Flokkur mannsins hefur eflaust verið stofn- aður með ákveðin stefnumál að markmiði en annað gildir um stofh- un Borgaraflokksins og finnst mér skjóta skökku við að fyrsti maður þar á lista í Rvík skuli nú fyrst kvarta yfir svínaríinu í Sjálfstæðis- flokknum og þjóðfélaginu eftir langa setu á þingi og í Sjálfstæðisflokkn- um. Þvi bið ég um kappræðufund á einhverjum stað í höfuðborginni, helst sem fyrst, svo ég og fleiri fáum botn í þetta allt saman. Leið smáborgarans til að sýna ábyrgð Halldór C. skrifar: Nú er stuttur tími í eitt skemmti- legasta ogfjölmennasta tómstundar- gaman almennings, það er þegar allir sitja krosslagðir, spenntir og telja tölur. Menn velja sér vald yfir höfuð eft- ir smekk og krossa við í reitinn sinn (á réttum stað) af rökvisi og festu. 10 listar bjóða fram, allt of margir flokkar, allt of margir frambjóðend- ur, allt of mörg orð. Og allt of líkt hvert öðru... Mér datt í hug ónefndur rithöfundur sem sagði:,,... krossinn á seðlinum er leið smáborgarans til að sýna ábyrgð..." Öryggi heimilisins Pétur ívarsson hringdi: Ég vil koma á framfæri þakklæti til þeirra manna sem hafa komið á vinnustaði að selja hjálparbúnað, nokkurs konar sjúkrakassa. Þetta eru ýmis tól sem ætlað er að stuðla að öryggi heimilisins ef eitthvert óvænt slys eða óhapp kemur upp á. Ég var nú fyrst tregur til að kaupa pakkann en lét þó til leiðast, þetta eru hlutir sem eiga að vera til á öll- um heimilum en maður hefur sig ekki í að kaupa. Það kom sér vel að ég skyldi hafa keypt hann því stuttu seinna skar einn vinnufélagi minn sig í fingurinn og kom þá kassinn að góðum notum. Ég vil þakka fyrir þarft framtak að kynna þessar vörur því þetta er hlutur sem maðui’ trassar að kaupa. LÆÍEP'l!' l’H'JLif lil UiMiAV-11.? Betri blll 3' fyrir lítinn pening Vatnslðsar Mjög hagstœtt verö! Innsogssett úr sjálfvirku í handvirkt TrriT1 G ” SKEIFUNNI 5A SIMI 91-8 47 88 Meö FIAT UNO sanna ítalskir hönnuöir rækilega hæfni sína. Hérfara saman glæsilegt útlit og framtíðar tækni, mikil hagkvæmni og hámarks notagildi. Þaö er ekki aö ástæðulausu aö FIATUNO ereinnmestseldi bíll- inn í Evrópu. Hann er einfaldlega einstakur, þegar tekið er tillit til aksturseiginleika, útlits, öryggis, þæginda, og síöast en ekki síst, hvaö þú færö mikið fyrir peningana. Skelltu þér strax í reynsluakstur. Eftir þaö veistu nákvæmlega hvaö veriö er aö tala um. Umboðiö Skeifunni 8 s. 91-68 88 50

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.