Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1987, Page 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1987.
KOSNINGASJÓÐUR
BORGARAFLOKKSINS
Hægt er að senda framlog
á tékkareikning
nr. 1234
ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS
LAUGAVEGUR 105 - 105 REYKJAVÍK
BORGARA
FLOKKURINN
-ttokknrmeðtnuatíð
SkaHan 7. Ptetnr. 106 Slml 91-66 96 29 Nnr. 9436-6160
kC
MRLjl
íó
SALLAFÍN
SÆTAÁKLÆDI!
Sætaáklæði, hjólkoppar og gúmmímottur.
í flestar gerðir bifreiða!
Straumur bíleigenda liggur í Borgartún 26.
Þar er úrvalið mest í bílinn. Láttu sjá þig
sem fyrst. Þú og bíliinn þinn njótið góðs af
heimsókninni.
BORGARTÚNI 26, SÍMI 62 22 62
Stórmarkaður bíleigerida
Hvers vegna?
Hvers vegna kýs ég Þjóðarflokk-
inn? Þessari spurningu er auðvelt
að svara. Fyrsta og mesta ástæðan
er sú að í 1. sæti listans á Vestfjörð-
um er frambjóðandi sem ég treysti
betur en frambjóðendum hinna list-
anna. Það hefur alltaf staðið nær
mér að kjósa menn en flokk. Flokk-
ur er líkur ókind þeirri er menn
glímdu við er tungl óð í skýjum.
Hvergi hægt að festa hönd á neinu.
Það hefur of lengi verið siðvenja að
taka trú á „flokk“ og af þeirri trú
göngum við ekki þótt hann snúist
öndverður gegn öllu sem áður var
talið rétt. Stefnuskrár eru samdar
þannig að hvergi sé nein föst viðmið-
un. Flokkseigendur hafa gengist upp
í þessu, vissir um að kjósendur
bregðast ekki. Alltaf er hægt að
ganga að sömu mörkuðu hjörðinni
á kjördag. Mál er að þessu linni. Trú
getur verið góð en trú án skynsemi
er ekki af hinu góða.
Á Vestfjörðum vill þannig til að
gömlu flokkarnir eru allir í rúst eins
og koma mun á daginn þegar talið
verður - það eru þeirra rangarök. Á
þeim rústum munum við byggja nýj-
an flokk. Við erum byrjuð og munum
halda áfram. Ef alltaf tekst eins vel
með val manna í efstu sætin á Vest-
fjörðum þurfum við engu að kvíða.
Við þessar kosningar er val mitt
auðvelt. í 1. sæti Þjóðarflokksins á
Vestfjörðum er Jóna Valgerður
Kristjánsdóttir - og hún nýtur
trausts manna úr öllum flokkum og
starfsstéttum - enda alltaf verið í
nánum tengslum við vestfirskt at-
vinnuh'f - og þá sérstöðu sem það
hefur. Hvernig ætti ég að geta kosið
stjórnarflokkana? Ég er bóndi á
vestfirskan mælikvarða og ég veit
að það voru stjómarflokkamir sem
settu búvörulögin, stjóm Stéttar-
sambandsins misskildi sitt hlutverk
en sökin er hjá stjórnarflokkunum -
báðum. Hlutur Sjálfstæðisflokksins
er síst skárri - hans kröfur vom
bændum erfiðari - og nú hagar hann
sér eins og óknyttastrákur, sem
þrætir fyrir aðild, þótt hann viti upp
á sig skömmina. Búvörulögin em
okkur erfiðari en 20 ára harðinda-
kaflinn - þá áttum við von um betri
tíð. Búvörulögin lögbundu harðind-
in. Nú segjum við ekki „nær sem þú
mig hirtir hér/hönd þína ég glaður
kyssi“. Aðeins 25-40% eigin flokks-
manna þessara fi-ambjóðenda vilja
hafa þá í 1. sæti - eftir langa þing-
setu.
Frá menguðum ökrum al-
þjóðlegs auðvalds
Fyrir 15 árum hélt ég að samtök
bænda ættu heima í ASl eins og t.d.
byggingamenn. Allir þurfa þak yfir
höfuðið og allir þurfa að eta. Nú er
komið í ljós að formaður ASÍ og
KjáUarinn
Halldór Þórðarson
bóndi, Laugalandi
Alþýðuflokkurinn telja sína verstu
andstæðinga þá bændui- sem fi-am-
leiða algjörlega með innlendum
aðföngum en setja skilyrði fyrir und-
irritun kjarasamninga að ekki verði
lögð steinvala í götu verksmiðjubúa
sem framleiða 100% með innfluttu
korni frá menguðum ökrum alþjóð-
legs auðvalds. Sennilega væru
viðbrögð önnur ef til stæði að flytja
inn erlent vinnuafl sem tæki lítið
kaup. Þetta eru hliðstæður. Þess er
lítil von að vestfirskir bændur leggi
sín atkvæði inn á reikning til þess
að fleyta Ásmuqdi eða Karli Stein-
ari á þing. Frambjóðandi Alþýðu-
bandalagsins á Vestfjörðum segir í
Þjóðviljanum 27. mars sl. „Því leggj-
um við Alþýðubandalagsfólk á
Vestflörðum áherslu á að taka verð-
ur upp gjörbreytta stefhu í land-
búnaði sem grundvallast á því
markmiði að halda landinu í byggð.
Eitt mikilvægasta atriði í þeirri
nýju stefnu er að færa verk-
smiðjubúskapinn út á land (let-
urbr. mín) og koma honum undir
framleiðslustjómun". Ef þessi verk-
smiðjubúskapur er stefna Alþýðu-
bandalagsins, sem það vill taka upp
í samvinnu við Alþýðuflokkinn, og
fær að dafna leysast mál vestfirskra
bænda á einn veg. Verksmiðjubú
hafa hingað til ekki fært neytendum
ódýrari vöm þótt þeim sé haldið
uppi af bönkunum. Lausnin sem við
viljum er ekki sú að stofha verk-
smiðjubú með tilheyrandi fjár-
magnskostnaði í stað hefðbundins
búskapar með fjölskyldubústærð
sem íslenskur landbúnaður hefur
aðlagast. Hinn fslenski Glistrup-
flokkur býður fram á Vestfjörðum.
Hann er þar á ufidanþágu. Skv.
stefnuskrá er hann flokkur hinna
sjúku og snauðu - flokkur litla
mannsins - mjög fallegt allt saman.
Þessi flokkur ætti ekki að líkja sér
við stefnu Gunnars Thoroddsen, eins
mennskasta stjórnmálaleiðtoga síð-
ari ári. Ég held að fátt sé jafnfjarri
sannleikanum og sú samlíking.
Óheft frelsi er stjórnleysi og þá erum
við komin að lögmáli frumskógarins.
Við vitum að Borgaraflokkurinn á
allt sameiginlegt með Sjálfstæðis-
flokknum nema formanninn. Eftir
kosningamar verður settur einn
formaður í stað tveggja nú. Þá er
það mál leyst.- þeir eiga prinsinn.
Fyrr á ámm kom það fyrir í N-Isa-
fjarðarsýslu að frambjóðendur náðu
ekki meðmælendatölunni á kjördag
- svo gæti enn farið - bæði hjá Borg-
araflokki og Kvennalista. Já, ekki
má gleyma hans hlut. Hann átti
ágætar konur á Alþingi sem sómi
var að. Þær ætla allar að hætta. Á
meðan efstu menn allra lista á Vest-
fjörðum vom karlar heyrðist hvorki
hósti né stunda frá þessum flokki en
eins og við vitum er hans aðalbar-
áttumál að koma fleiri konum á
Alþingi. Nú vill svo til að á Vest-
fjörðum er kona í 1. sæti á þverpóli-
tískum lista - að vísu ekki aðeins
vegna þess að hún er kona.
Maður skyldi ætla að vestfirskum
kvennalistakonum væri mikið
kappsmál að koma einmitt þessari
konu á Alþingi sem verðugum full-
trúa vestfirskra kvenna. Reyndin
varð önnur. Ekki var fyrr kominn á
kreik orðrómur um að Jóna Valgerð-
ur, formaður kvenfélagasambands
Vestfjarða, yrði í 1. sæti á þverpóli-
tískum lista en nokkrar konur í
kjördæminu drifu upp kvennalista í
von um að geta hindrað kjör Jónu
Valgerðar. Engum dettur í hug að
Kvennalistinn fái mann kjörinn hér.
Þau atkvæði sem sá listi fær verða
send „suður“ og bætt við einhverja
óskilgreinda konu á Sv-hominu. En,
ágætu konur, ykkur tekst ekki að
bregða færi fyrir 1. mann Þjóðar-
flokksins.
Kjörorðið er - Jóna Valgerður
skal á þing.
Halldór Þórðarson
„Búvörulögin eru okkur erfiðari en 20 ára
harðindakaflinn - þá áttum við von um
betri tíð. Búvörulögin lögbundu harðind-
• u
Memung_______________
Sungið við Sund
Tónleikar Kórs Menntaskólans við Sund í
Langholtskirkju 10. april.
Stjórnandi: Þóra Fríða Sæmundsdóttir.
Anægjuefni hefur það verið að með
nýjum starfsháttum framhaldsskól-
anna hefur vegur tónmennta farið
vaxandi innan þeirra. Bæði er að
hér skilar sér betri og almennari
músíkölsk gmnnskólun en áður
tíðkaðist og svo að tónlistarnám er
tekið sem hvert annað alvömnám
Tónlist
Eyjólfur Melsted
eftir að áfangakerfi komst á. Þetta
hefur meðal annars haft í för með
sér að kór, og jafnvel hljómsveit, er
nú til við annan hvem framhalds-
skóla í landinu og meira en það. En
því trúa víst fæstir hversu skammt
aftur þarf að leita til að vart yrði
fundinn sá framhaldsskóli í landinu
þar sem skikkanleg söngsveit þrifist
í hæfilegum hlutföllum
Einn þeirra framhaldsskóla sem
haldið hafa úti kór um árabil er
Menntaskólinn við Sund. Þar hefur
að vísu ekki varið lagt jafnfeikn-
mikið upp úr kórstarfinu og við
suma aðra menntaskóla en þó hefur
það verið fastur mikilvægur þáttur
í skólastarfi og félagslífi. Kórinn er
ekki fjölmennur. Á stærðina svona
eins og rétt þokkalegur hreppakór.
En hann sýndi á þessum tónleikum
að hann á sér metnað. Jafnt að því
er virðist músíkalskan sem félagsleg-
an metnað og reynir að blanda því
saman i hæfilegum hlutföllum.
Markinu náð
Músíkalski metnaðurinn felst í því
að taka fyrir verkefhi af vandaðra
tagi, þ.e. þekkt dæmi úr kórsögunni
og vandaðar útsetningar af því sem
ekki var upprunalega samið fyrir kór
þessarar gerðar. Svo er vitanlega
reynt að vanda flutninginn og tekst
vel til í þeim efnum þótt ekki sé
verið að stefna þar til hæsta listræns
þroska. Raddimar em ekki þjálfaðar
eða skólaðar upp til hópa en þau
syngja hreint það sem þau ráða á
annað borð við. Verkefnavalið var
líka að mestu vel við þeirra hæfi.
Félagslegi metnaðurinn felst i því
að þau virðast ekki álíta tilgang
kórsins þann einan að sýna hvað þau
geti ráðið við músíkalskt heldur líka
að skemmta sjálfum sér og öðrum.
Af söngskrá þeirra að ráða er það
veigamikill þáttur. I söng kórsins
fléttuðust þessir tveir þættir í mjög
svo þekkilegum hlutföllum en oft
vill einmitt brenna við að annar
gleymist á kostnað hins. Og með því
held ég að markmiðunum sé náð á
vel fullnægjandi hátt.
EM