Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Page 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1987.
Fréttir
Nýja flugstöðin:
Maigt hefúr
gleymst í hertri
öiyggisgæslu
Á skilrúmum, sem hafa verin drifin upp
til að loka af þeim svæðum sem ekki
eru tilbúin, snúa skrámar út, eins og
myndin sýnir. Það er því auðvelt fyrir
utanaðkomandi að komast inn og út
að vild.
Ef farið er inn um dyrnar.
....er maður kominn hingað. Þá er
bara að fara upp þennan stiga...
DV ákvað að líta aðeins nánar á nýju
flugstöðina, svona þegar mesta hriihing-
arglýjan var runnin af mönnum, og
skoða hana í svolítið öðru ljósi en áð-
ur, þ.e. með augum farþega.
Þegar mætt var á staðinn tók það
klukkutima að afla tilskilinna leyfa en
öll öryggisgæsla hefur verið hert til
muna. Meðan á biðinni stóð var ekki
annað að gera en drepa tímann ein-
hvem veginn og svipuðumst við því um
biðsvæði þeirra sem em að taka á móti
farþegum.
Við ætluðum vart að trúa eigin augum
er við rákum augun í að hurð ein, sem
virtist rammger mjög, úr skotheldu
stáli, var ólæst. Var þar um að ræða
tollhlið, og samkvæmt upplýsingum toll-
varða þá á hurðin að vera kirfilega
læst með gríðarlega fínum segullæsing-
um.
Gallinn var bara sá að leesingamar
em ekki enn komnar til landsins og em
því allar öryggishurðir og neyðarhlið
flugstöðvarinnar ólæst. Það sem verra
var að engrar þeirra virtist gætt.
Þetta vakti að vonum undrun okkar
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR Innlán óverðtryggö (%) hæst
Sparisjóðsbækur óbund. 10-11 Lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsógn 10-15 Sb
6mán. uppsögn 1119 Vb
12 mán. uppsögn 13-22 Sp.vél.
18 mán. uppsögn 20.5-22 Sp
Ávísanareikningar 4-10 Ab
Hlaupareikningar Innlán verðtryggð 4-7 Sp
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1,5-2 Ab.Bb. Lb.Úb. Vb
6 mán. uppsögn Innlán með sérkjörum 2,5-4 10-22 Ab,Úb
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalur 5-5,75 Ab
Sterlingspund 8,5-10,25 Ab
Vestur-þýsk mörk 3-4 Ab
Danskarkrónur 9-10,25 Úb
ÚTLÁNSVEXTIR Útlán óverðtryggð (%) lægst
Almennir vixlar(forv.) 19-21 Lb.Úb
Viðskiptavixlar(forv.)(1) 22eða kge
Almenn skuldabréf(2) 20-22 Úb
Viöskiptaskuldabréf(1) kge Allir
HlaupareikningarMirdr.) Útlán verðtryggð 20-22 Lb
Skuldabréf
Að 2.5árum 6-7 Lb
Til lengri tima 6,5-7 Ab.Bb, Lb.Sb,
Útlán til framleiðslu Úb.Vb
isl. krónur 16,25-21 Ib
SDR 7,5-8,25 Lb
Bandarikjadalir 7,5-8 Sb.Sp
Sterlingspund 11,25-13 Bb.Vb
Vestur-þýsk mörk 5,5-6,5 Bb.Úb, Vb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-6,75
Dráttarvextir 30
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala apríl 1643 stig
Byggingavísitala 305 stig
Húsaleiguvísitala Hækkaði 3% 1. april
HLUTABRÉF
Söluverð aö lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 121 kr.
Eimskip 200 kr.
Flugleiðir 166kr.
Hampiöjan 147 kr.
lönaðarbankinn 135 kr.
Verslunarbankinn 125 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og sparisjóðir kaupa
þó viðskiptavíxla gegn 21 % ársvöxtum. (2)
Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskil-
alána er 2% bæði á verðtryggð og óverð-
tryggð lán, nema í Alþýðubanka og
Verslunarbanka.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank-
inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Versl-
unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn
birtast i DV á fimmtudögum.
og forvitni og tókum við að svipast um
eftir fleiri svona atriðum. Ekki leið á
löngu þar til við rákumst á hurð eina
sem var á skilrúmi en slík skilrúm loka
af öll þau svæði sem enn em í bygg-
ingu. A hurðinni var læsing, svipuð
þeim sem tíðkast á almenningssalem-
um, þ.e. enginn lykill heldur aðeins
hægt að opna og loka fiá einni hlið.
Þar sem læsingin sneri að okkur var
ekki um annað að ræða en opna og
kíkja inn. Fyrir innan blöstu við tröpp-
ur, og þegar farið er upp tröppumar þá
er maður kominn beint inn í biðsal far-
þega, og fríhöfh, og það án þess að sýna
vegabréf eða farmiða, og án þess að
hafa nokkum tíma farið í gegnum
málmleitartæki.
Við fengum loks leyfi og fórum í skoð-
unarferð um stöðina í fylgd með
vopnuðum lögregluþjóni sem hafði feng-
ið þau fyrirmæli að hafa ekki af okkur
augun. Við sögðum honum að við gæt-
um komist alh-a okkar ferða að vild án
þess að nokkur yrði þess var. Hann
sagðist vel trúa því, þvi enn ætti eftir
að ganga frá mörgu.
Við spurðum hann því hvers vegna
svona leiðum væri ekki lokað og fengum
svarið: „Það er bara ákveðin forgangs-
röð á hlutum hér.“
-PLP
.og þá er maður kominn inn í fríhöfn, framhjá tolli og vopnaleit
DV-myndir KAE
Ævintýri Öskubusku
Úskubuska og
maöurinn sem átti engar buxur.
Leikstjóri, tónlist, klipping og
stjórn upptöku: Hilmar Oddsson.
Handrit: Gisli J. Ástþórsson.
Lokageró handrits: Hilmar Oddsson og
Gisli J. Ástþórsson.
Kvikmyndun: Páll Reynisson.
Hljóð: Halldór Bragason.
Leikmynd og búningar:
Stigur Steinþórsson.
Aóalhlutverk: Edda Heiórún Backman og
Bessi Bjarnason.
Eins og skepnan deyr var frum-
raun Hilmars Oddssonar sem
kvikmyndagerðarmanns og þótt sú
mynd heppnaðist ekki sem skyldi þá
kom berlega i ljós næmt auga Hilm-
ars fyrir möguleikum kvikmyndavél-
arinnar og greinilega gott samband
milli hans og leikara hans. Hæfileik-
ar, sem hann nýtir sér í stuttri og
mannlegri sjónvarpskvikmynd,
Oskubuska og maðurinn sem átti
engar buxur, sem gerð er eftir hand-
riti Gísla J. Astþórssonar, blaða-
manns og höftmdar þekktrar
teiknimyndapersónu, Siggu Viggu.
Og er ekki laust við að Maja í Ösku-
busku... minni nokkuð á þá ágætu
persónu.
Texti við Öskubusku er ekki mik-
ill, en þrátt fyrir fá orð koma
persónumar skýrt fram og þeim
mannlega þætti, sem einkennir
handritið, kemur Hilmar til skila í
Sjónvarp
Hilmar Karlsson
góðu myndmáli. Gott myndmál nær
þó ekki í lokin að setja punktinn
yfir i-ið og er snubbóttur endir því
kannski það sem áhorfandinn sættir
sig síst við.
Aðalpersónumar em Maja,
þroskaheft stúlka sem vinnur í „ösk-
unni“. Einn daginn kynnist hún
sérvitrum og ríkum öldungi sem
nýlega hefur misst konu sína og er
argur út í allt og alla, sérstaklega
þó áíkomendur sína. Eitthvað er það
í fari Maju sem minnir hann á hina
horfnu eiginkonu og myndast með
þeim vinskapur sem verður ekki
eyðilagður utan frá fyrr en veraldleg
gæði í formi kínversk vasa verða
þess óbeint valdandi.
Nikulás, en svo nefhist öldungur-
inn, er nefhilega ákveðinn í að eftir
sinn dag fái Maja vasann verðmæta.
Þetta er að sjálfsögðu of stór biti
fyrir erfingja gamla mannsins. Nik-
ulás deyr, vasinn endar í malbikinu
og Maja heldur áfram í öskunni. A
þó minningar um eitt fagurt ævin-
týri.
Frá höfundar hendi em aðeins
tvær persónur sem skipta máli, Maja
og Nikulás. Og það er sérstaklega
Maja sem er vel úr garði gerð frá
handritshöfundi. Og Edda Heiðrún
Backman vinnur leiksigur í hlut-
verki Maju. Persónan Maja er hér
lifandi komin í meðförum hennar.
Hinn takmarkaði orðaforði, sem
Maja hefur, kemst óaðfinnanlega til
skila og leikur Eddu Heiðrúnar slík-
ur að ekki er nokkur möguleiki á
að betur væri hægt að koma frá sér
þessu erfiða hlutverki.
Nikulás er kannski ekki alveg eins
skýr persóna. Hann hefur, þrátt fyrir
veraldlegt ríkidæmi, óbeit á lífinu
eftir að hafa misst eiginkonu sína.
Þolir ekki hvað hefur orðið úr böm-
um hans og til að vera laus við
umheiminn tekur hann upp á ýmsu
sérkennilegu, meðal annars að
henda öllum buxum sínum. Bessi
Bjamason leikur þennan karl með
miklum tilþrifum, án þess þó að gera
karlinn kjánalegan.
Öskubuska og maðurinn sem átti
engar buxur er í heild verk Hilmars
Oddssonar. Hann er leikstjóri, höf-
undur tónlistar og hefhr klippt
myndina. Á hann verður að skrifast
helsti galli myndarinnar sem er of
hæg atburðarás og um leið helstu
kostir sem er að myndmál og talað
mál fer einstaklega vel saman.
Maja (Edda Heiðrún Backman) ásamt vinnufélögum í „öskunni".
Slokkviliðs-
menn hóta
aðgerðum
„Það er algert lágmark að við
verðum beðnir afsökunar,“ sagði
Baldur S. Baldursson, fulltrúi
slökkviliðsmanna í Reykjavik, um
eftirmál þess að lögreglan hafði
afskipti af för slökkviliðsmanna á
fund um kjarasamning við borg-
ina.
Slökkviliðsmenn segja að lög-
reglunni hafi þama verið beittmeð
ólögmætum hætti í vinnudeilu.
Slökkviliðsmennimir hugðust fara
til fundarins á bílum slökkviliðs-
ins.
„Það má vel vera að við förum
í hart ef ekkert kemur frá þessum
háu embættismönnum sem við get-
um sætt okkur við,“ sagði Baldur.
Enn hefur þó ekki verið ákveðið
til hvaða aðgerða slökkvihðsmenn
grípa en þeir ætla að ræða málið
í sínum hópi næstu daga.
-GK
Innbrat
í átta
flugvélar
Brotist var inn í átta einkaflug-
vélar í flugskýli á Reykjavíkur-
flugvelli um páskana og slökkvi-
tækjum stolið úr þeim öllum.
Lögreglunni baret tilkynning um
innbrotin um hádegi í gær en ekki
er vitað með vissu hvenær þjófam-
ir vom á ferð í flugskýlinu.
Engar skemmdir em sjáanlegar
á vélunum og engu öðm en
slökkvitækjunum var stolið. Málið
er nú í rannsókn hjá rannsóknar-
lögreglunni en ekki hefur enn
tekist að hafa hendur í hári þjóf-
anna.
-GK