Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Síða 11
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRIL 1987.
11
Útlönd
Hitabylgja í París
Um páskana breyttust Signubakkar i baðströnd. Þessir Parisarbúar njóta sólar-
geislanna nálægt Notre Dam kirkju í nærri tuttugu stiga hita. simamynd Reuter
Linnas afhentur
Sovétmönnum
Karl Linnas, fyrrum fangabúðastjóri
nasista í Estoníu í heimsstyrjöldinni
síðari, var í gær sendur áleiðis frá New
York til Sovétríkjanna, eftir að hæsti-
réttur Bandaríkjanna neitaði að
stöðva brottrekstur hans frá Banda-
ríkjunum.
Linnas er sakaðm- um hlutdeild í
fjöldamorðum í fangabúðum í Tartu í
Estoníu þar sem tólf þúsund fangar
voru myrtir í síðari heimsstyrjöldinni.
Bandaríska dómsmálaráðuneytið
sakaði Linnas, sem fluttist til Banda-
ríkjanna árið 1951 ög gerðist banda-
rískur ríkisborgari 1960, um að hafa
leynt styrjaldarathöfnum sínum fyrir
bandarískum embættismönnum. Nið-
urstaða málssóknar á hendur honum
varð sú að hann var gerður landræk-
ur. Undanfarið hafa bandarískir
embættismenn reynt að finna land sem
taka vildi við Linnas, en Sovétríkin
eru eina ríkið sem lýst hefur sig fúst
til að veita honum landvist. Réttar-
höld voru haldin vfir Linnas i Sovét-
ríkjunum árið 1962, að honmn
fjarverandi, og var hann þar dæmdur
til dauða.
Linnas neitar með öllu að hafa fram-
ið stríðsglæpi þá sem hann er sakaður
um. Segist hann hafa verið háskóla-
nemi í Tartu á styrjaldarárunum en
aldrei hafa verið í þýska hernum.
I gær sagði hann fréttamönnum að
með brottrekstri sínum til Sovétríkj-
anna væru Bandaríkjamenn að fremja
morð því dauðinn einn biði sín.
Linnas er annar stríðsglæpamaður-
inn úr röðum þýskra nasista sem
Bandaríkjamenn afhenda Sovétmönn-
um. Hinn fyrri var Feodor Fedorenko,
sem sakaður var um morð á þúsundum
■fanga í Treblinka. Hann var gerður
landrækur til Sovétríkjanna árið 1984
og síðar dæmdur þar til dauða.
Karl Linnas notaði frakkann til að
dylja handjárnin á Kennedy flugvelli
i New York í gær. Hann hélt þá áleið-
is til Sovétríkjanna þar sem réttar-
höld og hugsanlegur dauðadómur
bíða hans. - Símamynd Reuter
Tilkynning
FRÁ SEÐLABANKA ÍSLANDS OG ÞJÓÐHAGSSTOFNUN
Þjóðhagsstofnun er flutt í nýja Seðlabankahúsið.
Nýja símanúmerið er 699500.
Nýtt símanúmer Seðlabankans er 699600,
en bankinn hefur flutt að hluta í nýja húsið.
Gjaldeyriseftirlit og Ríkisábyrgðasjóður verða um sinn
áfram í Austurstræti 14, svo og afgreiðslur bankans
í Hafnarstræti 10 og verður tilkynnt um flutning
þessara deilda síðar.
Nýtt póstfang Seðlabankans og Þjóðhagsstofnunar er:
Kalkofnsvegur 1, 150 Reykjavík.
21. apríl 1987
SEÐLABANKI ÍSLANDS
ÞJÓÐHAGSSTOFNUN
HJíA° GER,°»
V,° GÖMLU
T/EKIM? t
RANNSOKNIR - ”
- ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR -
NOTUÐ BLÖNDUNARTÆKI FRÁ ÍSLANDI ERU HEPPILEG TIL
RANNSÓKNA OG ÞRÓUNAR NÝRRA BLÖNDUNARTÆKJA FRÁ
EIGROHE
EJGROHE
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
■ 25610 G/8/T/L 33050 t/V/# 21 277 L
Qjj|jj§ E / 2J610G/æi T