Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1987. Utlönd Gorbatsjov geri grein fyrir Wallenberg Eitt hundrað og tíu bandarískir þingmenn undirrituðu bréf þar sem Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, er hvattur til að leysa úr haldi Raoul Wallenberg eða að gera fulla grein fyrir afdrifum hans. Wallenberg var sænskur utanríkis- þjónustumaður sem talið er að hafi bjargað lífi tugþúsunda ungverskra gyðinga úr útrýmingarbúðum nasista í heimsstyrjöldinni síðari. Hann var tekinn höndum af sovésku herjunum í styrjaldarlok og hvarf inn í sovéska fangelsiskerfið. Þrátt fyrir fullyrðingar sovéskra embættismanna, þess eíhis að Wall- enberg hafi fyrir mörgum árum látist í sovésku fangelsi, þykir ýmislegt benda til þess að hann sé enn á lífi, að því er segir í fréttatilkynningu með bréfi bandarísku þingmannanna. „Við hvetjum yður til að tryggja lausn Raoul Wallenberg eða að gera fulla og opinbera grein fyrir afdrifúm hans. Við trúum þvi að hann sé enn á lífi og hvetjum til þess að honum verði heimilað að yfirgefa Sovétrík- in,“ segir í bréfinu. Wallenberg fór til Búdapest árið 1944, að beiðni flóttamannaráðs Bandaríkjanna. Meðan á hersetu nas- ista í Ungverjalandi stóð kom hann þúsundum gyðinga undan gasklefan- um með útgáfu sænskra vegabréfa. Þegar sovéskir herir tóku Búdapest árið 1945 var Wallenberg tekinn fast- ur. Eftir endurteknar fyrirspumir vestrænna embættismanna fullyrtu Sovétmenn að hann hefði látist árið 1947. Þúsundir í kröfu- göngum á N-íriandi Þúsundir mótmælenda fóru i hinar árlegu skrúð- og kröfúgöngur sínar á N-írlandi í gær og fóru þær íram án nokkurra átaka eða árekstra milli kaþólskra og mótmælenda. Aður höfðu þúsundir kaþólikka efnt til svipaðra hópgangna til þess að minnast þess að 71 ár er liðið írá páskauppreisninni i Dublin 1916. Göngur beggja brutu i bága við ný lög og reglugerð sem sett voru í kjöl- far páskanna í fyrra. Ber gönguaðilum skylda til þess að tilkynna lögreglu- yfirvöldum með viku fyrirvara væntanlegar gönguleiðir. - í fyrra höfðu orðið róstur í páskagöngunum og lét einn ungur maður lífið af völd- um gúmmíkúlu sem lögreglan skaut að rósturseggjum. Fyrr í gærdag fann lögreglan hálfa smálest af sprengiefni sem falið hafði verið í Dungannon, um 55 km vestur af Belfast. Telur hún sig hafa með því gert að engu áætlanir kaþólskra of- stækismanna um sprengjutilræði við öryggissveitir Breta á N-Irlandi. Þrír menn voru handteknir. Sérfræðingar gerðu óvirka í gær bréfasprengju sem borist hafði í pósti inn á heimili eins aðstoðarmanna Thatcher forsætisráðherra. Er það sjötta slík vítisvélin sem send er bresk- um embættismönnum á tæpri viku. Hefúr írski lýðveldisherinn (IRA - öfgasamtök kaþólskra sem vilja binda enda á yfírráð Breta á N-írlandi) lýst ábyrgð á hendur sér vegna þessara sprengjusendinga. Pílagrimar flykkt- ust til Jemsalem Um sjötíu þúsund kristnir píla- grímar hvaðanæva úr heiminum lögðu leið sína til Landsins helga um páskana þar sem þeir voru við- staddir guðsþjónustur og heimsóttu heilaga staði. Vopnum búnir hermenn voru á verði meðfram borgarmúrunum á meðan pílagrímarnir gengu eftir þröngum strætunum. Þrátt fyrir óeirðir gegn gyðingum á Vesturbakkanum að undanfömu heimsótti fjöidi gyðinga Jerúsalem um páskana en þá minnast þeir brottfarar ísraela frá Egyptalandi. Pílagrímamir voru miklu fleiri í ár en í fyrra og minjagripasalar græddu á tá og fingri. í fyrra höfðu þeir lokað vegna verkfalls. Tvö létust við sprengingu í Etnu Baldur Róbensson, DV, Genúa; Frönsk kona og níu ára gamall sonur hennar létu lífið þegar sprenging varð í eldljallinu Etnu á Sikiley í síðustu viku. Eiginmaður konunnar og tveir aðrir synir þeirra meiddust illa í sprengingunni, ásamt tveim burðar- mönnum. Fólk þetta var með hópi franskra ferðamanna í um þrjú þúsund feta hæð í hlíðum Etnu, þegar sprengingin varð í fjallinu, og er talin mikil mildi að ekki fómst eða slösuðust fleiri úr hópnum. Sprengingar af þessu tagi verða örðu hvom í Etnu þegar hiti eða annað verður til þess að tendra í uppsöfhuðu gasi. Við sprengingar þessar spýtist mikið af grjóti úr fjallinu og getur það verið lífshættulegt þeim sem í hlíðum fjallsins em. ísbrjótur til bjarg- ar vísindamönnum Sovéskur ísbijótur, kjamorkuknú- inn, mun síðar í þessum mánuði leggja í leiðangur til björgunar þrettán vís- indamönnum frá Leníngrad, en þeir em á reki í Norður-íshafi á hafísjaka sem í upphafi var 300 metra langur en hefur minnkað því að af honum hefur nagast á rekinu. Þessi rannsóknarstöð hefiir verið kölluð „Norðurpóll-27“ og hafa vís- indamenn starfað á þessum sama ísjaka í þrjú ár, en nú þykir ekki leng- ur óhætt að hafa menn á jakanum. Fimmtán manns voru skotnir til bana á Sri Lanka í gær og voru það skæruliðar tamila sem voru að verki að þvi er yfirvöld fullyrða. - Símamynd Reuter Blóðsúthellingum haldið áfram á Sri Lanka Þjóðaröryggisráðið í Colombo á Sri Lanka leitast nú við að auka öryggisr- áðstafanir í kringum þorp sínhalesa þar sem hundrað fjörutíu og tveir manns hafa fallið fyrir hendi aðskiln- aðarsinna síðustu fimm sólarhring- ana. Sakar stjómin skæmliða tamíla um að standa að baki hryðjuverkun- um en þeir beijast fyrir sjálfstæðu ríki. Fimmtán manns vom skotnir til bana í gær og á fostudaginn vom hundrað tuttugu og sex strætisvagna- farþegum raðað upp og þeir skotnir. í árás á herbækistöðvar í gær beið lög- reglumaður bana og annar særðist. Stjómarhermenn hafa eyðilagt nokkrar bækistöðvar skæmliða og leita nú fleiri í frumskóginum með aðstoð þyrlna. Tæplega sex þúsund manns hafa beðið bana í átökum skæmliðum ta- míla og sínhalesa frá því árið 1983. Vantrauststillaga gegn stjóm Fanfanis Búist er við að vantrauststillaga gegn nýju minnihlutastjóminni á Ital- íu verði samþykkt í lok umræðna þeirra er hófust á þinginu þar í gær. Allar tilraunir til þess að endurreisa fimm flokka stjóm fóm út um þúfur vegna valdabaráttu kristilegra demó- krata og sósílista. Vilja kristilegir demókratar að nýjar kosningar fari fram áður en sumarleyfi hefjast. Andstæðingar þeirra, sem vom óhressir yfír að þurfa að hefja vinnu á annan í páskum, kvörtuðu undan því hvað hinum nýja forsætisráðherra, Amintore Fanfani, lægi mikið á að byrja þingumræðumar en til þess að kosningar geti farið fram þarf van- trauststillagan að verða samþykkt og þinglausnir að fara fram ekki síðar en þann 27. apríl. Amintore Fanfani, hinn nýi forsætisráðherra Ítalíu, kynnti nýja stjórn sina á þingi í gær. Slmamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.