Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Síða 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1987.
„Gáleysi
skipulagsstjórau
Spumingin
Lesendur
Aldraður skrifar:
í 4 gr. byggingalaganna frá 1978
er svo fyrir lagt að í byggingareglu-
gerð komi fram ákvæði um umbúnað
bygginga svo henti öldruðum og
hreyfihömluðum. Slík ákvæði eru til
staðar en ganga mjög skammt að
dómi kunnugra. Þó er getið um að
sé opinbert þjónustuhúsnæði meira
en tvær hæðir, þ.e. sé opinber stofn-
un staðsett á þriðju hæð í húsi, þá
skal vera lyfta í húsinu (bygginga-
reglugerð frá 1979, grein 8.2. og 2.1).
Ennfremur segir í sömu reglugerð
að aðgangur fyrir hreyfihamlaða
skuli vera sérstaklega tryggur og í
góðu lagi þegar um opinberar stofri-
anir er að ræða svo og húsnæði sem
ætlað er til þjónustu við almenning.
Vegna hins óvenju skýra sam-
hengis milli 4 gr. byggingalaganna
og ákvæða byggingareglugerðar er
engum blöðum um að fletta hverjar
lagaskyldur hvila á forstöðumönn-
um opinberra stofnana þegar um
nýtt opinbert þjónustuhúsnæði er
að ræða, hvað hreyfihamlaða áhrær-
ir. Nú á tímum er mjög sjaldgæft,
næstum óþekkt, að t.d. ríkisstofnanir
reyni að smjúga fram hjá ákvæðum
byggingareglugerðar og bygginga-
laga hvað þetta snertir. Enda yrði
slíkt tafarlaust stöðvað af viðkorn-
andi; byggingafulltrúa, bygginga-
nefnd, sveitarstjórn, embætti
skipulagsstjóra og loks félagsmála-
ráðuneyti ef málið yrði þangað kært.
Félagsmálaráðherra er æðsti yfir-
maður byggingamála.
í DV hefur nýlega verið sagt frá
húsnæðisáætlun skipulagsstjóra
sjálfs. Hann ákvað að taka á leigu
glæsihúsnæðið Laugaveg 163 til 10
ára og borga fyrir 450 fermetra ná-
lægt 12 milljónir kr. í núvirði í leigu
auk þess að innrétta húsnæðið fyrir
4-5 milljónir á sinn kostnað (áætl-
að verð).
Hann upplýsti alla um þau atriði
er málið snertir, nema eitt atriði, sem
hann sjálfur vissi þó allan tímann
eftir því sem nú er upplýst.
Skrifstofuhæðin er á 3. hæð frá
Laugavegi en á 4. hæð frá Skúla-
götu, bílastæðum hússins og aðal-
inngangi skrifstofunnar. Þannig að
þrjár hæðir var að fara upp þröngan
stigagang. Engin lyfta er í húsinu
né lyftuhús, sem skipulagsstjóri
vissi. Skylduákvæði laga og reglu-
gerða varðandi lyftur fralla um
fólksflutningalyftur af stærðinni
min. 2 m x 1 m að innanmáli.
Það er því ljóst orðið að skipulags-
stjóri er staðinn að klaufalegu
gáleysi. Fjárútlát fyrir ríkissjóð og
margfalt brot á byggingalögunum
og byggingareglugerð.
Kæra Öryrkjabandalagsins hefur
að visu stöðvað áætlanir hans áður
en tjónið skiptir milljónum og
hneykslið var fullkomið.
Er ekki ástæða til að kanna þetta
mál betur. Eða á að þagga þetta mál
niður á sama hátt og fjölmörg önnur
hneyksli á sviði byggingamála þegar
fatlaðir eru annars vegar? Margir
myndu fagna því ef fjölmiðlar fylgdu
máli þessu eftir, færu ofan í kjölinn.
Hverju spáirðu um úrsli
kosninganna í Reykja-
vík?
Jón Þorsteinsson ellilífeyrisþegi: Ég
býst við að D-listinn verði stærstur.
En að A- og S-listinn verði á hælun-
um á honum. V-listinn heldur
nokkuð stöðugu fylgi. Ég geri fast-
lega ráð fyrir að C-listinn falli út.
Ingunn Ingólfsdóttir þýðandi: Ég tel
að D- og S-listinn verði nokkuð jafn-
ir, það verði hörð barátta á milli
þeirra. V-listinn fær álíka fylgi og
hann hefur fengið í skoðanakönnun-
um. En hinir flokkarnir skipta
afganginum á milli sín, það er ókleift
að segja í hvaða hlutföllum.
Ragnheiður Harðardóttir kennari:
Það er nú erfitt að segja nokkuð til
um það á þessari stundu, ætli D- og
S-listinn komi ekki sterkastir út úr
þeim. En ég býst alveg eins við að
C- og M-listinn detti út.
-iSL.T
Eysteinn Viggósson vélstjóri: Ja, þeir
eru nú svo margir flokkarnir að stað-
an er orðin allflókin. Það verður
væntanlega mikill órói í komandi
kosningum. Ég held að D- og S-list-
inn eigi nú eftir að fá mest í sinn
hlut. Ég læt ósagt um hvernig hinir
flokkarnir koma út.
Spurningakeppm framhaldsskólanna:
Meiri nákvæmni
í spurningunum
Austfirðingur skrifar:
Ég horfði á úrslitaþáttinn í spurn-
ingakeppni framhaldsskólanna þar
sem Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
og Menntaskólinn við Sund áttust
við. Eins og allir ættu að vita þá var
um tvísýna keppni að ræða og úrslit-
in voru Fjölbrautaskólanum í hag,
54 gegn 53. Tæpara mátti það varla
standa.
Það sem ég er að velta fyrir mér
er að Menntaskólinn við Sund hefði
getað unnið ef ein spumingin til
þeirra heföi verið lesin eða skrifuð
rétt. Þar var spurt hvaða fjallavegur
er á milli Berufjarðar og Breið(a)-
dalsheiði. Spumingin heföi átt að
vera hvaða fjallavegur er á milli
Breiðdalsheiðar og Berufjarðar, sem
er Öxi.
Eins og flestir ættu að vita er mik-
ill munur á Breiðadalsheiði og
Breiðdalsheiði því Breiðadalsheiði
er fyrir vestan (og því fullt af fjall-
vegum þaðan til Berufjarðar) en
Breiðdalsheiði fyrir austan. Skiptir
því miklu máli að spyrjendur séu
mjög nákvæmir í spumingum sem
þessum.
Þó MSingar hefðu kannski ekki
vitað þetta þá finnst mér þetta samt
leiðinlegt.
Sjónvarpið gæti þó alveg bætt mér
upp þessi leiðindi með því að hafa
hljómleika í sjónvarpinu með norsku
hljómsveitinni A-HA.
Jón Baldvin hæfur leiðtogi
Guðmundur Guðmundsson skrifar:
Að undanfornu hefur því hvað eft-
ir annað verið haldið fram í blöðun-
um að fylgi Alþýðuflokks fari mjög
dvínandi.
Ég verð að segja aftur á móti að
mér virðist Jóni Baldvini haldast
frirðu vel á sínu fylgi. Þrátt fyrir
ýmsar sviptingar stjómmálana, allt
frá kjassi, blíðmælum og þreifingum
upp til hrindinga og pústra.
Ekki væri ég hissa, þótt Jón Bald-
vin ætti sér glæsta framtíð á stjóm-
málasviðinu. Enda er hann að mér
sýnist langmesti hæfileikamaðurinn
á vinstri vængnum; fijálslyndur í
skoðunum og afburða vel að máli
farinn.
Það þykir mér augljóst að Jón
Baldvinn svipi mjög til síns fræga
föðurs, er mestur hefur verið ís-
lenskra stjómmálamanna á þessari
öld.
í 4 gr. byggingalaganna frá 1978 er svo fyrir lagt að í byggingareglugerð
komi fram ákvæði um umbúnað bygginga svo henti öldruðum og hreyfi-
hömluðum.
Páll Önundarsson vörubílstjóri:
Gamla flokkaskipanin er náttúrlega
breytt og S-listinn á eftir að rass-
skella þá alla duglega. S-listinn á því
eftir að fá mikið af atkvæðum frá
hinum flokkunum en það gjörbreytir
stöðunni frá því sem hún hefur alltaf
verið.
Hvaða flokkur
- berst gegn áfengisbölinu?
Árni Gunnarsson hringdi:
Af öllum þessum flokkafjölda og
stefnum þeirra þá virðist enginn flokk-
urinn ætla að reyna að stemma stigu
við áfengisneyslu íslendinga. Ég veit
ekki hvaða flokk ég á að kjósa því ég
vil að flokkurinn, sem ég kýs, berjist
gegn áfengisbölinu sem er í landinu.
Ég er mótfallinn því að fá bjórinn
inn í landið og er þess alveg fullviss
að engin þjóð myndi fara eins illa út
úr því og við. Okkur væri nær að læra
af reynslu annarra og koma í veg fyr-
ir að slíkt hendi okkur.
„Ég er mótfallinn því að fá bjórinn inn í landið og er þess alveg fullviss að
engin þjóð myndi fara eins illa út úr því og íslendingar."
Heiðar Jóhannsson innkaupamaður:
Það er engin spurning, D-listinn á
eftir að koma sterkast út. Ég vona
bara í leiðinni að S-listinn detti út,
gleymist fljótt og vel.
wtÁ